Morgunblaðið - 14.11.1984, Blaðsíða 34

Morgunblaðið - 14.11.1984, Blaðsíða 34
34 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 14. NÓVEMBER 1984 VR byggir íbúðir fyrir aldraða félagsmenn: Greiðslum hagað eft- ir getu hvers og eins VERSLUNARMANNAFÉLAG Reykjavíkur hefur ráðist í byggingu á 60 íbúð- um fyrir aldraða félagsmenn VR og hafa íbúðirnar nú verið augiýstar til sölu. Er hér um að ræða 22 þriggja herbergja íbúðir, 36 tveggja herbergja íbúðir og 2 einstaklingsíbúðir við Hvassaleiti 56—58 í Reykjavík. Stærð íbúðanna er frá 60 fermetrum og upp í 100 fermetra og verðið, miðað við verðlag í október 1984, frá 1300 þúsund krónum og upp í 2400 þúsund krónur. greiddu krónur 150 þúsund. Þá væri einnig miðað við að greiðslum yrði hagað eftir getu hvers og eins. Til dæmis væri gert ráð fyrir að fólk, sem ætti íbúð fyrir, þyrfti ekki að selja, fyrr en um það leyti sem flutt er í nýju íbúðina, þannig að menn þyrftu ekki að hafa áhyggjur af fjármögnun á meðan á byggingartímanum stendur. „Þetta er í fyrsta skipti í sögu verkalýðsfélaga hérlendis, sem ráð- ist er í svona framkvæmdir með hagsmuni aldraðra félagsmanna fyrir augum og því má segja að brotið sé blað í starfi verkalýðsfé- laga hér á landi," sagði Magnús. „Eg vona að þetta sé bara upphafið að því að verkalýðshreyfingin komi meira til móts við þarfir eldri fé- lagsmanna, því að mínu mati eru skyldur stéttarfélaganna hvergi meiri en einmitt gagnvart þessu fólki. Það er eitt af hlutverkum stéttarfélaganna að gera allt sem í þeirra valdi stendur til að hinir elstu félagsmenn geti búið við sem mest öryggi í ellinni," sagði Magn- ús L. Sveinsson, formaður VR. Alyktun tun stóriðju: „Við byggjum þetta í samvinnu við Reykjavíkurborg, en borgin mun eiga og reka þjónustumiðstöð á fyrstu hæð hússins, þar sem m.a. er gert ráð fyrir matsal, sjúkraböð- um, leikfimisal, hársnyrtingu og fótsnyrtingu, svo eitthvað sé nefnt," sagði Magnús L. Sveinsson, formaður VR, í samtali við blaða- mann Morgunblaðsins vegna þess- ara framkvæmda. Magnús sagði að íbúðunum yrði skilað fullfrágengn- um og væri miðað við að þeir fé- lagsmenn VR, sem orðnir eru 63 ára, eigi rétt á að kaupa íbúð, þó þannig að félagar 67 ára og eldri eigi forkaupsrétt. Miðað væri við að þessum aldursmörkum sé náð um áramótin 1985 til 1986, en gert er ráð fyrir að fyrstu íbúðirnar verði tilbúnar í lok næsta árs. Aðspurður um kjörin varðandi þessi íbúðakaup sagði Magnús m.a. að gert væri ráð fyrir að við stað- festingu á kaupunum greiddu þeir sem kaupa tveggja herbergja íbúð- ir krónur 100 þúsund, en þeir sem keyptu þriggja herbergja íbúð Hvatt til samstöðu Akureyri, 12. nóvember. AÐALFUNDUR Kjördæmisráðs sjálfstæðisfélaganna í Norðurlandskjördæmi eystra, sem haldinn var á Akureyri um síðustu helgi, samþykkti samhljóða eftirfarandi ályktun um stóriðju: „Einn vænlegasti kostur varð- andi atvinnuuppbyggingu í fram- tíðinni er aukin nýting á orkuauð- lindum landsmanna. Sú nýting byggist fyrst og fremst á stóriðju- fyrirtækjum, sem breyta orkunni í útflutningsvöru. Kjördæmisráð sjálfstæðisfélaganna í Norður- landskjördæmi eystra fagnar þvi stefnu iðnaðarráðherra og tilraun- um stóriðjunefndar til að koma slíkum atvinnurekstri á fót. Á Eyjafjarðarsvæðinu hefur nú um sinn gætt stöðnunar og jafnvel hnignunar í atvinnulífi. Fólksfjölg- un hefur engin orðið og jafnvel er um brottflutning fólks af svæðinu að ræða. Þessari þróun verður að snúa við. Því