Morgunblaðið - 28.11.1984, Blaðsíða 36

Morgunblaðið - 28.11.1984, Blaðsíða 36
36 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 28. NÓVEMBER 1984 FJARI/XiIN 1985 Endurskoðað fjárlagafrumvarp: Vextir og arögr. Vmsir ób. akattar Ymsar tekjur 0.2% Tekjur hækka um 13,2 % - gjöld 12,2 % Eignar- og tekjusk. Skattar af farartœkjum Skattar af framl.. vörum og þjónustu Afengi og tóbak Skattar af launagr. Ríkissjóóstekjur og gjöld — hhitfallsleg skipting Töfhir þjer sem hér birtast sýna hlutfallslega skiptingu tekna og gjalda ríkissjóds 1985, samkvæmt fjirlagafrumvarpi fyrir það ir, eins og það var lagt fram í upphafí þings. Breyttar fjirlagaforaendur valda því aó frumvarpið hlýtur að taka nokkr- um breytingum í meóforum Alþing- is, eu eltki er líklegt að tilgreind hlutfoll skekkizt að riði. Sundurliðun útgjalda eftir ráðuneytum getur verið umdeilan- leg, en hún sýnir i grófum drátt- um hvern veg tekju- og neyzlu- sköttum, sem sóttir eru í launaumslög fólks og vöruverð til almennings, er deilt á einstök útgjaldasvið ríkisbúskaparins. Niðurstöðutölur fjárlagafrum- varps, eins og það var lagt fram í haust, vóru 22 milljarðar króna og 513 milljónir að auki. Breyttar fjárlagaforsendur, i kjölfar kjara- samninga og fylgjandi gengis- fellingar, hækka þessar niðurstöð- ur. Fjármálaráðherra greindi frá þvi í fjárlagaræðu í gær að áætl- aðar tekjur hækkuðu um 13,2%, verði 24,9 milljarðar króna, og gjöld um 12,2%, verði nálægt 25,3 Myndin sýnir Albert Guðmundsson fjármálaráðberra í önnum þingstarfa. Viðmælandi er Matthías Á Mathiesen viðskiptaráðherra. Að baki Jón Helga- son landbúnaðarráðherra. Mildandi aðgerðin Tekjuskatt- ur lækkar um 600 millj. kr. í FJÁRLAGARÆÐU sinni í gær vék fjármálaráðherra að mildandi að- gerðum: lækkun tekjuskatts á ein- staklinga, breytingu skattþrepa, mis- muni á sköttum hjóna og skattfrelsi tekna síðustu tólf mánaða áður en menn láta af störfum fyrir aldurs- sakir, og sagði orðrétt: ,í kjölfar þeirrar breytingar á gengi íslensku krónunnar sem óhjákvæmilegt var að gera og kom til framkvæmda í síðustu viku hefur ríkisstjórnin ákveðið ýmsar aðgerðir til að milda áhrif geng- isfellingarinnar fyrir almenning. Þegar hefur verið greint frá verulegum hækkunum bóta al- mannatryggingakerfisins, sem í nokkrum tilfellum eru umfram hinar almennu peningalauna- hækkanir. Alls hækka trygginga- bætur 1985 um rúmlega 100 millj- ónir umfram verðlagshækkanir. Einnig hefur verið ákveðið að greiðslur fyrir lyf og lækniskostn- að hækki ekki á næsta ári. Þá hækka framlög til niðurgreiðslna til samræmis við áætlaðar verð- lagsbreytingar, þannig að niður- greiðslur á vöruverði verði á næsta ári sama hlutfall og ráð var fyrir gert í fjárlagafrumvarpi. Þá hefur, eins og ég hef áður skýrt frá, verið ákveðið að lækka tekju- skatt um 600 milljónir króna á m.kr. í þessu endurmati kemur fram að laun, rekstrargjöld, al- mannatryggingabætur, vextir o.fl. hækka um 2.200 m.kr. frá frum- varpinu, en að auki hefur verið ákveðið