Morgunblaðið - 14.11.1984, Side 53
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 14. NÓVEMBER 1984
53
Tölvulæsingin opnast að
hverflasalnum. Þar eru fjórar
samstæður hver búin einum há-
þrýstihverfli og tveimur lágþrýst-
um. í veri eins og Lovísa eru þrjú
vökvakerfi eða hringrásir.
Frumhringrásin er í sama húsi og
kjarnaofninn. Um hana streymir
hreinsað vatn sem leikur um sjálf-
an kjarnaofninn að innan, hægir
þar á hröðum nifteindum og flytur
orkuna að seinni hringrásinni sem
300 stiga hita við 123 loftþyngda
þrýsting. Þær mætast í hitatank
seinni hringrásarinnar, þar sem
vatnið verður að gufu við að
snerta röraflækjur frumhringrás-
arinnar. Þessi gufa knýr hverflana
til rafmagnsframleiðslu. Úr hver-
flunum er gufan leidd í kælitank. í
honum rennur kaldur sjórinn um
röraflækjur og gufan þéttist í
vökva sem hægt er að dæla aftur
að hitatanknum. Þannig er orkan
flutt milli lokaðra kerfa, án þess
að vatnið i þeim blandist. Samt er
þetta ein leið geislunar út f um-
hverfið. óhjákvæmilega þrengir
hún sér út um agnargöt á veggjum
búnaðarins og berst loks út í sjó.
Sömuleiðis er kælivatni úr
frumhringrásinni endanlega
hleypt út eftir meðhöndlun. Geisl-
amengun í lifríkinu umhverfis er
stöðugt mæld og tekist hefur að
halda henni afar lágri, segir Turp-
einen.
í ganginum handan hverflasal-
arins er glerveggur á aðra hönd.
Við sjáum niður í stjórnstöð.
Tölvuskjáir og borð. Mælar og rof-
ar. 15 manna vaktir stjórna báð-
um kjarnaofnunum. Auk þess er
þarna þjálfunarbúnaður þar sem
hægt er að likja eftir rekstri með
smávægilegum til stórfelldra frá-
vika.
Turninn sem hýsir sjálfan
kjarnaofninn er að innan klæddur
þykkum stálhjúp til að endur-
varpa hugsanlegum geislaleka og
loftþrýstingi er haldið lægri en
þrýstingi andrúmsloftsins fyrir
utan svo að loftstreymi beri ekk-
ert með sér út. Þvi förum við um
þrýstijöfnunarklefa á leið okkar
inn á efstu hæð (sjá mynd).
Hvelfda hringlaga lokið i miðju er
yfir stjórnstöngunum. Það eru
stálstengur hlaðnar nifteinda-
gleypu efni. Þær ganga lóðrétt
niður i kjarnaofninn og umfangi
klofningskeðjunnar er þannig
stjórnað með nifteindaframboði.
Stjórnstangirnar eru 37 fyrir
hvorn ofn. Ofninn sjálfur er undir
fótum okkar, hýstur í þrýstitank.
Ofninn i Lovísa er 2,42 m á hæð og
2,80 í þvermál. Eldsneytið er auðg-
að úraníum 235 og notaðar hægar
nifteindir við klofningu. Árlega er
skipt um þriðjung eldsneytishl-
eðslunnar og þriðjung stjórn-
stanganna. Þannig dugar hver
hleðslueining í 3 ár. Við skiptin er
kraninn á miðri mynd notaður en
bak við hann má sjá lok yfir
geymslu fyrir notað eldsneyti. Þar
er það geymt í 2 ár meðan það
kólnar og geislavirkni þess minnk-
ar nokkuð. Síðan fer það f skiptum
fyrir nýtt eldsneyti til Sovétríkj-
anna. En ekki fer allur úrgangur
þessa leið. Minna geislavirkur úr-
gangur, s.s. verkfæri og hlífðarföt,
eru geymd áfram í verinu. Búið er
að teikna ruslageymslur 70 metra
niður í bergið.
