Morgunblaðið - 28.11.1984, Side 28

Morgunblaðið - 28.11.1984, Side 28
28 MORGUNBLAÐIÐ, MIDVIKUDAGUR 28. NÓVEMBER 1984 Iran: Umfangsmiklar hreins- anir í uppsiglingu? Tehena, fru. 27. BÍTembef. AP. FJÖLMENNAR sveitir byltingar- varða í íran stóðu fyrir „valda- sýningu" eins og þeir orðuðu það sjálfir í dag, er þeir reistu vegatálma um gervalla Teheranborg og víðar í landinu, stöðvuðu fólk á ferð og handtóku eftir geðþótta, einkum þó þá sem grunaðir voru um að vera Kína: andsnúnir stjórn Khomeinis erki- klerks. Hér mun vera um vikulangar aðgerðir að ræða og er stofnað til þeirra þar sem bvltingarvörðum þótti fólk vera farið að fara heldur frjálslega með andstöðu sína á ýmsu í stjórnsýslu landsins. Þann- Fimm ára drengur hefur háskólanám Pekwg, 27. BÓTember. AP. FIMM ára gamall drengur hefur gengizt undir inntökupróf í háskóla og mun hefja þar skólagöngu innan tíðar. Drengurinn mun nema við Vís- inda- og tækniháskólann í Peking. Það var hin opinbera fréttastofa Kína sem sagði tíðindin og bætti við að barn þetta héti Liu Kiarob- in og ættaður frá landbúnaðarhér- aðinu Ganbu í Jinagsu-fylki. For- eidrar hans eru báðir kennarar. Niðurstöður inntökuprófsins leiddu í ljós svo að ekki varð um villzt, að drengurinn bjó yfir vitn- eskju og þekkingu á borð við full- orðið fólk, sem er að hefja há- skólanám. Ákveðið hefur verið áð útbúa þó sérstakt kennslu- prógramm fyrir hann. Liu lærði að lesa tveggja ára og á þriðja ári kunni hann meira en 3.600 kínversk tákn. Níu mánuðum síðar var hann fluglæs á allar bækur hvað svo sem efni þeirra var flókið. ig hafa þúsundir manna tekið þátt í mótmælagöngum að undanförnu, en mótmælt hefur verið ýmsu, allt frá hækkandi strætisvagnafar- gjöldum til stríðsins við írak, sem ýmsum f íran þykir vera heldur geðveikislegt fyrirtæki. I frétta- tilkynningu frá höfuðstöðvum byltingarvarða segir m.a: „Til- gangurinn er að sýna fólki að það er Khomeini sem ræður og hans orð eru lög. Ef þarf að hræða fólk til að gera því skiljanlegt hvað við erum að meina, þá það.“ Ekki hafa fregnir borist af ofbeldi í tengslum við handtök- urnar í dag, né heldur opinberar tölur um hve margir hafi verið gripnir og færðir í svartholið, slík- ar tölur frá íran eru líka ávallt heldur óljósar. ■ ■■ \f/ ERLENT FULL VERÐ- TRYGGING SPARISKÍRTEINI RÍKISSJÓÐS • FYRIRHAFNARLAUS • ÁN ALLRAR ÁHÆTTU • 8% FASTIR VEXTIR • RÍKULEG ÁVÖXTUN Með spariskírteinum í 3. flokki 1984 sem nú eru til sölu býður Ríkissjóður betri ávöxtun en flestir aðrir á markaðinum. KYNNIÐ YKKUR VEL KJÖR SPARISKÍRTEINA RÍKISSJÓÐUR ÍSLANDS Rajiv Gandhi tilkynnir framboð sitt Rajiv Gandhi, forsætisráðherra Indlands, sést hér undirrita fram- boósskjöl vegna þingkosninganna, sem fram eiga að fara f landinu, 24. desember nk. Við hlið hans situr kona hans, Sonja. Rajiv Gandhi býður sig fram í sama kjördæmi í Uttar Pradesh og mágkona hans, Menaka Gandhi. Rúmenía: Reka v-þýska sendiráðsmenn Boon, 27. nóvember. AP. RÚMENSKA stjórnin hefur vísað Qórum vestur-þýzkum sendiráðs- starfsmönnum úr landi, og mun þetta vera mótleikur við það að fimm rúmenskum diplómötum var vísað frá Bonn fyrr í þessum mán- uði. Rúmenska stjórnin skipaði fjór- menningunum að vera komnir úr landi fyrir vikulokin. Talsmaður vestur-þýska utan- ríkisráðuneytisins hefur staðfest að rétt sé með farið. Nöfn mann- anna fjögurra hafa ekki verið birt að svo komnu. Sambúð Rúmeníu og V-Þýzka- lands hefur kólnað verulega vegna brottvikningar Rúmenanna í þess- um mánuði, en það var blaðið Die Welt sem fyrst upplýsti um að rannsókn stæði yfir á iðju mann- anna, sem virtist ekki samræmast diplómatískri stöðu þeirra. Kína: Sagt frá örlögum fórnarlamba Maós PeUag, 27. BÓTeBiber AP. I KÍNVERSKU dagblöðunum hafa að undanförnu birst frásagnir um ör- lög tveggja manna, Liu Shao-Chi, fyrrum forseta, og Peng Teh-Hwai, fyrrum varnarmálaráðherra, sem snerust gegn Maó og „menningar- byltingu öreiganna“ og urðu að gjalda fyrir með lífi sinu. Dagblaðið Wenzhai Bao segir, að Liu hafi látist 12. nóvember ár- ið 1969 í borginni Kaifeng í Mið- Kína en þá hafði hann legið með- vitundarlaus i nokkurn tíma og ekki notið neinnar iæknismeðferð- ar. í Dagblaði alþýðunnar var svo birt i dag grein eftir frænku Pengs þar sem sagði, að hann hefði látist í Peking 29. nóvember árið 1974 „hálflamaður eftir skelfilegar pyntingar". Báðir þessir menn voru andvigir stefnu Maós og „hinnar miklu menningarbylt- ingar öreiganna“ en talið er, að jafnvel milljónir manna hafi látið lífið í þeim þjóðfélagslegu hamför- um, sem þá riðu yfir Kína. Liu og Peng snerust fyrst gegn Maó árið 1958 þegar hann beitti sér fyrir „stóra stökkinu framá- við“ en þvi lauk loks með hungur- sneyð og dauða 20—30 milljóna manna. Liu vildi sýna sveigjan- leika við endurreisn efnahagsins en Maó taldi, að byltingareldmóð- urinn einn leysti allan vanda. Þeg- ar menningarbyltingin braust út var Liu handtekinn og úthrópaður sem „sporgöngumaður kapitalist- anna, höfuðfjandinn, svikari og úrþvætti". Námskeið í svæðameöferö veröa haldin eftir áramót. Þau munu hefjast 8. janúar og veröa fyrir byrjendur og þá sem eiga ólokiö nám- skeiöi tvö. Einnig veröa haldin námskeiö í líffæra- fræöi fyrir þá sem lokiö hafa námskeiöi tvö. Uppl. í símum 31122 og 78089 á kvöldin. Innritun veröur í húsi Rauöa krossins viö Nóatún sunnudaginn 16. des. frá kl. 14.00—19.00. Félagið svæóameöferö

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.