Morgunblaðið - 14.11.1984, Blaðsíða 33
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 14. NÓVEMBER 1984
33
Derek Davies, aðalritstjóri.
Elaine Goodwin er sölustjóri og hefur unnið meó auglýs-
ingastjóra blaósins vid auglýsingar þess, sem eru óvenju-
lega vandaðar. Hún sagði mér að heilsíðulitaugiýsing
kostaði sem svarar um 145 þús. fsl. krónum.
lýsingaöflun þar er erfiðari en i
nokkru öðru Asíulandi, og tel ég
þá Víetnam síðari ára með, þótt
þar sé okkur einnig oft gert erfitt
fyrir. En það er nú svo að öll blöð
sem vilja segja rétt frá og gera
meira en aðeins gára yfirborðið
lenda í vandræðum, það gildir svo
sem um hvaða heimshluta sem er.
Samt finnst mér sem tiltrú á blað-
ið hafi vaxið svona hægt og rólega,
lesendur okkar, stjórnvöld á
hverjum stað skilja þetta betur og
gera sér sum hver grein fyrir, að
það er langtum hagstæðara að
veita okkur nauðsynlega fyrir-
greiðslu og upplýsingar til þess að
frásögnin verði sem sönnust og
gefi rétta mynd. En svo eru auð-
vitað þessi lönd, sem kæra sig ekk-
ert um að við drögum af þeim
neina mynd, hvað þá rétta. Þar er
Burma enn og aftur okkur þyngst
i skauti.
Davies er fæddur í Wales eins
og fyrr segir. Uppkominn starfaði
hann hjá Reuter og fór viða og
kom þá meðal annars til Reykja-
víkur. Seinna gekk hann í bresku
utanríkisþjónustuna, kynntist þar
og kvæntist japanskri konu og
hætti í utanríkisþjónustunni og
þau fluttu til Hong Kong. — Ég
hafði lært kantonísku og mandar-
ísku og mér bauðst starf við ritið
og tók því tveim höndum. Við sett-
um okkur mikið fyrir í upphafi, en
það hefur líka borið árangur og á
þessari ritstjórnarskrifstofu lítur
enginn á klukkuna. Raunar má
segja að það gildi um fólk í Hong
Kong, það er mjög iðjusamt. Með-
al eigenda blaðsins eru 'nú
Shanghai-banki i Hong Kong og
South China Morning Star sem
eiga meirihluta en ýmsir aðilar í
Hong Kong og erlendis eiga síðan
49 prósent.
— Við teljum, að lesendur okkar
séu yfirleitt fólk sem hefur óskipt-
an áhuga á alþjóðamálum og
þekkingu á þeim, við leyfum okkur
að segja svona í hljóði, að lesendur
okkar séu almennt fróðari um al-
þjóðamál en gengur og gerist og
því verður þeim ekki boðið neitt
yfirborðskennt efni. Við höfum
með árunum bætt inn i þáttum um
bókmenntir og listir og alls konar
gagnlegum upplýsingum um efna-
hagsmál og fleira því tengt. Við
erum Asíublað og við höfum alveg
nóg með þann heimshluta eins og
þú getur imyndað þér. Við skrifum
ekki um aðra heimshluta — við
teljum Ástraliu reyndar með —
nema að þvi leyti sem það tengist
málefnum Asiulanda.
— Þá stundum við nokkra út-
gáfustarfsemi aðra en að gefa út
ritið. Á ári hverju gefum við út
Asia Yearbook og Asia Guide, sú
seinni einkum ætluð ferðamönn-
um til leiðbeiningar. Meðal
tveggja annarra bóka sem við höf-
um gefið út á þessu ári eru Hong
Kong eftir 1997 og Invasion of
Afghanistan. Áskrifendur okkar
fá þessar bækur síðan með betri
kjörum en á almennum markaði.
