Morgunblaðið - 14.11.1984, Blaðsíða 1
80 SIÐUR
MffiMttfifafetö
STOFNAÐ 1913
222. tbl. 71. árg.
MIÐVIKUDAGUR 14. NÓVEMBER 1984
Prentsmiðja Morgunblaðsins
HryÖjuverk Sovétmanna í Afganistan:
Myrtu 450 óvopn-
aða andspyrnumenn
Hundruð afganskra barna send nauðug í „sovéskt uppeldi“
Nýju-Delhí. 13. nóvember. AP.
Vestrænir stjórnarerindrekar sem
ekki vildu lita nafna getið segjast
hafa það eftir áreiðanlegum heimild-
um, að sovéskir hermenn og afg-
anskir stjórnarhermenn hafi myrt
450 andspyrnumenn sem gefist
höfðu upp og lagt niður vopn eftir
harða orrustu.
Erindrekarnir segja atburðinn
hafa átt sér stað í síðasta mánuði,
er stjórnarhermenn og Rússar
gerðu áhlaup á stöðvar and-
spyrnumanna nærri Hezzera Jot í
fjöllunum f norðvesturhluta Afg-
anistan. Andspyrnumennirnir
sem um ræðir bjuggu um sig í
virki miklu, en voru umkringdir
og gátu eigi hörfað. Vörðust þeir
þó uns skotfæri þeirra þraut, en
þá drógu þeir hvítan fána að húni
og lögðu niður vopn. Er þeim hafði
verið smalað saman gaf sovéskur
herforingi skipun um að þeir
skyldu allir liflátnir og voru and-
Ósætti um
inngöngu
Spánar og
Portúgals
Bnunel, 13. nÓTember. AP.
Utanríkisriðherrar Efnahags-
bandalags Evrópu sátu í dag á fund-
um í höfuðstöðvum bandalagsins og
skeggræddu inngöngu Spánar og
Portúgals í samtökin. Innganga
landanna hefur verið ákveðin 1.
janúar 1986, en ýmis vandamál hafa
komið upp á ráðherrafundum EBE
sem gætu tafið gang mála.
Ýmis þessarra mála voru rædd á
fundinum f dag og f gær, en árang-
ur varð lftill eða enginn. 26. nóv-
ember munu ráðherrarnir hittast
og hafði sá fundur verið áætlaður
sá sfðasti vegna málsins, síðan
átti að ræða beint við Spánverja
og Portúgali á tveimur næstu dög-
unum. Nú eru horfur á að því verði
frestað um óákveðinn tíma.
Er hængurinn sá, að þau
lönd sem fyrir eru f EBE hafa ekki
getað komið sér saman um hvað sé
hægt að bjóða Spáni og Portúgal f
staðinn fyrir það sem þau lönd
bjóða.
Þá berast þær fregnir úr höfuð-
stöðvum EBE, að Marokkó hafi
sótt um aðild að bandalaginu.
Munu vera mjög skiptar skoðanir
innan EBE hvort af því geti orðið.
Einn háttsettur embættismaður
innan bandalagsins sagði að inn-
ganga Marokkó væri „ekki raun-
hæf“. Hassan Marokkókonungur
er á öðru máli, hann sagði i viðtali
f sfðustu viku, að umsókn Marokkó
hefði verið rædd af mikilli alvöru
á fundi EBE í júnf siðastliðnum.
spyrnumennirnir þá umsvifalaust
skotnir á staðnum. Morðin fram-
kvæmdu bæði sovéskir hermenn
og stjórnarhermenn.
Sovétmenn eru farnir að flytja
hundruð afganskra barna í „upp-
eldi“ til Sovétríkjanna. Fyrsti
hópurinn hélt frá Kabúl til Mið-
Asfu 5. nóvember síðastliðinn. Þá
hurfu á braut 870 börn á aldrinum
7 til 9 ára. Stjórnarandstæðingar
og vestrænir stjórnarerindrekar
segja börnin hafi verið tekin nauð-
ug af foreldrunum og flughöfnin f
Kabúl hafi verið troðin grátandi
foreldrum. Herma fregnir að fleiri
hópar muni verða sendir f hið
„sovéska uppeldi" á næstunni, en
börnin munu verða f allt að 10 ár i
Sovétríkjunum. Forseti landsins,
Babrak Karmal, sem Sovétmenn
styðja eindregið, kallar þetta
„stórkostlegt og einstætt vinarhót
sovésku þjóðarinnar i garð Afg-
ana“.
Ný átök
Símamynd AP.
