Morgunblaðið - 16.08.1984, Blaðsíða 31
MORGUNBLAÐID, FIMMTUDAGUR 16. ÁGÚST 1984
31
Skotveiðifélag íslands:
Ólöglegt dráp
gæsa í sárum
Sveit Hvassaleitisskóla
á Norðurlandamót í skák
MORGUNBLAÐINU hefur borist
eftirfarandi frá Skotveiöifélagi ís-
lands.
„Þessa dagana eru gæsir í sárum
eöa farnar í felli, eins og það er
einnig nefnt. Fuglinn getur þá ekki
Sumargleðin:
Síðustu
skemmtanir
úti á landi
NÚ UM helgina verða síðustu
skemmtanir og dansleikir Sumar-
gleðinnar úti á landi á þessu sumri.
Þetta er fjórtánda sumarið sem
Sumargleðin hefur skemmt lands-
mönnum með „gríni, glensi, gamni“
og dansleikjum fyrir fólk á öllum
aldri.
í kvöld, fimmtudag, verður fjöl-
skylduskjmmtun í lþróttahúsinu
að Varmá í Mosfellssveit. Föstu-
dag verður skemmtun og dansleik-
ur í Festi í Grindavík og á laug-
ardagskvöld verður Sumargleðin í
Aratungu.
Eftir helgina taka Sumargleð-
ismenn sér örlítið fri, en í byrjun
september hefst Sumargleðin í
Broadway í Reykjavík. Þar gefst
fólki tækifæri til að framlengja
sumarið fram eftir vetri.
(flr frétutilkynningu)
flogið og á því fáa griðastaði nema
ár, vötn og sjó. Á undanförnum ár-
um hafa hins vegar borist fréttir um,
að menn drepi í verulegum mæli
gæsir í sárum. Nota þeir til þess m.a.
létta hraðbáta, stóra háfa og ífærur.
Skotveiðifélag íslands vill
benda hlutaðeigendum á, að gæsa-
veiðar á þessum tíma eru bannað-
ar með lögum. Auk þess fordæmir
stjórn félagsins þessa aðferð við
fugladráp og skorar á menn að
vera vel á verði gegn slíku athæfi.
Verslanir, kaupmenn og veitinga-
húsaeigendur eru hér með varaðir
við að kaupa þessa ólöglega
fengnu bráð enda er hér um allt
annan gæðaflokk villibráðar að
ræða en haustskotinn fuglinn. Fé-
lagar í SKOTVÍS munu umsvifa-
laust kæra alla þá, sem staðnir
verða að drápi gæsa í felli, enda er
hér um að ræða lögbrot og gróft
siðabrot. Stjórn félagsins mun
áminna og hvetja lögreglu, sýslu-
menn og önnur yfirvöld úti á landi
til að vera vel á verði við þessum
verknaði.
Einnig munu bændasamtökin
verða upplýst um málið og land-
eigendur hvattir til að veita ekki
mönnum aðgang að svæðum, þar
sem hætta er á að slík lögbrot
verði framin.
Stjórn SKOTVÍS skorar á hvern
þann, sem kann að verða var við
eða gruna aðila um ólöglegt at-
hæfi af þessu tagi að koma upplýs-
ingum um það áleiðis til stjórnar
SKOTVlS eða til næsta löggæslu-
yfirvalds."
FÖSTUDAGINN 17. þ.m. hefst í
Svíþjóð Norðurlandamót grunn-
skólasveita í skák 1984. Mótið er
haldið í Hapranda, sem er við
landamæri Svíþjóðar og Finn-
lands, og stendur yfir í þrjá daga.
SÍÐASTA íslandskynning Norræna
hússins fyrir erlenda ferðamenn verð-
ur fimmtudagskvöldið 16. ágúst kl.
20.30.
Þá mun ólafur H. Óskarsson
skólastjóri segja frá Breiðafjarðar-
eyjum og sýna litskyggnur til skýr-
ingar. Erindið er flutt á dönsku.
Að loknu kaffihléi verða sýndar
tvær kvikmynda Ósvalds Knudsen,
Ströndin og Hrognkelsaveiðar. Að-
gangur er ókeypis og allir eru vel-
komnir.
Fimm ungir skákmenn frá
Hvassaleitisskóla í Reykjavík
héldu utan á þriðjudaginn. Eftir
að mótinu lýkur munu þeir dvelja
í fimm daga í Kaupmannahöfn.
í anddyri stendur yfir sýning á
íslenskum skordýrum, sem sett var
upp í samvinnu við Náttúrugripa-
safn Islands og i bókasafninu er
sýning á íslensku prjóni, sem sett
var upp í samvinnu við Þjóðminja-
safn Islands.
Bókasafn og kaffistofa eru opin
til kl. 22.
Mjög góð aðsókn hefur verið að
Opnu húsi í sumar og kunna erlend-
ir ferðamenn mjög vel að meta
þessa kynningu á landi og þjóð.
(Fréttatilkynning)
Norræna húsið:
Síðasta Opna húsið
Sveit Hvassaleitisskóla ásamt fararstjórum. Talið frá vinstri. Þröstur Þór-
hallsson, 15 ára, Kristján Sigtryggsson, fararstjóri, Héðinn Steingrímsson, 9
ára, Tómas Björnsson, 15 ára, Snorri G. Bergsson, 15 ára, Helgi Hjartarson,
16 ára, og Ólafur H. Ólafsson, fararstjóri. Morgunbiaíís/Árni Sæberg
Gallerí Borg:
Sýning
hússins I
MIÐVIKUDAGINN 15. ágúst
opnaði Gallerí Borg nýja sýningu,
Sýningu hússins 1.
Að þessu sinni eru sýnd verk
fimm myndlistarmanna. Eru það
krítar- og tússteikningar eftir Al-
freð Flóka, vatnslitamyndir eftir
Gunnlaug St. Gíslason, litkrít-
armyndir eftir Jóhannes Geir,
þrjú verk eftir Sigurð Örlygsson,
unnin með blandaðri tækni, og
kolateikningar eftir Snorra Svein
Friðriksson. Alls eru 37 verk á
sýningunni.
Auk þess eru svo uppi grafík-
myndir eftir fjölmarga listamenn,
glerskúlptúr, keramik og vefnað-
ur.
Sýningin mun standa fram yfir
aðra helgi og er opin virka daga
milli kl. 10.00-18.00 og
14.00—18.00, laugardaga og
sunnudaga.
Stefnumót eftir Alfreð Flóka.
og það ekkert venjuleg
Dæmi:
Úlpur frá kr. 190, allar stæröir.
Dúnkápur kr. 3.500, kvenstæröir.
Dúnúlpa kr. 490, unglingastæröir.
Dún- og vattvesti kr. 490, allar stæröir.
Skíöabuxur kr. 990, kvenstæröir.
Æfingagallar kr. 490, allar stæröir.
Regnjakkar kr. 190, allar stæröir.
Peysur kr. 99, allar stæröir.
Lúffur kr. 90, allar stæröir.
Stuttbuxur kr. 50, allar stæröir.
EÁnnig \i\ið gaWaðar
vorur á Q\al\ierö'\ Vsvo
Vil ekki neiUV t\ \>ú
ættar aú komasV í
þessa veisiu skaUu
ttrtta þig sem vyrsV.
SPORTVAL
Laugavegi 11G-
v. Hlemm
gengiö inn í sundiö viö hliöina á Sportval.