Morgunblaðið - 14.11.1984, Blaðsíða 36
36
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 14. NÓVEMBER 1984
Bjartsýni ríkir um
björgun Westar 6
Aformað er að reyna björgun í dag
Kanaveral-höfða, 13. nóvember. AP.
GEIMFARARNIR um borð í
geimferjunni Discovery unnu
í dag að undirbúningi undir
björgun fjarskiptahnattarins
Westar 6, sem áformað er að
fram fari á morgun, miðviku-
dag. Westar 6 er mjög
svipaður fjarskiptahnettinum
Palaba B-2, sem áhöfn Dis-
covery tókst að ná um borð í
geimferjuna í gær.
Nokkur vafi leikur á, hvort
geimförunum Joe Allen og
Dale Gardner tekst að ná aft-
ur sama árangri og í gær, en
þá beittu þeir handafli. Nú er
áformað, að Gardner fari út úr
geimferjunni yfir að Westar 6
og reyni síðan að koma taug á
milli, er dugi til þess að draga
Westar 6 að lyftikrana geim-
ferjunnar. Þar hyggst Allen
bíða viðbúinn til þess að grípa
hnöttinn og síðan hyggjast
þeir félagar í sameiningu
koma hnettinum fyrir í far-
angursrými geimferjunnar.
Mikill fögnuður ríkir nú hjá
Lloyds-tryggingarfélaginu í
London eftir björgun fjar-
skiptahnattarins Palaba B-2
og sömuleiðis eftirvænting
Genf; 13. nóvember. AP.
SKRAÐ hafa verið 16 tilfelli af srvo-
kallaðri „hermannaveiki" í Hollandi
og þar á meðal létust þrír sem dval-
ist höfðu sem ferðamenn á hóteli í
nágrenni Barcelona í september og
október, að því er talsmaður Alþjóða
heilbrigðismálastofnunarinnar sagði
á fostudag.
eftir því, hvort einnig verði
unnt að bjarga Westar 6.
Lloyds varð að greiða yfir 50
millj. punda vátryggingarfé,
er fjarskiptahnettirnir tveir
fóru á ranga braut á sínum
tíma. Myndi Lloyds væntan-
lega fá mikið af þessu fé
endurgreitt, ef unnt verður að
ná báðum hnöttunum til baka.
Murphy í Dmaskus
Richard Murphy, aðstoðarutanríkisráðherra Bandaríkjanna, hefur
átt viðræður við leiðtoga ísraels, Líbanons og Sýrlands. Hér ræðir
hann við Hafez Assad Sýrlandsforseta. Ferð Murphys er liður í
tilraunum Bandaríkjastjórnar og SÞ að koma af stað nýjum viðræð-
um Líbanons og ísraels um brottflutning ísraelska herliðsins frá
Suður-Líbanon.
Grænland:
Hermannaveikitil-
felli í Hollandi
300.000 ísl. krónur
með hverju fjárbúi
Hollensk stjórnvöld tilkynntu
fyrrgreind tilfelli til skrifstofu Al-
þjóða heilbrigðismálastofnunar-
innar í Kaupmannahöfn. Tals-
maður stofnunarinnar kvað engar
fregnir hafa borist frá heilbrigðis-
yfirvöldum í Vestur-Þýskalandi,
Frakklandi eða Belgíu.
Grcnlandi, 13. nóyember. Frá Nila Jörgen Bruun, frétUriUra Mbl.
GRÆNLENSKA landsþingið hefur samþykkt að styrkja fjárbændur í land-
inu með því að greiða niður hvert áburðarkfló um eina danska krónu og gefa
þeim eftir gamlar kjarnfóður- og olíuskuldir.
Framlag landstjórnarinnar sig ekki um fleiri fjárbú í Græn-
landi eins og málum væri háttað.
Konunglega Grænlandsverslun-
in, sem í raun er danska ríkið, ber
sig mjög illa undan því að þurfa að
selja grænlenskt lambakjöt á erl-
endum mörkuðum. Verður hún að
gefa bændunum 29 dkr. fyrir
hvert kíló en bera síðan tapið af
sölunni sjálf. Vegna þessa vanda
vegna þessara aðgerða er ekki
mikið, aðeins rúmar 4,6 millj. ísl.
kr., en á þingi upplýsti Lars Emil
Johansen, sem fer með landbúnað-
armál, að hið opinbera leggi til
með hverju einasta fjárbúi i land-
inu 100.000 danskar krónur, um
316.000 ísl., á ári. Sagði hann
ennfremur, að landstjórnin kærði
og til að tryggja, að grænlenskt
kjöt verði etið í Grænlandi, hefur
landsþingið ákveðið 20 dkr. toll á
hvert kíló af innfluttu kjöti.
Af öðrum málum er það að
frétta, að landsþingið ætlar að
fara að byggja yfir sig nýtt hús
fyrir um 180 millj. ísl. kr. Verður
þar um að ræða fundarsal fyrir
um 55 millj. og skrifstofubyggingu
fyrir 125 milljónir kr.
Sendiráðstöku minnst
í Teheran í íran var þess minnst fyrir nokkrum dögum, að fimm ár eru liðin frá því námsmenn lögðu
undir sig bandaríska sendiráðið þar í borg. Var haldið upp á það með venjulegum ókvæðisorðum um
Bandarikjamenn og aðra fjandmenn erkiklerksins Khomeinis.