— Sem betur fer hef ég ekki
hætt að skrifa, þótt ég tæki að
mér ritstjórn eins og oft verður,
þegar mestur hluti tímans fer i
stjórnunarstörf. Ég skrifa yfir-
lcitt vikulega þátt sem heitir
Travellors Tales og stöku sinnum
erum við með sérútgáfur um ann-
aðhvort brýn málefni eða sérstök
lönd og ég sá til dæmis algerlega
um slíka Japansútgáfu í fyrra.
— Sem ritstjóri verð ég náttúr-
lega oft að taka að mér verkefni
sem mér leiðast. Til dæmis viðtöl
við þjóðhöfðingja sem er með því
fyrirlitlegra sem maður lendir í,
skila aldrei neinu öðru en blaðri. I
besta falli að viðkomandi — ef það
eru þjóðhöfðingjar með vald sam-
kvæmt stjórnarskrá síns lands, þá
nota þeir mann til að koma
ákveðnum yfirlýsingum og sjón-
armiðum á framfæri. Sumt af því
getur átt rétt á sér, en er oftast
heldur magurt. Auðvitað geri ég
mér grein fyrir því að margir,
stjórnmálamenn og ýmsir emb-
ættismenn, nota þetta blað sem og
önnur sem þeir hafa aðgang að.
Það tiðkast sjálfsagt alls staðar í
heiminum. Og maður verður nátt-
úrlega að koma skilaboðunum
áleiðis, en maður má ekki láta
villa sér sýn.
Sömu hækkun
fiskverðs og
laun verkafólks
— segir Óskar Vigfússon formaður
Sjómannasambands íslands
„ÉG átti von á því, að þingfulltrú-
ar yrðu þungir á brúnina og það
brást ekki. I þinglok var gífurleg-
ur einhugur í mönnum og það sem
vó þyngst í umræðum þingsins og
ályktunum voru kjaraál og örygg-
is- og tryggingamál. f kjaramálum
voru menn á einu máli að leggja
áherzlu á niðurfellingu á kostnað-
arhlutdeild, sem sett var með
bráðbirgðalögum í maí 1983. Það
er mjög mikilvægt skref í áttina
til þess, að sjómönnum verði
bættar þær skerðingar, sem þeir
hafa orðið fyrir auk þess að tekju-
trygging og fastakaup hækki. Þá
hljóta sjómenn að fara fram á
sömu hækkun fiskverðs um ára-
mót og komið hefur til aðilja al-
menna vinnumarkaðarins,** sagði
Óskar Vigfússon, formaður Sjó-
mannasambands íslands, í sam-
tali við Morgunblaðið.
Óskar sagði, að þegar verið
væri að ræða um hækkun tekju-
tryggingar og fastra launa, væri
ekki verið að tala um beinar
launahækkanir, heldur hækkun
tryggingar lágmarkslauna. Til
að ítreka nauðsyn á leiðréttingu
kjara sjómanna hefði þingið
ekki aðeins samþykkt að segja
upp gildandi kjarasamningum
við fyrsta tækifæri, 1. desember
næstkomandi, heldur einnig að
leitað yrði eftir verkfallsheim-
ild frá sama tíma. Auk þessara
aðgerða myndu sjómenn ekki
gefa neitt eftir í þeirri kröfu
sinni, að með hækkun fiskverðs
yrðu þeim tryggðar sömu hækk-
anir og komið hefðu til land-
verkafólks. Hins vegar gerðu
þeir sér ljóst að þar væri við
ramman reip að draga og samn-
ingsgrundvöllur væri afskap-
lega bágborinn.
Þá sagði óskar, að um örygg-
is- og tryggingamál hefðu verið
samþykktar ýmsar ályktanir.
