Morgunblaðið - 28.11.1984, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 28.11.1984, Blaðsíða 2
2 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 28. NÓVEMBER 1984 2,2 % hækkun lánskjara- vísitölunnar SEÐLABANKINN hefur reiknað út lánskjaravísitölu fyrir desember- mánuö nk. og verður hún 959 stig, sem er 2,2% hiekkun fr4, nóvember- lánskjaravísitölunni, sem var 938 stig. Lánskjaravísitalan er byggð á meðaltali framfærsluvísitölu og byggi ngarvísitölu, þar sem sú fyrrnefnda vegur % og sú síðar- nefnda 'A. Eins og Mbl. skýrði frá í gær hefur byggingarvísitalan hækkað um 4,41%, sem mælir 67,8% verðbólguhraða á tólf mán- uðum. Hækkun framfærsluvísitöl- unnar er hins vegar aðeins 1,3%, þannig að sú tólf mánaða hækkun sem lánskjaravísitalan mælir nú er 30,4%. Skákmót í Skáleyjum MMiam, Kejrkhóbuneit, 27. »ó»ember. UM SÍÐUSTU belgi var skákmót í Skáleyjum í Flateyjarhreppi, en það mun vera sjaJdgcft að skákmót sé haldið á bændabýli, sem ekki er f alfaraleið. Teflt var á níu borðum. Flesta vinninga fengu: Guðjón D. Gunn- arsson 7 vinninga, Hugo Rasmus 5,5 vinninga og Eysteinn Gíslason með 5 vinninga. Samkvæmt upp- lýsingum þeirra sem sóttu mótið voru móttökur frábærar, enda Skáleyjar rótgróið menningarbýli og þá menningu hefur bændunum þar, þeim Eysteini og Jóhanni Gíslasonum, tekizt að varðveita, þrátt fyrir umbrot síðari tíma. Til þess að halda uppi þessari reisn þarf fyrirhyggju. Kona Jó- hannesar, Sigríður Asgrímsdóttir, breytti húsi þeirra bræðra í veizlusal og gistihús, en ekki getur hún hlaupið í næstu búð, ef eitt- hvað vantar. Sveinn. FJÁRLÖGIN TIL UMRÆÐU Horgunblaðið/ól.K.M. Albert Guðmundsson, fjármálaráðherra, fylgdi fjárlagafrumvarpinu fyrir árið 1985 úr hlaði með ræðu á Alþingi í gær. Þessi mynd er tekin af ráðherranum f hliðarherbergi við þingsalinn eftir að hann hafði flutt ræðuna. Hlýðir Albert hér á ræður annarra þingmanna um málið ásamt þeira Geir H. Haarde, aðstoðarmanni sínum, Sigurði Þórðarsyni, deildar- stjóra, Pálma Jónssyni, formanni fjárveitinganefndar Alþingis, og Magn- úsi Péturssyni, fjármála- og hagsýslustjóra. (Sjá frásögn á bls. 36—37.) Loðnukvót- inn aukinn ÁKVEÐIÐ hefur verið að auka loðnukvótann upp í 595 þúsund lest- ir og skiptist viðbótin með sama hætti og áður, þ.e. 57%skiptast jafnt milli skipa, en 33% í hlutfalli við burðargetu. Þessi ákvörðun er tekin í fram- haldi af mælingum hafrannsókna- skipanna Árna Friðrikssonar og Bjarna Sæmundssonar fyrr í þess- um mánuði. Alls mældust rúmlega milljón tonn af loðnu, þar af um 720 þús. tonn af hrygningarloðnu. 1 frétt frá sjávarútvegsráðuneyt- inu segir, að leyfðar verði veiðar á 700 þúsund tonnum samtals á vertíðinni 1984—1985. TÓLF síðna auglýsingablað Út- sýnar um vetrarfrf og viðskipta- ferðir fylgir Morgunblaðinu í dag. Fjölgað í miðstjóm ASÍ: Pólitísk hlutföll í miðstjórn óbreytt NÝTT EMBÆTTI 2. varaforseU Al- þýðusambands íslands var stofnað í gærkvöld með mjög naumum raeiri- hhita þingfulltrúa á 35. þingi ASÍ. Tvo þriðju hluta atkvæða þurfti til að lagabreyting þar að lútandi yrði samþykkt og fóru atkvæði þannig, að 67,73% voru fylgjandi (36.475 at- kvæði) en 32,27 % voru á móti (17.375 atkvæði). Svo litlu munaöi, að hefðu Ld. tveir af 43 fulltrúum Vershinarmannafélags Reykjavíkur greitt atkvæði gegn tillögunni hefði hún fallið en hver fulltrúi VR hefur 200 atkvæði á þinginu i samræmi við fjölda félagsmanna. Einnig var samþykkt tillaga laganefndar þingsins um fjölgun miöstjórnarmanna um sex, þannig að með forseta og tveimur vara- forsetum skipa miðstjórn alls 21 maður. Sú tillaga hlaut talsvert meira fylgi eða 79,83% en 19,98% voru á móti. Salan á Bjama Benediktssyni: Kauptilboð upp á tæp- ar 77 milliónir króna KAUPSAMNINGUR um sölu á skuttogaranum Bjarna Benedikts- syni var lagður fyrir á