Morgunblaðið - 21.08.1984, Page 40
48
MORGUNBLADIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 21. ÁGÚST 1984
Evrópa:
Þjófar gera sér dælt
við erlenda ferðamenn
Kóm, 13. ágúst. AP.
LÖGGÆSLU- og öryggiseftirlitsmenn í Evrópu standa ráðlausir
frammi fyrir nýrri tegund þjófa, sem gert hafa sér dælt við
erlenda ferðamenn með lævísi og bellibrögðum, nú í sumar. Er
þá sama hvort um hefur verið að ræða franska stigamenn á
þjóðvegum úti eða ítalska „sjarmöra".
Nýju þjófanir standa langt-
um framar smáþjófunum
gömlu að því er snertir vinnu-
brögð öll, og þeir hika ekki
andartak við að beita ofbeldi,
ef þeir álíta þess þörf, að sögn
lögreglumanna.
„Þessir kónar líta ekki við
öðru en erlendum ferðamönn-
um,“ segir Guglielmo Incalza,
lögreglufulltrúi í Róm, í sam-
tali við AP. „Og þeim fjölgar í
takt við ferðamennina. Þar að
auki beita þeir því lævísari
brögðum, sem lögreglueftirlit-
ið er hert meira."
Evrópuþjóðir hafa ekki náð
eins góðum árangri í baráttu
sinni við glæpi gegn ferða-
mönnum og þá sem beinast
gegn heimamönnum. Lög-
reglumenn hvarvetna í álfunni
þykjast einnig hafa orðið varir
við aukningu ofbeldisglæpa,
þar sem ferðamenn eru fórn-
ardýrin.
óaðfinnanlega klæddir ítal-
ir, sem sagðir eru bæði aðlað-
andi og ástleitnir, ferðast með
járnbrautarlestum og bjóða
erlendum samfarþegum sínum
upp á drykk, sem þeir lauma
deyfilyfjum í. Þegar þeir svo
eru vissir um að bráðin er
sofnuð, kanna þeir farangur-
inn í rólegheitum og hirða það
sem þeim sýnist nýtilegt.
„Þetta er eitt af bellibrögð-
unum, sem tekið hafa við af
tösku- og veskjaþjófnuðum á
járnbrautarstöðvum," segir
Incalza lögregluforingi.
Lögreglumenn í Madrid og
Barcelona hafa tekið eftir, að
eitt af brögðunum, sem skálk-
arnir beita, er mjög í tísku um
þessar mundir. Er það fólgið í
Stigamaður sem handtekinn var á þjóðvegi í Suður-Frakklandi fsrður til
yfirheyrshi.
því, að einn úr þeirra hópi hell-
ir súpu eða drykk „óvart" yfir
ferðamann, sem á sér einskis
ills von. Vitorðsmaður skálks-
ins gefur sig þá að fórnardýr-
inu og er vorkunnsemin upp-
máluð. Hann býðst til að
þurrka ósómann af handtösku
eða öðrum farangri ferðalags-
ins og sést svo ekki meir.
í Suður-Frakklandi hafa
vopnaðir stigamenn gert
ferðamönnum marga skráveif-
una tvö sumur í röð. Þeir fara
á stjá á næturnar og stela bíl-
um ferðamanna, einkum dýr-
um BMW-glæsivögnum. Lög-
reglan segir stigamennina ein-
beita sér að ferðamönnum
vegna þess að þeir hafi oft
reiðufé á sér, en heimamenn
flestir aðeins tékkhefti. Eng-
inn hefur orðið fyrir meiðing-
um í sumar, en að sögn lög-
reglunnar hika glæpamennirn-
ir ekki við að grípa til byss-
unnar, álíti þeir þörf á því.
Það nýjasta sem frést hefur
um af þessu tæi í Briissel eru
vopnaðir bófaflokkar, þrír til
sex menn í hverjum, sem ryðj-
ast inn á veitingastaði og
heimta allt fémætt af við-
stöddum, úr, veski og skart-
gripi, og iðja þeirra beinist
eingöngu að ferðamönnum, að
sögn lögreglunnar.
Anna Maria Lombardozzi,
talsmaður ítalska ferðamála-
ráðsins, sagði að ferðamenn
væru tilvalin fórnardýr þess-
ara glæpamanna, af því að
ókunnugir létu oft blekkjast af
brögðum sem ekki stoðaði að
beita innfædda.