að hækka framlög til vegagerðar um 192 m.kr. og til húsnæðismála um 104 m.kr. Aðrir liðir hækka og nokkuð. Á tekjuhlið frumvarpsins er gert ráð fyrir almennri tekju- hækkun rikissjóðs vegna verðlags- og veltubreytinga að fjárhæð 2.290 m.kr. Gert er ráð fyrir 300 m.kr. hækkun af ÁTVR. Samkvæmt endurskoðuðu fjár- lagafrumvarpi er ráðgerður rekstrarhalli ríkissjóðs 1985 300 til 400 m.kr. Er það nokkur lækk- un frá fjárlagafrumvarpi því, er lagt var fram í haust og gerði ráð fyrir 531 m.kr. halla. Gert er ráð fyrir að lækka erlendar lántökur Á-hluta rlkissjóðs frá frumvarp- inu, eins og það var lagt fram, úr 1,3 milljörðum i 1 til 1,2 milljarða. öllum skatt- og tekjustofnum ríkissjóðs er haldið óbreyttum frá árinu 1984 nema tekjuskatti ein- staklinga, sem er 600 m.kr. lægri, vegna fyrirhugaðrar lækkunar tekj uskattsálagningar. Sölusk. og vörugj. Aætlaöar rlkissjóöstekjur 1985 (hlutfallsleg skipting eftir tegund skatta og gjalda) Sala ríkisskulda- bréfa 550 m. króna í fjirlagafrumvarpi komandi árs er fjöldi heimilda til ríkisstjórnar og ráð- herra. Nokkur dæmi þar um verða tfnd til hér á eftir. næsta ári og mun sú Iækkun koma til framkvæmda með þeim hætti að skattar allra gjaldenda lækka frá því sem verið hefði, en skattur hinna tekjulægstu og heimila með eina fyrirvinnu þó mest. í frum- varpi, sem ég mun brátt mæla fyrir hér á Alþingi, er gert ráð fyrir að skattþrep einstaklinga verði 20, 31 og 44% í stað 23, 32 og 45% í ár. Hámarksmismunur á sköttum hjóna eftir þvf hvort fyrirvinna er ein eða tvær mun minnka stórlega frá því sem verið hefur eða úr rúmlega 80 þúsund krónum í rúmlega 56 þúsund krón- ur. Mun ég gera nánari grein fyrir þessari skattalækkun þegar ég mæli fyrir frumvarpi um þau efni. Ég vil í þessu sambandi einnig minna á stjórnarfrumvarp það sem ég lagði nýlega fram og gerir ráð fyrir skattfrelsi manna á fyrsta ári eftir að þeir láta af störfum. Mun sú ráðstöfun mjög milda og auðvelda þau viðbrigði er verða við starfslok hjá almennu launafólki. Þær ráðstafanir til að létta und- ir með fólki með lækkun skatta sem ég hef rakið ættu að taka af öllu tvímæli um það hver hugur minn og rfkisstjórnarinnar er til lækkunar skatta. Ber að harma að ekki reyndist unnt að tengja þess- ar skattalækkanir kjarasamning- unum fyrr á þessu hausti." Ríkisskuldabréf 1985 Fjármálaráðherra skal heimilt að gefa út ríkisskuldabréf, spari- skírteini og/eða rfkisvfxla, f.h. rfk- issjóðs, til sölu innanlands á árinu 1985, að fjárhæð allt að 550 m.kr. Þá er ráðherra heimlað að stofna til tímabundins yfirdráttar f Seðla- banka vegna árstíðabundinna sveiflna i fjármálum rfkisins. Eftirgjafír aðfíutningsgjalda og söluskatts í frumvarpinu eru fjölmargar heimildir um eftirgjafir aðflutn- ingsgjalda og söluskatts. Sem dæmi má nefna: • Að fella niður eða endurgreiða sölugjald af vélum, tækjum, véla- hlutum og varahlutum til sam- keppnisiðnaðar (verndarvöruiðnað- ar), þ.e. á vörum sem falla undir tollalækkunarákvæði fríverzlunar- samninga