Morgunblaðið - 16.08.1984, Blaðsíða 32
32
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 16. ÁGOST 1984
Séra Páll
í leyfi
ÓÁNÆGJA hefur komiö fram hjá
vissum hópi sóknarbarna í Berg-
þórshvolssókn. Hafai þessi sóknar-
börn óskaö eftir leysingu á sóknar-
bandi, sem felur þaö í sér aö þeim sé
heimilt að fá sér annan prest.
Biskup íslands, hr. Pétur Sigur-
geirsson, hefur skipað þriggja
manna nefnd til að rannsaka for-
sendur þessarar óskar og veitt
séra Páli leyfi frá störfum í þrjá
mánuði, eftir samkomulagi við
hann, á meðan nefndin er að störf-
um.
Á meðan séra Páll er í leyfi,
mun séra Sváfnir Sveinbjarnar-
son, prófastur, á Breiðabólsstað í
Fljótshlíð þjóna prestakallinu. Þó
að séra Páll sé í leyfi á þessum
tíma, mun hann áfram dvelja á
Bergþórshvoli og getur sinnt
störfum sé til hans leitað.
Frá XXII. þingi Sjálfsbjargar landssambands fatlaðra.
XXII þing Sjálfsbjargar:
Landssamband fatlaðra 25 ára
22. ÞING Sjálfsbjargar, landssam-
bands fatlaðra, var haldiö í Sjálfs-
bjargarhúsinu dagana 8. til 10. júní.
Viö þingsetningu var 25 ára af-
maelis samtakanna minnst og tók
forseti íslands, Vigdís Finnbogadótt-
ir, á móti þingfulltrúum aö Bessa-
stöðum af því tilefni.
Áðalumræðuefni þingsins voru
lífeyris- og tryggingamál og höfðu
þeir Ingólfur Ingólfsson, félags-
fræðingur, og Hrafn Ingólfsson,
framkvæmdastjóri almennra líf-
eyrissjóða, þar framsögu. önnur
hagsmunamál fatlaðra voru einn-
ig á dagskrá og fylgja hér helstu
ályktanir:
— 22. þing Sjálfsbjargar l.s.f.
mótmælir harðlega þeim niður-
skurði á framkvæmdasjóði fatl-
aðra, sem nemur meira en helm-
ingi lögboðinnar greiðslu úr sjóðn-
um.
— Þingið harmar afgreiðslu Al-
þingis á „Búsetamálinu", þar sem
þar hefðu opnast góðar leiðir fyrir
fatlaða í húsnæðismálum.
— Þingið beinir þeim tilmælum
til svæðisstjórna, að þær hvetji
sveitarfélög og atvinnurekendur
til að stofna til nýiðnaðar sem
tæki mið af vaxandi þörfum fyrir
ný atvinnutækifæri handa fólki
með skerta starfsorku.
Einnig voru samþykktar álykt-
anir varðandi ferlimál fatlaðra,
atvinnumál, menntamál, farar-
tækjamál, trygginga- og lífeyris-
mál og félagsmál.
í framkvæmdastjórn til næstu
tveggja ára voru kjörin Theodór
A. Jónsson, formaður, Jóhann Pét-
ur Sveinsson, varaformaður,
Kristín Jónsdóttir, ritari, Vikar
Davíðsson, gjaldkeri, og Valdimar
Pétursson, meðstjórnandi. Vara-
menn voru kjörnir Guðmundur
Hjaltason, Valgerður Guðjóns-
dóttir og Helga Axelsdóttir.
ólöf Ríkharðsdóttir og Sigur-
sveinn D. Kristinsson, sem sæti
áttu í framkvæmdastjórn, gáfu
ekki kost á sér til endurkjörs.
Einnig var skipað í Landssam-
bandsstjórn Sjálfsbjargar á þessu
þingi.
Eldur á bílaverk-
stæði BM Vallá
ELDUR kom upp f bílaverkstæöi
steypustöðvarinnar BM Vallá á Ár-
túnshöfða um hádegisbilið á sunnu-
dag. Slökkviliðið var kvatt á vett-
vang og gekk vel að ráða niðurlög-
um eldsins, en talsverðar skemmdir
urðu á einangrun í lofti og veggjum
verkstæðisins.
