Morgunblaðið - 14.11.1984, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ, MIDVIKUDAGUR 14. NÓVEMBER 1984
5
íslenska hljómsveitin:
Áskriftartón-
leikar færðir
vegna verkfalls
ÍSLENSKA hljómsveitin hóf þriðja
■sUrfsir sitt í síðasta mánuði en verk-
fall BSRB varð þcss valdandi að tón-
leikahald hljómsveitarinnar raskaðist
að hluta. Dagsetning fyrstu tveggja
áskriftartónleikanna befur verið færð
til en að öðru leyti verður starfsemi
hljómsveitarinnar óbreytt og alls
verða haldnir 18 tónleikar f vetur.
Guðmundur Emilsson, stjórnar-
formaður hljómsveitarinnar, sagði í
samtaii við blm. Morgunblaðsins að
undirbúningur að fyrstu tónleikun-
um, sem halda átti þann 25. október
sl. hefði hafist í byrjun þess mánað-
ar. „Bandaríski pfanóleikarinn
Stephanie Brown hugðist leika með
okkur á þessum fyrstu áskriftar-
tónleikum en þar sem að verkfall
stóð yfir komst hún ekki til lands-
ins í tæka tíð og var tónleikunum
því frestað," sagði Guðmundur. „Og
þó að Brown hefði náð í tæka tfð
var fyrirsjánlegt að hún gæti orðið
teppt hér í einhvern tíma sem hefði
raskað allri tónleikaáætlun hennar.
Á það þorðum við ekki að hætta.
Islenska hljómsveitin lét þó ekki
staðar numið heldur tók til við að
undirbúa næstu tónleika og nú er-
um við með tvær dagskrár í æfingu
sem fluttar verða með stuttu milli-
bili. Fyrri dagskráin verður flutt á
Selfossi laugardag 17. og f Reykja-
vik sunnudag 18 þ.m. en sú síðari á
Akranesi laugardag 24. og f Reykja-
vík sunnudag 25. þ.m. Tónleikarnir
í Reykjavfk 18. og 25. þ.m. eru þá
fyrstu tveir áskriftartónleikarnir
en tónleikarnir á Akranesi og Sel-
fossi eru nokkurs konar tilraun til
þess að koma til móts við fólk úti á
Guðmundur Emilsson
landsbyggðinni. Okkur fínnst sem
það fólk fari varhluta af allri lif-
andi tónlist og hyggjumst við halda
tónleika á fleiri stöðum i vetur s.s. í
Keflavfk, Borgarnesi og jafnvel f
Vestmannaeyj um.“
Aðspurður sagði Guðmundur að
verkfall BSRB hefði komið mjðg
illa við íslensku hljómsveitina.
„Allt fjárstreymi til hljómsveitar-
innar tefst um margar vikur og þeir
miklu fjármunir sem að við settum
i kynningarstarfsemi f upphafi
starfsárs urðu meira og minna að
engu í verkfallinu. Því vonum við af
fremsta megni að okkar áskrifend-
ur taki nú við sér og styðji við bakið
á okkur, að öðrum kosti er íslenska
hljómsveitin f miklum vanda stödd
svo ekki sé meira sagt.“
Þaö fór ekki á milli mala að þeir
félagar i Río komu, sáu og sigruöu
í Broadway um síöustu helgi. Söng-
ur þeirra félaga hefur sjaldan
hljomað betur og hin storkostlega
storhljomsveit Gunnars Þoröarson-
ar leikur af miKilli snilld.
, k
"t*
Næstu skemmtanir í Broadway föstu-
dags- og laugardagskvöld kl. 19.00.
Framreiddur er Ijúffengur þríréttaður
kvöldverður og að loknum skemmtiatrið-
um leikur hin nýja hljómsveit Gunnars
fyrir dansí asamt söngvurunum Björgvini
Halldórssyni, Sverri Guðjónssyni og Þur-
íði Sigurðardóttur.