Óþekktur Svíi
sigraði í Gausdal
Skák
Margeir Pétursson
SÍÐASTA áratuginn hafa verið hald-
in á þriðja tug alþjóðlegra skákmóta
í Gausdal í Noregi. Mótum þessum
vex sífellt fiskur um hrygg og það
sem endaði nú fyrir helgina var það
sterkasta frá upphafi, meðal þátttak-
enda voru átta stórmeistarar, fimm-
tán alþjóðlegir meistarar og nokkrir
aðrir þekktir skákmenn. Fyrirfram
var stigahæsti þátttakandinn Gyula
Sax frá Ungverjalandi álitinn sigur-
stranglegastur, en heimamönnum til
mikillar gleði tapaði hann strax í
fyrstu umferð fyrir hinum 17 ára
gamla Simen Agdestein, stærstu von
Norðmanna í skákinni. Sænski
stórmeistarinn Lars Karlsson tók
forystuna með því að vinna fjórar
fyrstu, en þótti þá greinilega nóg
komið og gerði stutt jafntefli í síð-
ustu fímm skákunum. Þá sá rúm-
lega tvítugur titillaus Svíi, Thomas
Ernst, sér leik á borði og sigraði
öllum að óvörum með sjö vinninga
af niu mögulegum.
Snemma mótsins tapaði Ernst
fyrir Karlsson og naut því nokk-
urs góðs af Monrad-meðvindinum
fræga. Svíarnir tveir deildu síðan
með sér efsta sætinu eftir sex um-
ferðir, en í þeirri sjöundu vann
Ernst óvænt hinn trausta landa
sinn, alþjóðameistarann Harry
Schussler, og komst þar með upp í
efsta sætið og náði að halda því.
Röð efstu manna á mótinu varð
þessi:
1. Ernst, Svíþjóð, 7 v. af 9 mögu-
legum.
2. Karlsson, Svíþjóð, v.
3. -7. Guðmundur Sigurjónsson,
Margeir Pétursson, Sax, Ung-
verjalandi, Lein, Bandaríkjunum
og Jansa, Tékkóslóvakíu 6 v.
Arnþór Einarsson, Islendingur
búsettur í Svíþjóð, hlaut fjóra
vinninga, Árni A. Árnason þrjá
vinninga og Guðmundur Halldórs-
son tvo vinninga. Þátttakendur
voru alls 56 talsins.
Ég komst snemma upp á topp-
inn með því að vinna ísraelska
stórmeistarann Kraidman og
Guðmund Halldórsson, en spólaði
síðan í sama farinu þar til ég tap-
aði klaufalega fyrir sænska al-
þjóðameistaranum Wiedenkeller.
Tapið hafði hressandi áhrif á
keppnisskapið því í tveimur síð-
ustu umferðunum náði ég að vinna
þau Piu Cramling og Simen Agde-
stein og dugði sá ágæti enda-
sprettur mér til verðlaunasætis.
Guðmundur Sigurjónsson tefldi
mun traustar, tapaði engri skák,
og komst í raun og veru aldrei i
taphættu. Hann vann Norðmann-
inn Kvassheim í þriðju umferð, en
sá tefldi fullhvaí st og varð að gef-
ast upp eftir aðeins sautján leiki. í
fimmtu umferð vann hann Piu
Cramling, en vopn sænsku stúlk-
unnar virðast ekki bíta á okkur
íslendingana lengur. I sjöundu
umferð hefndi Guðmundur mín og
vann Wiedenkeller örugglega. Tvö
jafntefli við þá Karlsson og Lein í
síðustu umferðunum héldu honum
síðan við toppinn.
Þó efsta sætið hafi ekki náðst að
þessu sinni var það þriðja þó mjög
vel viðunandi, aö deila sæti með
þeim Sax, Lein og Jansa er ekki
neitt til að kvarta yfir. Hinn síð-
astnefndi kom t.d. beint frá tékkn-
eska meistaramótinu þar sem
hann sigraði ásamt Hort.
Af kunnum köppum sem urðu
að sætta sig við að ná ekki verð-
launasæti má nefna Norðmennina
Simen Agdestein og Helmers, Sví-
ana Schussler, Piu Cramling,
Schneider og Ornstein, Höi frá
Danmörku, Bandaríkjamennina
Shamkovich, Saidy og Tisdall, svo
nokkrir af titilhöfunum séu nefnd-
ir.
Um árangur hinna íslending-
anna er það að segja að Arnþór
Einarsson stóð sig vel miðað við
það að hann er nýliði í þessum
styrkleikaflokki. Árni Á. Árnason
barðist vel að vanda en var sein-
heppinn og á margt ólært. Guð-
mundur Halldórsson hefði átt að
geta staðið sig vel á þessu móti og
slakan árangur hans er erfitt að
skýra. Ýmist lagði hann of mikið á
stöður sínar eða lék gróflega af sér
í tímahraki. Þegar menn lenda í
slíkri ónáð hjá Caissu er ekkert
annað að gera en að bíta á jaxlinn
og bíða eftir betri byr.
Spennandi skák úr síðustu umferð:
í lokaumferðinni lauk mörgum
skákum snemma og virtist svo
sem flestir skákmennirnir sættu
sig við þann árangur sem þeir
höfðu þegar náð. Á einu borði
komu þó engir samningar til
greina, en þar tefldi ég við Simen
Ágdestein. Ég þurfti nauðsynlega
á vinningi að halda til að ná verð-
launum og fyrir hann var skákin
enn mikilvægari, sigur hefði ekki
einungis fært honum annað sætið
á mótinu, heldur einnig áfanga að
stórmeistaratitli. Það voru því
dregin fram beittustu vopnin og
upp kom afar vinsælt afbrigði af
drottningarindverskri vörn.
