Morgunblaðið - 14.11.1984, Side 48
48
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 14. NÓVEMBER 1984
óveruleg, en það ár var
Samstarfsnefnd sveitarfé-
laga á Suðurnesjum, SSS,
stofnuð. Með samstarfs-
nefnd hófst svo markviss
samvinna sveitarfélaganna,
sem hefur vaxið og dafnað
æ síðan."
Samband sveitarfélaga á
Suðurnesjum var stofnað
sem landshlutasamtök 16.
nóvember 1978. Síðar sagði
Ellert: „Fjöldi mála og
verkefna hefur á þessu
tímabili vaxið hröðum t
skrefum og gerir enn. Til
þess að SSS megi viðhalda
hlutverki sínu verða nú að
koma til skoðanaskipti um
framhaldið.
f t
I dag stefnir í enn fleiri
mál og enn fleiri verkefni, j
og haldi svo fram sem horf- r
ir verða stjórnarstörf hjá
sambandinu ekki aukaverk-
efni stjórnarmanna heldur
aðalstarf.
Sveitarstjórnirnar og
hinir kjörnu fulltrúar lenda
í aukahlutverkum, stjórnir
SSS og sameiginlega rek-
inna fyrirtækja í aðalhlut-
verkum. Gætum að.“
Breytingar á nlutverki Hita-
veitu Suðurnesja í brennidepli
Vogum, 5. nóvember.
UMRÆÐUR um þær breytingar á
lögum um Hitaveitu Sudurnesja
sem samþykktar voru á Alþingi sl.
vor, og áhrif þeirra á starf fyrir-
tækisins voru í brennidepli á aðal-
fundi Sambands sveitarfélaga á
Suðurnesjum.
Jón K. Ólafsson stjórnarfor-
maður H.S. gerði grein fyrir
hverjar breytingar væru á lög-
um fyrirtækisins, sem eru: 1. í
stað þess að kalla H.S. hitaveitu-
fyrirtæki, skal það kallast fyrir-
tæki. 2. í lögum fyrir breytingar
var tilgangur H.S. bundinn við
rekstur varmaskiptastöðvar og
að ieggja aðveitur og dreifikerfi
fyrir hitaveitu í byggðir á Suður-
nesjum. Eftir breytingar er til-
gangur H.S. að virkja jarðhita í
Svartsengi og annars staðar á
Reykjanesi ef hagkvæmt þykir,
reisa og reka orkuver, aðveitur
og orkudreifikerfi á starfssvæði
hennar og annast sölu á orku til
notenda, önnur nýting á jarð-
gufu og heitu grunnvatni. Þá
veitir iðnaðarráðherra H.S.
einkaleyfi til starfrækslu raf-
veitu á starfssvæði hennar eftir
því sem semst við einstök sveit-
arfélög og ríkissjóð um yfirtöku
á veitukerfum þeirra. Þá eru
bráðabirgðaákvæði í lögunum,
sem hljóða þannig: „Ríkissjóði er
heimilt að selja Hitaveitu Suð-
urnesja háspennulínur í eigu
Rafmagnsveitna ríkisins frá
spennistöð við Elliðaár til
Njarðvíkur, svo og raforkuveit-
ukerfi sín og stofnana ríkisins,
aðveitur og dreifiveitur innan
sveitarfélaga þeirra sem aðild
eiga að fyrirtækinu. Á sama hátt
er sveitarfélögum þeim, sem að-
ild eiga að fyrirtækinu, heimiit
að selja því rafveitukerfi sín eða
leggja þau fram sem stofnfram-
lög og breytist þá eignarhlut-
deild eigenda í samræmi við
það.“
Sagði Jón þetta árangur þeirr-
ar umfjöllunar sem fram fór um
sameiningu rafveitna á Suður-
nesjum á árunum 1980 og 1981,
en sú umfjöllun endaði á að af
þeim sex sveitarfélögum sem
tjáðu sig um sameiningu raf-
veitna voru fimm sammála um
sameiningu, en eitt sveitarfélag
vildi fara beint í stofnun orku-
bús. f áliti þeirra sem fjölluðu
um lög að orkubúi kom strax
fram tillaga um að breyta lögum
H.S. í stað þess að semja ný lög.
Orkubú þetta þótti hagkvæmt
m.a. vegna erlendra skulda H.S.
sem nýtt fyrirtæki hefði þurft að
yfirtaka og hefði það kostað
samninga við lánardrottna. Og
fleira. Með þeim breytingum
sem verða við að rafveitur sveit-
arfélaganna gangi inn í H.S.
verður að endurskoða stjórn-
armynstur sem nú er, þ.e. að öll
sveitarfélögin eigi þar fulltrúa.