við EFTA og EBE. • Að fella niður eða endurgreiða aðflutningsgjöld og sölugjald af eldsneytisstöðvum RARIK og Orkubús Vestfjarða. • Að fella niður samskonar gjöld af sjúkra- og leitarbifreiðum f eigu björgunarsveita, sem og af slökkvi- bifreiðum. • Að fella niður þessi gjöld af inn- anhússímum fyrir sjúkrahús og neyðar- og kallkerfum fyrir þjón- ustuíbúðir. • Að fella niður aðflutningsgjöld og sölugjald af hjartaþræðingar- tæki fyrir Landspítala. • Að fella niður eða endurgreiða sölugjald af skfðalyftum. • Að fella niður sölugjald af orgel- um til notkunar f kirkjum. • Að fella niður aðflutningsgjöld af ljósastjórnbúnaði fyrir Leikfélag Reykjavíkur. Ráóstöfun eigna Fjölmörg heimildarákvæði fjalla um ráðstöfun rfkiseigna, maka- skipti o.fl. Þar á meðal eru: • Áð selja eignarhluta rfkisins f Krísuvikurskóla. • Að selja eignarhluta ríkisins i fasteigninni Laugarásvegi 1 og verja andvirði hennar til kaupa eða byggingar á húsnæði fyrir útsölu ÁTVR. • Að selja varðskipið Þór og vita- skipið Árvakur. • Áð kaupa Ingólfsskála við Reykjavíkurhöfn til afnota fyrir Hafrannsóknarstofnun. Lántökur til fasteignakaupa — Húsnæði fyrir Stjórnarráö íslands I frumvarpinu er að finna heim- ildir til að taka lán til ýmissa fast- eignakaupa. Nefna má: • Skrifstofuhúsnæði fyrir Stjórn- arráð íslands. • Húseignir f nágreinni Mennta- skólans i Reykjavfk. • Húsnæði fyrir borgardómara- embættið f Reykjavik. • Húsnæði fyrir Skattstofu Norð- urlands eystra. • Geymsluhúsnæði fyrir Orku- stofnun. • Að kaupa jörðina Kviabryggju 1 Eyrarsveit, ásamt fasteignum á jörðinni, af Reykjavíkurborg, í makaskiptum fyrir fasteignir í eigu rfkisins. Blaðastyrkir og blaðakaup Þá er að finna heimild til „að kaupa dagblöð fyrir stofnanir ríkis- ins, allt að 250 eintök af hverju blaði, umfram það sem veitt er til blaðanna f 4. grein fjárlaga". Þá er að finna gamalkunnan en umdeildan lið undir ýmislegt í sundurliðun fjármálaráðuneytis: „Til blaðanna að fengnum tillögum stjórnskipaðrar nefndar kr. 13 milljónir* Skattheimtan 1985: Neyzluskattar 84 % tekna Skattheimta 28,8 % af þjóðarframleiðslu Sað?0 Þær um nálæRt 6<)"að Heildaráætlun ríkissjóðstekna Aætlað er að heildarinnheimta tekna ríkissjóðs 1985 verði tæpir 22 milljarðar króna. Samsvarandi tala 1984 var 19'A milljarður. Hækkun heildartekna ríkissjóðs 1985 nemur því 2.469 m.kr. eða 12,7% frá endurskoðaðri áætlun 1984. Rfkissjóðstekjur lækka lítil- lega í hlutfalli af þjóðarfram- leiðslu frá fyrra ári. Þetta hlut- fall var 29% 1984 en verður 28,8% samkvæmt nýjustu áætl- un. Samanburður við fyrri ár sýn- ir að innheimtar tekjur rfkis- sjóðs hafa hækkað um 28,8% frá 1983, en næstu þrjú árin á undan er 24,9 milljarðar króna 1985, sem er 27,6% hækkun frá áætl- aðri útkomu 1984. Samkvæmt frumvarpinu eru beinir skattar (tekju- og eignaskattur) aðeins 13% heildartekna, en óbeinir skattar (neyzluskattar ýmis kon- ar) 84%. Arðgreiðslur og ýmsar tekjur eru rúm 3%.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.