Morgunblaðið - 14.11.1984, Blaðsíða 7
MORGUNBLAÐIÐ, MIDVIKUDAGUR 14. NÓVEMBER 1984
7
Hannes H. Gissurarson í
Mont Pélerin-samtökin
Yngsti félagi, sem kjörinn hefur verið
HANNES H. Gissurarson, sagnfræA-
ingur, hefur verið kjörinn félagi í
hinum víðfrægu Mont Pélerin-
samtökum, sem stofnuð voru af
nokkrum frjálslyndum fræði-
mönnum árið 1947. Er hann yngsti
maður, sem hlotið hefur þennan
heiður. Hannes, sem er rösklega þrí-
tugur, stundar nú doktorsnám við
Oxford-háskóla á Englandi. Hann er
ritstjóri tímaritsins Frelsið og fram-
kvæmdastjóri Stofnunar Jóns Þor-
lákssonar.
Mont Pélerin-samtökin draga
nafn sitt af samnefndu fjalli i
Sviss þar sem stofnfundurinn var
haldinn. Af stofnfélögum má
nefna Friedrich von Hayek,
George Stigler og Milton Fried-
man (sem allir hafa hlotið Nóbels-
verðlaun í hagfræði), Karl Popper,
Ludwig von Mises og Frank'
Knight. Á meðal félaga hafa verið
Luigi Einaudi, fyrrum forseti ít-
alíu, Ludwig Erhard, fyrrum
kanslari Þýskalands, William E.
Simon, fyrrum fjármálaráðherra
Bandaríkjanna, Sir Geoffrey
Howe, utanríkisráðherra Bret-
lands, George Shultz, utanríkis-
ráðherra Bandaríkjanna, og hinn
kunni rithöfundur William Buckl-
ey. Núverandi forseti Mont Pél-
erin-samtakanna er Harris lá-
varður af High Cross, sem fyrir
nokkru sótti Island heim og flutti
hér fyrirlestur. Hann er jafnframt
framkvæmdastjóri Efnahags-
stofnunar Lundúna, sem er óháð
rannsóknar- og fræðslustofnun
frjálslyndra manna.
Fyrstu verðlaun
í ritgerðasamkeppni
I haust kom út hjá forlagi Efna-
hagsstofnunarinnar bókin Hay-
ek’s „Serfdom" Revisited. Þar er
að finna sex ritgerðir hagfræð-
inga, heimspekinga og stjórnfræð-
inga um hugmyndir þær sem aust-
urríski hagfræðingurinn Fried-
rich von Hayek setti fram í bók-
inni Leiðin til ánauðar fyrir
fjörtíu árum (en íslensk þýðing
hennar kom út fyrir fjórum ár-
um). Meðal höfunda er Hannes H.
Gissurarson. Grein hans, sem
nefnist „The Only Truly Progres-
sive Policy" fékk í vor fyrstu verð-
laun í ritgerðasamkeppni á vegum
Mont Pélerin-samtakanna, sem
tengd var nafni Olive Garvey.
Verðlaunin, sem Hannes hlaut,
nema 3.500 bandaríkjadölum (sem
er jafnvirði um 115 þúsund ís-
lenskra króna) og voru þau afhent
á fundi samtakanna í Cambridge í
september. Þar flutti Hannes
ávarp og var jafnframt kjörinn fé-
lagi, sem fyrr segir.
Aðrir höfundar ritgerða í bók-
inni eru Norman Barry, John
Burton, John Gray, Jeremy She-
armur og Karen I. Vaughn. For-
spjall ritar Arthur Seldon, sem er
ritstjóri tímaritsins Economic Af-
fairs.
Áréttar sjónar-
mið Haykes
í ritgerð sinni fjallar Hannes
um viðtökur bókar Hayeks í Bret-
Fer inn á lang
flest
heimili landsins!
landi og Bandaríkjunum, einkum
gagnrýni Johns Maynard Keynes,
Georges Orwell og A.C. Pigou.
Hann heldur því fram, að margir
hafi misskilið (og misskilji raunar
enn) boðskap Hayeks og rökfærslu
og áréttar mikilvæg atriði í hvoru-
tveggja. Hann segir, að hin miklu
ríkisumsvif í velferðarríkjum nú-
tímans hafi leitt til frelsisskerð-
ingar, eins og Hayek hafi séð fyrir
og varað við, og mestu hættuna,
sem nú blasi við telur hann vera
þá, að fólk glati smám saman
frelsisvitund sinni og frelsisást.
Hannes segir, að höfuðhlutverk
frjálslyndra manna sé að vekja at-
hygli á öfugþróun vestrænna sam-
félaga og berjast fyrir breytingum
á stjórnarfari þeirra og fyrir bylt-
ingu í ríki hugmyndanna.
Hannes H. Gissurarson
HAYEK’S
si-HrniiM
REVISITED
Essays by economists,
philosophers and
political scientists on
‘The Road to Serfdom’
after40years
Norman Barry ■ Jokn Bnrton
Hannes H.Gissurarson ■ John Gray
Jereray Shcarmnr Karen I.Vaughn
With Recollections by
Arthur Seldon
Titilsíða bókarinnar Hayek’s
„Serfdom" Revisited.
ÞÚ HEFUR ÞRJÁR GULLVÆGAR ÁSIÆÐUR THAÐ VELJA
INNLÁNSREIKNING MEÐ ÁBÓT
TILÁVÖXTUNAR SPARÆJÁR ÞÍNS-
Pér bjóðast fýllstu vextir, 26,2%, 5trax í fyrsta mánuði eftir 5tofnun reikningsins.
f£' Þér býðst fast að Z8% ávöxtun á 12 mánuðum.
'W*’
3r Þú mátt taHa út hvenær sem er án þess að áunnir vextir sHerðbt.
fiotaleg tilhugsun, ekki satt?
EKKISTIGHÆKKANDI
Innlánsreikningur með Ábót þýðir ekki 5tighækkandi ávöxtun
og þar með margra mánaða bið eftir hámarkinu, heldur fyllstu vexti 5trax
í fyrsta mánuði eftir innlegg.
SKÍNANDIÁVÖXTUN, STRAX.
ABOT
A VEXTI
GULLS ÍGILDI
ÚTVEGSBANKINN
EINN BANKI • ÖU. MÓNUSTA