Morgunblaðið - 28.11.1984, Blaðsíða 27
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 28. NÓVEMBER 1984
27
Norskir útgerðarmenn
....... vilja 9 milljarða í styrk
Nokkrir gíslanna ganga frá borði I Addis Ababa.
Slmamynd/AP
Sómölsku flugræn-
ingjarnir ánægðir
með árangurinn
iddi. ákaKa 97 návamkar áP
Addn Ababa. 27. nórember. AP.
ÞRÍR sómalskir flugræningjar gáfust
upp fyrir hermönnum á flugvellinum I
Addis Ababa i Eþíópíu f morgun,
slepptu 103 gíslum, en þá voru fjórir
dagar liðnir frá því að Sómalíumenn-
irnir rsndu flugvélinni sem var á leið
frá Mogadishu í Sómalíu til Jeddha í
Saudi Arabíu. Ræningjarnir lýstu að-
gerðum sínum sem „sigri," þar sem
yfirvöld í Sómalíu drógu til baka
dauðadóma yfir sjö ungmennum.
Ræningjarnir höfðu þrásinnis hótað
að sprengja flugvélina í loft upp með
manni og mús ef ekki yrði gengið að
kröfum þeirra.
ftalska stjórnin var virkur milli-
liður i samningaumleitunum ræn-
ingjanna og stjórnvalda i Eþíópíu,
en stjórnvöld f Sómaliu tóku lítinn
þátt og lýstu snemma yfir þvi að
yfirvöld i Addis Ababa bæru alla
ábyrgð á því hvernig til tækist.
Kröfur ræningjanna voru á þá
leið, að 14 pólitískum föngum yrði
sleppt úr haldi i Sómalfu og dauða-
dómar yfir fyrrgreindum sjö tán-
ingum mildaðir. Yfirvöld i Sómalfu
neituðu að ganga að nokkru sem
ræningjarnir kröfðust og undir
lokin, er gislunum hafði verið
sleppt, tilkynnti Sómaliustjórn að
það hefði aldrei staðið til að taka
unglingana sjö af lifi. Ræningjarn-
ir voru þrír, færri en talið var i
fyrstu og foringi þeirra sat fyrir
svörum fréttamanna eftir uppgjöf-
ina. Hann sagði, að þeir félagar
væru engir hryðjuverkamenn og
þrátt fyrir hótanir þá hefði aldrei
komið til greina að drepa einn eða
neinn og þeir hefðu sagt farþegun-
um það strax. „Tilgangurinn var að
frelsa menn sem ranglega eru
Gíbraltar:
Landa-
mæra-
hömlum
aflétt
Brtbwl. 27. oÓTembcr. AP.
SPÁNVERJAR samþykktu í dag að
afnema allar hömlur af sinni hálfu
varðandi umferð fólks um landamæri
Spánar og Gíbraltar. Hefur þvf verið
vel tekið á Spáni og dagblöð þar tala
um „byrjunina á endinum á nýlendu-
stefnu Breta í Gíbraltar". Búist er við
því að alvarlegar viðræður hefjist von
bráðar milli spænskra og breskra yf-
irvalda um framtíð Gfbraltar.
Landamærahömlurnar voru sett-
ar árið 1969 en árið 1980 tilkynntu
Spánverjar og Bretar að þeir ætl-
uðu að hefja viðræður um framtíð
Gíbraltar. Ekkert varð þó úr þvi
vegna ýmis konar skoðanaágrein-
ings. 1982 fengu handhafar vega-
bréfa frá Gíbraltar að fara yfir
landamærin til Spánar fótgang-
andi, en vöruflutningar hafa samt
sem áður verið bannaðir.
fangelsaðir og bíða dauðarefsinga i
Sómalíu og ég tel að við getum ver-
ið ánægðir með árangurinn," sagði
flugræninginn.
Yfirvöld lofuðu ræningjunum
pólitísku hæli og ferðafrelsi til
hvaða lands sem vildi taka á móti
þeim gegn því að gefast upp og er
óvist hvað verður. Þeir verða ekki
sóttir til saka i Eþfópfu. Háttsettir
embættismenn i Eþfópíu sögðu
sambúð landanna varla geta versn-
að hvort sem væri.
