Morgunblaðið - 14.11.1984, Blaðsíða 31

Morgunblaðið - 14.11.1984, Blaðsíða 31
MORGUNBLADIÐ, MIÐVIKUDAGUR 14. NÓVEMBER 1984 31 Arnór Benónýsson leikur skáldiö Ezra Pound. Hér i tali við sk&ldþróAur sinn, Williams, sem Vióar Eggertsson leikur. Það er í þögn- inni sem það er Leiklist Jóhann Hjálmarsson Eggleikhúsið: Skjaldbakan kemst þangað líka. Höfundur og leikstjóri: Arni Ibsen. Leikmynd og búningar: Guðrún Erla Geirsdóttir. Lýsing: Árni Baldvinsson. Leikhljóð og tónlist' Lárus H. Grímsson. Ég verð að játa að það kom mér á óvart að íslenskur höfund- ur skrifaði leikrit um bandarisku skáldin William Carlos Williams (1883—1963) og Ezra Pound (1885—1972). Samskipti þeirra hafa löngum vakið áhuga bók- menntamanna, enda hafa fáir eða engir höfundar átt ríkari þátt í þróun ljóðlistar enskumæl- andi þjóða á þessari öid. Ezra Pound hélt til Evrópu, bjó lengi i London, París og á Ítalíu. Alls staðar þar sem hann bjó setti hann svip á bókmennta- starfsemi og var forystumaður nýrra andlegra hræringa. Willi- am Carlos Williams sat eftir i bandarískum smábæ, gegndi læknisstörfum og orti i tóm- stundum. Ákaflyndi Ezra Pounds leiddi hann til fundar við ítölsku fasist- ana, hann ímyndaði sér að með þeim gæti hann átt samleið, ekki sist í hagfræðilegum efnum. Pound var gróðahyggja eitur í beinum og taldi að fasisminn myndi kveða hana niður og færa manninum frelsi tilfinninganna. Hann gekk svo langt að tala í áróðursútvarp fasista í Róm í þvi skyni að koma vitinu fyrir landa sína. Á meðan ræktaði William Carlos Williams garðinn sinn i fæðingarbæ sínum, Rutherford i New Jersey. Hann orti um það sem var i kringum hann, náttúr- una og fólkið. Hann gaf hinu smáa og hversdagslega gaum og breytti því i ljóð. Þegar upp var staðið voru áhrif hans ekki minni en Ezra Pounds sem var með heimsmenninguna i farangrin- um. 1 upphafi leikritsins Skjald- bakan kemst þangað lika lætur Árni Ibsen William Carlos Willi- ams hlusta á þögnina og segja: „Það er i þögninni sem það er. Og maður verður að vera einn ... aleinn. Og ekki gripa frammi fyrir þögninni." Rödd Pounds berst til eyrna: „Það er allt of dauðlegt í kringum þig. Þú sérð ekkert. Heyrir ekkert. Þú visnar upp.“ En þögn Williams er full af hljóðum og hann gefur henni Viðar Eggertsson f hhitverki skáldsins Williams Carlos Willi- ams. mál, hið nýja tungutak sem Pound talaði um. Williams: „En yrkisefnin eru hérna allt i kring; skordýrin, blómin, trén, akrarnir, fólkið i bænum .. og hér er ég staddur, á þessum stað og i þessari nýju öld og ég skynja hana af því hún um- vefur mig. Og i Ijósi þessarar nýju aldar fá skordýrin, blómin, trén, akrarnir og fólkið i bænum ... nýtt tungutak. Það er auðvit- að bara bábilja að það sé nauð- synlegt að sanka að sér allri mannlegri þekkingu til þess að geta ort.“ í leikritinu Skjaldbakan kemst þangað líka eru margar hugleið- ingar og orðræður um skáldskap, þess er meira að segja freistað að lýsa innblæstri skálds og tekst að minu viti vel. En verkið snýst ekki einungis um ólíkan þanka- gang skálda og það sem sameinar þau að lokum. Það er lika um vináttuna. Og það gerir að yrkis- efni mannlegan harmleik. Eitt mesta skáld Bandarikjanna, Ezra Pound, er að loknu stríði lokaður inni í búri eins og villi- dýr. Og William Carlos Williams er tortryggður