Morgunblaðið - 28.11.1984, Síða 26
26
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 28. NÓVEMBER 1984
Nældu í 200
tonn af hassi
Kaíró, 27. nórember. AP.
LÖGREGLUYFIRVÖLD f Egypta-
landi hafa í samvinnu við bandar-
ísku fíkniefnalögregluna lagt hald á
20 tonn af eiturlyfinu kannabis sem
var um borð í vestur-þýsku skipi í
Alexandríu. Fjórir menn hafa verið
handteknir, einn Líbani og þrír Eg-
yptar. Bandarískur embættismaður
sagði að þetta væri ekki einungis
stærsti fíkniefnafarmur sem náðst
hefði í Egyptalandi fyrr og síðar,
heldur ætti það trúlega við um heim-
inn allan.
Líbaninn sem handtekinn hefur
verið, er eigandi innflutningsfyr-
irtækis í Kaíró, en hlassinu hafði
verið smyglað frá heimalandi
hans Líbanon. Áhöfn þýska skips-
ins virðist ekki hafa verið viðriðin
smygltilraunina, eftir því sem
haft var eftir lögregluyfirvöldum
sem sögðu einnig, að efnið hefði
verið vandlega innpakkað í skor-
dýraeiturpakkningar, 636 karton i
tveimur stórum gámum.
Dr. Wiiliam DeVries fylgist með líðan nafna síns, Williams Schroeder, eftir að komið hafði verið fyrír plasthjarta í
brjósti hans. Er þetta f annað sinn sem slík aðgerð er gerð. Schroeder var hætt kominn rétt eftir aðgerðina þegar
blæða fór með aðalslagæðinni við gervihjartað og missti hann þá nærrí helming blóðsins. Þegar síðast fréttist leið
honum eftir atvikum sæmilega.
Gervihjartaþeginn
andar hjálparlaust
LoainUlc. Kentuckr 27. aÓTenber. AP.
Smygluðu ljóð-
um tékknesks
Nóbelsskálds
LMÍmUle, Kentnek;. 27. aÓTember. AP.
SKURÐLÆKNAR þeir sem og þungt haldinn, en læknar verið grætt í hann í desember
græddu gervihjarta í William telja hann úr bráðustu lífshætt- 19S2.
Schroeder á mánudaginn segjast
ánægðir með árangurinn enn sem
komið er og hafa lýst yfir bjartsýni
um framhaldið. William Devries
yfirlæknir sagði að Schroeder hafi
í morgun í fyrsta skipti andað eðli-
lega og reglulega án hjálpartækja.
Það fyrsta sem hann gerði er hann
fékk meðvitund á ný eftir skurð-
aðgerðina var að spyrja hvort
hjartað slægi óaðfinnanlega. Síðan
sníkti hann bjórdós, en fékk synj-
un.
Hinum 52 ára gamla Schroe-
der var vart hugað líf í eina viku
til viðbótar er hann var drifinn í
aðgerðina, en aðeins einu sinni
áður hefur gervihjarta verið
grætt í mann, Barney Clarke, og
lifði hann um skeið með gervi-
gripinn í líkama sínum. Schroe-
der er auðvitað enn á gjörgæslu
Riehmond Virginlu. 27. nórembef. AP.
TVEIR bandarískir háskóla-
prófessorar frá Virginíu eru komn-
ir heim úr mikilli ferð með leyni-
legum tilgangi til Tékkóslóvakíu.
Eftir mikla leit þar í landi fundu
þeir hundruð blaða með verkum
Nóbelsverðlaunaskáldsins Jar-
oslavs Seifert. Þeir smygluðu þeim
síðan til Bandaríkjanna.
„Tollararnir spurðu okkur ein-
ungis hvort við værum með ein-
hverjar krystalsvörur, annað
ekki. Við vorum alveg undrandi
og mjög taugaveiklaðir," sagði
annar mannanna, Tom O’Grady.
Hinn maðurinn, Paul Jagosich,
sagði að þeir hefðu fengið heim-
ilisfang skáldsins hjá sænska
sendiherranum í Prag með þeim
orðum að þeir skyldu fara þang-
að og hringja alls ekki. Þar
fundu þeir verk skáldsins og
heimsóttu hann síðan á sjúkra-
hús þar sem hann lá vegna
hjartasjúkdóms. Hann gaf þar
leyfi sitt fyrir því að félagarnir
tveir reyndu að smygla ljóðun-
um úr landi og gefa þau út þýdd.
unni. Hann sagði einnig er hann
vaknaði, að hann fynndi vel
fyrir hjartanu, en læknar telja
að það sé einfaldlega vegna þess
að hans eigið hjarta var orðið
svo veikt og lélegt að viðbrigðin
séu mikil.
Fjölskylda Schroeders segir
að William hafi ekki átt ann-
arra kosta völ en að gefa sig í
aðgerðina af heilum hug, læknar
hafi réttilega bent á að hann
væri dauðvona. „Við styðjum
pabba af öllum kröftum," sagði
elsti sonurinn, Melvin, 30 ára.
Eiginkona Schroeders sagði
fréttamönnum að heillaóska-
skeytum hefði rignt yfir fjöl-
skylduna, eitt hafi verið frá Una
Loy Clarke, ekkju Barney
Clarke fyrrnefnds sem lifði í 112
daga eftir að gervihjarta hafi
Færeyjar:
Kr. Djurhuus fv.
lögmaður látinn
Á ÞRIÐJUDAG, 20. nóvember, lést í
Færeyjum Kristian Djurhuus, fyrrv.
sýslumaður og lögmaður, tæplega
níræður að aldri, en hann var fædd-
ur 12. febrúar 1895 í Ólafsstofu á
Þórsböfn.