Þetta ákvæði var ekki tekið inn í
breytingar á lögum H.S. þar sem
ákveðið var að bíða og sjá til
hvernig framkvæmd laganna
yrði.
Eftir viðræður stjórnar Hita-
veitu Suðurnesja við iðnaðarráð-
herra, hefur hvor aðili fyrir sig
skipað viðræðunefndir um
hvernig skuli staðið að samningi
um eignir RARIK á svæðinu.
Iðnaðarráðherra hefur tilnefnt
Gunnar Malmquist og Halldór
Jón Kristjánsson, en H.S. hefur
tilnefnt þá Jóhann Einvarðsson,
Steinþór Júlíusson og Albert K.
Vogum, 5. nóvember
AÐALFUNDUR Sambands sveitar-
félaga á Suðurnesjum hófst á föstu-
dag í samkomuhúsinu í Garði.
Finnbogi Björnsson var kjörinn
fundarstjóri og Ingimundur Guðna-
son og Viggó Benediktsson fund-
arritarar.
Halldór Ásgrímsson sjávarút-
vegsráðherra ávarpaði fundinn í
upphafí hans. Á laugardag ávarpaði
Ragnhildur Heigadóttir mennta-
málaráðherra fundinn.
Á fundinum fóru fram umræður
um iðnþróunarfélag og þróunarsjóð
félagsins, Hitaveitur Suöurnesja,
fræðslumál, vatnsvinnslu og
vatnsbúskap og skipulagsmál.
í lok fundarins voru eftirtaldir
Fri aóalfundi SSS. Finnbogi Björnsson framkvæmdastjóri í ræöustól.
tilnefndir í stjórn samtakanna: Frá
Keflavík Steinþór Júlíusson og til
vara Tómas Tómasson. Frá Njarð-
víkum Áki Gránz og til vara Sveinn
Eiríksson. Frá Grindavík Jón
Gunnar Stefánsson og til vara
Ólína Ragnarsdóttir. Frá Miðnes-
hreppi Jón K. Ólafsson og til vara
Jón Júlíusson. Frá Gerðahreppi Ell-
ert Eiríksson og til vara Finnbogi
Björnsson. Frá Vatnsleysustrand-
arhreppi Leifur A. ísaksson og til
vara Kristján B. Einarsson. Frá
Hafnarhreppi Þórarinn St. Sigurðs-
son og til vara Guðmundur Brynj-
ólfsson.
E.G.
Syeitarstjómir á Suðumesjum:
Eru kjörnir fulltrú-
ar í aukahlutverkum?
Upphafið að formlegri
samvinnu sveitarfélaganna
á Suðurnesjum má rekja
allt til ársins 1946, er þau
sameinuðust um byggingu
sjúkrahúss Keflavíkur-
læknishéraðs, sem tekið var
í notkun 1953. Frá þeim
tíma allt til ársins 1971 var
samvinna sveitarfélaganna
Ljósm. EG.
Jón K. Ólafsson formaður Hitaveitu
Suðurnesja.
Sanders. Þá hefur H.S. skipað
eftirtalda í viðræðunefnd við
sveitarfélögin, en þeir eru: Jón
K. Ólafsson, Ólafur G. Einarsson
og Eiríkur Alexandersson.
Rétt er að minna á að öll um-
ræða um sameiningu rafveitn-
Formaður sambands-
ins, Ellert Eiríksson
sveitarstjóri í Garði,
ræddi um hlutverk og
stöðu landshlutasamtaka
sveitarfélaga í landinu á
aðalfundi SSS. Hann
sagði m.a.:
„Markmið landshluta-
samtakanna var frá upp-
hafi og er enn að stuðla að
auknu sjálfræði og aukinni
þátttöku fólks í stjórnun
eigin mála, að bæta stað-
bundna þjónustu og stuðla
að uppbyggingu fjölbreytt-
ara atvinnulífs um landið.
Þau eru samstarfsvett-
vangur og hagsmuna- og
þjónustusamtök sveitar-
stjórnanna og hafa sannað
tilverurétt sinn sem slík,
ekki síst hér á Suðurnesj-
um.
Menntamílaráðherra, Ragnhildur Helgadóttir, ávarpar aðalfundinn.
Aöalfundur Sambands sveitarfélaga á Suóurnesjum