Morgunblaðið - 14.11.1984, Blaðsíða 38

Morgunblaðið - 14.11.1984, Blaðsíða 38
38 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 14. NÓVEMBER 1984 Símmnynd AP. Ösku Indiru dreift Rajiv Gandhi, sonur Indiru Gandhi fyrrum forsetisráðherra Indiands, hellir hér úr öskukrukkum út um lestarop flutningaflugvélar yfir Himalaya-fjöllum á sunnudag. Indira óskaöi sjálf eftir því að jarðneskum leyfum hennar yrði dreift yfir Himalaya-fjöll. Rækjustríð í Noregi Osló, 13. nóvember. Frá Jan Erík Lauré, frétUriUra Mbl. NORSKIR rækjusjómenn ná ekki upp í nef sér fyrir bræði þessa dag- ana. A sama tíma og þeim er bannað að veiða vegna sölutregðu erlendis er dönsk og rússnesk rækja flutt inn til Noregs. Segir frá þessu í „Fisk- eribladet“ í Harstad. Rækjuvinnsla Helge Richard- sens í Tromsö tók í fyrri viku á móti 220 tonnum af danskri rækju og úti fyrir ströndinni bíður rússneskt flutningaskip með 800 tonn til viðbótar. Verður öll þessi rækja fryst fyrir viðskiptavini Helge Richardsens i Noregi. Einn af talsmönnum sjómanna segir, að rússneska rækjan (sú danska er líka veidd á rússneskum miðum), muni keppa um markað- inn við þá norsku og þess vegna hafa rækjusjómenn í Troms-fylki skorað á alla starfsbræður sína að skipta ekki framar við fyrirtæki Helge Richardsen. Bretland: „Kringlótta pundið“ verður allsráðandi Svetlana í rifrildi við son og dóttur í Sovétríkjunum Fjölskyldurifrildi leiddi til þess, að fresta varð fréttamannafundi Svetlðnu, dóttur Staiíns, er hún sneri aftur til Sovétríkjanna í síðasta mánuði eftir að hafa dvalizt 17 ár á Vesturlöndum. Er það haft eftir áreiðanlegum heimildum, að Svetl- ana hafi lent í rifrildi við Jósef son sinn, sem er fertugur og læknir að starfi og Ekaterinu dóttur sína, sem er 38 ára gömul og starfar sem leikhús- og bókmenntagagnrýnandi. Er talið, að þau hafi gert móður sinni það Ijóst, að þau séu ekki búin að fyrirgefa henni það að hafa yfir- gefið þau árið 1967. Þá mun þeim einnig hafa mis- líkað mjög sú ákvörðun Svetlönu að taka með sér 13 ára gamla dótt- ur sína, Olgu Peters, til Moskvu. Olga er alin upp á Vesturlöndum og hefur bandarískt vegabréf. Bæði Jósef og Ekaterina eiga að hafa fundið að þvi við móður sína að rífa stúlkuna upp úr umhverfi hennar og fara með hana i fram- andi umhverfi, þar sem hún talar ekki einu sinni málið. Talið er, að þetta hafi knúið sov- ézk yfirvöld til þess að hætta við þau áform — að minnsta kosti að ERLENT í síðustu viku var haft eftir William Peters, föður Olgu, en hjónaband hans og Svetlönu stóð í þrjú ár, að hann hygðist komast að raun um, að hve miklu leyti dóttir hans hefði orðið að fara til Sovétríkjanna andstætt vilja hennar. „Ég veit ekki, hvort þetta er satt, en ég er að kanna málið með aðstoð utanríkisráðuneytis- ins,“ sagði Peters. Hann bætti því við, að það væri von sín, að Olga ætti eftir að snúa aftur til Banda- ríkjanna. London, 13. nÓTember. AP. FRÁ OG með næstu áramótum verð- ur hætt að prenta pundsseðla í Bret- landi að því er Nigel Lawson, fjár- málaráðherra, skýrði frá í gær. Þar með verður nýja pundmyntin, „kringlótta pundið", sem svo er kall- að, flaggskip breska gjaldeyriskerf- isins, en hún er ákaflega óvinsæl og hreinasta andstyggð í augum íhaldssamra Breta. í ræðu sinni um efnahagsmál, sem fjármálaráðherra flytur í neðri málstofunni á misseris- fresti, greindi hann einnig frá þvi, að um áramótin hætti hálfs penny-peningurinn að vera lögleg mynt og vcrður þar með bundinn endir á 704 ára sögu hennar. Hef- ur þessi peningur verið sleginn allt frá árinu 1280. Lawson sagði, að með því að taka upp pundmynt- ina myndu stjórnvöld spara sér þrjár milljónir punda á ári. „Pundmyntin endist 50 sinnum lengur en seðillinn en kostar þó aðeins hálfu meira i sláttu," sagði Lawson, og gerðu þingmenn ýmist hróp að honum fyrir eða fögnuðu nýbreytninni. Lundúnabúar, sem voru spurðir um nýju myntina, höfðu flestir á henni hina mestu skömm. „Þessar hryllilegu spírur," sagði blaðasal- inn Harry Ward. „Það vill þær enginn. Ef ég gef þær til baka horfir fólk á mig eins og ég sé að reyna að plata það.