Aftur handan þrýstijöfnunar-
klefans vörpum við ósjálfrátt önd-
inni. Á bakaleiðinni þvoum við
okkur um hendurnar. Svo förum
við í geislamælihliðið, þrýstum
báðum höndum niður og bíðum
eftir að slokkni á allri ljósaröð-
inni. Ekkert píp eða leiftrandi
rauð Ijós. Geislamælirinn sem var
með í förinni sýnir nákvæmlega
enga geislun. Sloppinn upp í skáp
og hlífðarblöðkurnar í óhreina
tauið. Við kveðjum og þökkum
fyrir okkur og lofum að senda ein-
tak komist heimsóknin á prent.
Við yfirgefum Hesthólmann en
við förum ekki langt.
Tortryggnir grannar
f um kílómetrafjarlægð býr
kennarinn Herbert Blömqvist.
Hann er einn ötulasti andstæðing-
ur versins. Við spjöllum saman í
garðinum þó að mývargurinn sé
með versta móti. Hvers vegna á
móti? Vegna hættunnar á geislun
Eldri stjórnstöð Lovfsa I. (Birt með leyfi Imatran Voima oy).
Aftnr í geislamælihliðinu: Þrýsta niður báðum höndum og biða eftir að
slokkni á allri Ijósaröðinni. Við urðum ekki fyrir minnstu geislun.
og áætlana um að geyma geisla-
virkan úrgang í berginu. Efnin eru
geislavirk svo óralengi að enginn
getur sagt fyrir um endanlegar af-
leiðingar kjarnorkunotkunar nú.
Við tölum fram og aftur um upp-
hleðslu geislavirkni í fæðukeðj-
unni. Hér mæla þeir upphleðsluna
í vöðvum fisksins en ekki í lifur og
beinum þar sem þessi efni safnast
fyrir, segir hann.
Hafa andstæðingar versins með
sér skipulögð samtök? Já, við
myndum Lovfsadeild samtakanna
Kjarnorkulaust Finnland. Hér eru
á skrá um 250 manns þó að ein-
ungis brot sé virkt. Samkvæmt
könnun skömmu eftir slysið í
Harrisburg reyndust um 54%
Lovisabúa andsnúin verinu.
f Harrisburg fór klofningskeðj-
an úr böndunum. í óðagoti var
lokað fyrir neyðarkælikerfið og
eldsneyti og stjórnstangir tóku að
bráðna saman. Neyðarástand
skapaðist og 3300 manns voru
flutt burtu áður en starfsmenn
náðu að kæla ofninn nægilega.
Þeir lokuðu hérna eftir Harris-
burg, segir Herbert, til að styrkja
neyðarkælikerfið enn frekar. Og f
upphafi kynntu þeir verið sem
hættulaust.
Hvað um viðvörunar- og brott-
flutningsleiðir ef út af ber? Hann
hlær. Þær eru varla einu sinni til
á pappfrunum. Hér f skerjagaröin-
um heyrum við ekki til viðvörun-
arhringinganna, kæmumst heldur
hvergi og i bænum tekur enginn
mark á þeim. Þær biluðu svo oft f
byrjun. Hver nennir að þeytast í
sifellu niður i kjallara? En brott-
flutningur? spyr ég. Engar raun-
hæfar áætlanir til segir hann.
Hvernig hagið þið aðgerðum?
Fyrst og fremst öflum við upplýs-
inga og komum þeim á framfæri
við almenning um fjölmiðla. Einn-
ig höfum við hringborðsumræður
og fundarhöld. Okkur hefur orðið
nokkuð ágengt. Næsta skref er að
hafa áhrif á sveitarstjórnarkosn-
ingarnar og hindra frekari stækk-
un. Spurðu bara, segir hann og
blaðar í skýrslum og nefnir bóka-
titla. Hjá okkur færðu þann hluta
sannleikans sem fyrirtækið lætur
kyrran liggja í málflutningi sin-
um.
