Morgunblaðið - 28.11.1984, Blaðsíða 45

Morgunblaðið - 28.11.1984, Blaðsíða 45
MORGUNBLADIÐ, MIÐVIKUDAGUR 28. NÓVEMBER 1984 miklum dugnaði í því félagi allt til æviloka, en hann dó 31. mars 1982. Auðheyrt var á Hönnu að mikið ástríki hafði verið með þeim hjón- um og heimilið þeirra til fyrir- myndar, þar sem hver heimilis- maður hugsaði um það fyrst og fremst að sýna fyllstu tillitssemi í stóru og smáu. Heimilið var þeirra fjöregg, sem varð að varðveita. Veita slík heimili mikla blessun. Þau hjón áttu mikið og gott plötusafn og þegar færi gafst undu þau við að hlusta á úrvals listamenn. Þau áttu barnaláni að fagna, eignuðust 5 börn, öll mesta mynd- arfólk. Þau eru Fjölnir, skólastjóri Tónlistarskólans í Kópavogi, Anna Kristín kennari í Reykjavík, Elín kennari í Danmörku, Sigríður forstöðukona dagheimilis í Breið- holti og Árni Erlendur viðskipta- fræðingur í Reykjavík. Það vakti fljótt athygli mína, hve fólkið hennar Hönnu lét sér annt um hana á spítalanum. Ekk- ert kvöld leið án þess að fleiri eða færri ættingjar vitjuðu hennar ekki. Garnan var að finna slíka ræktarsemi. Um leið og ég þakka þessari glöðu og góðu konu stutta, en ógleymanlega samleið, sendi ég börnum hennar innilegar samúð- arkveðjur og vona að minningin um góða móður verði þeim ávallt að leiðarljósi. í Guðs friði. Hulda Á. Stefánsdóttir I dag verður Hanna Guðjóns- dóttir til moldar borin. Hún fædd- ist í Hafnarfirði árið 1904, dóttir Kristínar Ólafsdóttur og Guðjóns Jónssonar; var sjöunda barn þeirra hjóna af níu sem þau eign- uðust alls. Foreldrar Hönnu voru bæði ættuð undan Eyjafjöllum, voru fyrst 1 vinnumennsku í Stóru-Mörk en fluttust aldamóta- árið suður á Seltjarnarnes. Þau rötuðu þannig þá leið sem mörgu fátæku fólki var fyrirhugað á þessum umbrotatímum, sneru baki við armóði sveitarinnar í tvísýnni von um betri afkomu „á mölinni". Afkoma þessarar stóru fjölskyldu var því ótryggari sem heimilisfaðirinn var heilsuvelli að sama skapi reyndi meira á dugnað móðurinnar, Kristínar, og atfylgi systkinanna, einkum hinna yngri sem dvöldust í heimahúsi meðan hin eldri voru að heiman að leita sér lífsbjargar til sjós eða lands. Hanna sleit barnsskónum í Hafnarfirði fram að sjö ára aldri; þá fluttist fjölskyldan til Reykja- víkur og þar ól Hanna aldur sinn alla tíð síðan. Hún varð með tím- anum Reykvíkingur í húð og hár, gerðist virkur þátttakandi í lífi þessa bæjar sem var óðum að breytast úr frumstæðu sjávar- og verslunarplássi i eitthvað sem líktist nútímalegri borg. En þó Hanna væri þannig ósvikin borg- arkona átti Eyjafjallasveitin ætið sterk ítök í henni. Þegar hún var upp komin leitaði hún gjarnan á sumrin með börn sin smá til ætt- ingja í Stóru-Mörk; þar átti hún víst athvarf og skjól fyrir hávaða heimsins, einkum þegar börnin voru að vaxa úr grasi. Og á elliár- um var henni fátt kærara en halda á glöðum sumardegi á foreldra- slóðir og virða fyrir sér hið fágæta málverk náttúrunnar sem forðum blés skáldinu í brjóst „Gunnars- hólma". í æsku naut Hanna ekki annarr- ar skólamenntunar en tilskilinnar barnafræðslu (i Miðbæjarskólan- um). Þegar á unglingsárum fór hún að vinna fyrir sér, í Isafold- arprentsmiðju og síðan í hljóð- færaverslun. Fátæk alþýðustúlka átti ekki margra kosta völ í upp- hafi þessarar aldar til að rækta hæfileika sína. Það varð Hönnu þvi mikið lán að komast á barns- aldri í kynni við lítið orgel sem eldri systir hennar