Morgunblaðið - 14.11.1984, Blaðsíða 80
OPIÐALLA DAGA FRÁ
KL. 11.45-23.30
ffgtmfrlftfrlfe
AUSTURSTRÆTI22
INNSTRÆtl, SlUI 11633
TIL DAGLEGRA NOTA
MIÐVIKUDAGUR 14. NÓVEMBER 1984
VERÐ í LAUSASÖLU 25 KR.
Flugleiðir kaupa hljóðdeyfa á DC 8:
Fá undanþágu í
Bandaríkjaflugi
BANDARÍSK flugmálayfirvöld hafa íkveðið að veita Flugleiðum undanþágu
til að fljfiga DC 8 véhim félagsins til bandarískra fhigvalla eftir að hinar nýju
reghir um hávaðatakmarkanir ganga þar í gildi um nsstu áramót Er undan-
þágan háð því skilyröi að settir verði hljóðdeyfar í vélar félagsins, sem notaðar
verða f Amerfkuflugið.
Sigurður Helgason, stjórnarfor-
maður Flugleiða, sagði i gærkvöldi
að formleg tilkynning um undan-
þáguna hefði enn ekki borist frá
bandarfskum yfirvöldum, en þeir
Flugleiðamenn hefðu fengið vfs-
bendingu og vissu um, að ákvörðun
hefði verið tekin um að veita þessa
undanþágu. „Með þessu erum við
búnir að tryggja áframhaldandi
rekstur þessara véla, og það er afar
mikils virði fyrir okkur,“ sagði Sig-
urður. Hann sagði, að enn væri
ekki ljóst hvort undanþágan gilti
einnig í New York, en flugumsjón
þar f borg er undir sjálfstæðri
stjórn og þar gilda sérstakar reglur
hvað þetta varðar. Sigurður sagði
að hugsanlegt væri, að Flugleiðir
þyrftu að sækja sérstaklega um
undanþágu til Hugmálayfirvalda f
New York.
Hinar nýju reglur um hávaða-
takmarkanir f bandarískri loft-
helgi taka gildi frá og með 1. janú-
ar nk., og verður þá bannað að
fljúga þeim flugvélategundum, sem
ekki uppfylla ákveðin skilyrði varð-
andi hávaðamörk, inn til Banda-
ríkjanna. Þar á meðal eru DC 8
þotur, eins og þær sem Flugleiðir
hafa notað í Norður-Atlantshafs-
fluginu. „Við fáum þessa undan-
þágu með þvf að hafa gert samning
um kaup á hljóðdeyfum, sem þó
verða ekki settir á fyrr en einhvern
tfma á seinni hluta ársins 1985,“
sagði Sigurður ennfremur. Að-
spurður kvaðst Sigurður ekki hafa
tölur um kostnað við að setja þessa
hljóðdeyfa á vélarnar, en hér væri
um talsverðar fjárhæðir að ræða.
Hljóðdeyfarnir eru sérsmiðuð
einangrun á hreyflana og hafa að-
eins þrjú fyrirtæki heimild til að
smiða slíkan búnað á DC 8 flugvél-
ar enn sem komið er.
Taxti leigubfla og vinnuvéla hækkan
Olíufélögin vilja
10-30 % hækkun
TAXTI leigubfla hækkar í dag um 9,4% og verður startgjald framvegis 84,25
krónur, en var áður 77 krónur. Taxti vinnuvéla hækkar sömuleiðis f dag um
6,6% Þessar hækkanir voru samþykktar f Verðlagsráði á mánudaginn. Þar var
jafnframt samþykkt hækkun á ferskum ýsuflökum. Sfi hækkun nemur 14,9%
sem þýðir að skráð verð á hverju kg hækkar úr 74 krónum f 85 krónur.
Georg Ólafsson, verðlagsstjóri, Erindi félaganna er til athugunar
sagði f samtali við blaðamann Mbl.
f gær, að fiskverðshækkunin væri f
raun ekki annað en staðfesting á
þeirri hækkun, sem orðið hefði f
verslunum á undanförnum vikum.
Á fundi Verðlagsráðs á mánudag
var ennfremur lagt fram erindi
oliufélaganna um hækkun á verði á
bensfni og olfum. Fyrir lá eldri
hækkunarbeiðni, sem nú hefur ver-
ið endurskoðuð, þannig að félögin
fara nú fram á 10—30% hækkun.
Fyrri hækkunarbeiðni var 7—20%.
og úrvinnslu hjá Verðlagsstofnun,
en það gæti fengið afgreiðslu á
næsta fundi ráðsins, sem væntan-
lega verður haldinn innan einnar
viku.
Loks var lögð fram á fundi ráðs-
ins greinargerð Verðlagsstofnunar
um markað fyrir og álagningu á
ýmsum rafmagns- og heimilistækj-
um. Georg ólafsson taldi ekki ólík-
legt, að verðmyndun á þessum vör-
um yrði færð í frjálsræðisátt á
næstunni.
Dráttarbátur með olfutank f togi sást á siglingu á Faxaflóa er ijósmynd-
arar Morgunblaðsins voru á flugi þar yflr nfi í vikunni. Reyndist
báturínn vera á vegum Esso, og var hann á leið með tankinn upp f
Hvalfjörð frá Keflavfk, en tankurinn var keyptur hjá varnarliðinu á
Keflavíkurflugvelli og var ætlunin að geyma hann uppi í Hvalfirði, þar
til ætlunin er að nota hann síðar.
