Morgunblaðið - 14.11.1984, Blaðsíða 25
MORGUNBLAÐIÐ, MIDVIKUDAGUR 14. NÖVEMBER 1984
25
fjölmiðlar meðvitundinni i þá átt
sem hentugast er talin af „fram-
farasinnuðum" valdhöfum.
Kyrrstæð bændasamfélög um-
hverfast í iðnvædd massasamfé-
lög. Það sem Spánverjum tókst
ekki á fjórum öldum, þ.e. að útmá
þjóðlega tilveru hinna ýmsu
indiána-kynflokka og þar með
menningu þeirra, með aðferðum
sem minna á aðferðir tækni-
væddra nútímamanna, hefur nú
tekist á tímaskeiði einnar kyn-
slóðar með heilaþvotti skólakerfis
og fjölmiðla.
Meðal Rómverja voru landbún-
aðarþrælar nefndir „instrument-
um vocale", eða talandi verkfæri,
til aðgreiningar frá burðar- og
dráttardýrum, sem kölluðust
„instrumentum semi-vocale“, þ.e.
þau gátu gefið frá sér hljóð. Síðan
komu hin eiginlegu verkfæri,
„instrumentum mutum", þögul
verkfæri, svo sem plógur, páll og
reka etv. Nú á dögum virðist sú
stefna ríkjandi að móta menn til
þeirrar gerðar sem Rómverjar
kölluðu „instrumentum vocale",
frumkvæðalausar túbur, úttroðn-
ar því góðgæti, sem stjórnvöld
telja að auki hagvöxt og fram-
leiðni. Nútíma fræðslukerfi er
einkar hentugt til framkvæmdar
þeirrar hugsjónar og þá rætist lík-
lega draumsýn Rousseaus og hug-
myndafræðinga frönsku stjórn-
arbyltingarinnar um hinn „al-
menna vilja", þar sem allir yrðu
sniðnir að þörfum hins frjálsa og
samhæfða samfélags, sem yrði i
stöðugri þróun. Hugsýn þeirra var
sú varðandi fræðsluna, eða það
sem stundum er rangnefnt
„menntun" nú á dögum,: „að sér-
hver nemandi á sama aldri fletti
nákvæmlega sömu blaðsíðu í sömu
kennslubókinni á sama degi og á
sömu mínútu i öllum skólum
Frakklands". Stöðlun nemend-
anna skyldi verða algjör og á þann
hátt myndi skapast hin algjöra
samhæfing allrar þjóðarinnar þar
sem „frelsi, jafnrétti og bræðra-
lag“ rikti.
Þessi draumsýn mótar fræðslu-
stefnuna nú á dögum, sem hefur
orðið svo árangursrík vítt um
heim að nú hyllir undir samfélag
„instrumentum vocale“ ef ekki
„instrumentum semi-vocale“, þar
eð uppfræðsla í móðurmáli er ekki
talin aðalatriði lengur í nútíma
fræðslukerfi og óþarfi er að gera
kröfur til vandaðs málfars á
popp-öld.
Hrikalegar fórnir
Höfundurinn fjallar um þau
ríki, þar sem iðnvæðingin hefur
gengið hraðast fyrir sig á 20. öld.
Japan er oft tekið sem dæmi, en
önnur ríki fylgja fast á eftir,
Suður-Kórea, Thailand og borg-
ríkið Hong Kong. Hin hraða iðn-
væðing byggir á mjög lágum laun-
um og gjörnýtingu vinnuaflsins. í
ríkjum Afríku fer iðnvæðingin
fram á kostnað hefðbundins land-
búnaðar, matvælaframleiðslan
dregst stórlega saman og aðal-
áherslan er lögð á framleiðslu
fyrir erlendan markað. 1978 hafði
matvælaframleiðslan fyrir innlen-
dan markað dregist saman um
80% frá því sem var 1961. Iðnvæð-
ing, byggð á stórvirkjunum og er-
lendu fjármagni er stefna ríkja
þriðja heimsins.
Þessar aðgerðir hafa kostað við-
komandi þjóðir hrikalegar fórnir
og sumstaðar hljóta valda-
klíkurnar frá Uganda til Kap-
uchea að bera sinn hluta þeirrar
ábyrgðar, að hafa gert viðlend
landsvæði að sláturhúsum". Iðn-
væðingin hefur gengið misjafn-
lega, það er ekki óvíða að stór-
kostleg orkuver gegna hlutverki
sem minnisvarðar um misheppn-
aðar framkvæmdir og hálfreistir
seðlabankar minna á spilaborgir
fjármálasnillinganna, en slík
seðlabankahræ einkenna ýmsar
höfuðborgir nýfrjálsra ríkja
Afriku.
Þetta er efnismikil bók, úttekt á
framleiðsluháttum og pólitiskum
stefnum 20. aldar, og árangrinum
eins og hann blasir við manni sem
er óbundinn af pólitfskum kredd-
um.
55% BÓNUS
AFÁBYRGÐAR
TRYGGINGLI
SIRAX EFTIR
5ÁR
Sjóuá vill verðlauna þá ökumenn
sem ha fa ek/ð tjónlaust samfellt í
5 ár. Á 6. ári hœkkar bónusinn í
55% af ábyrgðariðgjaldinu
OGENN
MEIRI 65 VO
BONUS
EFTIR10ÁR
þegar ekið hefur uerið tjónlaust
samfellt í 10 ár hœkkar bónusinn
í 65%. Sá bónus stendur meðan
ekið er tjónlaust. Þetta er gott og
sanngjarnt boð fyrir þá sem aka
uarlega.
Tjónlaus akstur hjá öðrum uátr-
yggingarfélögum kemur þér til
góða hjá okkur. . . Það munar
um minna.
Hœgt er að flytja bifreiðartrygg-
ingu tii okkar sé gengið frá þuí
fyrir 1. desember.
Allar uppfysingar gefnar hjá
Sjóuá í síma 82500 og hjá um-
boðsmönnum
w w
SJOVA TRYGGT ER VELTRYGGT
SUÐURLANDSBRAUT 4 SÍMI 82500
Umboðsmenn um allt land