Morgunblaðið - 14.11.1984, Page 50
50
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 14. NÓVEMBER 1984
Heimsmeistaramót unglinga í skák:
Norðurlöndin ótví-
ræðir sigurvegarar
Kari Þorsteins og Hickl frá Vestur-Þýskalandi takast i við skákborðið.
Skák
Karl Þorsteins
ÞAÐ er óhætt að fullyrða, að Norð-
urlöndin hafi verið ótvíræðir sigur-
vegarar á Heimsmeistaramóti
unglinga undir 20 ára í skák, sem
fram fór í Kiljava í Finnlandi
2.—18. ágúst sl. Danir hrepptu
gullverðlaunin og íslendingar
bronsið.
Hinn tæplega tvítugi hógværi
og geðþekki Curt Hansen sigr-
aði, eins og áður hefur komið
fram, hlaut 10V4 vinning af 13
mögulegum. Fyrir mótið voru
margir þeirrar skoðunar, að
rólegur og öruggur skákstíll
Hansens hentaði ekki til sigurs á
mótinu sökum hins háa vinn-
ingshlutfalls sem mótið vinnst
iðulega á. Þessar áhyggjur
reyndust þó hugarburður einn,
enda sýndi Hansen eftirminni-
lega hversu fjölhæfur skákmað-
ur hann er orðinn. Hann sigldi
hvassan beitivind, eins og Jót-
lendingum einum er lagið, mótið
á enda og leyfði aðeins fimm
jafntefli, en fórnarlömbin voru
átta. Hinn nýkrýndi heims-
meistari sameinaði góðan byrj-
unarundirbúning, hárnákvæma
tækni og mikla einbeitingu á
snilldarlegan hátt. Að launum
hlaut Hansen, auk heimsmeist-
aratitilsins, áfanga að stór-
meistaratitli og bíða landar hans
þess nú í ófvæni að hann yfir-
stigi þá hársbreidd sem hann nú
stendur frá þessum eftirsótta
titli skákmanna, fyrstur Dana
síðan Bent Larsen hlaut stór-
meistaratitil fyrir nær aldar-
fjórðungi.
Sovétmaðurinn Aleksei Dreev,
tvöfaldur heimsmeistari sveina
undir 16 ára, hreppti annað sæt-
ið að þessu sinni með 10 vinn-
inga. Rétt eins og Hansen slapp
hann taplaus frá andstæðingum
sínum 13 en jafnteflin voru einu
of mörg eða sex talsins.
Undirritaður, Karl Þorsteins,
deildi þriðja sætinu ásamt fyrr-
verandi heimsmeistara unglinga
undir 20 ára, Kiril Georgiev, með
9 vinninga. Hins vegar tryggði
sigur í innbyrðisviðureign okkar
mér þriðja sætið. Um árangur
minn hef ég rætt í fyrri pistlum
og tel ég mig geta vel við unað.
Þau álög hafa legið á íslenskum
skákmönnum er sækja mót þetta
að þeim hefur reynst ókleift að
sýna sparihliðar sínar. Má það
örugglega m.a. kenna of mikilli
einbeitingu á hina fræðilegu hlið
mótsins. Staðreyndin er nefni-
lega sú að góður árangur veltur
ekki síður á lfkamlegu þoli en
fræðikenningum. Mót þetta er
keyrt i gegn af ótrúlegri hörku
og einungis örfáir frídagar. Hin
smæstu áföll geta því reynst
þung í skauti þegar fram í sækir
og er blátt áfram nauðsynlegt að
hafa traustan fylginaut til fylgd-
ar af góður árangur á að nást.
Ég tel mig því mega hrósa happi
að félagi minn Þór Sandholt
ásamt fylgdarliði stóð kyrfilega
mér við hlið yfir erfiðustu hjall-
ana á mótinu.
