Morgunblaðið - 21.08.1984, Blaðsíða 53
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIDJUDAGUR 21. ÁGÚST 1984
61
börnin. Alexander er auðvitað
Bergman, og það er fróðlegt
fyrir þá sem eru á Freud-línunni
að bera saman soninn Alexander
og föðurinn Bergman. Þó er
hæpið að gera sálfræðilega út-
tekt á samspilinu í Fanny och
Alexander milli Bergman í föð-
urhiutverkinu og listamanns-
hlutverkinu og Alexanders í son-
arhlutverkinu, því eins og áður
sagði er myndin full af upp-
blásnu ævintýri bernskunnar og
þeirri mystik sem Bergman einn
höndlar á filmu. Þó má geta sér
þess til að ljúfur leikur, Alex-
anders í föðurgarði, leikur sem
skyndilega er rofinn af kristi-
legri meinlætahugsjón stjúpföð-
urins, sem var biskup að at-
vinnu, hafi síðar orðið kveikjan
að þeirri listframleiðslu er ber
gæðastimpillinn Ingmar Berg-
man.
í myndum Ingmar Bergman
skiptast nefnilega stöðugt á ljúf-
ar senur og martraðarkenndar
hugsýnir. Ymist er myndavél-
inni beint að floskenndu kven-
holdi og sálarspegli kvenlegrar
ættar eða að karllegum ófreskj-
um. Kannski ekki nema von að
maður með slíkan sálargrunn
hafi orðið stórtækur „bygg-
ingameistari" í heimi listarinn-
ar. í föðurgarði, á heimili Ek-
dahl-leikhúsfjölskyldunnar, fékk
Alexander/Bergman þá munúð-
arfullu umhyggju, sem aðeins
fæst í faðmi efnaðar frjálslyndr-
ar stórfjölskyldu, og Bergman
hefði vafalaust orðið ánægður
heimilisfaðir og gersamlega
óþekktur listamaður, hefði hann
lifað í þeim litla heimi til
manndómsára. En til allrar
hamingju fyrir listaheiminn dó
faðir Ingmar Bergman þegar
drengurinn var á viðkvæmum
aldri — u.þ.b. 10 ára — og til
skjalanna kemur hinn harði
stjúpfaðir. Hér fær Bergman
það vandarhögg á sálina, er
hrindir honum úr volgum faðmi
hins borgaralega lífs, og herðir
hann til átaka við listina. Synd-
in, þessi aflgjafi kristninnar að
mati Bergman kitlar í mesta lagi
samvisku Ekdahl-leikhúsfjöl-
skyldunnar, á heimili biskupsins
— stjúpans — er syndin hins
vegar afl þeirra hluta er gera
þarf. Hún stjórnar orði, hugsun
og gerðum heimilisfólksins, enda
skulu Alexander og systir hans
Fanny, fá „strangt uppeldi". Sá
munúðarfulli leikhúsheimur er
fylgir Alexander frá föðurgarði
skal upprættur með aðstoð
þrautreyndra pyntingaraðferða.
Slíkan kross skulu þeir bera er
koma úr syndarinnar garði.
Og slíkan kross ber stórlista-
maðurinn, hann verður stöðugt
að bera kross hinnar hátimbr-
uðu listar, og lemja sig áfram til
átakameiri vinnubragða, en
jafnframt má hann ekki slitna
úr tengslum við hinn ljúfa mun-
úðarfuíla draumaheim, þar sem
syndin er bara svolítið krydd í
tilveruna. í Fanny och Alexander
sjáum við sum sé inní hugar-
heim stórlistamannsins, þess
„byggingameistara" er byggir úr
efniviði eigin reynslu heim til
sýnis fyrir heiminn — veröld
sem venjulegt fólk festir á
kodakfilmu. Þarna skilur á milli
myndar Ingmar Bergman um
Alexander og fyrrgreindrar
myndar Tuija-Maija Niskanen
um Valerie, því þó að Valerie sé
ráðsett listakona er í myndinni
lítur aftur til bernsku sinnar í
föðurhúsum á svipaðan hátt og
Bergman gerir í Kanny och Alex-
ander er líf Valerie aðeins lff í
einum heimi — heimi Von
Freyer-bankastjórafjölskyld-
unnar. Sá heimur er að vísu séð-
ur ívið nærfærnari augum — að
mínu mati — en heimur Alex-
anders, en það vantar þessar
miklu andstæður, himnaríki föð-
urins og helvíti stjúpföðurins
sem skóp fyrirbrigðið Ingmar
Bergman. Fyrir þá sem hafa að-
eins átt þess kost að kynnast
sköpun heimsins í mynd skamm-
æs eyhnoðra við Vestmannaeyj-
ar, er fróðlegt að skreppa niður í
Regnbogann þessa dagana og
skoða hvernig mannssál smíðast
í henni veröld. í síðari grein um
þá smíði verður nánar fjallað um
útfærslu og forsendur Fanny och
Alexanders.
