Morgunblaðið - 28.11.1984, Side 3
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 28. NÓVEMBER 1984
3
Vorum búin að
gefa upp alla von
— sögðu Hjörtur Guðbjartsson og Gígja
Árnadóttir, foreldrar Gunnars Hjartarsonar
Björgun ungmennanna þriggja
„GJÖRIÐ svo vel og komið inn, við erum einmitt að baka brúntertu,
uppáhaldstertuna hans Gunnars," sagði húsfreyjan að Flúðaseli 79, Gígja
Árnadóttir, er blaðamaður og Ijósmyndari Morgunblaösins litu þar inn,
skömmu eftir hádegi i gær. Það leyndi sér ekki að þetta var mikill gleðidagur
í lífi fjölskyldunnar, enda höfðu þá þær fregnir borist, að ungmennin þrjú,
sem leitað hafði verið í nærri tvo sólarhringa, væru fundin heil á húfi. í þeim
hópi var elsti sonurinn á heimilinu, Gunnar Hjartarson, 18 ára gamall.
Faðir Gunnars, Hjörtur Guð- fjölmörgu, sem hefðu haft sam-
bjartsson, beið nánari frétta af
syni sínum og hann bauð okkur til
stofu. Þar voru systurnar Rósa 15
ára og Björg 12 ára, en frammi f
eldhúsi var amman, Rósa Gunn-
arsdóttir, að hjálpa dóttur sinni við
baksturinn. Hjörtur sagði að erfitt
væri að lýsa í orðum þeirri reynslu
sem fjölskyldan hefði upplifað sið-
an á sunnudagskvöld. „Mér er þó
efst í huga að þakka Guði fyrir að
hafa heimt þau úr helju og eins
þakklæti til allra, sem hafa lagt
hönd á plóginn við leitina að þeim
og átt þátt i að svona giftusamlega
tókst til,“ sagði Hjörtur. „Þetta er
búinn að vera hræðilegur tími, þar
til í morgun, að allt snerist upp í
gleði og fögnuð,“ bætti Gígja við.
Þau hjónin kváðust hafa verið búin
að gefa upp alla von. Sú hræðilega
hugsun hefði byrjað að grafa um
sig eftir að bíllinn fannst mannlaus
og eftir því sem tíminn leið, án þess
að leit bæri árangur, hefði vonin
um að þau væru á lífi dofnað smátt
og smátt. „Ég var orðin úrkula von-
ar í morgun,“ sagði Gigja.
Þau hjónin sögðust hafa vitað að
ekki var allt með felldu strax á
sunnudagskvöldið. „Inga og Gunn-
ar ætluðu að koma hingað f kvöld-
mat og þegar þau komu ekki lét ég
lögregluna vita,“ sagði Hjörtur.
„Gunnar á jeppann og var búinn að
fara þessa leið áður og kom þá i
bæinn um eftirmiðdaginn, þannig
að ef allt hefði verið með felldu
hefðu þau átt að skila sér fyrir
kvöldmat,“ sagði Gígja. Þau hjónin
sögðust hafa verið í stöðugu sam-
bandi við foreldra hinna krakk-
anna og hefðu þau reynt að styrkja
hvert annað.
Hjörtur fór austur á mánudag-
inn til að taka þátt i leitinni, en
sneri við er hann frétti f talstöð að
bíllinn væri fundinn mannlaus. „Ég
á nú eftir að fá nánari fréttir af þvf
sem þarna gerðist, en ég á erfitt
með að skilja hvers vegna þau yfir-
gáfu bílinn. Við höfum oft talað um
það, að það síðasta sem maður ger-
ir er að yfirgefa bflinn enda finnast
bílarnir alltaf fyrst. Gunnar er
vanur svona ferðum og veit þetta,“
sagði Hjörtur. „Þess vegna fór mér
fyrst að verða verulega órótt þegar
bfllinn fannst mannlaus."
Gleðifregnin snerist upp
í andstæðu sína
Þau Gígja og Hjörtur sögðu að
það hefði orðið þeim mikið áfall
þegar fregnir bárust frá vélsleða-
mönnunum í skálanum við Hlöðu-
fell, að krakkarnir hefðu ekki náð
þangað. „Við vonuðum að þau
hefðu náð þangað og leitað skjóls
undan veðrinu sem skall á aðfara-
nótt mánudagsins. Við fengum lán-
aða talstöð f gær og gátum fylgst
með leitinni i gegnum hana, þótt
ekki væri það uppörvandi.“ Gfgja
sagði að þau hjón hefðu lítið sofið
síðan á sunnudagskvöldið. „Ég
sofnaði ekkert fyrsta sólarhringinn
og datt svo út af f nótt. 1 morgun
var ég búin að gefa upp alla von.
Svo heyrðum við f talstöðinni að
þau væru fundin, og einhverra
hluta vegna tókum við þvi á hinn
veginn. Þessi gleðifregn snerist þvi
fyrst upp i staðfestingu á hinu
versta þar til Hannes Hafstein hjá
Slysavarnafélaginu hringdi og
sagði okkur að þau væru fundin
heil á húfi. Það var ólýsanleg til-
finning og ég held að það hafi enga
þýðingu að reyna að lýsa þvf f orð-
um,“ sagði Gigja. Hjörtur kvaðst
vilja endurtaka þakklæti sitt til
allra sem tekið hefðu þátt f leitinni
og eins vildu þau hjón þakka hinum
band við þau og styrkt þau á meðan
á óvissunni stóð og eins til þeirra
sem nú fögnuðu með þeim á stund
gleðinnar.
Fjölskyldan að Flúðaseli 79 bfður heimkomu sonarins. Frá vinstri: Hjörtur Guðbjartsson, Björg 12 ára, Gigja
Árnadóttir, Rósa 15 ára og amman, Rósa Gunnarsdóttir.
Stórmarkaðir,
heildverslanir,
verkfiaeðistofur,
laðuneyti,
menntastofnanir,
hafe valið Wang PC.
Og ekki að ástæðulausu:
Það er álit jafnt innlendra sem erlendra aðila, sem þekkingu
hafa á tölvumálum, að Wang PC sé einn besti valkostur þeirra
fyrirtækja, sem eru að hefja tölvuvæðingu eða auka vinnslu-
möguleika þess kerfis sem fyrir er. Wang PC býður í senn
fullkomið áætlana- og bókhaldskerfi, örugga möguleika
til stækkunar og tengsl við stærri tölvu-
einingar. Wang PC er eina PC-tölvan,
sem býður Wang ritvinnslu, en
Wang er leiðandi afl í þróun rit-
vinnslukerfa í heiminum.
Wang PC er langhraðvirkasti PC-inn á
íslenskum markaði og er jafnframt með
alíslenskt lykilborð.
Heimilistæki hafa selt og þjónustað Wang
tölvur í 7 ár með árangri sem fjöldi ánægðra
viðskiptavina staðfestir.
Við verðum hérna líka á morgun!
Heimilistæki hf
TÖLVUDEILD-SÆTÚNI8-SÍMI27500