Morgunblaðið - 14.11.1984, Qupperneq 54
54
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 14. NÓVEMBER 1984
Horft af brúnni
— eftir Halldór
Jónsson
Horft af brúnni
Mér hefur oft fundist, þegar ég
hef verið svo lánsamur að komast
um loftbrúna til útlanda, að
manni gefist þá tækifæri til þess
að virða fyrir sér á eitthvað hlut-
lausari hátt en ella, það skondna
fyrirbrigði sem íslenskt samfélag
er. Svona eins og að horfa í
straumvatn af brú.
Manni getur þá fundist það
fyndið, hvernig þessi þjóð, sem var
í árdaga hrakin úr samfélagi
manna í Noregi vegna ribbalda-
skapar og skattsvika, telur sig
vera af konungakyni, sem elski
frið og lýðræði ofar öllu (sjá menn
samlíkinguna?), én hati skattsvik,
gróðahyggju og bjór umfram allt
annað. Samt virðist hatrið á því
síðast talda minnka um 10% fyrir
hvern áratug, sem menn eru að
aldri yngri en sjötugir, þannig að
bjórféndur geta því verið í hættu
með að verða aldauða á íslandi.
Mér flaug í hug á dögunum,
hversu fyndin hegðun mín væri í
rauninni, þegar ég hljóp með
pappakassa um ensk stræti sem í
voru þessir 12 bjórar og ein
brennivínsflaska, sem hverjum ís-
lending heimilast í náð að hafa
með sér af erlendri grund. Stærri
skammtur af þessu þýðir víst að
menn lendi á kolfylleríi, að því að
okkar vísu menn telja. Svo það
skiptir víst ekki neinu þó ég reyni
að halda því fram, að ég hafi verið
bláedrú við þennan verknað. Því í
búðinni þar sem þetta fékkst, var
* nóg til af öllum sortum og skítbil-
legt að auki.
Já, það er fyndið að vera einn
íslandsmaður, sem er svo van-
þroska að eigin hyggju, að allt
frelsi til að ráðskast með eigin
dómgreind er honum stórhættu-
legt. Því verða sérfræðingar að
ráða fyrir hann á öllum sviðum.
Þetta kemur gleggst fram i því, að
við teljum nauðsynlegt að 40%
þjóðarinnar kjósi 60% af þing-
mönnum hennar, vegna þess að
því er haldið fram, að malarlýðn-
um sé ekki treystandi fyrir völd-
unum. Því heitir þingmaður Sel-
áshverfis ekki Geir Hallgrímsson
heldur Egill Jónsson og býr á
Seljavöllum, hvar sem það er nú
og var kosinn með fjórum sinnum
færri atkvæðum en Geir féll með.
Sagði ekki Nóbelsskáldið að ís-
lendingar væru eina villimanna-
þjóðin sem kynni að lesa og
skrifa?
Heimsborgari úr Eyjum
Á flugvellinum í Glasgow heyrði
ég óvart útundan mér á tal bráð-
hressra Vestmanneyinga. Einn
þeirra hafði búið 20 ár í útlöndum,
hafði farið héðan um þrítugt.
Hann sagðist sjá mest eftir þvf, að
hafa sóað bestu árum ævi sinnar í
það að vera togaraskipstjóri uppi
á íslandi. Ekkert nema vosbúð,
skattar og basl. Nú þénaði hann
156 dollara skattfrjálst á hverjum
degi, sem hann stýrði skipum fyrir
olíufélög. Og vinnan væri auðveld
og næg eftirspurn væri eftir
mönnum eins og íslendingar væru,
sem ynnu sín störf ófullir og af
samviskusemi. Hann sagðist búa
núna í Suður-Ameríku, og yndi
glaður við sitt. Mér fannst mega
ráða af tali hans, að hann vork-
enndi löndum sínum. En maður
þessi var svo leiftrandi skemmti-
legur og gerði þvílíkt grín að sjálf-
um sér eins og sannir húmoristar
gera, og ég varð hryggur þegar
flugið var kallað upp og þeir felldu
talið. Ég hefði getað hlustað á
hann heilan dag.