Þingið fagnaði því, að skipuð
hefði verið þingmannanefnd til
að gera tillögur um öryggi sjó-
manna og þingið fagnaði þyrlu-
kaupum til Landhelgisgæsl-
unnar. Þá væru í ályktunum
þingsins kröfur um úrbætur í
tryggingamálum, endurskoðun
reglugerðar um greiðslu bóta
fyrir eignir skipverja er þær
eyðilegðust við slys eða elds-
voða. Þá hefði þingið tekið und-
ir hugmyndir Slysavarnafélags
íslands um að varðskipið Þór
yrði gert að þjálfunarmiðstöð
fyrir sjómenn.
Að lokum gat Óskar sam-
þykktar þingsins þess efnis, að
stjórn Sjómannasambandsins
væri falið að vinna að bættri
stöðu sjómannskvenna. Engin
samtök hefðu til þessa talið
nauðsynlegt að benda á sér-
stöðu þeirra í þjóðfélaginu né
taka upp baráttu fyrir úrbótum
á vandamálum þeirra. Þingið
hefði því undirstrikað sérstakt
hlutverk þeirra við uppeldi
barna sinna, þegar þær yrðu
bæði að gegna móður- og föð-
urhlutverki, en auk þess yrðu
þær alltof oft að sækja vinnu
utan heimilis vegna lágra launa
fyrirvinnunnar. Til úrbóta benti
þingið á að sjómannskonur
fengju til dæmis sömu sérstöðu
og ýmsir fríðindahópar hefðu í
þjóðfélaginu varðandi barna-
gæslu. Þá hefði þingið skorað á
stjórnvöld að breyta núverandi
skattalögum í þá veru að leyfi-
legt verði að færa tekjur sjó-
manna þannig til, að heildar-
tekjur hjóna yrðu íagðar saman
og skipt jafnt á milli fyrir
álagningu opinberra gjalda.
SKtoáftiw
til frönsku eða austurrísku Alpanna
Ef skíðafiðringurinn er farinn að kitla þig getur Úrval veittþér tímabundna tausn, en því miður
er engin von um endanlega lækningu - allra síst eftir dvöl í frönsku eða austurrísku ölpunum.
COURCHEVEL
Sérhannaðurskíðastaður í Frakklandi, og einn stærsti og besti skíðastaður I heimi. Courchevel er
svo ásetinn að við getum ekki boðið nema tvær ferðir, 15. og 29. mars (páskaferð). En við
ábyrgjumst að tvær vikur á þessum draumastað verða hápunktur skíðaiðkana ársins enda er
Courchevel í 1850 m hæð.
Verð 15. mars kr. 36.100.- Verð 29. mars kr. 37.900.-
Innifalið: Flug til Oenfar, rútuferðir, gisting í tvíbýliá Flotel Crystal2000, fslensk fararstjórn,
snjór, stórkostfegt útsýni og hálft fæði.
BADGASTEIN
Óskastaður skíðaunnenda á besta vetraríþróttasvæði austurrísku Alpanna.
Óþrjótandi skíðabrekkur, stórkostleg þjónusta, fjölbreytt skemmtiaðstaða
og margbrotið umhverfi, sem á eftir að heilla þig upp úr skfðaskónum.
Badgastein er jafnt fyrir byrjendur sem lengra komna - það er bara
verst að þú hefur ekki nema tvær vikur til umráða.
Brottfarir: 26/1, 9/2, 23/2 og 9/3.
Verð og gististaðir:
Leimböck m/morgunverði frá kr. 21.360.- Gletschermiihle
I m/morgunverði frá kr. 21.360.- Krone m/hálfu fæði frá
3 kr. 23.975.- Griiner Baum m/hálfu fæði frá kr. 31.475.-
Wildbad m/hálfu fæði (sérpantað) frá kr. 32.190.-
Innifalið: Flug, rútuferðir, gisting í tvíbýli með baði,
snjór, stórbrotið umhverfi og íslensk fararstjórn.
FíRÐASKRIFSTOFAN ÚRVM
Smelltu þér í skíðaskóna og hafðu samband.i
Sfminn er 26900.