Kr. Djurhuus var valinn á þing
fyrir Sambandsflokkinn árið 1932
og kjörinn formaður lögþingsins
1940. Var hann einnig formaður
landsnefndar Færeyja yfir stríðs-
tímann og kom þá m.a. til tslands
til að semja um vöruflutninga
milli landanna og fiskveiðimál.
Kr. Djurhuus sat í fyrstu lands-
stjórn Færeyja, og eftir að Fólka-
flokkurinn og Sambandsflokkur-
inn mynduðu landsstjórnina, fyrst
einir og síðan i samvinnu við
Sjálfstýriflokkinn, varð hann lög-
maður.
Kr. Djurhuus gegndi fjölmörg-
um trúnaðarstörfum fyrir land
sitt og þótti einkar laginn og sam-
viskusamur stjórnmálamaður.
Eftir að hann hætti stjórnmála-
afskiptum upp úr 1970, fór hann
að sinna landbúnaðarstörfum á
Brezkur sendiráðsstarfs-
maður myrtur í Bombay
Var á leið til vinnu sinnar er skotið var á bifreið hans
Bombaj, 27. dót. AP.
HÁTTSETTUR brezkur sendi-
starfsmaður var myrtur í Bombay
á Indlandi í morgun. Ekkert er vit-
að fyrír víst um þjóðerni morðingj-
anna annað en þeir voru ekki ind-
verskir og ekkert er vitað um
ástæðuna fyrir morðinu. Talsmað-
ur lítt þekktrar byltingarhreyf-
ingar múhameðstrúarmanna lýsti í
dag ábyrgð hennar á ódæðinu.
Engu að síður er talið, að útsendar-
ar írska lýðveldishersins (IRA)
kunni að hafa verið þarna að verki.
Maðurinn, sem myrtur var, bét
Percy Norris og var 56 ára að
aldrí.
Norris var sendifulltrúi Breta
í Bombay, sem er mikil hafnar-
og verzlunarborg. Hann var á
leið til skrifstofu sinnar í bfl rétt
fyrir kl. 8 að morgni að staðart-
íma, er skotið var á hann. Eitt
skotið hæfði hann i hjartað og
annað í ennið. Það kom fyrir
ekki, þó að bílstjórinn æki f
Brezki sendiráðsstarfsmaðurinn
Percy Norrís, sem skotinn var til
bana í Bombay í gær. Hann var 56
ára að aldri.
skyndi með Norris á sjúkrahús
var hann úrskurðaður látinn rétt
eftir komuna þangað.
„Ekkert er vitað fyrir víst um,
hver eða hverjir árásarmennirn-
ir voru,“ var haft eftir Ronald
Nash, talsmanni brezku stjórn-
arskrifstofunnar í Nýju Delhí.
Hann sagði ennfremur, að ekk-
ert væri fram komið, sem gefið
gæti til kynna, hver ástæðan
fyrir morðinu væri.
Samkvæmt lýsingu indversku
lögreglunnar var árásarmaður-
inn útlendingur, um 180 sm á
hæð og ljós yfirlitum. Einn af
yfirmönnum lögreglunnar á
staðnum sagði hins vegar, að
árásarmennirnir hefðu verið
tveir, annar hvítur og hinn þel-
dökkur.
Sir Geoffrey Howe, utanrík-
isráðherra Bretlands, lýsti yfir
harmi sínum í dag vegna morð-
sins á Percy Norris og sagði, að
það sýndi glöggt þær hættur,
sem brezkir sendistarfsmenn
erlendis byggju við.
Mitterrand í Sýrlandi:
Kristian Djurhuus
jörð sinni við Rangá í Trongisfirði
og hélt þeim starfa áfram til
hinstu stundar, þótt hann væri
orðinn háaldraður. Djurhuus var
seinast að störfum við bæ sinn á
mánudag, daginn fyrir andlát sitt.
Eiginkona Kr. Djurhuus, Marg-
aretha, sem ættuð var úr Heiðun-
um við Skálafjörð, lést fyrir
nokkrum árum.
Assad beiti sér í
þágu heimsfriðar
IhuiumkuK, Sýrlandi, 27. nóvember. AP.
FRANCOIS Mitterrand, forseti Frakklands, hefur skorað á Hafez Assad
forseta að leggja sig fram um að stuðla að friði í Miðausturlöndum og
heiminum öllum.
„Þú ert mikill leiðtogi og berð
alþjóðlega ábyrgð," sagði Mitt-
errand í ávarpi til sýrlenska for-
setans í veislu á mánudagskvöld.
„Friður í Miðausturlöndum er
hluti heimsfriðarins og þar hef-
ur Sýrland mikilvægu hlutverki
að gegna."
Mitterrand kvað enga von til
að koma á friði eða draga úr
spennu í þessum heimshluta,
nema Assad tæki að sér hlutverk
sáttasemjarans.
Sýrlandsferð Mitterrands er
fyrsta ferð fransks þjóðhöfð-
ingja til Damaskus frá því að
Sýrlendingar hlutu sjálfstæði
frá Frökkum árið 1946.