Morgunblaðið - 16.08.1984, Side 9
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 16. ÁGÚST 1984
9
Iliiíi ir WBmam
pj r V/SA
SHHH
VISA kynnir viirn
Og þjónustustaói
FLUGFÉLÖG:
Arnarflug, Lágmúla 7 91-29511
Flugfélag Norðurlands, Flugvelli,
Akureyri 96-21824
Flugleiðir, Reykjavíkurflugvelli 91-26011
Álfabakka 10 91-79500
Hótel Esju 91-685011
Lækjargötu 2 91-27477
Flugvelli, Akureyri 96-22005
Flugvelli, Egilsstöðum 97-1210
Strandgötu 25, Hafnarfirði 91-54930
Ketilsbraut, Húsavík 96-41140
Höfn, Hornafirði 97-8250
Flugvelli, ísafirði 94-3000
Aðalstræti 13, Patreksfirði 94-1133
Bárustíg 2, Vestm.eyjum 98-1174
Flugskóli Helga Jónssonar,
Reykjavíkurflugvelli 91-10880
Flugþjónusta Sverris Þóroddssonar,
Reykjavíkurflugvelli 91-28011
Versliö ineö V/SA
MkÖáQDgS?
NATO-nei
I ikke málet
Kjarnorkuvopnalaus svœði
Samninga strax!
Guðrún Helgadóttir: Brýnt að ísland verði aðili að
kjarnorkuvopnalausu svœði á Norðurlöndum.
Ný friðarhreyfing
Enn á ný berast fréttir af því aö gert skuli átak í þágu friöar á
Noröurlöndum og þegar rýnt er í fréttir af þessu frumkvæöi eru
nöfnin sem fyrir því standa gamalkunn. Um „grasrótarhreyf-
ingar“ hins fámenna hóps er rætt í Staksteinum í dag. Þar
kemur meöal annars fram að Guörún Helgadóttir, þingmaöur
Alþýöubandalagsins, hefur setiö ráöstefnu í Noregi og staöiö
þar aö samþykkt sem ekki miðar aö því aö ísland segi sig úr
NATO.
Fámennur
friðarhópur
1 júní 1981 fóru þcir
Olafur R. (■rínuMon og
Einar Karl Haraldason,
sem nú eru báðir ( forystu-
sveit Þjóðviljamanna, og
María Þorsteinsdóttir, sem
gefur út Fréttir fri Sovét-
rikjunum með sovéska
sendiráðinu í Reykjavík, til
fundar við norræna frið-
arboðendur á Álandseyj-
um. Þar logöu menn á ráð-
in um það hvernig best yrði
staðið að því að vinna ýms-
um hugmyndum fylgi á
Norðurlöndum sem stang-
ast á við mcginþætti í varn-
arstefnu Atlantshafsbanda-
lagsins og eru að öðrum
þræði aö minnsta kosti til-
raun til að rjúfa samstarfið
í bandalaginu, en upplausn
í NATO er til að mynda
kjarna „friðarstarfs"
Maríu Þorsteinsdóttir í
anda Kremlverja.
Meðal þeirra sem sóttu
Álandseyjafundinn var Eva
Nordland, dósent frá Nor-
egL Hún kom hingað til
lands í janúarlok á þessu
ári og flutti ræðu á stofn-
fundi Samtaka um friðar-
uppeldi. Eva Norland var á
sínum tíma upphafsmaður
friðargöngunnar frá Kaup-
mannahöfn til Parísar. í
sjónvarpsviðtali við Ög-
mund Jónasson, sem sýnt
var 29. janúar siöastliðinn,
lýsti hún KGB-njósnaran-
um Arne Treholt sem veik-
geðja manni sem lét erlent
ríki misnota sig. Siðar hafa
þó líkur verið leiddar að
því að Treholt stundaði
landráð af yfirlögðu ráði í
von um fé, áhrif og völd.
Nú berast nýjar fréttir af
frumkvæði Evu Norland.
Hún hafði frumkvæði að
ráðstefnu sem haldin var í
Noregi um verslunar-
mannahelgina um kjarn-
orkuvopnalaust svæði á
Norðurlöndum undir heit-
inu „Samninga strax!“.
Meðal ræðumanna á ráð-
stefnunni var Guðrún
Helgadóttir, þingmaður Al-
þýöubandalagsins, en ekki
kemur neinum á óvart að
hún leggi sitt lóð á þessa
vogarskál.
Hitt vekur athygli hve
oft er getið sama fólksins
þegar rætt er um hinar
ýmsu friðar-uppákomur á
Norðurlöndunum. Þar er
Eva Norland greinilega í
fremstu röð og afsannar þá
kenningu friðflytjendanna
að um grasrótarhreyfingu
fjöldans sé að ræða. Þessi
kenning hefur hvað eftir
annað verið afsönnuð hér á
landi vegna fámennis á
fjöldafundum Samtaka
herstöðvaandstæðinga.
Helst er friðarstarf nú
stundað hér á landi á
Húsavík og í nágrenni við
Svein Rúnar Hauksson
lækni þar. Séra Sverrir
Haraldsson i Borgarfírði
eystra lét þess getið i Þjóð-
viljanum 10. ágúst síðast-
liðinn að „af Austurlandi
hafí aðeins tvær manneskj-
ur farið, en ég sjálfur gat
það ekki af heilsufars-
ástæðum. Jafnvel mun
enginn hafa farið frá Nes-
kaupstað" þegar efnt var
til mótmælagöngu „friðar-
hreyfingar kvenna" á Þórs-
höfn á Langanesi.