Til nýrra átaka kom f grennd vió nokkrar kolanámur í Bretlandi í dag og slösuðust nokkrir lögreghimenn og
verkfallsmenn í þeim. Þá mættu vfða enn fleiri verkfallsmenn til vinnu og hafa átök farið vaxandi eftir þvf sem
fleiri hafa hætt verkfallsaðgerðum og mætt aftur til vinnu. Telur lögreglan að aðgerðir verkfallsmanna séu mun
skipulegri en áður.
Vfða er ástandið hörmulegt
Illa horfir
fyrir nær
helmingi
Afríkubúa
Nairóbf, Kenya, 13. nóvember. AP.
ÁSTANDIÐ í Afrfkurfkjunum 27
sem illa hafa orðið úti í þurrkun-
um miklu sem valdið hafa hinni
miklu hungursneyð, fer versnandi
þegar á heildina er litið. Það kem-
ur fram í nýútkominni skýrslu
FAO, Matvæla- og Landbúnað-
arstofnun Sameinuðu þjóðanna.
1 skýrslunni segir að fjögur lönd
hafi bæst við langan lista þeirra
sem neyðarástand rfkir f, Burundi,
Kenya, Marokkó og Rwanda.
Hungursneyðin er verst í fimm
löndum , Chad, Eþiópfu, Mali,
Mauritanfu og Mozambique, en
ljósu punktarnir f skýrslunni voru
þeir, að smárikið Swaziland þyrfti
eigi lengur á aðstoð að halda og f
Benin, Ghana, Guinea Bissau,
Mið-Afríkulýðveldinu og Togo
væri búist við eðlilegri uppskeru.
Samt er ástandið afar slæmt,
hungur sverfur að 200 milljónum
af 500 milljónum íbúa Afríku.
Pólland:
Stjórnin segir mannrétt-
indanefndum stríð á hendur
Varajá, Póllandi. 13. nóvember. AP.
JERZY URBAN, talsmaður
stjórnvalda í Póllandi, sagði í dag,
að leiðtogar hinna nýju mann-
réttindahreyfinga, sem sprottið
hafa upp í kjölfarið á morðinu á
séra Jerzy Popieluszko á dögun-
um, skyldu gera sér grein fyrir því
að starfsemi slíkra nefnda væri
með öllu ólögleg og þeir sem
tækju þátt í starfseminni ættu á
hættu að vera sóttir til saka fyrir
vildð.
Mannréttindanefndir hafa
verið skipaðar í þremur stór-
borgum i Póllandi og á döfinni
hefur verið að stofna fleiri.
Verkefni þeirra hefur verið
hugsað m.a. að greina frá vald-
beitingu lögreglu. Aðstandend-
ur hreyfinganna eru allir leið-
andi menn innan Samstöðu og
COR. Urban greindi frá þvi, að
stefnumál hreyfinganna væru
„fjandsamleg ríkinu og sniðin
til þess að einangra stjórnvöld
Morð á landamærun-
um kælir sambúðina
Prag, 13. nóvember. AP.
SAMBÚÐ Austurrfkis og Tékkó-
slóvakíu hefur versnað til mikilla
muna sfðustu dagana, eða eftir að
austurriskir landamæraverðir fundu
tékkneskan flóttamann dáinn Aust-
urríkismeginn við línuna. Hafði
hann verið skotinn í bakið.
Snðrp orðaskipti hafa verið
milli stjórnvalda landanna beggja
vegna þessa atburðar og nú hafa
Tékkar kallað sendiherra sinn í
Vínarborg heim „um óákveðinn
tíma“. Tala Tékkar nú um „furðu-
lega andtékkneska herferð“, en í
Austurríki er mikið talað um
morð landamæravarðanna. Tékk-
ar neita staðfastlega að maðurinn
hafi verið felldur á austurrískri
grund.
og koma á stjórnleysi i landinu
á ný“. Þá sagði hann umsvif
Samstöðu- og COR-manna
ómakleg svo ekki væri meira
sagt, að notfæra sér dauða
prestsins Popieluszko í eigin-
hagsmunaskyni.
Mannréttindahreyfingarnar
eru fyrstu fjörbrot Samstöðu
sem talandi er um síðan herlög
voru sett á í Póllandi 1981 til að
uppræta hreyfinguna. Urban
sagði: „Hreyfingarnar eru ólög-
legar vegna þess að það þarf
leyfi til að stofna félög. Slíkt
leyfi hefur ekki verið veitt.
Þessir menn eru að rífa niður
lög og reglu á sama tíma og þeir
segjast ætla að standa vörð um
þau.“