vegna þess að hann er vinur hans. Skjaldbakan kemst þangað lika er virðingarvert leikrit. Það sem helst má finna að því er viss einföldun persónu Pounds. Ezra Pound var víðfeðmur persónu- leiki, en átti sinar veiku hliðar eins og slikir menn. Allir vita að mesti veikleiki hans var hug- myndafræðilegs eðlis. Það er Pound veikleikans sem við kynn- umst í Skjaldbakan kemst þang- að líka. En William Carlos Willi- ams er i leikritinu dæmigerður fyrir óbugandi styrkleika. Jafn- vel i fálmkenndri afstöðu sinni til lifsins er hann með afbrigðum heilsteyptur. Túlkun Viðars Eggertssonar i William Carols Williams er sterk og sannfærandi, ekki sist i þögn- inni sem skáldskapurinn sprett- ur úr. Viðar hefur með þessari túlkun unnið enn einn sigur og verður það orð og nægja að sinni um leikara sem miklar vonir eru bundnar við. Arnór Benónýsson er furðu- lega likur Ezra Pound á yngri ár- um eins og við þekkjum hann af myndum. Hann færir okkur heim sanninn um öfga Pounds og ung- æðishátt þótt hann eigi að teljast þroskaður maður þégar fasism- inn heillar hann. Arnór var i senn skáld og útvarpstæki og naut sin í báðum hlutverkum. Tæknileg atriði sýningarinnar eins og leikmynd og búningar, lýsing, leikhljóð og tónlist voru kunnáttusamleg og guldu ekki þröngra húsakynna og lélegrar aðstöðu. Eiginlega átti þetta leikrit skilið stærra og viðameira svið, en húsakynni Nýlistasafns- ins hafa líka sina kosti. Það er viss innileiki yfir leiksýningum þar, heimilislegt andrúmsloft. Mikið hafði ég gaman af að sjá rauðu hjólbörurunar úr ljóði Williams. Nú þurfa menn að flykkjast i Eggleikhúsið því að það býður upp á leikrit sem hefur mikið að segja og einnig fáséðan leik. Viðræður við fóstur Bókmenntir Jóhanna Kristjónsdóttir Oriana Fallaci: Bréf til barns, sem aldrei faeddist. Útg. Almenna bókafélagið 1984. Halldór Þorsteinsson þýddi. Oriana Fallaci er fræg fyrir viðtöl við ýmsa mektarmenn vítt um ver- öld og nægir að nefna Indiru Gandhi, Gaddafi í Líbýu og Khom- eini í Iran. Oriana er ágengur spyrj- andi, skapmikill og ekki laust við, að ýmsum finnist hún oft og einatt harðsoðin, frökk og ófyrirleitin. Hún hefur gefið út viðtöl sín í nokkrum bókum og er ekki sízt fengur blaðamönnum að lesa þau. Fyrir nokkrum árum skrifaði hún bókina A MAN um ástarævintýri sitt og Alexanders þess Panagoulis sem reyndi að ráða Papadopoulos forsætisráðherra herforingja- stjórnarinnar á sinum tima af dög- um. Þar kom fram splunkuný Oriana, mild og bljúg, sem vildi leggja allt f sölurnar fyrir sinn mann. Bréf til barns sem aldrei fæddist mun hafa komið út á undan og ég hef lesið hana á ensku, en Halldór Þorsteinsson hefur þýtt hana úr frummálinu, itölsku. Eins og bók- artitill gefur til kynna er hér á ferð viðræða Oriönu við ófætt barn sitt, sem hún missti eftir þriggja mán- aða meðgöngu eða svo. I upphafi er sleginn fallegur tónn, Oriana er í senn undrandi og him- inlifandi yfir þvi kraftaverki sem er að gerast innan i henni. Hún litur frá fyrstu dögum strax á þetta sem einstakling og fræðir hann óspart, segir ævintýri, skrafar um hitt og þetta. En sem vikurnar líða fer hún svo að kenna ýmissa þeirra óþæg- inda, sem fylgja meðgöngu og smám saman breytist hljómurinn gagn- vart fóstrinu. Það örlar á beiskju og smám saman breytist beiskjan i gremju og síðan