Morgunblaðið - 21.08.1984, Page 24
24
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 21. ÁGÚST 1984
Galvin heldur
fund í Dublin
Belfast, N-frlandi, 20. igúst. AP.
MARTIN GALVIN, bandaríski
stuðningsmaður írska lýðveldishers-
Lestarslys í
Lundúnum
Lundúnum, 20. á|(Ú8t. AP.
NEDANJARÐARLEST í Lundúnum
rakst á afturhluta annarrar lestar
með þeim afleiðingum að einn lest-
arstjóri beið bana og 30 manns slös-
uðust.
Lestirnar voru báðar á vestur-
leið og skullu saman á þeim stað
þar sem lestirnar ganga ekki neð-
anjarðar. 1 fyrstu var talið að eng-
inn hefði látist, en síðar fundu
björgunarsveitir lík annars lestar-
stjórans.
Rafmagn var tekið af lestartein-
unum meðan á björgunarstarfi
stóð, en truflanir á öðrum lestar-
ferðum um miðborg Lundúna voru
ekki miklar vegna slyssins.
ins sem slapp úr klóm lögreglunnar
fyrir átta dögum, mun halda fund
með fréttamönnum í Dublin á morg-
un, samkvæmt tilkynningu Sinn
Fein, stjórnmálaarms IRA.
Breska stjórnin hafði synjað
Galvin um leyfi til að heimsækja
N-írland, en hann komst undan
lögreglunni þegar reynt var
áhlaup á höfuðstöðvar Sinn Fein
12. ágúst sl. í tilkynningu stjórn-
málaflokksins kom ekki fram hvar
Galvin væri niðurkominn, en talið
er víst að honum hafi verið smygl-
að aftur til frlands.
Margrét Thatcher, forsætisráð-
herra Bretlands, hefur neitað að
verða við óskum stjórnarandstöð-
unnar um að rannsaka hvers
vegna Galvin hafi verið neitað að
heimsækja N-írland, en sagði að
ákvörðunin gæti verið umdeilan-
leg.
Líbýska ferjan og flutningaskipið „Ghat“ er nú í Marseille í Frakklandi þar sem skipið er til viðgerðar. Var leitað
mjög rækilega í því áður en það fékk að koma í höfn, en ekkert fannst sem tengt getur það tundurduflalagningu.
Voru duflin lögd
af skipi frá libýu?
London, 20. ágúst. AP.
Tékkóslóvakía:
Charta 77 vill her
Rússa úr landi
Vín, 20. ápist. AP.
Mannréttindasamtökin Charter
77 í Tékkóslóvakíu hafa hvatt til
þess að allt sovéskt herlið verði
kvatt heim, að því er heimildarmenn
meðal tékkneskra útlaga í Austur-
ríki herma. YTirlýsing þess cfnis hef-
ur verið send tékkneskum stjórn-
völdum og dreift með leynd manna á
meðal. Þess er nú minnst að liðin
eru 16 ár frá innrás Sovétríkjanna
og fylgiríkja þeirra í Varsjár-
bandalaginu í Tékkóslóvakíu.
Talið er að um þessar mundir
séu um 70 þúsund sovéskir her-
menn í landinu.
Lögreglan í Prag hefur yfir-
heyrt marga, sem taldir eru
standa i tengslum við Charta 77,
vegna dreifiritsins og gert húsleit
hjá mörgum andófsmönnum.
EGYPTUM leikur grunur á, að tund-
urduflin, sem hafa laskað a.m.k. 17
skip í Rauðahafi síðustu sex vikur,
hafi verið lögð frá líbýskri ferju. Var
sagt frá þessu í The Sunday Times í
gær. Engin dufl hafa enn fundist við
leit í Rauðahafi.
í fréttinni í Times, sem höfð er
eftir háttsettum en ónefndum
manni í egypsku nefndinni, sem
rannsakar tundurduflamálið, seg-
ir, að margt bendi til, að duflin
hafi verið lögð frá líbýsku ferjunni
og flutningaskipinu „Ghat“, sem
kom í Súez-skurð 6. júní sl. og
sigldi suður Rauðahaf.. Þremur
dögum síðar varð sovéskt skip
fyrst til að sigla á tundurdufl.
