Morgunblaðið - 14.11.1984, Blaðsíða 67
Minning.
MORGUNBLAÐID, MIÐVIKUDAGUR 14. NÓVEMBER 1984
67
Birgir Kristján
Sigurbjörnsson
Kveðjuorð frá móður
Fæddur 24. aprfl 1946
Dáinn 12. október 1984
„Hugur minn bindur brotin saman,
best er að missa og njóta í þeim.“
(Ó.A.)
Það er margs að minnast, allt
frá því að vænta lítils barns og svo
að gleðjast yfir því undri, sem Guð
veitir hverri móður, sem fær í
hendur heilbrigt barn og má ann-
ast það, sjá það öðlast þroska til
líkama og sálar.
Hugur minn verður hljóður og
þakklátur Guði, sem gaf mér
drenginn minn, sem nýlega er
horfinn okkur. Söknuðurinn er
mikill eftir góðan son, sem kvaddi
svo skyndilega þetta jarðlíf. En
minningin geymist um allar góðu
stundirnar, sem við áttum saman,
bæði fyrr á árum og líka með konu
hans og börnum, sem eiga nú um
sárt að binda.
Hann var góður heimilisfaðir,
hjálpsamur konu sinni, sem ekki
er heilsusterk, alúðlegur og góður
faðir börnum sínum.
Birgir Kristján fæddist í Stykk-
ishólmi og þar ólst hann upp á
heimili okkar foreldra sinna, í
stórum systkinahópi. Hann lék sér
með leikfélögum sínum við víkina
þar sem hann var fæddur, þar var
fyrstu fleytunum ýtt úr vör,
kannski bara litill kubbur með
nagla í miðju fyrir mastur, sem
leikgleðin breytti í stórt hafskip,
og svo var komið heim að kveldi
með vota fætur og kalda fingur,
sem gott var að láta mömmu taka
í varmar hendur og veita hlýju.
Já, það er margs að minnast frá
bernskuárunum. En tími áhyggju-
lausra daga leið og starfið tók við,
hann gerðist sjómaður og það varð
hans ævistarf. Rúmlega tvítugur
að aldri kynnist hann ungri og
glæsilegri stúlku, það var Ellen
Jónasdóttir frá Sauðárkróki. Hún
fluttust hingað til Stykkishólms
og bjó hjá frænku sinni, Soffíu
Lárusdóttur, sem þá var búsett
hér.
Ellen og Birgir felldu hugi sam-
an, þau giftust og stofnuðu heimili
og bjuggu hér i Stykkishólmi um
árabit, en fluttust svo til Vest-
mannaeyja. Dvölin þar varð ekki
löng, aðeins rúm ár en þá braust
eldur út í Eyjum sem kunnugt er,
þá fluttust þau til Sauðárkróks og
eftir stutta dvöl þar lá leiðin aftur
til Stykkishólms, þar sem þau
voru nokkur ár. Aftur leituðu þau
til Suðurlands og áttu síðast heim-
ili á Selfossi.
Frænka Birgis, Þorleif Sigurð-
ardóttir, sem býr i Hveragerði
ásamt manni sínum, Ámunda El-
issyni, minnist Birgis með þökk
fyrir áralanga vináttu og hefur
beðiö mig að flytja Ellen og börn-
um hennar innilegar samúðar-
kveðjur. Alltaf stundaði Birgir
sjóinn hvar sem heimili þeirra
var. Oft minntist hann ýmissa
skipsfélaga sinna með hlýju og
þakklæti fyrri vináttu á liðnum
árum, sérstaklega sona Ágústs
Péturssonar, sem hann var lengi
með á sjónum og einnig leikfélag-
anna kæru, bræðranna frá Ás-
garði, sona Björgvins Þorsteins-
sonar. Sú vinátta reyndist vel til
enda og sýndi sig best að leiðar-
lokum, þvi einn þeirra bræðra, J6-
hannes, rétti hönd til hjálpar, svo
Birgir fékk hinsta hvílurúm hér á
æskustöðvum sínum. Hann var
jarðsettur 20. otkóber hér í Stykk-
ishólmi.
Ég vil flytja öllum þeim sem
voru honum vel og hafa sýnt
okkur samúð og kærleika á erfið-
um stundum undanfarið, innilegar
þakkir og bið Guð að blessa allt
þetta góða fólk og launa því fyrir
okkur.
