Morgunblaðið - 14.11.1984, Blaðsíða 75

Morgunblaðið - 14.11.1984, Blaðsíða 75
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 14 NÓVEMBER 1984 75 Bréfritari tehir að flestir eða allir íslendingar geti lesið bækur sem skrifaðar voru fyrir mörgum öldum. ekki geta komið út úr sér orði am- bögulaust", eins og hún segir orð- rétt, heimtar hún vægast sagt ein- kennilegan rétt með þessum orð- um: „Þágufallssýki og aðrar mál- kenjar þær, sem ýmsir lýsa sem sjúkdómi, eiga kinnroðalaust að öðlast sinn sess í málinu." Ég veit ekki, hvort menn hafa nokkru sinni fyrr barið augum annað eins bull. Eg legg samt fram eftirfar- andi spurningar til ihugunar: Eiga þeir, sem ekki geta komið út úr sér ambögulausri setningu, eða óvit- lausu orði, sama rétt til áhrifa á málfar eins og þeir, sem vilja vanda til þess? Og eiga sjúkdómar og kenjar að ráða gangi mála? Næst heimtar G.Sv. að hver og einn fái rétt til þess að misþyrma málinu að vild, — kinnroðalaust. Á íslandi eru blessunarlega margir, sem tala og rita gott mál, eins og sagt er. Það eru sennilega þeir, sem G.Sv. á við með þessari Einnst ráðamönnum það kannski »ódýrara“ að einn og einn vegfar- andi limlesti sig og liggi á sjúkra- húsi svo vikum eða mánuðum skipti? Er heitt vatn kannski af skornum skammti núna? Er það ekki annars rétt, að það sé af- rennslisvatn, sem annars færi til spillis, sem notað er í svona fram- kvæmdir? Mikið þætti mér gott að fá einhver svör við þessu og von- andi verður það fljótlega, því ekki ætla ég að hætta mér oftar i gönguferð um Bankastrætið fyrr en úr þessu verður bætt. Járnkrossar fást víða Margir hafa haft samband við Velvakanda vegna fyrirspurnar um járnkrossa, þ.e. hvar hægt væri að fá jámkrossa til að skreyta með leiði. Bragi Einarsson • Reykjavík hefur umboð fyrir þýska krossa og er hægt að skrifa til hans og fá sendan myndalista. Bragi hefur pósthólf 1266 í Reykjavík. Vélsmiðjan Jónas í Reykjavík tekur einnig að sér smíði slíkra krossa og er hægt að ná sambnadi við talsmann verksmiðjunnar, Einar Ingólfssonti síma 81651. Á Akureyri tekur Ivar Kristjánsson að sér smíði járnkrossa. Þeir eru »galvaniseraðir“ og með teini niður úr, svo festa megi þá í jörð. Sími ívars er 96-24109. setningu: „Nokkrir geirfuglar, sem enginn skilur sakir fyrnsku tal- anda þeirra.“ — Ég veit eiginlega ekki hvaða mál þessi manneskja talar daglega og við hverja. Én vilji hún losna við einhverja af sínum mýmörgu og þungu fordóm- um gegn sínu eigin tungumáli, ætti hún að hlýða á fyrirlestra hjá málfærum mönnum, t.d. Þorsteini Gylfasyni og Þórhalli Vilmund- arsyni, sem tala rétt, skýrt og ein- staklega orðfagurt og lifandi nú- tímamál — og alveg áreynslu- laust. Eins og ég sagði í upphafi þessa máls býst ég við að G.Sv. hafi lítið hugsað, og síst fram í tímann, þeg- ar hún ritaði þessa grein. Annars hefði hún sennilega ekki gert það. Afleiðingarnar af hinu „fljótandi gengi“ málsins, sem hún telur svo æskilegt, geta orðið hrikalegar og meira en það. Væntanlega mun meiri hluti fólks vilja búa við agað Sigrún Hjálmtýsdóttir Ekki Diddú, Ein úr Vestmannaeyjum