Morgunblaðið - 28.11.1984, Blaðsíða 32

Morgunblaðið - 28.11.1984, Blaðsíða 32
32_______________________ Jón Baldvin Hannibalsson: MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 28. NÓVEMBER 1984 Fögnum stuðn- ingi Þorsteins „ÉG VIL segja þaö fyrst, ad þessi tillaga Þorsteins er nokkuö seint fram komin,“ sagði Jón Baldvin Hannibalsson formaður Alþýöuflokksins um tillögur Þorsteins Pálssonar þess efnis, aö stjórnarandstaöan taki þátt í aö gera úttekt á tekjuskiptingu þjóðarinnar. Jón sagði ennfremur, að Alþýðu- flokkurinn vjeri tUbúinn til aö taka scti í nefnd, sem annaöist úttektina. Um tillögu Þorsteins sagði Jón: ekki, að Þorsteinn Pálsson hafi þá „Alþýðuflokksmenn hafa, undir stutt þær tillögur, eða þeir sjálf- forustu Jóhönnu Sigurðardóttur, stæðismenn. Efnislega er auðvitað flutt slíka tillögu á nokkrum und- það að segja, að ég tek auðvitað anförnum þingum um að láta fara jákvætt í slíka tillögu og við fögn- fram rannsókn á tekjuskipting- um nýfengnum stuðningi Þor- unni í landinu og ég minnist þess steins við það mál.“ Ástæða til að skoða jákvætt — segir Svavar Gestsson um tillögu Þor- steins Pálssonar um úttekt á tekjuskiptingu „Ég veit nú ekki nákvæmlega, hvaö þarna er á ferðinni, fyrir utan þessa setningu í ræöu Þorsteins Pálssonar, en ég tel ástæöu til aö skoöa þetta jákvætt," sagöi Svavar Gestsson formaöur Alþýðubanda- lagsins, er hann var spurður álits á þeirri hugmynd Þorsteins Pálssonar formanns Sjálfstæöisflokksins, sem hann ræddi m.a. í umræðum á Al- þingi um stefnuræöu forsætisráö- herra, aö stjórnarandstaðan taki þátt í heildarúttekt á tekjuskiptingu í þjóðfélaginu. Svavar sagði ennfremur: „Ég á eftir að sjá, hvernig þetta verður og hver myndi setja þessa nefnd niður. Er hér verið að tala í nafni forsætisráðuneytisins eða er hér ætlunin að skipa þingflokkanefnd á vegum Alþingis. Eg átta mig ekki alveg á því, hvaða hugmyndir eru á bak við þetta, en ég tel ástæðu til að skoða þetta já- kvætt.“ Loðnuveiðin: 20.000 lestum landað erlendis LOÐNUVEIÐARNAR ganga enn vel þrátt fyrir rysjótt veður og lönd- Sæbjörn en ekki Árni ÞAU mistök urðu í Mbl. í gær, að umsögn Sæbjörns Valdimarssonar um myndbandamyndina „Laura“ var merkt Áraa Þórarinssy ni. Leiðrétting RANGHERMT var f sunnudags- blaði Morgunblaðsins, að Hildur Metúsalemsdóttir væri gift skip- stjóranum á Eldborginni. Eigin- maður Hildar er Svavar Kristins- son, háseti á Eldborginni. Mbl. biðst afsökunar á þessum mistök- um. Loðnubræðslu lokið á Siglufirði Siftafjöróar, 27. BÓveBber LOKIÐ er nú loðnubræðslu hjá Síldarverksmiðju ríkisins. Landað hefur verið 45.111 tonnum af loðnu sem mun vera eftir gamla málinu þegar það var notað, 316 þúsund mál. Eru nú 46 dagar liðn- ir frá því að fyrsta loðnan kom hér á land á þessu hausti. — m.j. unarbiö á Austfjaröahöfnum. Veiði- svæðið er enn út af Glettingi og er þar mikið af loönu. Alls hafa nú veiözt tæplega 300.000 lestir og þar af hefur um 20.000 lestum verið landað í Færeyjum og Danmörku. Á sunnudag tilkynntu eftirtal- in 10 skip um afla, samtals 6.200 lestir: Hákon ÞH, 820, Skarðsvík SH, 600, Sighvatur Bjarnason VE, 700, Hilmir II SU, 560, Sæ- björg VE, 610, Hrafn GK, 660, Rauðsey ÁR, 550, Gullberg VE, 610, Keflvíkingur KE, 530 og Magnús NK 530 lestir. Frá miðnætti aðfaranætur mánudags fram til síðdegis í gær tilkynntu eftirtalin 16 skip um afla, samtals 10.580 lestir: Jón Finnsson RE, 600, Svanur RE, 140, Guðmundur RE, 950, Eld- borg HF, 1.250, Húnaröst ÁR, 600, Þórshamar GK, 600, Harpa RE, 600, Gigja RE, 750, Grindvík- ingur GK, 750, Huginn VE, 600, Erling GK, 400, Kap II VE, 700, Dagfari ÞH, 520, Orn KE, 400, Guðmundur ólafur SU, 520 og Víkingur AK, 1.200 lestir. Loðnunni er nú aðallega landað á Austfjarðahöfnum þrátt fyrir um tveggja sólarhringa löndun- arbið. Siglingatími frá miðunum til Siglufjarðar og til baka er tæpir tveir sólarhringar og litlu