Eins og áður segir var Birgir
minn alltaf á sjónum. Nóttina áð-
ur en hann fór síðustu sjóferðina
dreymdi hann einkennilegan
draum, sem hann sagði konu sinni
áður en hann fór á sjóinn. Hann
þóttist sjá fyrir sér nokkrar ljóð-
línur. Efni þeirra var á þá leið, að
hvar sem leiðin hans lægi yfir víð-
áttu hafsins, mundi hann taka
höfn á framandi strönd. Óljós
minning var í huga hans að hann
hefði séð yfir víðáttumikið haf og
hið fegursta land í fjarska, þetta
leið fyrir um leið og hann vaknaði.
Og ég hugga mig við að hann sé
nú á lífsins landi, heima hjá frels-
ara okkar. Þetta vers úr Passíu-
sálmunum kemur aftur og aftur í
hugann, það er sem ég heyri það
sungið inn í sál mína.
Vaktu minn Jesú, vaktu í mér
vaka láttu mig eins í þér,
sálin vaki þó sofni líf
sé hún ætíð í þinni hlíf.
H.P.
Kona Birgis míns, Ellen Jónas-
dóttir, og börnin öll, Unnar Þór,
Eyrún Soffía og Elvar Jónas,
þakka honum allt hans ástríki og
umhyggju.
Systkinin þakka kærum bróður
samfylgdina og ég þakka honum
sonarástina og alla gleöi sem hann
veitti mér og ég bið Guð að blessa
minningu hans.
Við kveðjum hann öll með
hjartans þökk og von og vissu um
endurfund og ég tek undir með
sálmaskáldinu.
Blessuð von í brjðsti mínu
bú þú meðan hér ég dvel.
Lát mig sjá í Ijósi þínu
ljómann dýrðar bak við hel.
H.H.
Soffía Pilsdóttir
t
Móöir okkar og tengdamóöir,
SIGÞRÚOUR GUDJÓNSDÓTTIR,
Flókagötu 33,
sem lést 10. nóvember sl. veröur jarðsungin frá Frlkirkjunni I
Reykjavík föstudaginn 16. nóvember nk. kl. 13.30.
Þeim sem vildu mlnnast hinnar látnu er bent á Barnaspftalasjóö
Hringsins.
Jón Ólafsson,
Guöjón Ólafsson,
Gunnar örn Ólafsson,
Ólafur H. Ólafsson,
Ólöf Björnsdóttir,
Áslaug Sigurgrfmsdóttir,
Sofffa Péturadóttir,
Margrét Thorlacius.
t
Móöir okkar, tengdamóöir og amma,
KRISTÍN BJARNADÓTTIR,
Þingvallastrasti 18,
Akurayri,
sem lést 8. nóvember sl. veröur jarösungin laugardaglnn 17.
nóvember kl. 13.30 frá Akureyrarkirkju. Þeim sem vildu minnast
hennar er bent á Fjóröungsjúkrahúsiö á Akureyri.
Geir 8. Björnsson,
Bjami Sigurösson,
Sólvelg Siguröardóttir,
Ingibjörg Siguröardóttir,
Ragnar Sigurösson,
Oddur Sigurösson,
Þór Sigurösson,
Sólveig Hallmundsdóttir
Anita Björnsson,
Kristjana Tryggvadóttir,
Finnbogi Gfslason,
Krfstján Karl Guöjónsson,
Valgoröur Tómasdóttir,
Kolbrún Hjaltadóttir,
Herdfs Stefénsdóttir,
og barnabörn.
t
Þökkum innilega auösýnda samúö við andlát og jarðarför,
HJÁLMARS HELGA GUDMUNDSSONAR
húsasamiös,
Hrfsateig 39,
er lést þann 20. október 1984.
Jóna Eirfkadóttir,
Sssvar Hjélmarsson,
Sólrún Hjálmaradóttir,
Helgi Hjélmarsson.
t
Þökkum innilega auösýnda samúö og hlýhug viö andlát og útför
elskulegrar eiginkonu, dóttur, móöur, tengdamóöur, ömmu og
langömmu,
GUÐRÍÐAR ÓLAFSDÓTTUR,
Héeyrarvöllum 46,
Eyrarbakka.
