Morgunblaðið - 28.11.1984, Blaðsíða 47

Morgunblaðið - 28.11.1984, Blaðsíða 47
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 28. NÓVEMBER 1984 47 Sunkór Selfoss í æfingu. MorgunblaÖift/Sigurður. Samkór Selfoss gefur út afmælisrit Setfmri, 23. ■ÍTember. SAMKÓR Selfoss er einn þeirra kóra i Selfossi sem starfar af hvað mestum krafti. Kórinn hyggst gefa út afmaelisrit nú í desember f tilefni 10 ára starfsafmdis. Að vísu átti kórínn 10 ára afmæli á sl. ári og er því 11 ára á þessu en kórfélagar segja það ekkert minna að verða ellefu ára. Kórinn var stofnaður 24. sept. 1973 upp úr Kvennakór Selfoss sem þá var. Fyrstu tónleikarnir voru haldnir f Eyrarbakkakirkju 25. des. ’73. Kórinn hefur starfað af krafti frá stofnun og átt gott samstarf við aðra kóra, hefur tek- ið þátt í kóramótum og tónleikum Sambands blandaðra kóra á Suð- urlandi. Kórinn fór f söngferð til Noregs 1979 og tók þátt í kóra- móti í Sarpsburg og fékk góða dóma. Fyrsti stjórnandi kórsins var Jónas Ingimundarson, aðrir sem hafa stjórnað kórnum eru Jó- hanna Guðmundsdóttir, dr. Hall- grímur Helgason, Björgvin Þ. Valdimarsson frá 1977—1983 og núverandi stjórnandi er Helgi E. Kristjánsson. Árið 1982 kom út plata með kórnum sem ber heitið Þú bærinn minn ungi. Á plötunni eru 15 lög, þar af 5 eftir Björgvin Þ. Valdi- marsson. Undirleikari er Geir- þrúður Bogadóttir. Þessa dagana æfir kórinn af kappi fyrir aðventutónleika í Sel- fosskirkju sem eru orðnir fastur liður í tónlistarlffinu og jólaund- irbúningnum á Selfossi. Kórinn heldur uppi Ifflegu starfi og er Helgi E. Kristjánsson, stjórnandi, gefur tóninn. reiðubúinn að fara f sjúkrahús og elliheimili fyrir jólin og syngja fyrir fólk. Kórfélagar eru stórhuga og setja markið hátt. Stefnt er að þvf að fara til Kanada árið 1986 og heimsækja Vestur-íslendinga. Sá draumur mun hafa blundað meðal kórfélaga siðan dr. Hallgrfmur stjórnaði söng þeirra. Núna er starfandi 41 félagi f kórnum en flestir hafa félagarnir orðið 57. Kórinn stundar æfingar sínar i nýju safnaðarheimili Selfoss- kirkju en kórarnir á Selfossi hafa stutt þá byggingu meö þvi að gefa til hennar afrakstur aðventutón- leikanna. Formaður Samkórsins er Guð- björg Gestsdóttir. - SigJóns. „ísafold missti niður dampinn í verkfallinu“ „Þegar höfuðstóllinn var upp ur- inn hættum við,“ sagði Ásgeir Hann- es Eiríksson, er Mbl. innti hann eftir ástæðum þess að vikuritið ísafold, sem hann var útgefandi, ábyrgðar- maður og rítstjóri að, er hætt að koma úL „Ástæðan var fyrst og fremst peningaleysi og við tókum þá ákvörðun að hætta, í bili a.m.k., áður en tap yrði á fyrirtækinu,“ sagði Ásgeir Hannes. „Fyrsta tölublað ísafoldar kom út þremur dögum fyrir verkfall prentara í október og eftir verk- fall komum við út tveimur blöð- um. I verkfallinu gáfum við svo út ellefu tölublöð af Verkfallstíðind- um. En ísafold missti niður damp- inn i verkfallinu og náði honum ekki upp aftur að því loknu. Því kynningar- og