Morgunblaðið - 28.11.1984, Blaðsíða 17

Morgunblaðið - 28.11.1984, Blaðsíða 17
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 28. NÓVEMBER 1984 17 Sýning Bjargar Atladóttur Myndlist Bragi Ásgeirsson Það verður vart annað sagt en að kvenþjóðin sæki stíft fram í sýn- ingarhaldi á höfuðborgarsvæðinu, enda hafa þær naumast í annan tíma mætt jafn fjölmennar til leiks sem nú í haust Er einungis gott um það að segja og einkum vegna þess, að sýningarnar hafa yfirleitt verið af vandaðra taginu og á stundum skákað karlpeningnum um gæði og uppsetningu. Björg Atladóttir, sem um þessar mundir sýnir í Gallerí Borg, er tiltölulega óþekkt nafn þótt hún hafi haldið eina sýningu f boði listkynningar Héraðsbókasafns- ins í Mosfellssveit f mars sl. og tekið þátt i sýningunni Kirkjulist á Kjarvalsstöðum 1984. Það eru 37 myndir á sýningu Bjargar í Gallerf Borg og eru þær allar annað hvort unnar f olíu eða með acryl-litum, ásamt því að hún notast að nokkru við upphleypt efni sem innlegg í myndheildina. Það er ffnlegur og mildur blær jrfir þessari sýningu og áferð myndanna nokkuð óvenjuleg. Auðsæ er einlægni gerandans við myndgerð sína en hún virðist vinna mjög lengi við hinar stærri myndir svo sem „Sjötta gátt“ (5), „Önnur gátt“ (8) og „Mynd“ (22). Allar eru þetta vel útfærðar myndir þar sem leikið er á strengi einfaldleikans og hér er ekki allra að ná úrskerandi árangri. Björg kemst þokkalega frá þessum átökum sfnum við einfaldleikann en máski eru myndirnar frekar of- en vanunn- ar og hér hefði listakonan mátt sýna ögn umbúðalausari tilþrif. Hiö síðastnefnda kemur ein- mitt fram f hinum litlu myndum er hanga þétt saman á vegg uppi á palli „Ferhyrningaflökt" (23—31). Hér virðist mér gerand- inn sýna á sér sterkustu hlið sfna enn sem komið er og væri æski- legt að hún reyndi að yfirfæra jafn frjálsleg vinnubrögð á stærri myndflöt. Annars eru litlar myndir um margt engu ómerkari framleiðsla hinum stærri þótt það sé í tízku um þessar mundir að mála i stórum flötum. Mfnfa- túrur hafa yfir sér sinn ákveðna þokka, sem hinar stóru hafa ekki. Sem frumraun er þetta hin álitlegasta sýning og um eitt sker hún sig úr mörgum öðrum hér í borg og það er yfirlætisleysið f vinnubrögðum ásamt ihygli og hógværð. VÖKUNÓTT hjá gjaldkena húsfélagsins JÁ, ÞAÐ ER tímafrekt starf að vera gjaldkeri húsfélags, og ómældar stundirnar sem fara í innheimtu, bókhald, útreikninga o.s.frv. En nú bjóðumst við til að létta störfm. Með aðstoð tölvu getum við t.d. reiknað gjöld, fylgst með stöðunni og innheimt með gíróseðlum, allt á fljótvirkan, ódýran og öruggan hátt. Líttu inn til okkar og kynntu þér alla þá möguleika sem hús- félagaþjónusta okkar býður upp á. Eftir það getur þú notað næturnar til svefns... SPARISJOÐUR REYKJAVIKUR OG NAGRENNIS SPARISJÓÐUR KÓPAVOGS SPARISJÓÐUR VÉLSTJÓRA SPARISJOÐURINN f KEFLAVÍK Ágúst Þorvaldsson því leyti að hætt er við að höfundur hlifi sögumanni ef hann er sam- herji fremur en væri hann and- stæðingur. Kostirnir eru hins veg- ar þeir að höfundi mátti vera kunn- ugt um flest ef ekki öll þau málefni sem sögumaður vann að um ævina auk þess sem hann gat lagt á þau svipað mat og sögumaður. Halldór er gamall blaðamaður og kunnugur tungutaki stjórnmálamanna. Mér finnst eins og þeir hafi bætt hvor annan upp í þessari greinagóðu og ágætu ævisögu, hann og Ágúst. Ágúst á Brúnastöðum kynnir sig sem gætinn mann. Og bjartsýn- ismann — með raunsæjum tak- mörkum. Ef til vill er hann að eft- irláta okkur pólitiska erfðaskrá þar sem hann minnist landhelgis- málsins sem var langmesta málið sem kom fyrir Alþingi um hans daga. Þar segir hann að í þeirri deilu hafi sýnt sig »að við erum menn til að stjórna okkur sjálfir og vera sjálfstæð þjóð meðan ekki brestur innan frá, sem ég ætla þó alls ekki að spá að hætta sé á.