Morgunblaðið - 14.11.1984, Page 63

Morgunblaðið - 14.11.1984, Page 63
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 14. NÓVEMBER 1984 63 Varnargarðar norðan við Kröfluvirkjun? Aukin hætta á hraun- flæði úr Leirhnjúk — segir iðnaöarráðherra „HÆTTAN í braunflædi úr Leirhnjúkssprungunni hefur aukist og sömuleið- is er enn hætta á kvikuhlaupi sudur í Bjarnarflag. Á meðan svo er steðjar hætta að virkjuninni og öðrum mannvirkjum á svæðinu og þá er ekki forsvaranlegt að halda að sér höndum,“ sagði Sverrir Hermannsson iðnað- arráðherra í samtali við blaðamann Mbl. um hugmyndir um byggingu varn- argarða við Kröfluvirkjun. Iðnaðarráðherra sagði að í sept- ember sl. hefði hann óskað eftir áliti um stöðu máia og horfur við Kröflu. „Fyrir fáum dögum fékk ég skýrslu þar um og þótt þeir séu nú alltaf varkárir, Orkustofnun- armenn, þá leggja þeir til að dust- að verði rykið af gömlum áætlun- um um varnargarða norðan virkj- unarinnar," sagði hann. „Ég mun væntanlega taka þetta mál upp í rikisstjórninni á morgun (þriðju- dag) ef timi gefst til, enda er ekki verjandi að hafast ekkert að. Þarna eru mikil verðmæti. Enn er hætta á gosum og hraunflæði, land rís á ný eftir gos- ið í september — sem var kröftug- asta gosið á svæðinu síðan gos- virkni hófst þar fyrir níu árum — og á næstu mánuðum má aftur bú- ast við eldgosi. Ég vil því ekki láta sem ekkert sé, ef hægt er að hindra ógæfur vil ég ekki láta hendi 6veifað.“ Sverrir Hermannsson sagðist ætla að leggja til að farið yrði eft- ir tillögum sérfræðinga Orku- stofnunar um byggingu varnar- garða við Kröfluvirkjun. Hann sagði að enn lægi ekki fyrir hver kostnaður af slíkri framkvæmd gæti orðið, hann myndi óska eftir slíkum upplýsingum í framhaldi af umfjöllun ríkisstjórnarinnar. „Menn hafa líka verið með hugmyndir um kæliútbúnað, svip- aðan þeim, sem gafst vel í Heima- eyjargosinu, því við gætum búið við þetta ástand við Kröflu lengi enn,“ bætti Sverrir Hermannsson við. „Eldvirknin, sem talin er hafa verið á svæðinu 1724—1729, gæti hafa staðið miklu lengur, eða allt til 1746, samkvæmt þvi sem menn telja sig nú hafa heimildir um. Presturinn í Reykjahlíð, sem skráði mest um þessa virkni 1724—1729, mun hafa farið af staðnum í kringum 1730. En þetta er ekki fullsannað og á meðan vil ég ekki predika um málið, nóg er nú samt,“ sagði iðnaðarráðherra. Flokksþing Alþýðuflokksins um næstu helgi: * Asmundur Stefánsson gestur og ræðumaður við setninguna FLOKKSÞING Alþýðuflokksins verður sett með hátíðardagskrá í Gamla bíói kl. 17.30 nk. föstudag, 16. nóvember, en það stendur yfir fram á sunnudagskvöld. Á milli 260—270 þingfulltrúar eiga seturétt á þinginu, sem er haldið annað hvert ár og er æðsta valdastofnun fiokksins. Flokksþing kýs m.a. formann og varaformann, og hefur Jón Bald- vin Hannibalsson þingmaður flokksins í Reykjavík tilkynnt að hann muni bjóða sig fram gegn Kjartani Jóhannssyni núverandi formanni. Jóhanna Sigurðardótt- ir, sem einnig er þingmaður Reyk- víkinga, hefur ákveðið að bjóða sig fram til varaformanns, en Magnús