Morgunblaðið - 28.11.1984, Page 20
20
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 28. NÓVEMBER 1984
Reykholtskirkja
— eftir Hjörleif
Stefánsson
Á undanförnum dögum hefur
birst frétt í dagblöðunum hverju á
fætur öðru og nú seinast í sunnu-
dagsblaði Morgunblaðsins þess
efnis að Reykholtskirkju hafi ver-
ið færð að gjöf ljósrituð Guð-
brandsbiblía.
Um leið og Geir Waage sókn-
arprestur og Aðalsteinn Árnason
formaður sóknarnefndar gleðjast
yfir því að kirkjunni hefur borist
að gjöf ljósrit af gamalli biblíu
nota þeir tækifærið til að tilkynna
að sóknarnefndin hafi afskrifað
kirkjuna sína sökum elli og ætli
sér að byggja nýja.
Svolítið hlýtur dómurinn yfir
kirkjunni að virðast standa í mót-
sögn við gleðina yfir gjöfinni.
Tilefni meðfylgjandi athuga-
semda er eftirfarandi kafli úr
frétt Mbl.:
„Kirkjan í Reykholti var vígð á
jólum 1887 og er að verða 100
ára. Kirkjan hefur verið endur-
byggð einu sinni. Hjörleifur
Stefánsson frá Þjóðminjasafni
eins og hún er nú.
„Það er bláköld stað-
reynd að Reykholts-
kirkja er bráðum aldar
gömul og þó að eitt
hundrað ár séu ekki hár
aldur miðað við aldur
Guðbrandsbiblíu þá er
aldargamalt hús á ís-
landi merkilegt aldurs
síns vegna.“
tók út kirkjubygginguna á síð-
astliðnu ári og gerði góða
skýrslu þar um. Niðurstöður
voru þær að ekki þótti ráðlegt
að endurbyggja kirkjuna."
Fréttir annarra blaða voru að
mestu samhljóma frétt Mbl. og
þess getið að niðurstöður úr
skýrslu undirritaðs um Reyk-
holtskirkju hafi verið þær að ekki
sé ráðlegt að gera við kirkjuna og
að ákvörðun safnaðarfundar um
um.
að byggja nýja kirkju byggi á
niðurstöðum skýrslunnar.
Því fer hins vegar víðs fjarri að
niðurstaða skýrslunnar hafi verið
þessi. Það er einmitt eindregið
mælt með því að kirkjan verði
varðveitt og bætt úr þeim göllum
sem á henni eru.
í skýrslunni er rakin byggingar-
og breytingasaga Reykholtskirkju
frá því hún var byggð 1886—87,
hverju hafi verið spillt frá fyrstu
gerð hennar og hvað bætt, þar eru
taldir helstu gallar sem fram hafa
komið á húsinu o.s.frv.
Þar var undanbragðalaust reynt
að tína allt það til sem máli skipti
þegar meta ætti gildi hússins bæði
kosti og lesti.
Með hliðsjón af fyrrnefndri
byggingar- og breytingarsögu og
eftir að hafa skoðað kirkjuna allít-
arlega, mælt hana og teiknað er í
skýrslunni lagt mat á ástand og
gildi hússins. Þar segir m.a.:
„Þrátt fyrir óásjálegt yfirbragð
hrörnunar og vanhirðu er
Reykholtskirkja fallegt hús,
óvenju heilsteypt og velskapað
listaverk.
Um staðargildi hennar vegna
aldurs þarf ekki að fjölyrða, en
nóg er að nefna að hún er elsta
hús staðarins, það eina frá fyrri
öld, og það eitt ærin ástæða til
að varðveita húsið um ókomin
ár.“
Að lokum segir um kirkjuna:
„Þrátt fyrir þá galla sem að
framan hafa verið taldir og aðr-
ar breytingar sem gerðar hafa
verið á kirkjunni er hún í meg-
inatriðum heilsteypt hús og
fullvíst að aftur megi gera hana
að jafnfallegu listaverki og hún
var í fyrstunni og bæta jafn-
framt úr þeim fæðingargöllum
sem á henni voru.“
Þessu til staðfestingar fylgja
teikningar að útliti kirkjunnar
eins og hún gæti litið út eftir
endurbætur.
Af þessu má sjá að ákvörðun
safnaðarfundar um að reisa nýja
NÝTT ÚTLIT
jgKímim Vegna opnunar bjóöum
'Jjj' viö nú 25% afslátt á
permanenti og klippingu.
f 25% afslátt á andlits-
baöi meö handsnyrtingu
-----------—!— og litun.
