Morgunblaðið - 28.11.1984, Blaðsíða 34

Morgunblaðið - 28.11.1984, Blaðsíða 34
34 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 28. NÓVEMBER 1984 Lestunar- áætlun Skip Sambandsins munu ferma til íslands á nœstunni sem hór segir: HULL/GOOLE: Dísarfell ..... 3/12 Dísarfell .... 17/12 ROTTERDAM: Dísarfell ..... 4/12 j, Dísarfell ..... 18/12 ANTWERPEN: Dísarfell ...... 5/12 Dísarfell ..... 19/12 HAMBORG: Dísarfell ...... 7/12 Dísarfell ..... 21/12 HELSINKI: Patria ......... 3/12 Hvassafell .... 14/12 LÚBECK: Arnarfell ...... 3/12 FALKENBERG: Arnarfell ...... 4/12 Hvassafell .... 17/12 LENINGRAD: Patria ........ 4/12 LARVIK: Jan ........... 30/11 Jan ........... 10/12 GAUTABORG: Jan ........... 29/11 Jan ........... 11/12 KAUPMANNAHÖFN: Jan ........... 12/12 SVENDBORG: Jan .......... 13/12 ÁRHUS: Jan ........... 13/12 GLOUCESTER MASS.: Skaftafell .... 18/12 HALIFAX, KANADA: Skaftafell .... 19/12 m. SKIPADEILD SAMBANDSINS Sambandshúsinu Pósth. 180 121 Reykjavík Sími 28200 Telex 2101 iðaf meginþorra þjóðarinnar daglega! Auglýsinga- síminn er224 80 JC REYKJAVÍK Slys í heimahúsum í heimahúsum verða því miður ailtof mörg slys og sá hópur, sem er í hvað mestri slysahættu, eru börn á aldrinum 0—4 ára. Samkvæmt upplýs- ingum frá landlækni verða slys í flestum tilvikum af óaðgætni. 1 þessari grein ætla ég að ein- skorða mig við bruna, en bruni er orsök 5% allra heimaslysa (upplýs. frá 1979). Bðrnum er hættast við slysum, þegar þau eru farin að standa upp og teygja sig eftir hlutum. Eldhúsið er og verður líklega hættulegasti staður íbúðarinnar. En er eitt- hvað við því að gera? Eins og áður sagði verða flest slys vegna óaðgætni, sem ef til vill hefði verið hægt að koma í veg fyrir. En hvað er svona hættulegt í eldhúsinu? Fyrst ber að telja eldavélina. Lítil börn reyna oft að teygja sig upp á eldavélar og þá lenda fingurnir stundum á heitum hellunum, þess vegna er betra að nota aftari hellurnar ef mögulegt er. Einnig er varhuga- vert að láta sköft á pottum eða pðnnum standa út fyrir eldavél- ina, því það er óskaplega freist- andi að toga í slík sköft og þá er voðinn vís. Til eru ákveðnar grindur til að setja framan á eldavélina, en þessar grindur virka þá sem hlífl Hægt er að kaupa þessar grindur í sumum heimilistækjaverslunum. Hurðin á bakaraofninum get- ur líka verið varhugaverð, mörg börn vilja nota hana sem tröppu og þá er hætta á að eldavélin sporðreisist. Það er því nauð- synlegt að slíkar hurðir hafi barnalæsingu. Heitt kaffi eða te getur brennt illilega, því er mik- ilvægt að kaffikönnur standi ekki nálægt borðbrúnum og snúrur á sjálfvirkum kaffi- könnum eða kötlum standi ekki út fyrir borðbrúnir, því það er mjög spennandi að toga í allar slíkar snúrur og sjá hvað er á hinum endanum. Það er lfka alltof algengt að foreldrar haldi á börnum sínum meðan þeir drekka kaffi eða te, en það er ótrúlegt hvað einn kaffibolli get- ur orsakað mikinn bruna á litl- um líkama. Margir hafa uppþvottavélar eða þvottavélar í eldhúsum sín- um og þá þarf að gæta þess að ekki sé hægt að opna þær meðan þær eru í gangi. Flestar slíkar vélar hafa öryggislæsingar, en verið viss, spyrjið áður en þið kaupið. Eldspýtur eru hættuleg leik- föng, skiljið þær því ekki eftir, þar sem börn ná til. Nú fer að dimma og líða að jólum og þá eykst notkun kerta. Reynið þá að hafa kertin, þar sem börnin ná ekki til eða fylgist alveg með börnunum. Logi á kertum er mjög heillandi, þvi reyna þau