H. Magnússon núverandi varafor- maður gefur ekki kost á sér á ný. Gestur og ræðumaður við setningarathöfnina verður Ás- mundur Stefánsson forseti Al- þýðusambands íslands. Auk þess flytja þar ávörp fulltrúar erlendra gesta. Eldri flokksfélagar verða heiðraðir og formaður, Kjartan Jóhannsson, flytur stefnuræðu. Þinginu verður síðan framhaldið í Kristalsal Hótels Loftleiða kl. 20.30 um kvöldið. Fer þar fram kosning starfsmanna þingsins, kosið verður í nefndir o.fl. Þá flytja formenn Sambands alþýðu- flokkskvenna og Sambands ungra jafnaðarmanna ávörp og fluttar verða skýrslur framkvæmda- stjórnar og gjaldkera. Þinginu verður síðan frestað til laugar- dags. Kosning formanns, varafor- manns, ritara, gjaldkera og for- manns framkvæmdastjórnar, þ.e. æðstu stjórnar flokksins, fer fram kl. 17 á laugardeginum. Þingfund- ir hefjast þá um morguninn kl. 9 og verður dagskrá hefðbundin, m.a. verða lagðar fram tillögur til lagabreytinga. Að sögn Kristínar Guðmundsdóttur framkvæmda- stjóra flokksins hafa borist mjög margar tillögur til lagabreytinga um fyrirkomulag prófkjörs. Á laugardagskvöldið verður flokks- þinghóf í Víkingasal Hótels Loft- leiða. Ný framkvæmdastjórn verður kjörin á sunnudagsmorgninum, þ.e. sex fulltrúar sem skipa stjórn- ina, auk æðstu stjórnar flokksins. Kl. 17 fer síðan fram kosning 30 manna í flokksstjorn, auk hefð- bundinnar dagskrár, en þinginu lýkur á sunnudagskvöld. Endurskinsmerki Nú þegar vetur er genginn í garð er rétt að minna fólk á nauðsyn þess að nota endurskinsmerki. í síðustu viku voru nokkir leiklistarnemar á ferð í Austurstræti, þar sem þeir afhentu vegfarendum endurskins- merki. Ný snyrtivöruverzlun Ný snyrtivöruverzlun hefur verið opnuð á Laugavegi 61 til 63. Þar verða seldar franskar snyrtivörur, enda er heiti verzlunarinnar París. Eigend- ur eru Magnea Rögnvaldsdóttir og Bjarni Gunnar Gylfason. Áherzla verður lögð á kynningu og sölu á snyrtivörunum Stendhal og Sothys. Edda Ríkarðsdóttir innanhúsarkitekt hannaði verzlunina. Morgunblaii4/JúHu8 URVAL ÚTSÍTN Samvinnuferdir -Landsýn FLUGLEIDIR ©V ofe e>° \*> _________EERÐ TE, KSNÁRÍ PYRffi60ÁRA0GELDRI Til að undirstrika enn frekar að Kanaríeyjar eru opnar og ,,mót- tækilegar” fyrir alla aldurshópa, efnir Kanaríklúbburinn til sér- stakrar sólar- og afslöppunarferðar þangað, fyrir eldri borgara. Ferðin er skipulögð með þarfir eldri borgara í huga og því hefur félagsmálafulltrúinn Þórir Guðbergsson tekið að sér fararstjórn ásamt með Auði Sæmundsdóttur, fararstjóra Kanaríklúbbsins á Playa del Inglés. Þá verður hjúkrunarfræöingur einnig með í för- inni. Gist verður í 3 vikur, á íbúðarhótelinu Broncémar, sem margur Kanarífarinn þekkir af góðri þjónustu í hvivetna. Skoðunarferðir, veislur og rólegheit skiptast á um að gera eftir- minnilega ferð að ógleymanlegri. Flogið verður út i gegnum heimsborg- ina London og beint heim. Brottför: 26. nóv. Heimkoma: 19. des. Verö pr. mann, m/hálfu fæði. 3 í íbúð kr. 26.100,- 2 í íbúð kr. 28.200,- 1 í íbúð kr. 33.400,-

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.