Borðapantanir og miðasala er í Broadway
daglega kl. 11 —19, sími 77500.
Venð velkomin velklædd í Broadway.
Flugleiðir bjóða þér einstaka greiðsluskilmála:
Þú greiðir fimmtung út og aíganginn á fjórum mánuðum!
Leitaöu frekari upplýsinga um skiðaferðir til Mayrhofen á söluskrifstofum Flugleiða, umboðsmonnum og ferðaskrifstofum.
FLUGLEIDIR
Beint leÍRUtlus
Brottfarardjgar: 26. ianúar, 9. íebrúar og 23. febrúar 1985
Flug og gisting i 2 vikur:
Hótel 1 i herb. 2 í herb. 3 i herb. 4 i herh. 5 i herb.
Café Traudl/Windschnur 22.434.- 22.434.
Gasthof Neuhaus 1 25.122.- 25.122.-
Gasthof Neuhaus II 26.242.- 26.242.-
Sporthotel Strass 26.018.- 25.346.- 25.346.-
Hotel Eli/abeth 31.058 31.058.-
Ibúðir
Landhaus Veronika 1 29.1564.- 22.098.-
Landhaus Veronika II 35.510.- 25.276.-
Landhaus Veronika III 41.852.- 28.454.- 23.974.- 21.748.-
Landhaus Veronika IV 48.222.- 31.632.- 26.102.- 23.344.- 21.652.-
Flug til Luxemborgar og bilaleigubill
Brottfarardagar: Alla fostudaga trá 21. desember til 6. april 1985
Flug og gisting i 2 vikur:
Hótel 1 í herb. 2 í herb. 3 i herb. 4 í herb. 5 l herb.
Café Traudl/Windschnur 20.793.- 20.791.-
Gasthof Neuhaus 1 23.957.- 23.957.-
Gasthof Neuhaus II 25.273.- 25.273.-
Sporthotel Strass 25.007.- 24.218.- 24.218.-
Hotel Elizabeth 30.943 30.943.-
Ibuðir
Landhaus Veronika 1 28.703.- 20.401.-
Landhaus Veronika II 36.179.- 24.139.- 20.121.-
Landhaus Veronika III 43.641.- 27.877.- 22.613.- 19.981.-
Landhaus Veronika IV 51.117.- 31.615.- 25.105.- 21.857.- 19.897.-
Fjallalíf er sérstakur lífsmáti, mótaður af Tírólum fyrir lífsglatt fólk. Fjallalífið er með fjörugasta
móti í Zillertal, einu þekktasta skíðasvæði Austurríkis. Höfuðstaður Zillertal er Mayrhofen,
áfangastaður Flugleiða í vetur.
Fjallalífið hentar öllum sem kunna að meta fallegt umhverfi,
sólskin, holla hreyfingu, Ijúffengan mat og drykk.
Fjallalífið hefur þau áhrif að öll fjölskyldan fer heim ánægð og
endurnærð. Mayrhofen er líflegur bær, skíðabrekkurnar eru við
allra hæfi, góður skíðaskóli er á staðnum, gististaðirnir eru
sérlega vandaðir og allir skemmta sér konunglega frá morgni til
kvölds, - en vakna þó endurnærðir að morgni.
Fararstjóri Flugleiða heitir Rudi Knapp og sér hann til þess að
allir njóti sín sem best.
Það er ekki dýrt að njóta fjallalffsins í Mayrhofen:
B-flokkur C-flokkur O-flokkur E-flokkur
1 vika 3.183. 3.868.- 4.621.- 5.066.-
2 vikur 6.366.- 7.736.- 9.242.- 10.132.-
Aukadagur 455.- 553.- 661.- 725.-
Ford Fiesta Ford Escort Fiat Ritmo dísil Fiat Regata 100
Opel Corsa Opel Kadett Fiat Regata Ford Sierra
Fiat Uno Fiat Ritmo Opel Ascona
Audi 80