þyngdarlögmálinu og jarðneskri
verund, hann verður hálfraun-
verulegur, hreyfingar hans og
gerðir verða jafn frjálsar og þær
eru þýðingarlausar. Hvort á að
velja, þyngslin og heftinguna eða
léttleikann?” Abyrgðina eða
ábyrgðarleysið?
Inntak rits Kundera eru hug-
leiðingar um þessi efni. Tómas og
Theresa ljúka sínum lífdögum á
þann hátt að þau hverfa til jarðar-
innar undir vörubfl, ösku Sabinu
er dreift út í geiminn.
Tómas og Theresa finna að lok-
um frið í verundinni, sem reist er
á hinni „eilífu endurtekningu"
Nietzsches, sem er algjör afneitun
á framþróunarhugmyndum vís-
indahyggjunnar og kartesíanis-
mans. Hinn hringlaga tími verður
þeirra að lokum, beinlínu tíminn
leiðir til ófarnaðar. Það má skilja
á Kundera að hann sjái fyrir sér
framhaldið í syni Tómasar, sem
hann nefnir Simon, sem gerist
kaþólskur og skrifar föður sínum,
að „eina skjólið í samfélaginu sé
kirkjan". Nöfnin Tómas og Símon
gætu verið tilvísun til frumgerð-
anna, þess sem þarf að þreifa og
þess sem trúir?
Kundera skrifar þessa bók sem
skáldsögu og sögu um skáldsögu,
hugleiðingar og íróníu um okkar
tíma. Þetta er í senn kómedía og
tragedía. Höfundurinn var á sín-
um tíma fyrirlesari í kvikmynda-
fræði við háskólann í Prag og
hann notar kvikmyndatæknina I
sterkum sviðsmyndum sögunnar.
Stíllinn er léttur og leikandi, hin
tíðu sviðsskipti, nærmyndir og til-
vísanir í heimspeki og kynlíf, guð-
fræði og drauma falla I eina heild-
armynd listilega gerðrar skáld-
sögu, sem gæti einnig verið upp-
gjör höfundarins við mýraljós —
kitsch — okkar tíma, eins og þær
glætur birtast í gervi blaðrandi
pólitíkusa og í allri hugsjóna-
slepjunni.
Malbikað á
Siglufirði
SigluHrði, 1H. ágúst.
MIKLAR malbikunarframkvæmdir
hófust hér á Siglufirði í gærmorgun
og er í ráði að malbika um 1200
mctra, sem þykir mikið í ekki stærra
bæjarfélagi. Einnig á að malbika
plön víða í bænuni. Eru þetta fyrstu
framkvæmdir sem unnar eru með
nýrri malbikunarvél, sem bæjarfé-
lögin á Norðurlandi vestra hafa fest
kaup á.
í ráði er að malbika m.a. Suður-
götu og Fossveg og einnig plön hjá
Síldarverksmiðjum ríkisins og
Olíuverslun íslands. Ganga fram-
kvæmdir vel og er ljóst,, að með
tilkomu hinnar nýju malbikunar-
samstæðu verður kostnaðarhliðin
á framkvæmdum mun ódýrari en
áður var, er flytja þurfti malbikið
frá Akureyri. Sjá Siglfirðingar nú
fram á betri tíð í þessum efnum og
má búast við auknum malbikunar-
framkvæmdum hér með því að
bæjarfélagið er orðið meðeigandi I
tæki til slíkra framkvæmda.
MJ.
á plötu
^uvughtJ \^Water^y/
[ v[ fá[ \ i n ^
RELIEFMATE
KLISSJUGERÐARVEL
ÓMISSANDI
IALLAR
PRENTSMIOJUR
Relief Mate klissjugeröarvélin er afar fyrirferðar-
lítil og nýtískuleg. Þrenns konar útbúnaói hefur
veriö komið fyrir í eina vél, þ.e. útbúnaði til að
framkalla, skola og þurrka.
Stærð: B x D x H = 640mm x 640mm x 980mm
Þyngd:130 kg
Orkunotkun: 18A/220V
Framköllunarstærð: 460mm x 340mm(A3)
Ótrúlega hagstætt verö.
Ath. Eigum allt plötuefni til á lager.
KAYS
haust-og vetrarlistinn kominn
Líkams-
oghjálpart36 ‘
F
■ Pa1
I
I
óska eftir að fá sendan KAYS pöntunarlista I póstkröfu.
Fatalista kr. 90 □. Fata- og vörulista kr. 200 □.
Að viöbættu póstburðargjaldi.
Nafn.........................................
er fyrir
alla
Spaf'
Heimilisfang
Staður................Póstnr.
B. M AGNUSSON
HÓLSHRAUNI 2 • SÍMI 52866 • P.H 410 • HAFNARFIRÐI
1
I
I