« Enginn veit sína ævina fyrr en öll er, og erfitt getur verið að greina þingmannsefnið í barnahóp að leik. Ef til vill hefur einhver af getspeki sinni rennt grun i að Ág- úst yrði þingmaður þegar hann var að alast upp meðal annarra fá- tækra barna á Eyrarbakka upp úr aldamótunum síðustu. En svo mik- ið er víst að lifsbaráttan hlífði hon- um ekki fremur en öðrum. Hann gekk í skóla lífsins og tók þar þau manndómspróf sem ekki verða annars staðar tekin. Árangur þeirra prófa liggur fyrir i þessari bók. Bóndi og þingmaður Erlendur Jónsson Halldór Kristjánsson: ÁGÚST Á BRÚNASTÖÐUM. 151 bls. örn og Örlygur hf. 1984. Ágúst á Brúnastöðum var ekki mikið þekktur, utan héraðs, þegar hann var kosinn á þing 1956. Á þingi sat hann tæpa tvo áratugi, framsóknarmaöur. Fólk hefur þingmenn á milli tannanna. En ekki minnist ég þess að af Ágúst á Brúnastöðum færu aðrar sögur en þær að hann væri stakur heiðurs- maður. Það má heita vel sloppið! Þar með er ekki sagt að hann hafi ekki látið að sér kveða. öðru nær. Nú segir hann sögu sína en Halldór Kristjánsson skrásetur. Ekki hefur Halldór hingað til verið talinn neinn skemmtikraftur á ritvellin- um. En saga Ágústs á Brúna- stöðum er bæði efnismikil og þægi- leg aflestrar. Hér fer maður sem er vanur að orða hugsun sina og segja meiningu sina umbúðalaust. Ágúst segir frá fjölda karla og kvenna — samferðafólki á langri lífsleið og gerir öllum einhver skil með gagn- orðri frásögn eða mannlýsingu. Og þar sem hann hefur lengi setið i innsta hring f félagsmálastarfsemi síns héraðs varpar saga hans skýru ljósi á þróunina i stjórnmálum og atvinnumálum á Suðurlandi um hans daga. Ágúst ólst upp á Eyrarbakka. Ekki var Bakkinn neinn stórstaður að mannfjölda. Þaðan kom þó margur sem síðar varð þekktur á landsvísu. Meðal leikbræðra Ág- ústs voru t.d.: Ragnar i Smára, Vilhjálmur S. Vilhjálmsson, Sigur- jón Olafsson og séra Eiríkur J. Eir- íksson. Og raunar fleiri landskunn- ir menn. Flestir Eyrbekkingar voru þá fátækir, eiginlega blásnauðir ef trúa má frásögnum. Skorturinn var alltaf á næsta leiti. Fyrir kom að þeir, drengirnir, drukku lýsi af tunnum. »Oft átum við söl sem við fundum úti á skerjum. Vorum við þar nánast á beit eins og kindur.* En einhvern veginn bjargaðist þetta allt saman, piltur óx úr grasi og varð ekki eftirbátur annarra. Þrátt fyrir glaðvært lif á Eyrar- bakka langaði Ágúst að komast burt þaðan. Hann langaði i sveit. Og því varð það að hann fór ungur upp að Brúnastöðum i Hraungerð- ishreppi þar sem hann varð síðar bóndi og sveitarstólpi. Þegar Ágúst kom í sveitina voru bændur að vakna til vitundar um samtakamátt og framfarir. Saga hans er því jafnframt saga helstu umbóta f héraði hans. Og aðdrag- andinn að þvi að hann var valinn til framboðs og þingsetu var vitan- lega langur. Þingmannsminningar Ágústs á Brúnastöðum eru aðeins lítill hluti þessarar bókar. Hins vegar minnist hann á flesta samþingsmenn sfna sem eitthvað kvað að. Og ber þeim öllum vel söguna. Sitthvað gerist á bak við tjöldin í stjórnmálunum. Ágúst ljóstrar ekki upp leyndar- málum. Hann drepur þó á hin hörðu átök sem urðu f framsóknar- flokknum á flokksþinginu 1944 þeg- ar Hermann Jónasson var kosinn formaður flokksins f stað Jónasar Jónssonar frá Hriflu. Það þótti enginn smáatburður þar sem Jónas hafði verið einhver tilþrifamesti þingskörungur um sína daga og ekki við þvi að búast að hann léti stjaka sér til hliðar orða- og átaka- laust. Ágúst segir frá fundi sem hann sat i flokksherbergi fram- sóknarmanna i Alþingishúsinu skömmu eftir flokksþingið: »Átök- in urðu svo hörð á milli þeirra i framhaldi af þvi sem gerst hafði á sjálfu flokksþinginu að Jónas reis úr sæti í bræði sinni, barði í borðið og steytti hnefana yfir borðið til Hermanns, en hann hló við og sagði, en alvarlega þó: „Já, komdu bara“.« Svo segja fróðir menn að stjórn- málamaður þurfi öðrum fremur að hafa hestaheilsu. Ágúst sat lengi i fjárveitinganefnd og segir að sér hafi fallið það vel að mörgu leyti. »Það sagði að vfsu til sin á heilsu minni. Eg hefi lengi gengið með snert af magasári og öll þau ár sem ég var í fjárveitinganefnd lauk hún aldrei störfum svo að það tæki sig ekki illa upp.« Samherji Ágústs, flokksbróðir og vinur, skrásetur sögu þessa. Það hefur sina kosti og galla. Galla að Bókmenntir
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.