Morgunblaðið - 16.08.1984, Side 5
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 16. ÁGÚST 1984
5
David Fate Norton, formaður Hume-félagsins, í ræðustól við setningu málþingsins í gær.
Málþiitg um Hume sett
í GÆR var sett á Hótel Loft-
leiðum málþing á vegum
Hume-félagsins um heim-
spekinginn David Hume.
Hume-félagið er alþjóðlegt
félag heimspekinga og ann-
arra sem hafa sérstakan
áhuga á Hume. Þetta er í
fyrsta skipti sem félagið
heldur málþing hér á landi
og er jafnframt eitt það um-
fangsmesta sem það hefur
haldið.
Mikael M. Karlsson, dósent í
Háskóla íslands og aðalskipu-
leggjandi málþingsins, setti
þingið. í ræðu sem David Fate
Norton, formaður Hume-félags-
ins, hélt við upphaf málþingsins,
sagði hann m.a. að aðalástæðan
fyrir því að þingið væri nú hald-
ið í Reykjavík væri vegna Páls
S. Árdal, en hann hefur skrifað
merkileg rit um heimspeki
Humes.
Páll S. Árdal, sem er prófess-
or í Queen’s-háskóla í Kanada,
flutti fyrsta fyrirlesturinn á
málþinginu. Hann kvað það
mikinn heiður fyrir sig að vera
valinn til að flytja fyrsta fyrir-
lesturinn á þinginu, og sér væri
mikil ánægja að halda fyrirlest-
ur um uppáhaldsheimspeking
sinn hér á landi.
I dag verða fluttir 13 fyrir-
lestrar á málþinginu frá kl.
9—22. Meðal fyrirlesara verða
Alasdair Maclntyre og Eyjólfur
Kjalar Emilsson.
Innstæður á ávísana-
reikningum geta verið
vaxtalausar í 20 daga
VEXTIR af ávísanareikningum eru
hæstir í Alþýöubankanum eöa 15%.
Búnaðarbankinn greiðir 5% vexti á
ávfeanareikningsinnÍ8tæður, en aðrir
bankar greiða milli 7 og 12%. Hins
vegar eru þessir vextir ekki sam-
bærilegir við ávöxtun fjár á öðrum
reikningum.
Vextir af ávfsanareikningum
eru reiknaðir af lægstu innistæðu
á hverju tíu daga tfmabili, 1.—10.,
11.—20. og 21,—30., en á spari-
sjóðsreikningum eru þeir reiknað-
ir daglega. Þannig geta liðið allt
að tuttugu dagar án þess að fé á
ávísanareikningum beri vexti.
Að sögn Stefáns Hilmarssonar,
bankastjóra Búnaðarbankans hef-
ur ávöxtun á umræddum reikning-
um sáralitla þýðingu fyrir flesta
launþega, þar sem hún er oft lítil
eða engin. Sem dæmi má nefna að
ef ávísanareikningur stendur á
núlli fyrsta dag mánaðar, reiknast
engir vextir fyrir tímabilið 1,—10.,
skiptir engu þó lagt sé inn á reikn-
inginn þann fyrsta. Ef öll inni-
stæðan er tekin út þann tuttug-
asta, fær eigandinn heldur enga
vexti greidda. Innistæður á ávís-
anareikningi geta því, eins og áður
er sagt, verið vaxtalausar í 20
daga. Sagði Stefán aðalatriðið að
almenningur áttaði sig á þessu.
Aðspurður sagði Stefán að Búnað-
arbankinn hefði ákveðið að halda
vöxtum á ávísanareikningum
óbreyttum í fyrstu lotu, en það
verður hugsanlega endurskoðað.
Þá var ætlunin að brydda upp á
nýjungum, en vegna tæknilegra
örðugleika reyndist það ekki unnt.
Aðspurður sagði Stefán Hilm-
arsson það merkilegt hvað lítið bil
Stefán Hilmarsson, bankastjóri
Búnaðarbankans.
væri í raun milli banka hvað varð-
ar vexti á inn- og útlánum, en það
misræmi sem nú er ætti eftir að
minnka. Búnaðarbankinn breytti
ekki vöxtum á verðtryggðum inn-
lánum og útlánum. Þá sagði Stef-
án það hafa verið stefnu Búnað-
arbankans þegar teknar voru
ákvarðanir um vexti að draga úr
eftirspurn eftir eyðslu- og fjár-
festingarlánum og því farið eftir
vísbendingum og vilja stjórnvalda.
Hækkun vaxta útlána var hlut-
fallslega lægst til atvinnuveganna
hjá Búnaðarbankanum miðað við
vexti annarra útlána; er þá átt við
yfirdráttarlán á hlaupareikningi
en í því formi eru meðal annars
viðbótarafurðalán.
AFSLÁTTUR
Hafi það fariö fram hjá einhverjum
þá viljum viö ítreka hér að nú
bjóðast hjá ACU þvílík kostakaup á notuðum bílum
að annað eins hefur ekki þekkst fyrr.
vegna húsnæðisbreytinga höldum við
RÝMINCARSÖLU Á NOTUÐUM
BÍLUM
og bjóðum 20—40% afslátt
á öllum notuðum bílum þessa viku.
ENCIN UTBORCUN,
kaupverðið greiöist á 6—12 mánuðum.
ECILL VILHJÁLMSSON HF.
Smiöjuvegi 4, Kópavogi. Sími 79944 .