hrinedi: I Lesbók Morgunblaðsins á laugardag skrifar Gisli Sigurðsson um Óvinsældalistann, sem Illugi Jökulsson tók saman í morgunút- varpi. Margt er þar vel sagt, eins og Gísla var von og vísa, og ekki vil ég setja neitt út á mat hans á lögum þeim, sem hrepptu þann vafasama heiður að lenda á listan- um. En hafa skal það sem sannara reynist. Gísli talar á einum stað um að söngvarar eins og Björgvin Halldórsson og Diddú ættu ekki að leggjast svo lágt að syngja ómerkilega slagara eins og „Vertu ekki að plata mig“. Vissulega eru mál og málfarsreglur. Þá er stutt i þann áfanga, að íslendingar lesi ekki allir sama mál og nokkur hluti þjóðarinnar verður ólæs á bókmenntir hennar, gamlar og nýjar. Þá er enn styttra i næsta áfanga: Þjóðin skiptist i tvær eða fleiri menningarheildir, sem ekki tala, rita eða hugsa sama mál. En einmitt þetta, að hugsa, tala og lesa „um allt, sem hugsað er á jörðu“, frá fortíð til nútíðar á sama tungumáli, er sú menningar- og máttartaug, sem bundið hefur Islendinga í eina þjóð. Vilji Gréta Sveinsdóttir þennan arf feigan hefði hún betur ekki fæðst íslend- ingur. Ath. Beðist er velvirðingar á því, hversu seint grein Ásgerðar birt- ist, en hún er rituð hinn 9. sept- ember sl. Grein þessi varð útund- an þegar verkfall prentara skall á og kom hún í leitirnar fyrir skemmstu. Sigríður Beinteinsdóttir heldur Sigga þetta góðir söngvarar, en Diddú er löngu hætt að syngja í „dægur- lagadeildinni" og það er því ekki hún, sem syngur þarna með Björg- vini, heldur Sigríður Bein- teinsdóttir, sem er ung og upp- rennandi söngkona í hljómsveit- inni KIKK. Vafalaust er Sigríður hæstánægð með að vera ruglað saman við Diddú, eða Sigrúnu Hjálmtýsdóttur, en ætli þær séu ekki báðar fullsæmdar af söng sínum hvor um sig, Diddú í klass- íkinni og Sigríður I rokkinu. Við getum verið ánægð með að eiga tvær jafn góðar söngkonur og þessar tvær eru, en það er hreinn óþarfi að rugla þeim saman. Takiö eftir Vorum aö fá nýja sendingu af okkar vinsælu Kínavörum. Verö viö allra hæfi. Handmálaöir nálarpúöar kr 96 Gleraugnahús kr. 93 Applk. gestahandklaaöl kr. 98 Skrautdúkkur kr. 349 Sllkislæöur kr. 407 Dömuskinnhanskar kr. 598 Bamaskór kr. 147 Barnanáttföl kr.429 Dömunáttföt kr.859 Dömu- og herrasloppar. stuttlr kr. 702 Dömu- og herrasloppar, siöir kr. 895 Kínavörur — Sjónval Kirkjustræti 8. ENSKOG , WSK I HRftDBKflUT Good morning/Guten Tag! Nýjung í Málaskólanum Mími. Hraðnám í ensku og þýsku. Kennd er samtalstækni í 15 nemenda bekkjum. Lögd er áhersla á eðlileg tjáskipti, daglegt talmal og notkun þess í verzlunum, þjonustufyrirtækjum, á ferðalögum og sam- komum alls konar. Hér er gott tækifæri fyrir þá, sem vilja læra tungumál á nýjan máta og líka kjörið til upp- rifjunar. Námstími: 19. nóv.—30. nóv. = 10 dagar frá kl. 16—18 virka daga. Kennarar: Rainer Santuar (þýska) Julie Ann Ingham (enska) Verð: 3.500 kr (öll kennslugögn innifalin) 20% afsl. fyrir félaga í Stjórnunarfélagi íslands. MÁLAStóUNN BRAUTARHOIJI4 Þátttaka tilkynnist eftir kl. 13.00 í síma 10004-11109
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.