Orð hans varðandi viðvörunar-
og brottflutningsáætlanir eru
staðfest í viðtali við Sigurd Slátis
bæjarstjóra, sem birtist í Hufud-
stadsbladet þann 4. júní. Endur-
bóta er þörf, segir hann. En þær
birtast afar hægt.
Tveimur vikum eftir heimsókn
okkar í verið var allsherjarprófun
á viðvörunarbúnaði. Heimilda-
menn minir f skerjagarðinum um-
hverfis verið urðu einskis varir. Á
sömu opnu f áðurnefndu dagblaði
eru viðtöl við stjórnmálamenn í
Lovísa og fáeina einstaklinga sem
búið hafa allnærri verinu og sumir
flutt af ótta. Sumir stjórnmála-
mannanna teygja lopann. Það er
margt í mörgu, segja þeir. Einn er
ákveðinn fylgjandi. Verið hefur
fært Lovfsa uppgangstfma. Við
þörfnumst orku til iðnaðar og
kjarnorkan er betri kostur en að
láta súra regnið frá kolaknúnu
verunum drepa skógana. Auðvitað
þarf að gæta fyllsta öryggis, en við
eigum hiklaust að stækka.
Nú fórum við sjálf á stúfana f
Lovísa og tókum fólk tali. Við
gripum nýorðinn pabba á þrítugs-
aldri. Það er erfitt fyrir almenn-
ing að átta sig á svo flókinni
tækni. Jú, hún var kynnt, en hver
getur dæmt um hvort það var
nægilega vel gert? Nei, ég fór ekki
á fundinn. Auðvitað verður að
velja á grundvelli kosta og galla.
Næst hittum við mann að háma f
sig ís. Nei, ég bjó ekki hérna þegar
ákveðið var að byggja, en kom
skömmu síðar. Auðvitað verður að
mæta vaxandi orkuþörf einhvern
veginn. En fyrirtækið á allra
kosta völ f upplýsingamiðlun. ís-
sölukona í gangstéttarbreiddar-
fjarlægð bjó heldur ekki hér þegar
ákveðið var að byggja, en býr nú
allnærri verinu líkt og þrjár fjöl-
skyldur aðrar. Maður hennar
starfaði í verinu í þrjú ár og fékk
fræðslu sem hann hélt fyrir sig.
öll voru þau geislamæld einu
sinni á ári. í byrjun vorum við öll
dauðhrædd en höfum vanist við.
Einhvers staðar að verður raf-
magnið að koma og kolaorkuverin
eru svo sóðaleg. f Ingó þvo þeir
gluggana á hverjum morgni. Já, sé
þörf á að stækka álít ég best að
hafa allt á sama stað.
{ sama streng tók annar Lovfsa-
búi sem starfað hefur í verinu.
Hann áleit starfsemina hafa verið
kynnta nægilega í byrjun og benti
á hver lyftistöng hún hafi reynst
staðnum.
LokaorÖ
Heill iðnaður hefur risið upp
kringum notkun kjarnorku. Henni
fylgir stöðug áhætta vegna geisl-
unar og verði meiriháttar slys get-
ur það haft ófyrirsjáanlegar af-
leiðingar. Kostirnir eru hinsvegar
augljósir: Mikil orka fæst úr litlu
eldsneyti og úrgangsefnin mega
alls ekki fara út í lífríkið, and-
stætt t.d. kolaryki. Notkun kjarn-
orku er því hreinleg sé alls öryggis
gætt.
Um 30 ára skeið hefur tækja-
búnaður til friðsamlegra nota þró-
ast við stöðug átök sjónarmiða
ávinnings og áhættu. Mjög erfitt
er að meta áhættuna til hlítar og
óhjákvæmilega verður að hafa
kostnaðarhliðina i huga þegar
krafist er öryggis í hönnun og
rekstri. Mörgum spurningum er
enn ósvarað. Almenningi, löggjaf-
anum, framleiðendum og notend-
um er því enn sá vandi á höndum
að reyna að tryggja stöðugt
áhættuminni notkun kjarnorku til
friðsamlegra þarfa.