Fyrrverandi heimsmeistari,
Kiril Georgiev, hlaut fjórða sæt-
ið eins og áður sagði með 9 vinn-
inga. Náði hann engan veginn að
endurtaka glæsilegan árangur
frá fyrri ári er hann varð yfir-
burðasigurvegari. Eistlending-
urinn Lembit 011 varð fimmti
með 8% vinning. Hann varð
fyrir því óhappi í fyrstu umferð
að tapa fyrir óþekktum pfanó-
leikara frá A-Finnlandi, Kor-
honen að nafni. Var hann af
þeim sökum spölkorn frá efstu
mönnum fyrri hluta mótsins en
tókst með harðfylgi að komast í
hóp efstu manna uns hann hann
varð að láta i minni pokann fyrir
Dreev í 10. umferð.
í 6.-9. sæti með átta vinninga
hver komu þeir Stohl (Tékkó-
slóvakíu), Saeed (Sameinuðu
arabísku furstadæmunum),
Hickl (V-Þýskalandi) og Rehelis
(ísrael). Aðrir keppendur blönd-
uðu sér ekki í baráttuna um
efstu sætin.
Um leið og ég læt þessum
pistlum frá Heimsmeistaramót-
inu f Finnlandi lokið læt ég hér
fljóta með hreina úrslitaskák
um þriðja sætið sem tefld var í
síðustu umferð mótsins.
Hvítt: Lembit Oll (Sovétríkjunum)
Svart: Karl Þorsteins
1. e4 — c5, 2. Rf3 — Rc6, 3. d4 —
cxd4, 4. Rxd4 — Rf6, 5. Rc3 — d6,
6. Bg5 — e6, 7. Dd2 — Be7, 8.
0-0-0 — 04), 9. f4 — h6, 10. Bh4 —
e5, 11. Rf5 — Bxf5, 12. exf5 —
exf4, 13. Dxf4 — d5 (Ekkert er
nýtt undir sólinni. Sama staða
kom upp í skákinni Byrne-Karl f
alþjóðlega mótinu f febrúar.
Byrne kaus að leika 14. Bb5 en
eftir 14. - a6, 15. Ba4 - b5, 16.
Bb3 — d4 hafði svartur þegar
öðlast frumkvæðið. Leikur Olls
er betri.) 14. Kbl! — d4, 15. Bxf6
— Bxf6,16. Re4 — Be5,17. Df3 —
Hc8, 18. a3 (Hindrar í eitt skipti
fyrir öll riddaraflakkið Rb4 og
Rd5) 18. — Ra5, 19. Bd3 — Rc4,
20. Bxc4 — Hxc4, 21. Dd3 — Dc7,
22. g4 (Erfitt er að meta hvor
aðilinn standi betur. Hvítur hef-
ur í huga sóknaraðgerðir á
kóngsvæng en svartur á drottn-
ingarvæng. Lfklega er staðan
einungis óljós.) 22. — Hfc8, 23.
Hd2 — a5 (Undirbýr a4 og síðan
framrás svarta b-peðsins eða
Hc3) 24. g5!7 — hxg5, 25. Hgl —
Dc6, 26. Hdg2 - Bf4, 27. Rxg5 —
Be3!7
abcdofgb
(Þvingar fram mannsfórn hjá
hvítum því 28. f6 — Bxg5, 29.
Hxg5 — Dxf6 er hættulaust.) 28.
Re6! — g6! (Þvingað 28. — fxe6,
29. Hxg7+ - Kf8, 30. fxe6 tapar
strax hjá svörtum. É gleit nú
vonaraugum á framhaldið 29.
Hxg6+ — fxg6, 30. Hxg6+ — Kf7,
31. Rg5+ — Bxg5. En Oll fann
annan snjallari leik.) 29. Ddl!
(Hótunin er einfaldlega 30. Dh5
með meðfylgjandi máti og eftir
29. — Bxgl, 30. Dxgl er staða
svarts allt annað en þægileg.) 29.
— Hxc2, 30. Hxg6+ (Hxc2 —
Dxc2+, 31. Dxc2 — Hxc2, 32.
Hxg6+ leiðir einungis til jafn-
teflis, en Oll vill að sjálfsögðu
meira.) 30. — fxg6, 31. Hxg6+ —
Kf7, 32. Rg5+ — Bxg5, 33. Hxc6
— H2xc6, 34. Dh5+ — Kf6, 35.