Hvítt: Margeir Pétursson
Svart: Simen Agdestein
Drottningarindversk vörn
1. d4 — RÍ6, 2. c4 — e6, 3. Rf3 —
b6, 4. a3 — Bb7, 5. Rc3 — d5, 6.
cxd5 — Rxd5, 7. Bd2!?
Eftir að Kasparov lék hinu
hefðbundna 7. e3 í fyrstu einvíg-
isskákinni vð Korchnoi og fékk á
sig 7. — g6; og tapaði, hefur verið
leitað að nýjum leiðum í stöðunni
og 7. Bd2 er ein þeirra.
7. — Rd7, 8. Dc2 — c5, 9. e4 —
R5f6!
Þar sem fetaðar eru áður
ótroðnar slóðir fór drjúgur tími í
byrjunina 9. — Rxc3 10. Bxc3 var
nú slæmt fyrir svartan, því 10. —
be7 má svara með 11. dxc5 —
Rxc5,12. Bxg7.
10. Hdl — cxd4, 11. Rxd4 a6! 12.
Bg5 — Dc7, 13. Bd3 — b5!?
Það var álit þeirra keppinauta
okkar sem fylgdust með skákinni
að svartur hefði fengið ágæta
stöðu eftir byrjunina. Það má vel
vera rétt, en í framhaldinu dregur
Agdestein of lengi að ljúka liðs-
skipan sinni og hróka stutt. Hér
kom 13. — Bc5, 14. Rf3 0-0 t.d.
sterklega til greina.
14. 04) — Rg4!? 15. g3 — Rge5,
16. Bf4 - Hc8?
Hér var 16. — Be7 nauðsynlegt.
17. Db3!
Mjög óþægilegur leikur sem
hótar fyrst og fremst 18. Rcxb5! —
axb5 19. Bxb5 og svarta liðið er
leppað í bak og fyrir. Þá er fórnin
Rxe6 einnig möguleg í ýmsum
stöðum. Sennilega hefur Agde-
stein yfirsézt að 17. — Rc5 gengur
nú ekki vegna 18. Bxb5+!
17. — g5, 18. Bxe5.
Auðvitað ekki 18. Rxe6? fxe6,19.
Dxe6- Be7, 20. Bxg5 — Rf3-. Það
fór mikill tími í að athuga alla
fórnamöguleikana og nú áttum við
aðeins hálftíma eftir hvor.
18. - Rxe5.
19. Rcxb5!!
Það var að duga eða drepast.
Eftir 19. Be2? — Bc5 hefur svartur
biskupaparið og virka stöðu.
19. — axb5, 20. Bxb5+ Ke7, 21.
Rf3!
Það er mjög óvenjulegt að stofn-
að sé til uppskipta strax eftir fórn,
en það var nauðsynlegt að losna
við hinn öfluga riddara svarts á
e5. 21. — Bxe4? gengur nú ekki
vegna 22. Db4+ Dc5, 23. Rxe5.
21. — Rxf3+ 22. Dxf3 - Bc6.
Ef 22. - Hd8 þá 23. Hxd8 Dxd8,
24. Dc3! f6 25. Dc5+ Kf7 26. Da7 -
Dc7, 27. Ba6 og vinnur.
23. Hcl — Bxb5
Ef 23. - Db6 þá 24. Bxc6 Hxc6,
25. e5! - Hxcl 26. Df6+ - Ke8 27.
Hxcl - Hg8, 28. Hc8+ Kd7, 29.
Ha8! og vinnur.
24. Hxc7+ Dxc7, 25. Hdl — Hd7.
Undir venjulegum kringum-
stæðum ættu hrókur og tveir bisk-
upar að duga til að vega upp á
móti drottningu og tveimur peðum
en í framhaldinu kemur það svört-
um enn í koll að hafa ekki þróað
kóngsvæng sinn þegar færi gafst.
26. Hxd7+ — Bxd7, 27. Dc3!
Vinningsleikurinn. Svörtu
mennirnir eru nú dæmdir til að
þvælast hver fyrir öðrum á
kóngsvængnum á meðan hvítu frí-
peðin renna upp í borð.
27. — f6, 28. b4 — Bg7, 29. Dc5+
— Kf7, 30. b5 — Kg6, 31. b6 — Hc8,
32. De7 - Hcl+, 33. Kg2 — Bb5,
34. h3.
Svartur hótaði máti.
34. — Bfl+, 35. Kh2 — Hbl, 36.
b7 — Be2, 37. Be8+ — Kh6, 38. g4
- f5, 39. Dh5 mát.