Morgunblaðið - 16.08.1984, Síða 37
ffólk í
fréttum
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 16. ÁGÚST 1984
37
Liz vill
Þessi mynd var tekin af þeim Liz og Burton þegar þau voru gift og
stúlkan, sem er með þeim, er Kate, dóttir Burtons.
vera
grafín
við hlið
Burtons
+ Fyrir mörgum árum gerðu þau
Elizabeth Taylor og Richard þann
samning með sér, að þegar þar að
kæmi skyldu þau lögð til hinstu
hvíldar hlið við hlið.
„Þótt þau skildu tvisvar sinn-
um héldu þau alltaf sambandinu
sín á milli og settu það hvort um
sig í erfðaskrána, að grafir
þeirra skyldu liggja saman. Eftir
seinni skilnaðinn létu þau að
vísu breyta ýmsu í erfðaskrán-
um en ekki þessu,“ segir rithöf-
undurinn Kitty Kelly, sem skrif-
aði metsölubókina „Elizabeth
Taylor — síðasta stjarnan" og
kom út fyrir þremur árum.
Kitty segir, að dauði Burtons
hafi fengið mjög á Liz og að hún
hafi viljað vera við minningar-
guðsþjónustu um hann í fæð-
ingarbæ hans í Wales en systk-
ini hans beðið hana um að gera
það ekki. Þau óttuðust, að frétta-
menn og Ijósmyndarar myndu
spilla helgi athafnarinnar ef hún
væri viðstödd og höfðu vafalaust
rétt fyrir sér í því. Það sannaðist
best þegar Liz vildi fara að gröf
Burtons í bænum Celigny í Sviss.
Henni tókst það á mánudag en
deginum áður mátti hún hrökkl-
ast burt fyrir ágengni blaða-
manna.
Hvernig stíga
stjörnurnar
út úr bfl?
+ Sumir lesa í stjörnurnar og ráða
af þeim skapgerð manna en aðrir
segja, að það sé mest að marka
hvernig fólk fer að því að koma sér
út úr bíl.
Ef um er að ræða rokkstjörnu
eins og Bette Midler er gripið
fast í sætið og það sett út fyrst,
sem er fallegast. í þessu tilfelli
fæturnir. Auk þess situr stúlka
eins og Bette frammí en ekki í
aftursæti.
Ef hins vegar er um að ræða
þroskaða leikkonu, söngkonu,
dansara og áhugamann um póli-
tík eins og Shirley MacLaine er
setið aftur í og farið út úr bíln-
um með virðuleik. Hendinni
stutt léttilega á hurðina og höf-
uðið hneigt til að reka það ekki í
karminn.
ítalska leikkonan Sophia Lor-
en hefur sinn sérstaka hátt á því
að koma sér út úr bílnum sínum
enda er handfang á hurðinni til
þess að auðvelda henni það. Hún
fer líka ferða sinna á Rolls
Royce og í slíkum bíl er ekki set-
ið frammí nema um sé að ræða
bílstjóra eða þjón.
ÞiA muniA kynnast svarthærðum herramanni með túrban.
Ekki
í minna hús
+ Bob Hope verður sjaldan orðs
vant og er ekkert farið að förlast
þótt hann sé kominn á áttræðisald-
ur. Nú fyrir nokkru var hann
spurður hvers vegna hann byði sig
ekki fram í forsetaembættið í
Bandaríkjunum og svaraði þá
þessu til: „Það er ekki við mig að
sakast. Konan mín vill bara ekki
flytjast í minna hús.“
Þeir eru uppi á öllum tímum og gagnrýndir
fyrir það sem þeir gera eða gera ekki. ís-
lenskir samtíðarmenn sem standa framar-
lega í stjórnmálum, atvinnulífi, opinberri
þjónustu eða lista- og menningarlífi er fast
umfjöllunarefni í hverju tölublaði Frjálsrar
verslunar. Þú kynnist viðhorfum, verkefnum
og skoðunum þessara manna og kvenna og
aflar þér þekkingar á því sem er að gerast í
þjóðfélaginu. Þetta er aðeins einn hluti þess
upplýsingaefnis sem birtist í Frjálsri verslun
sem er eitt þeirra vönduðu sérrita sem gefin
eru út af Frjálsu Framtaki hf. Reyndu áskriftl
Síminn er 82300.
Alltaf á föstudögum
Reiöþjálfun fatlaöra mikil-
væg þeim, sem hún hentar.
— Guöbjörg Eggertsdóttir sjúkra-
þjálfari bendir á helstu möguleikana
sem hesturinn býöur upp á sem meö-
ferðartæki.
Berjatíö
— Sigrún Davíðsdóttir bendir á
hvernig hagnýta megi kræki- og blá-
berin okkar.
Fimmtugt er þaö sem fert-
ugt var
— Grein eftir stofnanda kvennatíma-
ritsins Ms., Gloríu Steinem.
flKmhtiiHifeife
Föstudagsblaðid er gott forskot á helgina
rOFAKRföTjNARHF