Morgunblaðið - 16.08.1984, Qupperneq 19
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 16. ÁGÚST 1984
19
B» : 1984^ 7 E19B(*)PM6 :30~
i^íœíSéí
A«l4:±Alf500ra
*£ 800P3
: /\A9-U-Kft«B(7>r3t9>K)
*S6BTT,Si«^aga
±ffl£«S£isi£«a
±œttíé*a
±ffl^p-UTé«a
±ffl*Jfi:i-7*
±nsn*«a
ttffd««'f >±ffl-84*ír*llíí
±ffl(ti, ±fflm*>»*í»#
#ffl«T##*llé
±ffl»/Jv4»1fc#«ll*. IfflíPTAaáé
±n«X*M#r. ±ffl**#I«*r
±fflP-*y-*9* ±ffl*P-*'.>-?-7 7
')-'J=7l, ±ffl7'fí>Xí?7^
±ffl«*7-f * * jKanw >x??7
mm&ofmtZc
Hér sést söngskrá fri tónleikunum f Uedaborg 19. júlí þar sem fram komu
auk Hamrahlíðarkórsins kórar fri Japan og Hong Kong. Neðst á skránni er
merki hátíðarinnar „Asía Cantat“.
Tónleikar í stórmarkaði í Uedaborg. Á borðanum fyrir ofan kórinn er hann
boðinn velkominn bneði á japönsku og ensku.
gefur að skilja var oft um tungu-
málaerfiðleika að ræða, íslend-
ingarnir kunnu því miður ekki skil
á japönsku og enskukunnátta Jap-
ana reyndist oft af skornum
skammti. Jafnvel þótt enskan geri
oft tilkall til þess að vera al-
heimstungumál er ekki þar með
sagt að hún sé til þess fallin að
miðla hugsun fólks af öllu þjóð-
erni. Oft reyndist erfitt að skilja
það sem Japanirnir voru að reyna
að koma til skila, en oftar mis-
skildist það sem íslensku ferða-
langarnir sögðu. Mest mæddi á
fararstjórunum tveimur, Knut
Ödegaard og Árna Böðvarssyni, og
Þorgerði Ingólfsdóttur kórstjóra í
þessu sambandi. Hér var þó aðeins
um það að ræða að reyna að brúa
það bil sem lá milli hinna ólíku
menningarheima, sem báðir aðilar
voru af vilja gerðir að gera. Að
lokinni máltíð hélt kórinn til stór-
markaðar í borginni. Eftir skoð-
unarferð um verslunina í boði eig-
endanna hélt kórinn stutta tón-
leika fyrir viðskiptavinina sem
lauk með hringdansi um húsa-
kynnin. Að skilnaði fékk söngfólk-
ið gefna blævængi og siðar var
haldið aftur til ráðhússins. Var
kórunum tveimur þar haldin veg-
leg veisla, þar sem meðal annars
var boðið uppá skemmtiatriði,
leikið á koto (japanskt strengja-
hljóðfæri), stignir japanskir dans-
ar, auk þess sem gestgjafarnir
sungu saman. Um miðja veisluna
var gestunum boðið að ganga til
stofu þar sem fór fram svokölluð
teseremónía. Þessi seremónía er
einn af rótgrónum siðum Japana
og fylgir mjög ströngum reglum.
Seremónían er framkvæmd af
sérmenntuðum konum, en fullnað-
armenntun í faginu hlýtur kona á
20 árum. Teið reyndist afar beiskt
og sérkennilegt. Bar mönnum ekki
saman um ágæti tesins, en sere-
mónían féll í góðan jarðveg.
Erfídir tónleikar
Er hinni löngu og glæsilegu
veislu lauk gengu kórfélagar
stuttan spöl til tónleikahallarinn-
ar í Ueda. Þar hófust skömmu síð-
ar tónleikar, þar sem fram komu
kórar úr borginni, auk erlendu
gestanna. Nokkuð Jet-lag“, eða
tímaruglingur hrjáði enn ferða-
langana. Það var því með nokkr-
um kvíða sem kórinn hélt á sviðið
enda þreytan orðin mikil eftir
strangan dag. Tónleikarnir tókust
þó vel og kunnu áheyrendur vel að
meta sönginn. Ásamt kórnum kom
fram Pétur Jónasson gítarleikari
er lék einleik í áðurnefndu verki
Atla Heimis Sveinssonar tón-
skálds. Hann flutti einnig verkið
„Intermezzo" eftir sama tónskáld.
Meðal annarra verka á efnis-
skránni voru „Stemmur" Jóns Ás-
geirssonar við íslensk þjóðkvæði,
„Limrur" Páls P. Pálssonar við
limrur Þorsteins Valdimarssonar
og nýtt tónverk Mistar Þorkels-
dóttur „Scissors" við ljóð Knuts
Ödegaard, „Sakserne". Eftir tón-
leikana var kórinn keyrður á hótel
„Izumya-inn“, og var þar gengið
til hvílu að japönskum hætti, í
flatsæng á strámottum. Uti fyrir
féll regnið til jarðar og þrumur
heyrðust í fjarska. Þriðja degi
þessarar ferðar var lokið.
Benedikt Stefánsson er nemandi í
MH og féiagi í Hamrahlíðar-
kórnum.
Teseremónían sem lýst er í greininni. Þarna er verið að kenna kórfélögum hvernig halda skuli rétt á tebolla.
Veriö
velkomin.
ópavogsbúaT
athugið!
Við bjóðum alla almenna hársnyrtingu svo sem:
Permanent, klippingu, lagningu, hárþvott, litun,
tástur, strípur, skol, djúpnæringu o.s.frv.
Opiö frá kl. 9—18 á virkum dögum.
Lokað á laugardögum í sumar. -
Pantanir teknar í síma 40369.
HÁRGREIÐSLUSTOFAN
ÞINGHÓLSBRAUT 19.