hafði eignast og hún fékk lítils háttar tilsögn hjá. „Þá fór ég að blómstra," var hún vön að segja síðar. í tvö ár, eftir tólf ára aldur, sótti hún tíma í orgelleik hjá Þórði Sigtryggs- syni, æskuvini Erlendar í Unu- húsi. Upp frá þessu varð tónlistin henni ástríða sem hún helgaði hverja stund er hún mátti. Mannanna börn eru merkileg en sum eru óneitanlega merkilegri en önnur. Við fráfall Hönnu tengda- móður verður mér hugsað til þess hve hún var í raun einstæð mann- eskja. Mér verður starsýnt á þrennt í fari hennar: Lífsgleðina, listhneigðina og manngæskuna. Þetta þrennt var svo samslungið persónuleika hennar að eitt verður naumast aðgreint frá öðru. Þetta er til marks um hve Hanna var óvanalega heilsteypt manneskja. Ég kynntist Hönnu ekki fyrr en hún var komin nálægt fimmtugu — og fannst mér hún þó vera langtum yngri en aldurinn sagði til um. A.m.k. minntist ég þá ekki að hafa heyrt konu gefa sig hlátr- inum jafn skilyrðislaust á vald. Þessi rika gleði orkaði einstaklega heillandi á sveitamann, kannski vegna þess að hún var algjör and- hverfa píetískrar arfleifðar í ís- lenskri sveitamenningu. Við nán- ari kynni komst ég að raun um að i hlátrinum káta hennar Hönnu birtist það sem setti öðru fremur mark á lífsviðhorf hennar — gleð- in að vera til, að deila með öðrum, að ganga heils hugar til verks. Þetta viðhorf eyddi með nokkrum hætti mörkunum milli hins skuldbundna og frjálsa i verkinu: Hún gekk jafnan að þvi að hlífðar- lausri atorku sem leitaði ekki um- bunar í öðru en sjálfri fram- kvæmdinni. Lífsþróttur þessarar fingerðu konu var með ólíkindum enda afköst hennar eftir þvi. Lífið var henni dýrmætara en svo að hún léti stundarkorn líða hjá án þess að það öðlaðist augljósan til- gang, hvort sem hún tókst ein á við verkið eða deildi þvi með öðr- um. Þessi lífsorka entist Hönnu fram undir hið síðasta þótt lang- varandi sjúkleiki væri á undan genginn. Eg sé hana fyrir mér þar sem hún sat fyrir fáeinum vikum á rúmstokknum heima við að auka listilegum sporum i veggteppi: Henni er þorrinn þróttur til að hlæja en hún lofsyngur lífið i verkinu. Það var ekki sist í listiðkun og listneyslu sem Hanna veitti lifs- gleði sinni útrás. Þráin eftir hinu fagra gerði hana að alhliða list- neytenda og fjölhæfum listtúlk- anda. Og á strjálum stundum sem gáfust frá heimilisstörfum og pi- anókennslu urðu til af hendi henn- ar sérstæð og hugmyndarík lista- verk eins og nokkur veggteppi bera vitni um. Eftir þeim hefur verið sóst til kynningar og hefur eitt þeirra verið sýnt á alþjóðlegri sýningu. Manni verður spurn hvaðan Hönnu kom þessi óforbetranlega listaárátta en verður fátt um svör. Hún settist ung við orgelið og sið- an píanóið sem hún kenndi á i sex áratugi, varð snemma eftirsóttur þátttakandi í tónlistarlífi borgar- innar og gerðist heimagangur i Unuhúsi, þeirri kostulegu lista- akademíu. Erlend dáði hún öðrum mönnum framar. Þegar hún svo kynntist starfsbróður Erlendar, Stefáni, og gekk að eiga hann, þá var ekki að sökum að spyrja: Hanna hafði hitt þar fyrir mann sem var enginn eftirbátur hennar i listnautninni. Heimili þeirra varð fljótlega griðastaður þeirrar tónlistarmenningar sem var smám saman að skjóta rótum i höfuðborginni. Það hýsti jafn- framt verk eftir nokkra ágætustu listmálara og myndhöggvara landsins, verk sem þau Hanna og Stefán sóttust eftir áður en þau höfðu hlotið viðurkenningu sam- félagsins og voru orðin