auglýsingastarf- semi, sem hleypt var af stokkun- um í ágústlok, nýttist okkur ekki vegna þess,“ sagði Ásgeir Hannes. Við Isafoid voru þrír fastráðnir starfsmenn, þeir Kristján Már Unnarsson, biaðamaður, Einar ólafsson, ljósmyndari og Már Halldórsson, sem sá um dreifingu og auglýsingar. Auk þeirra hafði Gústaf Níelsson, sagnfræðingur, verið ráðinn til starfa við blaðið eftir að verkfalli prentara lauk. „Nú er verið að meta stöðuna og athuga hvað þarf til þess að hasla blaðinu völl aftur,“ sagði Ásgeir Hannes. „Ef til vill hefur kynn- ingu okkar á blaðinu verið eitt- hvað ábótavant," bætti hann við. „En ísafold var blað með skoðun, ákveðið mótvægi við alla vinstri- mennskuna sem veður uppi í þjóð- félaginu og það hafa margir sterkir aðilar haft samband við mig og lýst áhuga sínum á því að taka þátt i að koma blaðinu af stað aftur.“ Bók um huglækningar HÖRPUÍJTGÁFAN á Akranesi hef- ur sent frá sér bókina „Huglæknir- inn og sjáandinn Sigurrós Jóhanns- dóttir". Þórarinn Elís Jónsson frá Kjartansstöðum skráði. „Bókin fjallar um Sigurrós Jó- hannsdóttur, sem starfað hefur sem huglæknir yfir 40 ár. Sagt er frá lækningaferli hennar, draum- um og dulsýnum. Þá eru í bókinni frásagnir fólks, sem hlotið hefur lækningu fyrir hennar tilstilli, einnig blaðaviðtöl við hana. 1 bók- inni er eftirmáli höfundar, þar sem hann fjallar um drauma, dulsýnir og huglækningar Sigur- rósar. Fyrir nokkrum árum var gerð á vegum Félagsvisindadeildar Há- skóia íslands könnun á dulrænni reynslu íslendinga. Um 30% þeirra sem spurðir voru töldu sig hafa orðið fyrir slíkri reynslu ein- hvern tíma á lífsleiðinni. Mikill fjöldi fólks telur sig hafa fengið hjálp að handan fyrir tilstilli miðla og huglækna. Þessi bók fjaliar m.a. um slíkar lækningar." Bókin er 114 bls. Prentuð og bundin hjá Prentverki Akraness hf. Kápuna gerði Jean-Pierre Bi- ard. HUGLÆKNIRINN OG SJÁANDINN Sigurrós Jóhanmdóttir Frásagnir af dtásýnum og læk ningjiierii Mazda 626$ MARGFALDUR VERÐLAUNABÍLL og metsölubíll á íslandi sem annars staðar og engin furða, því hann er: ★ Framdrifinn, það tryggir góða aksturseiginleika og gefur frábæra spyrnu í snjó og hálku. ★ Rúmgóður. MAZDA 626 er rúmbetri en sambærileg- ir bílar og jafn rúmgóður og margir bílar, sem eru mun stærri að utanmáli. ★ Eyðslugrannur. MAZDA 626 eyðir aðeins liðlega 6 lítrum á hverja 100 kílómetra á 90 km hraða. ★ Vandaður. MAZDA 626 er hannaður og smíðaður af alkunnri vandvirkni japanskra handverksmanna og framleiddur í nýrri bílaverksmiðju, sem talin er vera sú full- komnasta í heiminum í dag. ★ 6 ára ryðvarnarábyrgð. MAZDA 626 er ryðvar- inn með nýja ryðvarnarefninu WAXOYL og fylgir honum 6 ára ryðvarnarábyrgð. Þrátt fyrir gengisbreytingu, þá er MAZDA 626 árgerd 1985 á ótrúlega hagstæðu verði: 428.000 1600 Saloon gengisskr. 26.11.84 með ryðvörn og 6 ára ryðvarnarábyrgð. Mest fyrir peningana! BÍLABORG HF Smiðshöföa 23 sími 812 99
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.