Talsmaður stofnunarinnar
sagði, að hótelinu, sem er í Pineda,
hefði verið lokað 23. október, eftir
að sjúkdómur þessi, sem er bakt-
eríusýking i lungum, hafði komið
þar upp. Hann sagði að 1.240 Hol-
lendingar hefðu verið skráðir á
hótelinu frá 15. september og þar
til lokað var, auk 487 Vestur-
Þjóðverja, 102 Frakka og 88 Belga.
Vestur-Þýskaland:
Rúmensku sendi-
ráðsmennirn-
ir farnir heim
Bodd, 13. aórcmber. AP.
FIMM rúmenskir sendiráósmenn,
sem vísað var frá Vestur-Þýskalandi
eftir að hafa verið sakaðir um að hafa
m.a. ætlað að sprengja í loft upp út-
varpsstöðina „Frjáls Evrópa“, eru
farnir heim til Rúmeníu, að því er
Peter Bönisch talsmaður stjórnarinn-
ar sagði í dag.
Bönisch sagði þetta á frétta-
mannafundi í Bonn og kvað Rúm-
enana hafa farið úr landi „fyrir
skömmu", en neitaði að tilgreina
nánar, hvaða dag þeir hefðu farið á
brott.
Leynileg
kosning
í Kína
Pekúg, 13. aóv. AP.
LEYNILEGAR kosningar hafa nú
verið viðhafðar í fyrsta sinn við kjör
héraðsformanns í kínverska komm-
únistaflokknum. Skýrði Dagblað al-
þýðunnar, sem er málgagn kommún-
istaflokksins I Kína, frá þessu í dag.
í frásögn blaðsins kemur fram,
að 300 fulltrúar flokksins í Sha-
anxi-héraði i norðurhluta Kina
hafi komið saman nýlega til þess
að kjósa framkvæmdastjóra
flokksins fyrir héraðið „á lýðræð-
islegan hátt“. Efnt var til þessa
kjörfundar samkvæmt fyrirmæl-
um miðstjórnar flokksins i Peking
og þess vegna með vitund og sam-
þykki Deng Xiaopings, leiðtoga
kommúnistaflokksins.
Áform flokksleiðtogans eru sögð
vera að draga taum tæknimennt-
aðra manna á kostnað flokks-
brodda og greiða þannig fyrir um-
bótum í landinu.
Stjórnmálasamband milli
Bandaríkjanna og íraks?
Waahington, 13. nóvember. AP.
ÍRAKAR hafa í hyggju að taka á
ný upp stjórnmálasamband við
Bandaríkin innan tíðar, að því er
íraskar heimildir herma. Tariq
Aziz aðstoðarforsætisráðherra
fer í heimsókn til Bandaríkj-
anna í næstu viku og mun þá að
líkindum verða tilkynnt opin-
berlega um að stjórnmálasam-
band verði tekið upp á ný.
Bandarískir diplómatar
hafa unnið að því lengi að
bæta samskiptin við írak og
staðhæfa að Saddam Hussein
forseti sé nú farinn að fylgja
mun hófsamari stefnu en áð-
ur. Bandaríkin hafa ekki lýst
yfir afstöðu sinni með eða á
móti írak- Íran-stríðinu, en
hafa þó reynt að koma í veg
fyrir vopnasendingar og -sölur
til írans.
Bandaríkjamenn slitu
stjórnmálasambandi við írak
árið 1967 til að láta í ljós
stuðning við ísraela i sex daga
stríði ísraela við Egypta, Sýr-
lendinga og Jórdani.
Saddam Hussein. Hófsamari stefna.
Japönsku eiturbyrlaramir.
„Engu líkara en þetta
séu algjörir hálfvitar"
FJÁRKlJGARAR, sem sett hafa eitrað
sclgæti i hillur verslana, sendu i dag
bréf til þriggja dagblaða, þar sem þeir
hæddust að tilraunum lögreglunnar til
að hafa hendur í hári þeirra, að sögn
talsmanns lögreglunnar.
Talsmaðurinn, sem ekki vildi láta
nafngreina sig, neitaði að gefa upp
nöfn blaðanna, sem I hlut áttu, en
kvað bréfin hafa verið vélrituð á jap-
önsku. Hefði m.a. sagt f þeim, að til-
burðir lðgreglunnar væru „ömurlega
klaufskir".
Síðan sagði: „Um daginn kom
lögreglan heim til eins úr okkar hópi
og spurði um nöfn allra heimil-
ismanna og litinn á fjölskyldubíln-
um. Það er engu líkara en þetta séu
algerir hálfvitar."
Þegar fyrrnefnd bréf bárust
dagblöðunum þremur, hafði ekkert
heyrst i fjárkúgurunum í 12 daga, en
1. nóvember sendu þeir dagblöðum
bréf, þar sem hæðst var að lögregl-
unni.
Fjárkúgararnir hafa krafist fjár-
hæða sem nema hundruðum þús-
unda dollara af sælgætisfyrirtækinu
Morinaga i Tókýó. Hingað til hafa
þeir merkt pakkana, sem þeir hafa
sett i hillur verslananna, með áletr-
unum þess efnis aö innihald þeirra
sé eitrað, en nú hafa þeir hótað að
hætta merkingunum.