Eldurinn kom upp í bíl sem ver-
ið var að vinna við logsuðu á og
náði hann upp í loftið, og kveikti i
lofteinangrun og varð slökkvíliðið
að rjúfa gat á þak hússins til að
komast að eldinum. Auk skemmda
í einangrun í lofti og veggjum
munu hafa orðið lítilsháttar
skemmdir á tækjabúnaði af eldin-
um.
Morgunblaðið/ Júlíus.
Slökkviliðsmenn rjúfa gat á þak hússins til að komast að eldinum.
.VJffilA 10-70%
UTSAIA nf/lóUur
Snorrabraut s. 13505 Glæsibæ s. 34350
Róttor
dagsins
Margrét Þorvaldsdóttir
í lok Ólympíuleika dreymir marga
um frækilega sigra í framandi lönd-
um. Það gleymist stundum, að sigrar
sem unnir eru á eigin heimavelli eru
jafnvel enn mikilvægari.
— Við verðlaunum okkur sjálf —
og höfum til taks:
jr
Islenskar
fiskmedalíur
í hollenskri
sósu
Fyrir 4.
1 lítil lúða (ca 1.200 gr)
'k sítróna
’l bolli Bechamel-sósa
1 eggjarauða
'k sítróna
(1 matsk. rjóma)
salt
1. Fiskinn má fá flakaðan hjá
fiskkaupmanni. Flökin eru roð-
flett, skorin sundur eftir endi-
löngu og síðan á ská í tvennt. Þá
eru komin 8 stk.
2. Fiskstykkin eru síðan sett á
disk, safi úr 'k sítrónu settur á
fiskinn og hann látinn bíða í 10
mín. Saltið örlítið.
3. Afhýðið hráa kartöflu og
skerið í strimla 1 sm á hvorn kant.
Fiskstykkin eru síðan vafin upp.
Kartöflustrimill er settur á þykk-
asta hlutann og fiskurinn vafinn
utan um hann og festur með
tannstöngli.
4. Fiskrúllunum er síðan raðað í
eldfast mót og þær bakaðar í ofni
við góðan hita í 20 mín.
Uppskrift af Bechamel-sósu
hefur þegar verið birt í þætti þess-
um. Hafi hún farið fram hjá ein-
hverjum, þá samanstendur hún af
— 1 bolla af mjólk, 'k. lauk og 1
gulrót skornum I smábita — 2
negulnöglum, 6 piparkornum
(heilum), 2 matsk. smjörva 2
matsk. hveiti og salt eftir smekk.
Grænmeti og krydd látið standa
í mjólkinni í 'k klst. á volgum
stað. Það er slðan sigtað frá,
smjörið brætt í mjólkinni bragð-
bættri og hún jöfnuð með hveit-
inu.
Hollensk sósa
Bechamel-sósan er hituð. Hrær-
ið hluta af heitri sósunni saman
við eggjarauðuna, ásamt rjóma og
setjið saman við sósuna. Hún er
síðan látin þykkna við hita og
hrærið stöðugt í á meðan. Að síð-
ustu er safa úr 'k sitrónu bætt út
í og salti ef þarf.
Þegar fiskurinn er tilbúinn, þá
eru tannstönglar og kartöflu-
strimlar fjarlægðir úr fiskrúllun-
um. Hellið saman við sósuna safa
frá fiskrúllunum. Raðið síðan á
fat, fyllið fiskmedaliurnar af sósu
og setjið sósuna með á fatið. Berið
fram með soðnum kartöflum.
í rétt þennan má auðvitað hafa
kola I stað lúðu. í stað þess að
ofnbaka medalíurnar má einnig
djúpsteikja þær.
Nú er á markaði nýtt íslenskt
grænmeti. Það er skemmtilegt að
bera það fram niðurskorið raðað á
disk, — gulrætur skornar í
strimla, niðursneyddar gúrkur,
tómatbáta og eplabát, og radísur
ef til eru.
Verð á hráefni
Lúöa (1.200 gr) kr. 100,00
EKK 7,50
Sítróna (1 ktf= 44J») 7,00
Kr. 114,50
Fróðlegt væri að fá uppgefið hjá
opinberum aðilum hvaða verð á að
gilda fyrir nýjar kartöflur — eða er
verðlagning frjáls?