álitleg söluvara í augum broddborgar- anna. í sameiginlegri þjónustu þeirra hjóna við listina hélt Hanna þannig áfram að blómstra. Hún lét sig ekki muna um að ala fimm börn í heiminn; við uppeldi þeirra lagði hún sömu alúð og hvað annað sem hún tók sér fyrir hendur. Og á henni sannaðist að sá sem hefur mætur á hinu fagra er líklegur til að leggja rækt við hið góða. AUir þeir mörgu sem höfðu náin kynni af Hönnu, fyrr eða síðar, trúi ég að hafi orðið aðnjótandi manngæsku hennar. Hanna elsk- aði náungann í verki og þurfti því aldrei að bera kærleikann á torg. Hún var umburðarlynd gagnvart flestu öðru en mannlegri neyð, hvort sem hún var sprottin af ein- staklingsbundnum aðstæðum eða þjóðfélagslegu ranglæti. Hjarta hennar sló alla tíð í takt við hug- sjón félagslegs réttlætis. Nú þegar Hanna er öll er okkur, sem vorum henni nákomin, efst í huga hve lánsöm við höfum verið að hafa átt hana að, sem móður, ömmu eða tengdamóður. Með lífi sínu og starfi hefur hún gefið okkur gjöf sem ekki fyrnist. Því fylgjum við henni til grafar full- viss þess að aðrir munu upp skera svo sem hún hefur til sáð. Loftur Guttormsson „Kennslan var alltaf mitt líf og yndi,“ sagði Hanna Guðjónsdóttir, píanóleikari, þegar hún átti að baki meira en 60 ára starf í þágu tónlistarinnar. Hún kynntist orgeli tiu ára gömul og þar með var stefnan tek- in. Þó hún ætti ekki hljóðfæri var hægt að bæta úr því með því að teikna nótnaborð á borðplötu. Þessi áhugi entist henni til hinsta dags og var einkennandi í starfi hennar ásamt glaðværð, sem hafði 45 góð áhrif á hugi ungra nemenda og í hópi samkennara. Hún stundaði fyrst nám í orgel- leik hjá Þórði Sigtryggssyni um tveggja ára skeið, síðan í píanóleik hjá Niels Sögaard og Georg Kis, mönnum, sem störfuðu hér skamman tíma. Einnig lærði hún söng hjá Valborgu Einarsson og Sigurði Birkis. Fer svo tuttugu og fjögurra ára gömul til Berlínar og stundar nám í eitt ár hjá þekktum píanó- og semballeikara, Fraulein Kaufman eins og hún ávallt nefndi hana. Að því loknu kennir hún píanóleik, leikur undir með söngvurum og syngur í kórum. Hanna kenndi níu ár við Tón- listarskóla Keflavíkur og i tíu ár við Tónlistarskóla Kópavogs, lét þar af störfum árið 1978. Ég kynntist Hönnu ungur og kom þá oft á menningarlegt heim- ili hennar og Stefáns, eiginmanns hennar. Þar var listin á dagskrá og ræddir síðustu atburðir, sem voru margir og merkilegir í byrj- un sjötta áratugarins. Nú, eftir tíu ára samstarf, er mér ljóst, að hún var trú köllun sinni og kenndi nemendum sínum með hugarfari, sem er þeim gott veganesi og skilur eftir góðar minningar. Kristinn Gestsson ^ : _ sntnmnnu DLUBOÐ Juv rel / HVEITI 2 kg w g? pRÍSGRJÓN llbs HRÍSGRJÓN 2lbs 10 gg BRÚN 'vffRÍSGRJÓN 12oz Æl. htdds m SYKUR 2 kg KEim KR YDD 6 TEGUNDIR í pk ELDHÚSR ÚLL UR 4 RÚLLUR íþk SALERNISPAPPÍR V&* 6 RÚLLURÍþk ...vöruverð í lágmarki ATHYGLI skal vakin á því, að afmælis- og minp- ingargreinar verða að berast blaðinu með góðum fyrirvara. Þannig verður grein, sem birtast á í mið- vikudagsblaði, að berast í síðasta lagi fyrir hádegi á mánudag og hliðstætt með greinar aðra daga. í minn- ingargreinum skal hinn látni ekki ávarpaður. Þess skal einnig getið, af marggefnu tilefni, að frumort ljóð um hinn látna eru ekki birt á minningarorðasíð- um Morgunblaðsins. Handrit þurfa að vera vélrituð og með góðu línubili.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.