„Ghat“ kom næst til hafnar í Ass-
ab í Eþíópíu en þó ekki fyrr en 14.
júlí og lá þá fyrst í þrjá daga fyrir
akkerum undan ströndinni. Frá
Assab fór það 22. júlí áleiðis til
Líbýu.
Rama Rao kominn
til Nýju Delhi
Engin dufl hafa enn fundist
þrátt fyrir leit tundurduflaslæð-
ara margra þjóða, Egypta, Banda-
ríkjamanna, Breta, Frakka og It-
ala og á laugardag fóru tveir sov-
éskir tundurduflaslæðarar um
Súez-skurð. Er talið, að þeir hafi
stefnt til Suður-Jemen. Utanrík-
isráðherra Egypta, Ahmed Esm-
ate Abdel, segir í viðtali við tíma-
ritið Newsweek, að Egyptar áskilji
sér rétt til að leita í öllum skipum,
sem um Súez-skurð fara, til að
koma í veg fyrir að tundurdufl
verði aftur sett á siglingaleið í
Rauðahafi.
The Observer í London:
Hundruð þúsunda
myrt í Úganda
London, 20. á|(ú»(t- AP.
VIKUBLAÐIÐ The Observer í Lond-
on hafði það í gær eftir einum af
leiðtogum skæruliða í Úganda, að
hermenn stjórnarinnar hefðu á sl.
þremur árum myrt um 300 þúsund
óbreytta borgara.
Heimildarmenn blaðsins full-
yrða að mörg ódæðisverk stjórn-
arhermanna beri að skrifa á
reikning ríkisstjórnarinnar og
ekki sé aðeins við agaleysi í hern-
um að sakast.
Áður hafa Bandaríkjamenn
haldið því fram, að fleiri en eitt
hundrað þúsund óbreyttir borgar-
ar í Úganda hafi orðið fórnarlömb
hryðjuverka stjórnarhermanna.
Ríkisstjórn Miltons Obote, sem
komst til valda í kosningum árið
1980, en margir telja að þá hafi
verið brögð í tafli, hefur vísað
þessum ásökunum á bug.
Útvarpið í Moskvu:
Sakharov á lífi
og í umsjá lækna
Moskva, 20. áfOist. AP.
Nýju Delhi, 20. ágÚMt. AP.
RAMA Rao, fyrrum stjórnarleiðtogi
Andhra Pradesh fylkisins á Indlandi
sem settur var af í fyrri viku, kom til
Nýju Delhi í dag til að sanna fyrir
stjórn Indíru Gandhis að hann hefði
enn meirihluta í þinginu.
Flugvél Rao tafðist í um fjórar
stundir vegna þess að tilkynnt var
um sprengju um borð í henni.
Einnig tafðist lest með 163 þing-
mönnum Rao á leið til Nýju Delhi
í um sjö stundir. Þingmennirnir
ætluðu að sýna Zail Singh, forseta
að Rao héldi enn meirihluta í
þinginu þar sem 295 eiga sæti.
Ekki er ljóst hvað olli töf lestar-
innar; sumir segja að skemmdar-
verk hafi verið framin af stuðn-
ingsmönnum Gandhis en aðrir
ákæra fylgismenn Rao um að hafa
rænt lestina.
Mikil mótmæli hafa verið í
Andhra Pradesh vegna ákvörðun-
ar Gandhis að leysa upp stjórn
Raos og hafa nú 25 manns látið
lífið í átökum sem breiðst hafa út
um nærliggjandi fylki. Á sunnu-
dag skaut lögreglan sex til bana og
særði 38.
Þegar Rao kom til Nýju Delhi
var hann fluttur 1 sjúkrabíl á
sjúkrahús, þar sem hann er enn
mjög máttfarinn eftir hjartaskurð
sem hann gekkst undir fyrir
stuttu.