fundi útgerð- arráðs Bæjarútgerðar Reykjavfkur í gærdag. Samkvæmt samningnum er söluverð skipsins tæpar 77 milljónir Mál þýzku fálkaeggjaþjófanna fyrir Hæstarétti: Ríkissaksóknari krefst þyngingar á refsingu — og að verjandi í héraði verði sektaður RÍKISSAKSÓKNARI gerði þá dómkröfu fyrir Hæstarétti sl. mánudag, að refsing þýsku hjónanna, sem uppvfs voru að stuldi á fálkaeggjum bérlendis, verði þyngd frá því sem ákveðið er f béraðsdómi. Þá gerir ríkissaksóknari og kröfu um, að verjandi ákærðu, Gabrielu Utb-Baly, f héraði, Guðmundur Jónsson hdl., verði sektaður. Þýsku hjónin, Miroslav Peter Baly og Gabriela Uth-Baly, voru dæmd f héraðsdómi f skilorðs- bundna fangelsisvist og til greiðslu sekta, hann um 300 þús. kr., hún um 200 þús. kr. Ríkis- saksóknari fer fram á að ákærðu verði sakfelld samkvæmt ákæru og að refsing þeirra verði þyngd. Þá fer hann fram á að ákærðu verði dæmd til að greiða allan áfrýjunarkostnað sakarinnar, þar með talinn hæfileg saksókn- aralaun í rfkissjóð. Auk þessa gerir rfkissaksókn- ari þá dómkröfu, að verjandi ákærðu, Guðmundur Jónsson héraðsdómslögmaður, verði sektaður, samkvæmt þvi sem krafíst er í áfrýjunarstefnu, út- gefínni 22. júlí 1984. Krafa þessi er tilkomin vegna bréfa, sem Guðmundur ritaði á sinum tfma vegna máls þessa. króna. Samningurinn er með fyrir- vara um samþykkt útgerðarráðs og borgarráðs og samþykkti útgerðar- ráð samninginn með fjórum sam- hljóða atkvæðum. Á fúndi borgar- ráðs í gærdag var ákveðið að fresta afgreiðslu málsins til næsta fundar að beiðni fulltrúa Kvennalista. Að sögn Brynjólfs Bjarnasonar, forstjóra BÚR, mun nafn skipsins ekki fylgja með í kaupunum, en Bjarni Benediktsson var smiðaður á Spáni árið 1972 og er í hópi stærri skuttogara landsins. Kaup- samningurinn er undirritaður af Kristni S. Kristinssyni, en félagi hans f kaupunum er Kristinn Gunnarsson og munu þeir stofna nýtt hlutafélag um útgerð skips- ins. Kristinn S. Kristinsson sagði f samtali við Morgunblaðið í gær, að ákveðið hefði verið að setja frystibúnað um borð í togarann og gera hann út sem frystitogara, bæði til flökunar og heilfrystingar á fiski og rækju. Kristinn sagði að ekki væri búið að ákveða nýtt nafn á skipið, en þaö yrði gert um leið og gengið yrði endanlega frá kaup- unum. Kosning forseta, varaforseta og miðstjórnarmanna fer fram ár- degis i dag. Lfklegast þykir á þing- inu að Alþýðubandalagsmaðurinn Ásmundur Stefánsson verði endurkjörinn forseti, Sjálfstæðis- maðurinn Björn Þórhallsson verði 1. varaforseti og að Alþýðu- flokkskonan Guðríður Elíasdóttir, formaður Framtiðarinnar i Hafn- arfirði, verði tilnefnd í embætti 2. varaforseta. Seint í gærkvöld voru, skv. heimildum Mbl., taldir líklegastir nýir miðstjórnarmenn þau Magnús Geirsson, formaöur Rafiðnaðarsambandsins (ekki flokksmerktur), Guðrún Thorodd- sen frá Eyrarbakka (Sjálfstæðis- flokkur), Ragna Bergmann, form- aður Framsóknar (Alþýðuflokk- ur), Hansína Stefánsdóttir frá Selfossi og Kristín Hjálmarsdóttir frá Akureyri (Alþýðubandalag) og jafnvel Þóra Hjaltadóttir frá Ak- ureyri (Framsóknarflokkur). Nú- verandi miðstjórnarmenn verða væntanlega áfram að Þórunni Valdimarsdóttur, fyrrv. formanni Framsóknar, undanskilinni að eig- in ósk. 17 umsóknir um hundahald afgreiddar FYRSTU umsóknir um undan- þágu fyrir hundahaldi í Reykja- vík voru afgreiddar á fundi borg- arráðs í gærdag. Borist hafa 17 umsóknir á þeim hálfa mánuði sem liðinn er síðan skráning hunda i Reykjavík hófst, en reykvískir hundaeigendur hafa þrjá mán- uði til að sækja um undanþágu fyrir hunda sína. Þess má geta, að Albert Guðmundsson, fjármálaráðherra, var ekki í hópi umsækjenda að þessu sinni, en sjálfsagt eru fáir hundar í höfuðborginni betur þekktir en einmitt tíkin hans, Lucy.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.