hvetur Kjördæmis- ráðið eindregið til þess að næsta stóriðjufyrirtæki, sem reist verður, verði staðsett í Eyjafirði, enda er slíkt þjóðhagslega nauðsynlegt til þess að eðilegt byggðajafnvægi haldist i landinu. Kjördæmisráðið hvetur til aukinnar samstöðu og sóknar Eyfirðinga í þessu mikla hagsmunamáli héraðsins, þannig að ákvörðun geti legið fyrir sem fyrst." GBerg Horgunblaoio/GBerg. Frá aðalfundi Kjördæmisráðsins á Akureyri um helgina, Sigurður J. Hannesson formaður f ræðustóli. Norðurlandskjördæmi eystra: Aðalfundur Kjördæmisráðs sjálfstæðisfélaganna Akureyri, 12. nóveœber. AÐALFUNDUR Kjördæmisráðs sjálfstæðisfélaganna í Norður- landskjördæmi eystra var haldinn í húsnæði Sjálfstæðisflokksins f Kaupangi á Akureyri dagana 10. og 11. nóvember. Auk venjulegra aðalfundar- starfa má geta um yfirgripsmik- ið erindi Birgis ísleifs Gunnars- sonar, formanns stóriðjunefnd- ar, um stöðuna í stóriðjumálum, sérstaklega að því er varðar byggingu álvers við Eyjafjörð, og einnig kynnti Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson drög að breyttum prófkjörsreglum Sjálfstæðis- flokksins, sem væntanlega munu verða samþykktar síðar á þessu ári. Þá fluttu alþingismenn Sjálfstæðisflokksins í kjördæm- inu, Halldór Blöndal og Björn Dagbjartsson, erindi um stjórn- málaviðhorfið og stöðu atvinnu- mála almennt. Einnig ræddi Svanhildur Björgvinsdóttir um störf Landssambands sjálfstæð- iskvenna. Mikill einhugur rikti á fundinum og sendi hann m.a. frá sér ályktanir um stjórnmála- viðhorfið og stóriðjumál, sem birtar eru hér annars staðar á síðunni. Sigurður J. Hannesson, Akur- eyri, var endurkjörinn formaður ráðsins og auk hans voru kjörin i stjórn: Sverrir Leósson, Akur- eyri, Höskuldur Sigurgeirsson, Húsavfk, Skírnir Jónsson, Skarði, og Erna Jóhannsdóttir, ólafsfirði. — I varastjórn voru kjörin: Guðfinna Thorlacius, Ak- ureyri, Þorsteinn Aðalsteinsson, Dalvík, Helgi ólafsson, Raufar- höfn, Margrét Yngvadóttir, Ak- ureyri, og Benjamin Baldursson, Tjörnum. í Flokksráð Sjálfstæðisflokks- ins voru kjörin: Jóhann Kr. Jóns- son, Húsavfk, Ásgeir Ásgeirsson, ólafsfirði, Gunnar Ragnars, Akureyri, Björn Jósef Arnvið- arson, Akureyri, Þórunn Sigur- björnsdóttir, Akureyri, og Valdi- mar Kjartansson, Hauganesi. í kjörnefnd voru kosin: Guðmund- ur Heiðar Frímannsson, Akur- eyri, Jóhann Kr. Jónsson, Húsa- vík, Ásgrimur Hartmannsson, ólafsfirði, Bergljót Rafnar, Ak- ureyri, Sverrir Leósson, Ákur- eyri, Július Snorrason, Dalvík, og Björgvin Þóroddsson, Garði. GBerg Stjómmálaályktun: Ekki má fyrnast yfir þá reynslu sem þjóðin varð að þola vegna verðbólgu Akoreyri, 12. oÍTenber. EFTIRFARANDI stjórnmilaályktun var samþykkt samhljóða á aðalfundi Kjördæmisráðs sjálfstæðisfélaganna í Norðurlandskjördæmi eystra, sem haldinn var á Akureyri um síðustu helgi: „Kjördæmisráð sjálfstæðisfé- laganna i Norðurlandskjördæmi eystra leggur sem fyrr áherslu á nauðsyn þess, að stöðugleiki sé i efnahagslffinu. Sterkur gjaldmið- ill, frjálsræði í viðskiptum og arð- semi i fjárfestingum eru forsenda þess, að unnt sé að skapa atvinnu- vegunum lffvænleg rekstrarskil- yrði til frambúðar. Einungis auk- inn afrakstur þjóðarbúsins getur tryggt landsmönnum öllum batn- andi lífskjör og sómasamlega af- komu heimilanna. Á liðnum verðbólguárum gætti vaxandi hneigðar til spákaup- mennsku og óarðbærrar fjárfest- ingar, sem að lokum olli hruni lífskjara á miðju ári 1982. Það var óhjákvæmileg afleiðing af vaxandi