Notfæriö ykkur þetta einstæöa tækifæri.
Verið velkomin.
Tímapantanir í síma 14477 og 22353.
Hárhöll
S.H.S.
og Snyrtistofa
Önnu Bergmann
Laugaveg 82,
gengiö inn frá
Barónsstíg.
hárgreiðslu-
og snyrtistofu
kirkju er beinlínis í andstöðu við
niðurstöðu skýrslunnar. Ef um
veraldlegt hús væri að ræða mætti
grípa til þeirrar samlíkingar að
með túlkun sinni á niðurstöðu
skýrslunnar snúi söfnuðurinn fað-
irvorinu upp á andskotann, en hér
er það ekki við hæfi. Ákvörðun
safnaðarfundarins styðst ekki við
nokkur meðmæli frá Þjóðminja-
safni, húsafriðunarnefnd eða
niðurstöðu úr skýrslu undirritaðs,
og reyndar tel ég víst að hér hafi
hjálpast að ónákvæmt orðalag
talsmanna safnaðarins og mis-
skilningur blaðamanna, og að ekki
hafi vísvitandi verið farið með
ósannindi.
Hvað viðvíkur þeirri staðhæf-
ingu sem varpað hefur verið fram
að gamla kirkjan sé of lítil og því
þurfi að byggja nýja má benda á
að meðan byggð helst í landinu
verður varla reist sú kirkja á fs-
landi sem ekki reynist „of lítil“
stöku sinnum. Jafnvel Hallgríms-
kirkja í Reykjavik mun eflaust
reynast „of litií“ af og til.
Við allar venjulegar athafnir
rúmar Reykholtskirkja alla þá
sem til hennar sækja en á stórhá-
tíðum fá ekki allir sæti sem vildu
og þannig á það að vera. Ef kirkj-
an rúmaði alltaf alla þá sem vildu
þá væri hún of stór. Reykholts-
kirkja er ekki of lítil vegna þess að
hún rúmar ekki ætíð alla gesti og
hún er heldur ekki of stór þó hún
rúmi oftast miklu fleiri en til
hennar sækja.
Enginn algildur mælikvarði
verður lagður á það hvenær kirkja
er hæfilega stór, en það er bláköld
staðreynd að Reykholtskirkja er
bráðum aldar gömul og þó að eitt
hundrað ár séu ekki hár aldur
miðað við aldur Guðbrandsbiblíu
þá er aldargamalt hús á fslandi
merkilegt aldurs síns vegna.
Undirrituðum er vel kunnugt
um að Geir Waage sóknarprestur í
Reykholti hefur af dugnaði og
myndarskap hafið sókn til að lyfta
Reykholti úr þeirri niðurlægingu
sem staðurinn hefur verið í um
áratugi. Hann vill að staðnum sé
sýnd sú virðing og umhyggja sem
mikilvægi hans í sögu og menn-
ingu þjóðarinnar sæmir.
Það er hins vegar skoðun undir-
ritaðs að honum yrði betur ágengt
með því að leiða söfnuð sinn til
þess að varðveita kirkjuna sem er
elsta hús staðarins og endurbæta
hana.
Rvk. 26.11.1984
Hjörleifur Stefínsaon er nrkitekt
Þrettánda bindið af
„Aldnir hafa orðiö“
ÞRETI ÁNDA bindi bókaflokksins
„Aldnir hafa orðið“ eftir Erling Dav-
íðsson er komið út hjá Skjaldborg
hf. á Akureyri.
Á bókarkápu segir m.a.: „Frá-
sagnirnar spegla þá liðnu tíma,
sem á öld hraðans og breyting-
anna virðast nú þegar orðnir fjar-
lægir. En allar hafa þær sögulegt
gildi þótt þær eigi fyrst og fremst
að þjóna hlutverki góðs sögu-
manns, sem á fyrri tíð voru
aufúsugestir."
Þeir, sem segja frá í þessu nýj-
asta bindi, eru; Guðni Ingimund-
arson Kópaskeri, Jóhannes Jóns-
son Húsavik, Jónína Steinþórs-
dóttir Akureyri, Skarphéðinni
Ásgeirsson Akureyri, Steinþór
Eiríksson Egilsstöðum, Sveinn
Einarsson Reykjavík, en hann er
nýlátinn, og Sæmundur Stefáns-
son Reykjavík.
Erlingur Davíðsson