að koma við hann með ófyrirsjáan- legum afleiðingum. Baðherbergið er lika hættu- legt með öllum sínum fallegu krönum. Skiljið þess vegna ekki börnin eftir ein í baði, þau eru vís með að reyna kranana. Það er hægt að fá blöndunartæki með stillanlegu hitastigi og eru þau strax til bóta. Það er endalaust hægt að nefna slysagildrur, en umfram allt verið vakandi og skiljið ekki óvita eftir aðgæslulausa. Kynnið ykkur slysahjálp. Rauði kross Ís- lands heldur skyndihjálparnám- skeið öðru hvoru — farið á eitt slikt! María Guðmundsdóttir, deildarstjórí barnadeildar Heilsuvernarstöðvar Rvíkur. eigendur Vetrartilboð! Við bjóðum ykkur BRIDGESTONE nagladekk á felgum undir bílinn á sérstöku tilboðsverði: MAZDA 323 verð frá Kr. 3.647 MAZDA 626 verð frá Kr. 4.652 MAZDA 929 verð frá Kr. 4.356 Góð greiðslukjör Tryggið öryggið í vetrarakstri og notið vkkur þetta hagstæða boð. BÍLABORG HF. Smiðshöfða 23 Sími 81265 Landsamband Lslendingafélaga í Svíþjóð: 2000 félags- menn í 6 félögum JóadráKÍ, KupmuuUri II. bót. ° LANDSSAMBAND íslendingafélaga í Svíþjóð var stofnað í maí 1980 og starfa nú flest félög íslendinga og Islandsvina innan vébanda þess. Eru um 2.000 félagsmenn í þeim 6 félögum, sem hér um ræðir, og er starfsemin margþætt og vel skipulögð. Landssambandið gefur út blaðið íslandspóst og kom fyrsti árgangur þess út 1980. Urðu tölublöðin 5 í fyrra og sjá nú aðildarfélög sambandsins um útgáfu þeirra til skiptis. Einn aðalhvatamaður að stofn- un Landssambands íslendingafé- laga í Sviþjóð er Haukur Þor- steinsson formaður Sænsk- íslenzka félagsins í Jönköping. Hefur Haukur verið forseti lands- sambandsins frá upphafi og full- trúi þess m.a. hjá sænsku innflytjendastofnuninni (Invandr- arverket) og setið þar fundi með fulltrúum annarra landssam- banda innflytjenda til Svíþjóðar. Er þar um 30 landssambönd að ræða. íslenzka sambandið, sem skammstafað er á sænsku IRIS, fær árlega styrki frá innflytjend- astofnuninni til skrifstofu- og fundahalds og einnig til útgáfu ís- landspóstsins. Þá fékkst nokkur fjárhæð til stofnunar stúdíóa fyrir íslenzkar útvarpsdagskrár, til fé- laganna í Malmö og Stokkhólmi, og er nú verið að leita hófanna um uppsetningu stúdíós i Gautaborg, en þar hafa íslenzkar útvarps- sendingar legið niðri um skeið. Tilgangur Landssambands ís- lendingafélaga í Sviþjóð er að vinna að sameiginlegum hags- muna- og menningarmálum félag- anna og efla samvinnu íslendinga og íslandsvina í Svíþjóð. Og áfram segir í lögum þess að leita skuli samstarfs við hliðstæð samtðk á Norðurlöndum og skuli sambandið vera fulltrúi aðildarfélaganna gagnvart opinberum aðilum í Sví- þjóð og á íslandi i sameiginlegum hagsmunamálum. Einnig á sam- bandið að sjá um útvegun og dreif- ingu íslenzks menningar- og skemmtiefnis. Hefur stjórn sam- bandsins unnið mikið og gott starf að þessum málum og komið auga á ýmislegt, sem betur mætti fara. Elzta félagið innan sambands- ins er íslendingafélagið í Stokk- hólmi, sem verður 50 ára um þess- ar mundir. Verður afmælisins minnzt með veglegu hófi 24. nóv- ember nk. og að auki mun koma út myndarlegt blað af sama tilefni. Formaður íslendingafélagsins í Stokkhólmi er Þórir Jónsson. G.LÁsg. Kæru vinir mínir, hjartanlega þakka ég öllum, sem heidruöu mig meö heimsóknum, gjöfum og heillaskeytum á 80 ára afmælisdegi mínum 22. nóvember si GuÖ blessi ykkur öll. MagnúsBj. Björnsson, Hagamel 17, Reykjavík.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.