En er ekki þarna fólgin hætta
fyrir okkar þjóð? Ef við höldum
áfram í þessari vitleysu allri, þá
fer bara okkar kjarnafólk á borð
við þennan Vestmanneying úr
landi og leggur ekki á sig að elta
ólar við delluna hérna heima. Því
Íað er staðreynd, að menntaður
slendingur, hvort sem er til
munns eða handa, hann er vegna
vinnusemi sinnar og menningar
eftirsóttur um allan heim, því
hann er tilbúinn í „að vera edrú í
djobbinu og mæta vel“, eins og
þessi heimsborgari úr Vestmanna-
eyjum orðaði það. Og það er stað-
reynd, að velferð þjóða byggist
mikið á framtaki einstakra
manna, sem skara fram úr meðal-
mennskunni. Þetta geta allir séð,
ef þeir nenna að horfa, hversu oft
sem sósíalistarnir halda hinu
gagnstæða fram. Hvað halda
menn til dæmis að væri nú á Bol-
ungarvík ef Einar Guðfinnsson
hefði ekki verið þar? Hverju
breytti Thor Jensen fyrir þetta
land? Eða Pétur Thorsteinsson?
Gísli Johnsen? Otto Wathne?
Svona má lengi telja. Það munar
um hvern dugnaðarmann.
Verkfallið
Fyrr á þessu ári var mér reikað
inn í stórmarkað Cactus i Lux-
emborg. Ég veitti því eftirtekt,
þegar ég seinna sama dag kom inn
í stórmarkað i Kópavogi, að allar
tölur í hillunum voru þær sömu,
nema að Gordon-gin hafði kostað
260 franka í Luxemborg, en fékkst
ekki þarna í Kópavogi. í búðinni í
Lux, þar sem voru haugar af þvi
og öllum tegundum öðrum, var
enginn samt fullur, en einn í
Kópavogi. Munurinn er hinsvegar
sá, að í krónunni eru tveir frank-
ar. í stuttu máli er vöruverð helm-
ingi lægra þar en hér. Og svo er
kaupið líka hærra þar en hér.
Mér varð þarna hugsað til Guð-
mundar J. (aka), sem berst, að
mér virðist, einlæglega fyrir bætt-
um kjörum sinna manna en er á
móti stóriðju sem þingmaður.
Guðmundur hefur eftir storma-
sama baráttuævi öðlast yfirvegað
fas hins lífsreynda manns. Hann
stingur mjög í stúf við hina bar-
áttuglöðu forsvarsmenn BSRB
sem nú hafa verið í sínum hvað
fyrstu almennilegu verkfallsátök-
um. Þeir hafa sent sefasýkislegar
yfirlýsingar í allar áttir um að
viðsemjendur þeirra séu allt að
því glæpamenn að skrifa ekki und-
ir ýtrustu kröfur strax. Og ekki
var Thorlacius í vandræðum með
að leggja fram efnahagsstefnu
fyrir landið í verkfallslok til þess
að sýna fram á að fimmtungs
kauphækkun skipti ekki neinu I
sambandi við verðbólgu.
Guðmundur J. var vel á vegi
með að semja við VSÍ af þeirri
skynsemi, sem reynslu hans af
verðbólgusamningum sæmir, þeg-
ar borgarstjórinn í Reykjavík,
Halldór Jónsson
„Líklega líta íslend-
ingar almennt ekki einu
sinni á sig sem þjóð,
sem beri innbyrðis
ábyrgð, heldur sem
samsafn þrýstihópa,
sem staddir eru hér til
bráðabirgða, eða þang-
að til að Haraldur hár-
fagri hefur verið hrak-
inn frá völdum í Noregi
og þeir megi þá aftur
snúa.“
Davíð Oddsson af öllum mönnum,
hleypti öllu i bál og brand með
gífurlegum kauphækkunarsamn-
ingum. Þetta gerðist víst við ljúf-
an undirleik Ólafs Ragnars
Grímssonar, sem stuðlaði að
samningunum að hálfu BSRB og
lét svo fella þá líka væntanlega til
þess að kála formennsku Haraldar
Hannessonar og helst rikisstjórn-
inni i leiðinni. Líklega má þakka
Davíð Oddssyni fremur en nokkr-
um öðrum þá verðbólgu sem fram-
undan er nú, án þess að það rýri á
neinn hátt hans frábæru frammi-
stöðu á öðrum sviðum. Til dæmis
það eitt að lækka íbúðarverð og
þar með verðbólgu um 10% með
því einu að hafa nægar lóðir á
boðstólum í Reykjavík.
Eftir að Davíð sprengdi verðið á
vinnumarkaðnum svona kyrfilega
í loft upp, þýddi litið að tala við
Guðmund J. um 7% og skatta-
lækkanir. Efnahagsstefna ríkis-
stjórnarinnar er þar með fokin
veg allrar veraldar og Steingrímur
verður líklega að fara aðra ferð til
ísraels til þess að segja þeim fyrir
um næsta þátt.
Endanlega verða menn i pólitik
þó af því frægastir að hafa stefnu
og standa við hana i stað þess að
láta reka. Ríkisstjórnin hafði
tækifæri fyrr á árinu til að bæta
hag þeirra verst settu, en lét í stað
þess reka. Og nú boðar formaður
Sjálfstæðisflokksins þessu fólki
upptöku virðisaukaskatts á mat-
væli og vinnu við ibúðabyggingar.