Dg6+ — Ke6, 36. Dxg5 — H8c7
(Leikir svarts eru máske ekki
þeir nákvæmustu enda voru
keppendur f miklu tfmahraki.
Staðan er nú samt jafntefli.) 37.
f6+ — Ke6, 38. Dxa5 — Kxf6, 39.
Dd5 — Hh7, 40. Dxd4+ — Kf7
(Skákin fór hér f bið og við at-
hugun kom í ljós að svartur
heldur jafntefli án teljandi erf-
iðleika með að hafa svörtu hrók-
ana valdaða hvorn af öðrum á
sjöundu reitaröðinni og svarta
kónginn í horninu. Oll reyndi þó
að sjálfsögðu að svíða vinning-
inn í lengstu lög.) 41. Dd5+ —
Kg6, 42. a4 — Hg7, 43. a5 —
Hcc7, 44. Ka2 — Hcd7, 45. De4+
— Kh6, 46. Ka3 - Hde7, 47.
Df4+ - Kh7, 48. b4 — Hd7, 49.
Ka4 — Hdf7, 50. Db4+ — Kg8,
51. Dh6 — Hh7, 52. Dg6+ —
Hhg7, 53. Dd6 — Kh7, 54. De6 —
He7, 55. Df5+ — Kg8, 56. Kb5 —
Hef7, 57. Dc8+ — Kh7, 58. Dh3+
— Kg8, 59. De6 — Kh7, 60. h4 —
He7, 61. Df5+ — Kh6, 62. Df8 —
Kh5, 63. Kb6 (Tilgangslaust var
að reyna að halda f h-peðið.) 63.
— Kxh4, 64. Ka7 — Kg5, 65. b5 —
Kg6, 66. Dh8 Eina hugsanlega
hótun hvíts felst í að leika b6,
Kb8, Dd8 og sfðan Dc7. En svart-
ur hindrar þetta auðveldlega og
jafntefli var samið eftir 66. —
KÍ7, 67. b6 — Ke6 jafntefli.
Vonast eftir betra samstarfi
við íslendinga en verið hefur
Hinn nýkjörni foraeti FEIF, Volker Ledermann, I góðum félagsskap meó
Sigurói Ragnarasyni, framkvæmdastjóra LH, en hann var kosinn ritari
— segir Volker
Ledermann ný-
kjörinn forseti
Evrópusambands
eigenda ís-
lenskra hesta
Hestar
Valdimar Kristinsson
í tengslum vió afmælishátfó
Landsambands eigenda íslenskra
hesta f Hollandi var haldin aóal-
fundur FEIF. Á þessum fundi uróu
miklar breytingar á stjórninni eins
og komió hefur fram I fréttum og
var meóal annars kosin nýr foraeti
samtakanna. Var þaó Volker Led-
ermann sem kosinn var meó öllum
greiddum atkvæóum en hann hef-
ur setið í stjórn frá stofnun FEIF.
og er þvi ölhim hnútum kunnugur.
Volker hefur komið mikið vió sögu
varóandi ræktun íslenska bestsins
í Evrópu og telia má hann í hópi
margra sannra Islandsvina.
Það þótti við hæfi að loknum
aðalfundinum að taka hinn ný-
kjörna forseta tali og var hann
fyret beðinn að gera grein fyrir
þeim verkefnum sem biðu hans
sem forseta.
„Það er fyrst og fremst tækni-
legir hlutir svo sem framkvæmd
FEIF á aóalfundinum.
