Morgunblaðið - 28.11.1984, Blaðsíða 51

Morgunblaðið - 28.11.1984, Blaðsíða 51
MORGUNBLAÐIÐ, MIDVIKUDAGUR 28. NÖVEMBER 1984 51 Ekki tekið út með sældinni að vera frægur ^Jtacy Keach sem sjónvarpsáhorfendur kannast ^A.t.v. við er nú að ganga í gegnum skilnað við þriðju eiginkonu sína, Jill Donahue. Ástaeðan fyrir þessum skilnaði er frægðin segir Jill. Hún yfirgaf mann sinn á þeim forsendum að hún fengi aldrei hvort sem er að sjá hann þvi það væri svo mikið að gera hjá honum, en undanfarið hafa sjónvarpsþættir þeir sem hann leikur i aðalhlutverkið slegið í gegn. Þetta var orðið þannig segir Jill að hann hafði ekki einu sinni tima til að koma til hjúskaparráðgjafa. Ég þekkti hann ekki lengur. Sjálfur segir Stacy að loksins þegar hann varð frægur og þeir draumar rættust þá fór einkalif hans í rúst. Ég vil ekkert frekar en að fá að vera með Jill, en þá verð ég að fórna frægðarferlin- um. Það er ekki alltaf tekið út með sældinni að vera frægur. COSPER Hinir hamingjuaömu foraMrar moð dóttur sina. Unnur María Gröndal UNNUR MARÍA GRÖNDAL Aðstoðar- framkvæmda- stjóri í Chicago Ung stúlka að nafni Unnur María Gröndal sem búsett er i Bandaríkjunum var i september sl. gerð að aðstoðarframkvæmda- stjóra i deild sinni sem lánar til verklegra framkvæmda við Cont- inental Illinois National Bank and Trust Co. i Chicago. Unnur sem er aðeins 26 ára að aldri er dóttir Erlu ÓI. og Þóris S. Gröndal, ræð- ismanns Íslands i Suður-Flórída. Hún lauk BA-prófi i alþjóðsam- skiptum og utanrfkismálum frá Pennsylvania State University 1979 og MBA-prófi i viðskipta- fræði frá American Graduate School of International Manage- ment í Arizona 1980. Hóf hún störf hjá Continental Bank sama ár. Unnur er gift Christopher P. Kornmayer er starfar sem deild- arstjóri hjá Libby McNeil & Libby í Chicago. (C PIB Bf læknarnir segja að barnið geti lifað en ég deyi þá leyfíð mér að deyja. Maðurinn minn verður barninu góður faðir, sagði Sue Mackenzie, 22 ára gömul og 1,15 sm á hæð, er taka átti barnið með keisaraskurði. Mað- urinn hennar tók í hönd hennar með tárin í augunum og sagði: „Þið lifið þetta af bæði tvö.“ Og það rættist. Sue fæddi heilbrigt barn 2,5 kíló að þyngd. Læknarnir eru sammála um að þetta sé kraftaverk að móðir og barn skuli bæði hafa lifað það af. Þrátt fyrir að lækn- arnir hefðu aðvarað Sue sem Htur út fyrir að vera um sjö ára gömul, þá varð löngunin í barn yfirsterkari og ákvaðu þau hjón að reyna samt sem áður. Við vorum svo hamingjusöm þegar ég frétti að ég væri ófrísk sagði hún, en það var erfitt oft. Meðgangan gekk vel þó fólk kallaði oft á eftir manninum mínum barnaræningi o.s.frv. Sue fékk sjúkdóm sjö ára gömul og hætti að vaxa. Ég hélt að ég myndi aldrei giftast, sagði hún en fyrir ári hitti ég Kevin og mánuði seinna bað hann mín og við erum mjög hamingjusöm. Við mæðgurnar pössum í sömu föt þegar dóttir mín er orðin sjö ára. Sue C05PER 8856. 1,15 sm á hæð varð móðir Hjá Höganás hafa kröfur um gæði alltaf verið settar á oddinn. Úrvalið er fyrir þig ... Hvort sem er á gólf eða veggi, úti eða inni þá finnur þú Höganás flísar við þitt hæfi. Höfum einnig Höganás flísalím, fúgusement og áhöld. Skoðið úrvalið í sýningarsal verslunar okkar. Nýtt sýningarkerfi. Myndasýning á staðnum. = HÉÐINN = SELJAVEGI 2, REYKJAVÍK. Landssamband íslenskra vélsleðamanna Þeir aðilar sem áhuga hafa á að gerast félagar í landssambandi vélsleðamanna, er stofnað var á landsmótinu í (Nýja-) Jökuldal sl. vetur, vinsamlega hafi samband við einhvern undirritaðan og láti skrá sig í félagið. Landssambandið er opið öllum áhugamönnum um útiveru og vetrarferðalög, og munu félagsmenn fá í hendur rit sambandsins er skýra frá helstu baráttu- málum og lögum þess, einnig merki félagsins á sleða og búning, við greiðslu árgjaldsins í gegnum poststofu. Þessir annast skráningu: Vilhelm Ágústsson, Akureyri. Sími 96-23900/21715. Gunnar Ingi Gunnarsson, Mývatnssveit. Sími 96-44182/44174. Sigurþór Hjörleifsson, Skagafiröi. Sími 95-5522/5523. Guömundur Ingi Waage, Borgarnesi. Sími 93-7123/7320. Ágúst Hálfdánarson, Mosfellssveit. Sími 91-66718/11400. Sverrir Scheving Thorsteinsson, Reykjavík. Sími 91-83200/13889. Rudolf Stolsenwald, Hellu. Sími 99-5840. Jón Sigfússon, Egilsstööum. Sími 97-1163/1352.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.