ÚTVARPIÐ í Moskvu sagði í dag að
eðlisfræðingurinn Andrei Sakharov,
sem ekkert hefur spurst til síðan í
maí, væri á lífi og nyti umönnunar
lækna í borginni Gorkij.
Ekkj var farið nánar út í að-
stæður Sakharovs og heilsu, en
þess getið að hann væri í útlegð í
borginni vegna þess að hann hefði
gerst brotlegur við lög um and-
sovéskan áróður. Þetta er í fyrsta
sinn í tvo mánuði, sem opinberir
aðilar í Sovétríkjunum minnast á
Sakharov. Tilefnið var fyrirspurn
frá hlustanda um heilsu hans í
þættinum „Moskvupóstur", sem
fluttur er á ensku.
Sovétmenn hafa þráfaldlega
neitað óháðum aðilum að fara á
fund Sakharovs til að ganga úr
skugga hvort hann sé á lífi. Sakh-
arov fór í hungurverkfall í byrjun
mai til að mótmæla því að kona
hans, Yelena Bonner, hefur ekki
fengið að leita sér lækninga á
Vesturlöndum.
Flugslys í Svíþjóð:
Tveir létust
Stokkholmi. 20. á>rÚHt. AP.
TVEIR létu lífið þegar tveggja
hreyfla vél af Cessna-gerð, sem
var á venjulegu eftirlitsflugi á
vegum sænsku strandgæslunnar,
fórst yfir Eystrasalti í gær.
Ekki er vitað hvað olli bilun í
flugvélinni, en rannsókn fer nú
fram á því.
Formaður sænsku Afganistan-nefndarinnar:
„Sovésku hermennirnir hegð-
uðu sér eins og villimenn“
Islamahad, 20. ágúnt. Al*.
SEXTÁN manns féllu í stórskota-
árás afganskra stjórnarhermanna í
grennd við borgina Parachinar í
Pakistan í gær. Fjórir hinna látnu
eru Pakistanar en hinir tilheyra
frelsissveitum Afgana.
í vikunni sem leið féllu 33 í
átökum á þessu svæði. Hafa
stjórnvöld í Pakistan borið fram
harðorð mótmæli við sendi-
fulltrúa Afgana í Islamabaad
vegna þessara atburða.
Sænskur maður, Anders
Fanger að nafni, sem er formað-
ur Afganistan-nefndarinnar í
Svíþjóð og hefur á undanförnum
þremur mánuðum búið með liðs-
mönnum afgönsku frelsissveit-
anna í Panjsher-dal, skýrði frá
því í Islamabaad um helgina, að
öll þorp í norðanverðum dalnum
væru nú í rúst eftir mikla sókn
sovéskra hersveita að undan-
förnu. Þessi hluti dalsins hefur
verið blómlegt landbúnaðarhér-
að og jafnframt ein helsta bæki-
stöð frelsissveitanna.
„Heimili tugþúsunda manna
hafa verið lögð í rúst,“ sagði
Fanger við fréttamenn. „Sovésku
hermennirnir hegðuðu sér eins
og villimenn. Einn daginn gekk
ég þrjá til fjóra klukkutíma milli
yfirgefinna þorpa og þar var
ekki aðeins að sjá eyðileggingar
eftir sprengjuárásir heldur
skemmdarverk hermannanna
sjálfra á eignum íbúanna. Jafn-
vel barnaleikföng og reiðhjól
höfðu verið tætt i sundur. I hús-
unum var enginn hlutur heill."
Fanger sagði að sovésku her-
mennirnir og afgönsku stjórn-
arliðarnir reyndu að niðurlægja
almenning eins og frekast væri
unnt. Hann sagði að þeir notuðu
helgistaði þeirra, moskurnar,
fyrir salerni og blöð úr Kóranin-
um fyrir salernispappír. „En
með þessum hætti ávinna þeir
sér aðeins meira hatur meðal al-
mennings," sagði Fanger.