“ „Þessir hlunkar," sagði leigubílstjóri nokkur. „Það er allt í lagi þegar ég sit í bílnum, en þegar ég stend upp með hundrað eða tvö hundruð í vasanum verð ég að styðja mig við bílinn til að detta ekki.“ Bretland: Svetlana Stalín sinni — að halda fréttamanna- fund, þar sem Svetlönu var ætlað að fordæma vestræna menningu og gera grein fyrir þeim vonbrigð- um, sem leitt hefðu til þess, að hún sneri aftur til Sovétríkjanna. Þann tíma, sem Svetlana dvald- ist á Vesturlöndum, bjó hún lengst af í Bandaríkjunum, en síðustu tvö árin dvaldist hún þó ásamt Olgu dóttur sinni í Cambridge í Bret- landi. Orðljótum þing- manni vísað burt London 13. aÓTember. AP. DENNIS Skinner, einn þingmanna Verkamannaflokksins, var í gær rekinn út úr neðri málstofu breska þingsins fyrir að hafa kallað David Owen, formann jafnaðarmanna- flokksins nýja, „montið soramenni**. Þingforseti skipaði Skinner að draga ummæli sín umsvifalaust til baka og kvaðst þá Skinner fallast á að sleppa orðinu „montinn" en hitt léti hann standa. Var honum þá sagt að hypja sig út úr húsi og láta ekki sjá sig það sem eftir væri dagsins. „Þú veist ofur vel, að til að geta haldið uppi málefnalegri umræðu verða menn að kunna sér hóf,“ sagði þingforseti þegar Skinner var skipað burt. Dennis Skinner tilheyrir vinstri armi Verkamannaflokksins og er frægur fyrir að láta sig litlu skipta þingsköp og aðra manna- siði. Árið 1981 var honum einnig vísað út en þá hafði hann sakað þingforseta, sem á að vera hlut- laust í flokkadráttum á þingi, um pólitíska hlutdrægni með bví að sækja garðveislu á vegum Ihalds- flokksins. Danmörk: Sjö nýjar flótta- mannamiðstöðvar Kaupmannaböfn, 13. nóvember. Frá Ib Björnbak, frétUríUra Mbl. GRÍÐARLEGUR straumur flótta- manna leitar nú til Danmerkur og hefur reynst nauósynlegt aó koma upp sjö nýjum flóttamannamióstöóv- um vítt og breitt um landið í því skyni að auóvelda aókomufólkinu að aólagast dönsku samfélagi. f hverri stöð er rúm fyrir 150—200 einstakl- inga. Flóttafólkið kemur aðallega frá íran, Sri Lanka og írak. Ekki síst hefur straumur pólitískra flótta- manna aukist mikið frá því í júní- mánuði og veldur nú miklum erf- iðleikum í stjórnkerfinu, sem taka verður afstöðu til þess í hverju einstöku tilfelli, hvort veita skuli viðkomandi pólitískt hæli. Sem stendur bíða um 2.000 flóttamenn svars við beiðni um að fá að setjast að í Danmörku. Sé svarið jákvætt, tekur Danska flóttamannahjálpin við og aðstoð- ar viðkomandi í eitt og hálft ár, bæði félagslega og fjárhagslega, auk þess sem séð er fyrir dönsku- kennslu og fólki hjálpað til að verða sér úti um menntun, starf og húsnæði. Auk hinna tvö þúsund flótta- manna sem bíða eftir svari hafa önnur tvö þúsund fengið landvist- arleyfi síðan í júnímánuði. ng flóttamenn halda áfra... að streyma til Danmerkur. En stjórnvöld halda fast við þá reglu að veita beri öllum pólitískum flóttamönnum hæli í landinu. Lamaður maður flaug einn um- hverfis jörðina OftkUnd, Kftliforníu, 13. nÓTember. AP. DONALD Rodewald var ekki á þeim buxunum aó láta smámuni koma í veg fyrir að hann flygi í kringum hnöttinn svo aó hann flaug umhverfis jöróina í eins hreyfils vél sinni og lenti eftir vel lukkaða feró í morgun. Hann hafði lagt upp í ferðina þann 25. júlí síó- astliöinn og flaug samtals 26 þús- und mílur. Rodewald sagði að flugið hefði verið það auðveldasta við ferð- ina. Þar sem hann er lamaður á báðum fótum og er að öðru jöfnu i hjólastól, sagðist hann hafa orðið að þiggja hjálp fjölda á jörðu niðri, en öll hefði sú aðstoð verið veitt með gleði og góðum hug. Ekki er vitað til að lamaður maður hafi áður unnið slíkt af- rek. Rodewald er 66 ára. Hann lamaðist 1954, þegar hann lenti í flugslysi í æfingaflugi.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.