Guðlaugur Fríðþórsson
Lífeðlisfræðirannsóknir á Guðlaugi Friðþórssyni:
Fitulagið í ætt við
seli fremur en menn
LÍFEÐUSFRÆÐINGAR hófu sl. vor að rannsaka Guðlaug Friðþórsson
frá Vestmannaeyjum með tilliti til þess að hann lifði það af að synda um
6 km leið í 5—6 stiga heitum sjó sl. vetur eftir að skip hans, Hellisey,
fórst fyrír austan Eyjar, en eftir að hann náði landi gekk hann um 2 km í
tveggja stiga frosti. Meðal annars hefur þrek Guðlaugs verið mælt og
reyndist það mjög mikið þrátt fyrír svo til enga áreynslu um langa hrfð.
En það forvitnilegasta, sem hefur komið í Ijós, er að fitulagið, sem er utan
á ölhim mönnum og flokkast undir fljótandi fitu, er hins vegar í fastara
formi á Guðlaugi, eða meira í ætt við það sem er á selum en mönnum.
Prófessor Jóhann Axelsson, Guðlaugi væri 2—3 sinnum
lífeðlisfræðingur, einn þeirra
visindamanna sem rannsaka
Guðlaug, kvað rannsóknir benda
til að Guðlaugur væri betur
einangraður en gengur og gerist.
Meðalfitulag manna væri um
7—9 millimetrar, en fitulagið á
þykkara og fitusamsetningin
miklu fastari i sér. Á fólki væri
svo þykkt fitulag kallað skvap,
en þvi væri ekki að heilsa með
Guðlaug. Prófessor Jóhann
kvað margar spurningar vakna
þegar þessar staðreyndir lægju á
borðinu, þvi það væri ekki aðeins
að hann hefði náð varmajafn-
vægi i sjónum þar sem hann
hefði átt að geta lifað í 20—30
mín. mest, heldur hefði hann
einnig haldið fullkomnu jafn-
vægi i hugsun, minni og ákvörð-
unum þótt líkamshitinn hafi
verið kominn niður fyrir öll
mörk i þeim efnum. Rannsókn-
um á byggingu Guðlaugs Frið-
þórssonar verður haldið áfram
hér heima og erlendis, en meðal
annars hefur verið fjallað um af-
rek hans á ráðstefnum liffræð-
inga erlendis.
Iceland Seafood:
Minnkandi
birgðir af
þorskblokk
AÐ UNDANFÖRNU hefur heldur
dregið fir birgðum á þorskblokk hjá
fyrirtæki Sambandsins i Bandaríkj-
unum, Iceland Seafood. Flakabirgð-
ir eru hins vegar í heild svipaðar og
á sama tíma í fyrra og hafa ekki
vaxið síðustu mánuði. Að undan-
förnu hefur verð á blokk hækkað
lítillega.
Guðjón ólafsson, forstjóri Ice-
land Seafood, sagði i samtali við
blm. Mbl., að hann ætti von á þvi
að framleiðsla drægist saman á
næstunni eins og gerðist alltaf á
þessum árstíma. Þvi væri ekki
ástæða til að hafa sérstakar
áhyggjur af birgðastöðunni núna.
Guðjón sagði að salan það sem
af væri nóvembermánuði liti ekki
illa út og i október hefði orðið lít-
illeg aukning miðað við sama
mánuð í fyrra. Fyrstu 10 mánuði
ársins hefði orðið um 10% aukn-
ing á flakasölu fyrirtækisins og i
framleiddri vöru hefði salan auk-
ist um tæplega 4%.
Sjúklingur á inter-
feron-lyfjagjöf:
Deilt um
hver á
að greiða
kostnaðinn
í heilbrigðis- og tryggingamála-
ráðuneytinu er til meðferðar eríndi
Lyfjaverslunar ríkisins um hvort rfk-
isspítalarnir eða sjúkrasamlag úti á
landi eigi að greiða dýra lyfjameð-
ferð sjúklings sem var til lækninga á
göngudeild Landspítalans en fór til
heimilis síns úti á landi og hefiir
fengið lyf sín áfram fyrir milligöngu
Landspítalans. Ráðherra mun skera
fir um hver greiða eigi kostnaðinn,
en hér er um að ræða lyfið interfer-
on, og er kostnaður við lyfjameðferð
sjúklings í um það bil tvö ár talinn
vera hálf til ein milljón kr.
Páll Sigurðsson, ráðuneytis-
stjóri í heilbrigðis- og trygg-
ingamálaráðuneytinu, lagði á það
áherslu, þegar þetta mál var borið
undir hann, að aldrei hefði komið
til álita að láta sjúklinginn greiða
lyfjakostnaðinn, aðeins væri rætt
um hvort sjúkratryggingarnar eða
ríkisspitalarnir ættu að greiða
hann. Sagði Páll að venjan væri sú
að göngudeildarsjúklingar á
Landspítalanum, sem nota þyrftu
sérstök dýr lyf til dæmis við ill-
kynja sjúkdómum, fengju lyfin
ókeypis og þau færð sem kostnað-
ur á ríkisspitalana. í þessu tilviki
hefði komið upp það sjónarmið að
ef til vill væri ekki sanngjarnt að
spítalinn greiddi lyf sjúklings sem
ekki væri inni á spítalanum.
Sagði Páll að sin afstaða til
málsins hefði verið sú að eðlilegt
væri að ríkisspitalarnir greiddu
þennan kostnað, ekki sist af þvi að
þar hefði lyfjameðferðin verið
hafin. Sagðist hann þó telja að
umræðan ætti miklu fremur að
snúast um það hvenær gefa ætti
eins dýr lyf og þetta og hvort að
það þyrfti ekki sérstakrar athug-
unar við þegar slik lyfjameðferð
væri hafin.