Morgunblaðið - 21.08.1984, Qupperneq 39

Morgunblaðið - 21.08.1984, Qupperneq 39
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 21. ÁGUST 1984 47 Stjórnleysi í pen- ingamálum landsins — eftir Egil Sigurðsson Almenningur spyr sig nú hver eða hverjir stjómi þessu landi. Er það löglega kjörin stjórn með þingmeirihluta, eða eru það e.t.v. einn eða tveir bankastjórar? Það vekur talsverða atygli að ríkisstjórnin skuli nú, að nýaf- stöðnu skeiði hávaxtastefnu, sem búin var að sliga atvinnuvegina og heimilin, byrja á því aftur að hækka vexti. Það voru einmitt vaxtalækkanirnar, sem núverandi ríkisstjórn beitti sér fyrir í upp- hafi ferils síns, sem færðu verð- bólguna úr ógnvekjandi 130%, sem hún stefndi í, niður í 10 til 15%. Þetta var það, sem réði úrslit- um, kaupgjald hefir hinsvegar ekki lækkað í krónutölu, þvert á móti hækkað hvað svo sem verka- lýðsforingjar segja. Kaupgjald er stærri liður í rekstrarreikningum fyrirtækja en hann var fyrir ári síðan, þrátt fyrir lækkun verð- bólgu. Það er því óskiljanleg ráðstöfun að ætla að lagfæra rekstur útvegsins, sem er skuldum vafinn, með því að fara öfuga leið þ.e. að hækka vexti á ný. Það er vissulega rétt stefna að láta Seðlabankann hætta að lána atvinnuvegunum (samanber grein mína í Morgunblaðinu 21. okt. sl.). Hann má lögum samkvæmt aðeins lána öðrum bönkum og ríkissjóði og raunar einungis til skamms tíma. En Seðlabankinn verður að gera viðskiptabönkunum fært að taka að sér afurðalánin. Hann verður með öðrum orðum að skila þeim bindiskyldunni, sem var ein- mitt af viðskiptabönkunum tekin til endurláns fyrir Seðlabankann, en það er ekki aldeilis þetta sem verið er að gera, ríkisstjórnin leyf- ir Seðlabankanum að halda þessu fé viðskiptabankann föstu — og að auki að hækka bindiskylduna um5%. Hárgreiðslu- og rakarastofur. Verðskrá hangi uppi við inn- göngudyrnar ÖLLUM hárgreiðslu- og rakarastof- um hefur verið gert skylt að hafa uppi við inngöngudyr skýra verðskrá með verði á algengustu þjónustu, sem þar er veitt Skal efnis- kostnaður innifalinn f uppgefnu verði. Reglur um þetta tóku gildi með auglýsingu Verðlagsstofnunar 1. ágúst sl. Stofurnar skulu jafnframt hafa uppi verðskrá við greiðslukassa eða á öðrum áberandi stað, verð- skrá yfir alla þjónustu, sem veitt er. Efniskostnaður skal innifalinn í því verði. í auglýsingu Verðlagsstofnunar, sem birtist í síðsta Lögbirtinga- blaði, er tekið fram að allt samráð, samningar eða samþykktir milli fyrirtækja um verð og álagningu sé óheimilt, þar sem verðlagning sé frjáls. Reglurnar eru settar með heimild í lögum frá 1978 um verðlag, samkeppnishömlur og óréttmæta viðskiptahætti. Verulegur misbrestur mun vera á að auglýsingar af þessu tagi hangi uppi á hárgreiðslu- og rak- arastofum. Þú svalar lestraijyörf dagsins „Vegna hinnar óheyri- legu bindiskyldu geta viðskiptabankarnir ekki lengur gegnt skyldum sínum gagnvart íslensk- um atviniiuvegum og stofnunum.“ Það er þannig ekki verið að draga úr miðstjórnarvaldi í pen- ingamálum, heldur þvert á móti að auka það, þar sem Seðlabank- inn fær með þessum hætti í sínar hendur stóran hluta af spari- og veltufé landsmanna. Á sama tíma gerðist sá furðu- legi hlutur, að viðskiptabönkunum er falið að ákvarða vexti, sem eru aðal hagstjórnartækið hérlendis f dag. Það tæki er það með tekið úr höndum ríkisstjórnarinnar og get- ur hún því ekki lengur stjórnað peningamálum né öðrum lands- málum. Þetta fyrirkomulag er einsdæmi í viðskiptaheiminum. Egill Sigurðsson Vegna hinnar óheyrilegu bindi- skyldu geta viðskiptabankarnir ekki lengur gegnt skyldum sínum gagnvart íslenzkum atvinnuveg- um og stofnunum. Þeir eiga aðeins um tvo kosti að velja: annar er að taka erlend lán, sem eykur skulda- byrðina útávið og verðbólguna innanlands, hinn kosturinn er að krjúpa á kné fyrir Seðlabankanum og biðja um lán þaðan á refsivöxt- um, sem Seðlabankinn notar svo til að byggja stórhýsi. Þessir refsi- vextir náðu á árinu 1983 allt upp í 212% p.a. Ætti mönnum nú að fara að skiljast eðli fjármála- óráðsíunar í landinu. Að endingu spyr ég eins og í upphafi: Hver stjórnar efna- hagsmálunum í dag? Þjóðin á heimtingu á skýru svari. Egill Sigurðsson starfað rið endur- skoðun. Nr. 1 í JAPAN lá, í ]apan, landi þar sem almenn neytendaþel<king er á háu stigi og gæðakröfur eru miklar, er Panasonic mest keypta VHS myndsegulbandstækið. Panasonic er að sjálfsögðu einnig mest keypta VHS myndsegulbandstæki í heimi. NV-370 NÝ HÁÞRÓUÐ TÆKI FYRIR KRÖFUHARÐAN NÚTÍMANN 8 liða fjarstýring Quarts stírðir beindrifnir mótorar Quarts klukka 14 daga upptökuminni 12 stöðva minni OTR: (One touch timer recording) Rafeindateljari Myndleitari Hraðspólun með mynd áfram Hraðspólun með mynd afturábak Kyrrmynd Mynd skerpu stilling Mynd minni Framhlaðið 43 cm breitt (Passar í hljómtækjaskápa) Upptökuminni til daglegrar upptöku t.d. er hægt að taka 10—12 fréttatíma fram í tímann. Sjálfspólun til baka Fín Editering. Klippir saman truflanalaust nýtt og gamalt efni. Tækið byggt á álgrind. Fjölvísir Multi-Function Display Verð aðeins 36.900,- stgr. Panasonic gæði. varanleg gæði. AKRANES: Stúdíóval. AKUREYRI: Radíóvinnustofan Kaupangi. Tónabúðin BORGARNES: Kaupfélagið. ESKIFJÖRDUR: Pöntunar/élagið. HAFNARF|ÖRDUR: Kaupfélagið Strandgötu. HELLA: Mosfell. HORNAFIÖRDUR: Radióþjónustan NESKAUPSTADUR: Kaupfélagið. SAUDÁRKRÓKUR: Rafsjá. SELFOSS: Vöruhús KÁ. SEYDISFJÖRDUR: Kaupfélagið. TÁLKNAFJÖRDUR: B|arnarbúð VESTMANNAEY|AR: MÚSÍk og Myndir. JAPIS hf BRAUTARHOLTI 2 SÍMI 27133 /
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.