Ósló, 27. só.enber. Fri Ju Grik Laure, rrétUríUn MbL
Útvegsmannasamtökin norsku
hafa farið fram á að ríkið styrki
útgerðina með tæpum tveimur
milljörðum nkr. á næsta ári (um
niu milljarðar ísl. kr.). Ríkisstjórn-
in mun leggja sitt tilboð fram í
næstu viku og þá munu viðræður
heflast um þetta mál.
Útvegsmenn og stjórnvöld
telja góðar líkur á samkomulagi
að þessu sinni um fjárstuðning
við sjávarútveginn en 1 fyrra
fóru samningar út um þúfur og
ríkið ákvað einhliða, að útgerðin
fengi 1,1 milljarð nkr. (tæpa
fimm milljarða ísl.) í styrk. Sjó-
menn voru þá mjög óánægðir
með styrkinn, sem þeir tðldu allt
of lítinn, og gripu til ýmissa mót-
mælaaðgerða, stöðvuðu t.d. flot-
ann í einn dag og lokuðu mörgum
höfnum.
Ástæðan fyrir betri samkomu-
lagshorfum er m.a. sú, að nú eru
samningsaðilar sammála um
hvernig reikna skuli út tekjur
sjómanna og tilkostnað en í fyrra
var engin eining um það. Auk
þess greindi menn á um hvernig
skipta skyldi styrknum.
Útvegsmenn og sjómenn halda
því fram, að til að tekjurnar f
sjávarútvegi verði sambærilegar
við það, sem gerist meðal flestra
stétta i landi, verði styrkurinn að
nema fyrrnefndum tveimur
milljörðum nkr. en búist er við,
að um eitthvað lægri tölu semjist
að lokum.
Jafnt gegn Rúm-
enum í gærdag
SaloDÍki, 27. nÓTember. Fri AskiUi
Erai Kóraajni, fréturiur* Mbl.
ÍSLENDINGAR tefldu í dag gegn
Rúmenum á Ólympíumótinu f skák.
Úrslit urðu þessi: Margeir — Suba
0—1, Jóhann — Gheorghiu V4—V4,
Jón L — Ghinda V4—V4, Guðmundur
— Barbulescu 1—0.
Guðmundur var hetja iiðsins i
dag þegar hann gerði útaf við and-
stæðing sinn i 25 leikjum. f skákum
Jóns og Jóhanns var samið jafn-
tefli rétt fyrir bið. Margeir virtist
hafa góða stöðu lengst af, en lét
Suba leika á sig f tfmahrakinu og
gafst upp þegar skákin átti að fara
í bið. Þessi úrslit þýða að fslenska
sveitin er enn i toppbaráttunni og
gæti mætt rússnesku sveitinni á
morgun.
í kvennaflokki tefldu íslensku
stúlkurnar gegn grisku sveitinni og
urðu að lúta í lægra haldi, 1—2.
Guðlaug og ólöf töpuðu sinum
skákum, en Sigurlaug vann sann-
færandi sigur á þriðja borði. Sov-
éska sveitin hefur nauma forystu i
kvennaflokki, en fsland er í miðj-
um hópi með 12V4 vinning af 24
mögulegum.
Hvitfc Guðmundur Sigurjónsson
Svarfc Barbulescu (Rúm.)
Frönsk vörn
I. e4 — e6, 2. d4 — d5, 3. Rd2 - «6,
4. Rgl3 — c5, 5. dxc5 — bxcð, 6. Bd3
— Re7, 7. 0-0 — Rbc6, 8. exd5 —
exd5, 9. Rb3 — Bb6, 10. Hel — Bg4,
II. h3 — Bh5, 12. Be3 — d4, 13. Bf4
— 16, 14.Bc4 — Bf7, 15. Bxf7+ —
Kxl7, 16. De2 - Dd5, 17. c4 — Df5,
18. Bd6 — Hhe8, 19. g4 — Dd7, 20.
c5 — Rc8, 21. Dc4+ — Kg6, 22. Bf4
— Hxel, 23. Hxel — h5, 24. cxb6 —
hxg4, 25. Rc5 — geflð.
LTIR
VOLVOEIGENDUR
OG GENGISFELUNGIN
Þrátt fyrir gengisfellinguna
höfum við ákveðið
að hækka ekki verðið á
Volvo varahlutum fyrr en
15. desember.
Þetta er framlag okkar
gegn hækkandi verðlagi.
Notið tækifærið og gerið
kjarakaup ársins 1
\5SE3EE5
SUÐURLANDSBRAUT 16 - SÍMI 35200