bræði: þetta ófædda barn er að taka af henni öll völd og ræður yfir henni i einu og öllu. Hún veit, að hún á að hlifa sér á meðgöngutimanum, en gerir nú visvitandi i þvi að taka sér flest það fyrir hendur, sem gæti framkallað fósturlát. Tekst — en lætur þá lfða óratíma unz látið fóstrið er numið úr henni. Æ, dálitið sjúklegt það. Það væri til anzi drjúgur bóka- bunki ef margar konur fyndu hjá sér hvöt til að skrifa til fóstra sinna. Auðvitað ræður meðferðin á efninu öllu og Oriana skrifar því vel og vit- urlega. Hvað sem menn eru nú dús við siðfræði hennar. Þýðing Halldórs Þorsteinssonar finnst mér afar vel unnin, blátt áfram en þau áhrif nást fram, sem að er stefnt. listakonur Teikning eftir Þorbjörgu Höskuldsdóttur Tvær Myndlist Bragi Ásgeirsson Þorbjörg Höskuldsdóttir er vel þekkt nafn innan islenzkrar myndlistar enda hefur hún hald- ið nokkrar einkasýningar er at- hygli hafa vakið og tekið þátt í fjölda samsýninga heima sem erlendis. Þá hefur hún mynd- skreytt bækur og eitthvað komið við sögu leikhúsa á myndræna sviðinu. Þorbjörg sýnir þessa dagana níu oliumálverk og jafnmargar teikningar í Gallerf Borg. Ut- færsla myndefnisins er mjög keimlík því sem einkennt hefur listsköpun Þorbjargar hin síðari ár, landslag, súluform ásamt dekóratívum forgrunni. Það er nokkur vandi að samræma þetta tvennt svo að vel fari en þetta tekst gerandanum þó með mik- illi prýði í teikningunum eins og t.d. í myndunum „Löður“ (13) og „Valhöll* (14). Þær eru báðar kröftuglega útfærðar og vísa til hins besta og þróaðasta i list- sköpun Þorbjargar. í málverkunum tekst listakon- unni að minu mati ekki full- komlega að samræma hina tvo ólíku stilþætti á jafn sláandi og sannfærandi hátt og nálgast hér viðfangsefnin af meiri varkárni. Það ætti þó að vera mögulegt að vinna á jafn umbúðalausan og Skál og vasi I steinleir eftir Önnu K. Jóhannsdóttur. frjálslegan hátt á sviði olíumál- verksins og teikninganna. Með því að skipta jafn algjörlega for- og bakgrunni tengjast þessi ólíku stílbrögð ekki fullkomlega en þetta virðist þó vera að breyt- ast svo sem myndirnar „Brim“ (I) og „Hengill" bera með sér. Anna K. Jóhannsdóttir er nýtt nafn í hinni, að svo komnu, fjöl- skrúðugu flóru islenzkra val- kyrja á listiðnaðarsviði. Hún kynnir á sama stað 13 vasa og skálar, og eru allir gripirnir gerðir á þessu ári, útfærðir i steinleir og brenndir í gasofni. Þá eru á sýningunni nokkrar litlar skálar unnar i japanskri aðferð er nefnist „Raku“ ásamt töluverðum fjölda af eyrnaskarti hvers konar. Þetta er mjög yfir- lætislaus sýning, sem ekki lætur mikið yfir sér. Formin kannast maður við úr keramikheiminum og frumleikanum er ekki fyrir að fara. Skálarnar og vasarnir eru mjög dekorativir í útfærslu en sem betur fer sleppir gerandinn þvi að mála eitthvað annarlegt skraut á munina svo sem fullal- gengt er orðið. Þeir munir þóttu mér sýnu hrifmestir er voru einfaldast út- færðir svo sem nr. 8—12. Það er mikil list, að móta leirmuni á dekoratívan hátt og gera það annað tveggja af sláandi látleysi og einfaldleika eða umbúðalaus- um krafti er hrífur. Þetta hefur önnu K. Jóhannsdóttur ekki tek- ist ennþá en það leggst þannig á mig að þessi sýning gefi ekki all- ar upplýsingar um hvað í lista- konunni búi.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.