Pétur Sigurösson,
Sigrún Guómundsdóttir, Ólafur Jakobsson,
Erling Pétursson,
Sigrún Pétursdóttir,
Erla Péturdóttir,
Svana Pétursdóttir,
Ingibjörg Pétursdóttir,
Guórún Pétursdóttlr,
Jóhanna G. Jónadóttir,
Astþór Óskarsson,
Siguröur B. Björnsson,
Jón Haltdórsson,
Matthfas Óskarsson,
Guólaugur Guðlaugsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
+ Þökkum innilega samúö viö andlát og útför móöur okkar og tengda- móður, HERMÍNU HALLDÓRSDÓTTUR. Valur Pálsson, Erna Marfusdóttir, Marta Pélsdóttír, Leifur Þorleifsson.
t Viö undirrituö fœrum öllum þeim fjölmörgu einstaklingum, fyrirtækjum og félagasamtökum sem stutt hafa okkur til utanfarar meö lltlu dóttur okkar, ÁSTU KRISTÍNU, okkar innilegustu þakkir. Sérstakar þakkir færum viö læknum og starfsfólki barnadeildar Landakotsspitalans fyrir einstaka um- hyggju og ástúö i veikindum hennar. Vilborg Benediktsdóttir, Guömundur Arni Hjaltason.
+ Móöir okkar, tengdamóöir, amma og langamma, FRANZISKA KARÓLÍNA SIGURJÓNSDÓTTIR, Vatnsstfg 9, Raykjavlk, veröur jarösungin frá Fossvogskirkju fimmtudaginn 15. nóvember kl. 13.30 e.h. Kristfn Jónasdóttir, Snorri Guömundsson, Árni Jónasson, Aöalbjörg Ágústsdóttir, Sigurjón Jónasson. börn og barnaböm.
+ Þökkum auðsýnda samúö viö andlát og jaröarför VALDIMARS KRISTJÁNSSONAR vélvirkja. Steinunn Valdimarsdóttir, Emil Valdimarsson, Brynja Valdimarsdóttir, Bolli Valdimarsson, Kjartan Valdimarsson, Kristjén Valdimarsson, Ingibjöi g Árnadóttir.
+ Þökkum auösýnda samúö viö fráfall og útför fööur okkar, tengda- fööur og afa, GE8TS ODDLEIFS80NAR. Sérstakar þakkir færum viö starfsfólki Hrafnistu i Hafnarfiröi. Helga Gestsdóttir, Gunnar Björnsson, Anna Gestsdóttir, Magnús Thorvaldsson, Guöný G. Phipps, LeRoy Phipps, Auður Gestsdóttir, Gunnlaugur Ingvarsson, Hildigunnur Gestsdóttir, Bergur Adoiphsson, Skúli Mér Gestsson, Barbara Gestsson og barnabörn.
+ Þökkum innilega auösýnda samúö og vinarhug viö andlát og útför eiginmanns mins, fööur, tengdafööur og afa, STEINÞÓRS SÆMUNDSSONAR gullsmföameistara. Sólborg 8. Siguróardóttir, Álfheiöur Steinþórsdóttir, Siguröur G. Steinþórsson, Magnús Steinþórsson, Steinþór Steinþórsson, tengdabörn og barnabörn.
+ Þökkum innilega auösýnda samúö viö andlát og útför fööur okkar, tengdafööur, afa og tangafa, BJÖRGVINS SIGURJÓNSSONAR, Bergstaöastrssti 54. Guörún Fjóla Björgvinsdóttir, Vilhjélmur Hjélmarsson, Sigurgeir Björgvinsson, Jóna Pétursdóttir, Ingunn Hlfn Björgvinsdóttir, Friörik Sófusson, Jódfs Sjöfn Björgvinsdóttir og afabörnin.
+ Þökkum innilega auösýnda samúö og vinarhug viö andlát og útför eiginmanns mlns, fööur okkar og afa. FLOSA ÞÓRORMSSONAR frá Fáskrúösfirói, Kleppsvegi 82, Reykjavfk. Sigurborg Jónasdóttir, Ásgeróur Flosadóttir, Jóhannes Gunnarsson, Stefanfa Flosadóttir, Halldór Þórhallsson, Guövin Flosason og barnabörn.