Ómmur í frið-
arhreyfingu
Guðrún Helgadóttir,
þingmaður, lýsti för sinni á
fund Evu Norland i Þjóð-
viljanum 11. ágúst og segir
þar að hér sé „á ferðinni
enn ein grasrótarhreyfíng
friðarsinna á Norðurlönd-
um. Brýnt væri aö íslend-
ingar kæmust inní þetta
samstarf." Fróðlegt væri
að fá það upplýst hjá Guð-
rúnu Helgadóttur, sem
eins og kunnugt er lét Al-
þingi greiða póstkostnað
við dreifíngu á fundarboði
Friðarhreyfíngar kvenna
nú í vor, hvað hún telur
nauðsynlegt að tengjast
Evu Norland í mörgum
„grasrótarhreyfíngum" til
að friðurinn sé cndanlega
tryggður.
Annars sagðist Guðrún
hafa kynnst einni
„skemmtilegustu friðar-
hreyfíngunni" sem hún
hefði orðið vör við í Noregi.
Þessari hreyfíngu lýsir
Guðrún þannig: „Eldri
konur hafa myndað með
sér félagsskap, Ömmufrið-
arhreyfínguna, sem stæði
fyrir ýmiss konar aðgerð-
um til að vekja athygli á
boðskap friðarins. Þannig
hefðu þær daglega verið
ekki færri en tíu konur
fyrír framan Stórþingshús-
ið norska og dreift áróðri
til vegfarenda."
Frá ráðstefnunni sem
efnt var til undir kjörorð-
inu „Samninga strax!" var
að sjálfsögðu skýrt i norsk-
um blöðum. í Aftenposten
er tilgangi hinnar nýju
„grasgrótarhreyfingar"
lýst á þann veg, að fyrir
henni vaki að láta rifta
samningum sem Norö-
menn hafa gert við Banda-
ríkjamenn og Breta um af-
not herflugvéla þeirra af
norskum flugvöllum, að
Norðmenn hætti þátttöku í
kjarnorkuáætlananefnd
Atlantshafsbandalagsins
en haldi áfram aðild að
NATO. Þá vilja samtökin
að á árinu 1985 samþykki
löggjafarþing allra Norður-
landa ályktun um að koma
á fót einangruðu kjarn-
orkuvopnalausu svæði á
Norðurlöndunum.
f frétt Aftenposten 7.
ágúst segir, að á blaða-
mannafundi eftir helgar-
ráðstefnu undir kjörorðinu
„Traktat NÁ“ eða „Samn-
inga strax!" hafí norrænir
þátttakendur í henni neit-
að því að takmarkið með
kjarnorkuvopnalau.su
svæði á Norðurlöndum
værí að Danmörk, ísland
og Noregur segðu sig úr
Atlantshafsbandalaginu.
f frétt Aftenposten segir
að samningurinn sem sam-
tökin kenna sig við sé
hvggður á áliti Jens Even-
sen, þjóðréttarfræðings.
T5>ítamatka?utinn
sQ-tettisoötu 12-18
Datsun Sunny 1.5 1982
blásans, 5 gíra, ekinn 23 þús. km. 2 dekkja-
gangar og fl. Verö kr. 260 þús. (Sklptl á
ódýrari.)
Escort XR 3i 1984
sem nýr. ekinn 10 þús. km. 5 gíra. útvarp
o.n. Verð 430 þús.
Benz 280 S 1976
silturgrár. sjálfsklptur m/öllu, sóllúga o.fl.
Aukahlutir. Bfll i sérflokki. Verö 510 þús.
Drif á öllum.
Audi Quattro 80 1983
rauösans, 5 gira, ekinn 23 þús. km. sem nýr.
Verö kr. 835 þús. (Skipti á ódýrari.)
Honda Civic 1982
silfurgrár, ekinn 32 þús. Sjálfskiptur, útvarp,
segulband, snjó- og sumardekk. Verö 255
Toyota Crown diesel 1982
blágrár. eklnn 32 þús. Sjálfskiptur. aflstýri.
útvarp, segulband. snjó- og sumardekk.
Verö 490 þús.
Peugeot 505 GR 1982
drapplltur. ekinn aöeins 29 þús. km. Rúm-
góöur en sparneytinn elnkabíll. Verö 430
þús. (Skiptl á ódýrari.)
Nýr bíll Subaru 1800 (4x4) 1984
rauösanseraöur, ekinn 3 þús. km. Hátt og
lágt drif, aflstýri, rafmagn i rúöum. Vandaö
kassettutæki. Sílsalistar, dráttarkúla o.ft.
aukahlutír. Verö 440 þús.
Mazda 626 (1.6) 1983, rauöur, 4ra dyra. Ek-
inn 30 þús. km. Útvarp, segulband o.fl. Verö
kr. 340 þús. (Skipti á ódýrari framdrifsbíl).
Citroén CX Roflex 1982
Ijósdrapp, ekinn 27 þús. km. Aflstýri, útvarp,
segulband, snjó- og sumardekk. Toppbill.
Verö 430 þús.
Toyota Corolla Coupé
(Hatchback) 1980
rauöur, ekinn 53 þús. km. Vél: 1600
D.O.H.C. 5 gira, útvarp, segulband o.fl. Verö
Toyota Tercel Sport 1982
blásanseraöur, ekinn 40 þús. Verö 250 þús.
Honda Accord EX 1983
blásanseraöur, ekinn 19 þús. km. Sjálfskipt-
ur. Powerstýri, útvarp, segulband. Verö 450
þús. (Skipti á ódýrari.)
Volvo 244 G.L. 1982
rauósans, aflstýri, 2 dekkjagangar og fl. Ek-
inn 40 þús. km. Verö kr. 420 þús.