Evrópumótsins sem verður hald-
ið í Svíþjóð á næsta ári. Það
verður áríðandi fyrir mig að
hafa gott samband við Svia
vegna mótsins. Nú það er líka
mikilvægt að hafa náið samband
við ísland því það er jú uppruna-
landið og vona ég að það verði
meira og betra samband en verið
hefur undanfarin ár. Það hefur
reyndar verið gott samstarf
varðandi íþróttamálin, keppnis-
reglur og annað viðkomandi
keppni. En hvað ræktunarmálim
viðkemur hafa íslendingar ekki
sýnt neinn samstarfsvilja og í
félagsmálum samtakanna hafa
þeir verið frekar daufir. Á næsta
Evrópumóti geri ég mér vonir
um að hægt verði að bjóða upp á
kynbótasýningu og vona ég að
Islendingar leggi þar eitthvað til
málanna. Ég vonast eftir meira
samstarfi við Búnaðarfélag fs-
lands. í gegnum tíðina hefur ver-
ið nokkuð náið samband við tvo
eða þrjá menn en það endur-
speglar að sjáfsögðu ekki skoðun
hestamanna i einu landi. Ég
reikna með að koma til íslands í
nóvember nk. og þætti mér æski-
legt að ég ræddi við Stefán
Pálsson formann LH, Jóhann
Steinsson hjá Sambandinu og
Þorkel Bjarnason."
Þá var Volker spurður hvaða
mál hafi borið hæst á nýafstöð-
num aðalfundi?
„Fundurinn samþykkti ný og
endurskoðuð lög samtakanna og
það sem vekur mesta athygli í
þvi sambandi er að samtökin eru
ekki lengur evrópusamtök þvi
með inngöngu Kanada breytast
þau í alþjóðasamtök. Tekin var
fyrir umsókn Bretlands um inn-
göngu í samtökin en fundurinn
taldi ekki tímabært að veita
þeim inngöngu að svo komnu
máli og er það svipuð afgreiðsla
og Kanada fékk í fyrra en þá
sóttu þeir um inngöngu en fengu
ekki en svo aftur teknir inn
núna. Er ekki ósennilegt að
Bretlandi fái inngöngu að ári
liðnu.“
Að siðustu var Volker spurður
hvert álit hans væri á ræktun
íslenska hestsins í Evrópu?
„Það eru tvö sjónarmið í gangi
annarsvegar að íslendingar
rækti efni og hitt að ræktun eigi
sér stað einnig í Evrópu. Ef um
ræktun er að ræða í Evrópu
verður það ekki gert með léleg-
um hrossum, ég held að allir tapi
á því. Það hefur lengi verið ljóst
að við sem vinnum að ræktun
íslenskra hrossa í Evrópu höfum
ávallt sóst eftir ráðum frá ís-
lendingum varðandi ræktun.
Hvað útflutning hrossa frá ís-
landi viðkemur þá er sumarex-
emið þar stærsta vandamálið og
þess valdandi að færri hross eru
keypt frá íslandi en ella væri
get. En það er mín skoðun að ef
menn ætla að fá sér góða hesta
og þá er ég að tala um svokallaða
topphesta eiga þeir að leita til
íslands þrátt fyrir hættuna á
sumarexemi." Og að þeim orðum
mæltum þökkum við Volker Led-
ermann fyrir spjallið og óskum
honum góðs gengis i nýja emb-
ættinu.
50 þús-
und hafa
séð
Dalalíf
KVIKMYNDIN Dalalíf hefur nú
verið sýnd víða um land í rúman
mánuð. Áhorfendur eru orðnir um
50.000 og hefur myndin víða slegið
fyrri aðsóknarmet.
Sýningar í Nýja bíói í Reykja-
vík hafa einnig gengið mjög vel,
og má geta þess að uppselt var á
hverja einustu kvöldsýningu
fyrstu þrjár vikurnar, segir í
frétt sem Mbl. hefur borizt.
Fjögur sýningareintök af
myndinni eru nú í gangi og er
sýningum víðast hvar lokið á
Norðurlandi og Vestfjörðum en
sýningar að hefjast á Suður- og
Austurlandi.
Næsta verkefni hjá Nýju lífi
sf. er kvikmyndin Skammdegi
sem filmuð var í febrúar og
marz sl. vestur í Arnarfirði.
Kvikmyndin verður frumsýnd
snemma árs 1985.
Sýningum á Dalalífi í Nýja
bíói í Reykjavík fer nú að fækka,
svo að síðustu forvöð eru nú
fyrir Reykvíkinga að stytta sér
stundir við að hlæja að landbún-
aðarraunum þeirra Þórs og
Danna, segir ( frétt frá Nýju lífi
sf.