Þetta er kannski leið flokksins að
hjörtum kjósenda?
Mér varð sem sagt hugsað til
Guðmundar J. og um leið þá þjóð-
arþverstæðu, að vilja rétta hlut
lítilmagnans í þjóðfélaginu, en
vera svo á móti öllum þeim leið-
um, sem liggja til þeirrar verð-
mætasköpunar, sem til þess þarf.
Því að askarnir verða ekki fylltir
nema einhverju ætilegu, hvorki
askar opinberra starfsmanna,
gamalmenna, einstæðra mæðra
eða þeirra annarra sem við bág
kjör búa, en hafa ekki burði Vest-
manneyingsins áðurnefnda til að
bjarga sér öðru visi. Hvernig get-
ur Guðmundur J. verið einlægur
talsmaður þeirra verst settu, en
um leið þingmaður „Afturhalds-
bandalagsins", sem engu hefur að
skipta nema skortinum einum,
engin úrræði hefur nema neyðar-
áætlanir til fjögurra ára fyrir ís-
lenskt efnahagslíf, er á móti at-
hafnafrelsi í hverskonar formi, er
á móti stóriðju og nýtingu orku-
lindanna vegna þess að einhver
óskilgreindur „fslenskur smáiðn-
aður“ á að leysa vanda þjóðarinn-
ar, er yfirleitt á móti öllu. Ég er
hræddur um að sá smáiðnaðartími
sé ekki í næstu framtíð, sérdeilis í
Ijósi þess að íslenskur iðnaður eins
og hann leggur sig, útvegar í dag
ekki nema um 6% af gjaldeyris-
tekjunum, sem er töluvert minna
en hermangið í Keflavík gefur
okkur, þrátt fyrir eindregna and-
Lárus Einarsson, kjötiðnaðarmað-
ur, og Ari Del Huynh, matreiðslu-
maður, höfðu veg og vanda af
kynningunni.
síld, grafkarfa og ýmsar salat-
tegundir.
Sigurður Tryggvason, versl-
unarstjóri, sagði að kynningin
hefði tekist mjög vel og kvaðst
reikna með að um sex þúsund
manns hefðu komið þá tvo
daga, sem hún stóð yfir. Ætl-
unin væri svo að selja áfram
tilbúna rétti enda hefðu þeir
verið mjög vinsælir. Aðspurður
sagði Sigurður að fyrirhugað
væri að halda aðra slíka kynn-
ingu strax eftir áramót.
Um 30 fisktegundir og - réttir
kynntir í Vörumarkaðinum
Vörumarkaðurinn Eiðis-
torgi hélt á laugardag og
sunnudag kynningu í versl-
uninni á öllum þeim físk-
tegundum, sem nú eru fá-
anlegar í Reykjavík. Jafn-
framt kynntu matreiðslu-
menn möguleika við
vinnslu físksins enda
sumar tegundirnar sem í
boði voru sjaldséðar í versl-
unum borgarinnar og mat-
reiðslan því mörgum fram-
andi. Fiskurinn var bæði
seldur heill og í flökum en
einnig var boðið upp á
fjölda tilbúinna fískrétta,
sem fólk gat fengið að
bragða á.
Tveir starfsmenn Vörumark-
aðarins höfðu veg og vanda af
kynningunni, þeir Lárus Ein-
arsson kjötiðnaðarmaður og
Ari Del Huynh matreiðslu-
maður. Lárus sagði í samtali
við blm. Mbl. að ótrúlegur
fjöldi fólks hefði komið á kynn-
inguna og hefðu hann og Ari
vart haft undan við að afgreiða
og útbúa rétti. Aðspurður sagði
hann að um 30 ferskfiskteg-
undir hefðu verið á kynning-
unni, þeirra á meðal skötusel-
ur, keila, langa, karfi, guðlax,
sandkoli, sólkoli , smokkfiskur
o.fl. Þá skartaði risastór karfi
sínu fegursta í kæliborðinu og
er talið að hann hafi verið allt
að 30 ára gamall.
Lárus sagði að einnig hefði
verið boðið upp á fjölda fisk-
rétta, sem ýmist voru tilbúnir
til neyslu eða aðeins þurfti að
stinga í ofn eða skella á pönn-
una. Sem dæmi nefndi hann
ýsu i kryddlegi, fiskgrillteina,
kalda forrétti, soðinn humar,
marineruð karfaflök, reykta
Þessi liti snáði starði hugfanginn á furðufiskinn í kæliborðinu.