lengri til Vestmannaeyja. Því taka margir þann kost að bíða í höfn og spara olíu i stað þess að sigla norður eða suður fyrir. MorgonbUöiA/ÓLK.llagn. Nemendur úr 3. bekk Leiklistarskóla íslands ásamt gestaleikurum. Talið frá vinstri Karl Ágúst Úlfsson, Ellert A. Ingimundarson, Guðjón Pedersen, Eirikur Guðmundsson, Skúli Gautason, Guðbjörg Þórisdóttir og Kolbrún Halldórsdóttir. Efri röð frá vinstri: Vilborg Halldórsdóttir, Valdemar Örn Flygering, Inga Hildur Haraldsdóttir, Þröstur Guðbjartsson og Bryndís Petra Bragadóttir. Leiklistarskóli íslands: Þriðji bekkur sýnir Kirsu- berjagarðinn eftir Tjekov NEMENDUR í 3. bekk Leiklistarskóla íslands hefja I dag kynningu á Kirsuberjagarðinum eftir Tjekof. Kári Halldór Þórsson er leiðbeinandi, en gestaleikarar í gýningunni eru þau Ellert A. Ingimundarson, Karl Ágúst Úlfsson, Kolbrún Halldórsdóttir, Vilborg Halldórsdóttir, Þröstur Guðbjartsson og Guðjón Pedersen. Nemendur í þriðja bekk eru sex. Þaö er nýmæli að gestaleikarar séu fengnir í verkefni sem þetta og er hugmyndin að þarna sé vísir að leiksmiðju. Þetta er síðasta verkið sem hópurínn sýnir sem skólaverkefni. Eins og áður segir er fyrsta sýningin í dag kl. 14.00 og næsta sýning sunnudaginn 2. desember kl. 20.00. Gert er ráð fyrir 8—10 sýningum til viðbótar, en ekki hefur verið ákveðið hvenær þær verða. Sýningarnar fara fram I Félagsheimilinu á Seltjarnarnesi og er aðgangur ókeypis. Næstu verkefni eru öll flutt opinberlega. Þau eru barnaleik- rit, sem sýnt verður í janúar, ljóða- og lestrardagskrá sem flutt verður í kringum páska og útvarpsleikrit og sjónvarps- dagskrá, sem tekið verður upp á þessu ári. Fjórði bekkur Leiklistarskól- ans sýnir nú leikritið Græn- fjöðrung í Lindarbæ ásamt gestaleikurunum Jóni Hjart- arsyni og Ragnheiði Steindórs- uóitur. Léiksijóri er Haukur Gunnarsson. Leikritið verður sýnt fram undir jól. Dagskráin Reykjavík er perla, f flutningi fjórða bekkjar, verður sýnd í sjónvarpinu laugardaginn 1. des- ember. Næsta verkefni fjórða bekkjar er að taka þátt í sýningu Leikfélags Reykjavíkur á Draumi á Jónsmessunótt eftir Shakespeare í janúar. Nemendur 2. bekkjar Leiklist- arskólans flytja ljóðadagskrá úr Þorpinu eftir Jón úr Vör að Frí- kirkjuvegi 11 í dag, miðvikudag- inn 28. nóvember kl. 17.00. Þessi dagskrá verður einnig flutt á fimmtudaginn kl. 17.00, föstu- daginn 30 nóvember kl. 15.00 og sunnudaginn 2. desember I Gerðubergi í Breiðholti. Námskeið í uppbyggingu og rekstri skíðasvæða SAMBAND fslenskra sveitarfé- laga gengst fyrir námskeiði í upp- byggingu og rekstri skíðasvæða sem hefst í dag, miðvikudag, að Háaleitisbraut 11 og stendur fram á föstndag. Flutt verða ýmis erindi á námskeiðinu. Meðal annars verður fjallað um öryggiskröfur og öryggismál við byggingu og rekstur skíðalyfta, viðbúnað JNNLENT vegna slysa á skíðasvæðum og hlutverk Vinnueftirlits ríkisins í eftirliti með tækjabúnaði skíða- svæða. Á fimmtudag verður far- ið í skoðunarferð um Bláfjalla- svæðið og skíðasvæðin við Hveradali og Kolviðarhól. Á föstudag halda umræður áfram að Háaleitisbraut uns nám- skeiðinu lýkur kl. 16. íslandsmeistaramót í diskódansi í Klúbbnum ÍSLANDSMEISTARAKEPPNIN f diskódansi, „freestyle** eðs frjáls sðferó, verður haldin í veitingshúsinu Klúbbnum nk. föstudagskvöld. Keppendur eru 10 talsins víðs vegar af landinu. Sigurvegarinn hreppir ennfremur þátttökurétt i svonefndri Malibu- heimsmeistarakeppni i greininni, sem haldin verður I London 13. desember nk. í fyrra var Ástrós Gunnarsdóttir fulltrúi Islands í þeirri keppni og stóð sig mjög vel, varð i 4. sæti. Auk keppninnar f Klúbbnum nk. föstudag verður boðið upp á skemmti- atriði. Til dæmis mun núverandi bresk- ur meistari f diskódansi, Vernol John, sýna dans og hann mun ennfremur krýna hinn nýja lslandsmeistara. jot ÍZ sími 2ZS7? OAUE W/KSTfiÖM-HiUAWðHtCHCM
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.