Heimildir:
Kolph. Elizabeth S.
Nuclear power and the public safety. A
study in regulation.
Lexington books. D.C. Heath & Co.
U.S.A. and Canada 1979.
Whitman, Lawrence E.
Fire safety in the atomic age.
Nelson-Hall. Chicago 1980.
Imatran Voiman oy:
Ársskýrsla 1983
Upplýsingabækl. um Lovfsa 1 og 2.
Dagblöð.
Viðtöl.
Níels Hermmnnsaon er sjúkraþjálf-
sri
Nkomo spá-
ir blóðbaði
í Zimbabwe
llarran . Zimbabwe. 12. nórember. AP.
ROBERT Mugabe, forsætisráð-
herra Zimbabwe, hefur rekið úr
ríkisstjórn sinni þrjá ráðherra úr
röðum helsta stjórnarandstöðu-
flokksins, ZAPU-flokki Joshua
Nkomo. Nkomo hefur brugðist
æfur við og lýst yfir að mikið
bióðbað kunni að vera í vænd-
um vegna þessa.
Ráðherrarnir skipuðu minni
háttar ráðherraembætti og sagði
Mugabe í ræðu sem hann flutti, að
ekki hefði verið stætt á öðru þar
sem yfirlýst stefna flokks ráðherr-
anna væri' „ofbeldi og stiga-
mennska”. Sagði Mugabe að flokk-
ur sinn hefði orðið hvað mest fyrir
barðinu á umræddri stefnu um-
rædds flokks og væri stjómarsam-
starf þar af leiðandi óþolandi.
„Mugabe vill koma af stað
blóðbaði og það er ekki þjóðarheill
sem hann hugsar um er hann
framkvæmir svona glappaskot,"
sagði Nkomo. Helsta deilumálið
og undanfari þessara uppsagna er
morð á nánum samstarfsmanni
Mugabes nýlega. Mugabe segir
fiokk Nkomos hafa staðið að
morðinu, en Nkomo segir Mugabe
og hans menn sjálfa hafa myrt
sinn mann til að koma af stað
blóðugu uppgjöri við flokk sinn.
Æ fleiri
Danir
drekka sig
í hel
Frá Áfengisvarnaráöi:
Drykkja er orðin þjóöarfár í
Danmörku. Helmingur sjúkl-
inga í sjúkrahúsum í Kaup-
mannahöfn og á Noröur-Sjá-
landi er þangaö kominn vegna
drykkju. Dauösfollum af völd-
um skorpulifrar fjölgar meö
óhugnanlegum hraöa. Svo seg-
ir í viötali í Politiken, 13. sepL
sl., við Finn Hardt yfirlækni
viö aöalsjúkrahúsiö í Hillerod.
Augljóst er að fórnarlömb-
in verða mörg þúsund á ári
hverju á næstunni. Ekki er
óalgengt að fólk innan þrí-
tugs sé lagt inn á spítala
vegna skorpulifrar þó að
mann fái þann kvilla yfirleitt
ekki nema hafa drukkið
ósleitilega í allt að 15 ár.
Áfengisneysla Dana hefur
á tuttugu árum aukist úr 6
lítrum af hreinum vinanda á
mann i 12 Iítra og nú er
drykkjan talin eðlilegt fyrir-
bæri víðar og við fleiri tæki-
færi en áður var.
Áfengi er eitur sem hefur
áhrif á hverja frumu líkam-
ans, ekki aðeins lifrina, og
þvi margfaldast tjónið, sem
það veldur, fljótt ef drykkjan
er veruleg.
Við höfum, segir læknirinn
að lokum, varað fólk við ár-
um saman en ekki verið tekin
alvarlega. En hér er um
hættu að ræða og nú höfum
við sannanir, það er að segja
lík, á borðinu.
(Áfengisvarnaráö)
VJterkurog
Ll hagkvæmur
auglýsingamiöill!
JttotgjtnÞIafcifr