skuldasöfnun erlendis og langvar- andi halla undirstöðuatvinnuveg- anna í góðæri. í kjölfarið sigldi lengra samdráttarskeið en íslend- ingar höfðu þolað í mannsaldur og á þessu ári dró svo úr afla að óhjákvæmilegt var að setja kvóta á öll fiskiskip. Þetta hefur valdið samdrætti í hinum strjálu byggð- um, sem leitt hefur af sér óeðli- lega þenslu og búferlaflutninga til Stór-Reykjavíkursvæðisins. Til tímabundins og alvarlegs atvinnu- leysis hefur komið á einstökum sjávarplássum vegna minnkandi afla. Við þessi skilyrði er brýnasta verkefnið að bregðast svo við rekstrarvanda sjávarútvegsins, að hann fái viðunandi starfsgrund- völl og skipi þann sess, sem honum ber sem höfuðatvinnuvegi þjóðar- innar. Rétt er að vekja athygli á því að í erfiðri skuldastöðu þjóðar- innar við útlönd, þá er hlutur út- gerðar 16%, en hún aflar um 70% af öllum útflutningi þjóðarinnar. Stjórnarskiptin á sl. ári mörk- uðu þáttaskil. Þá var brugðist hart við efnahagsvandanum með alhliða ráðstöfunum, sem ollu þvi, að verðbólgan hrökk úr 130% i 20% á nokkrum mánuðum. Jafn- framt tókst að stöðva, að enn frek- ar drægi úr kaupmætti, og hefur hann farið batnandi á yfirstand- andi ári skv. upplýsingum kjara- rannsóknanefndar. Enginn vafi er á þvi, að stöðugleikinn i efna- hagsltfinu og aukið frjálsræði i viðskiptum hafa vakið nýtt frum- kvæði og framtak í atvinnurekstri, sem mun skila sér i auknum þjóð- artekjum. Mikilsvert er að ekki fyrnist yfir þá reynslu, sem þjóðin varð að þola vegna verðbólgunnar og lýsti sér í versnandi lífskjörum, minnk- andi þjóðarframleiðslu og meiri mismununar þegnanna en nokkru sinni á þessari öld. Þessi sárs- aukafulla lexía átti að geta komið í veg fyrir þá verðbólgusamninga, sem gerðir hafa verið eftir fjög- urra vikna verkfall opinberra starfsmanna. Illu heilli var þeirri leið hafnað, að bati lífskjaranna á næsta ári yrði tryggður með hóf- legum peningahækkunum, sem fylgt yrði eftir með ráðstöfunum á sviði ríkisfjármála og skattalækk- unum. Með þeim hætti hefði tek- ist: 1. að tryggja batnandi lifskjör; 2. að viðhalda jafnvæginu í þjóð- arbúskapnum og stöðugu gengi; 3. að skapa svigrúm fyrir fyrir- tækin til að greiða hluta af lífs- kjarabótunum; 4. að færa á erfiðleikatímum hluta af kaupmætti ríkisins yfir á heimilin. Eftir á viðurkenna flestir að skaðinn er skeður. Þjóðin hefur öll tapað á verðbólgusamningunum, og þeir mestu sem síst skyldi og mestar færðu fórnirnar. Þar sann- ast sem oft áður, að sjálfskapar- vítin eru verst. Ríkisstjórnin stendur nú á krossgötum. Vilji hún halda trausti þjóðarinnar er óhjákvæmi- legt að hún geri viðeigandi ráð- stafanir til að jafnvægi skapist á ný í efnahagslífinu og tryggi með- al annars stöðugt gengi krónunnar í samræmi við afkomu útflutn- ings- og samkeppnisatvinnuveg- anna. Til þess að tryggja kaup- máttinn á næsta ári er óhjá- kvæmilegt að Iögfesta viðtækar lækkanir á tollum og vörugjaldi og lækka tekjuskatt verulega. Kjördæmisráð lýsir yfir áhyggj- um sínum vegna versnandi stöðu strjálbýlisins og leggur áherslu á eftirfarandi: 1. Kjarni heilbrigðrar byggða- stefnu er annars vegar fólginn í öflugu og arðsömu atvinnulífi, svo að afrakstur vinnunnar varðveit- ist, þar sem verðmætanna er afl- að. Hins vegar ér nauðsynlegt að efla byggðir Eyjafjarðar til mót- vægis við Stór-Reykjavíkursvæð- ið. 2. Greiðar samgöngur í kjördæm- inu og við Austurland styrkja
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.