Morgunblaðið - 28.11.1984, Blaðsíða 29
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 28. NÓVEMBER 1984
29
Líbanon:
Harðar loft-
árásir ísraela
Beirát, 27. bót. AP.
ÍSRAELSKAR herþotur gerðu í dag
loftárásir á stöðvar palestínskra
skæruliða í austurhluta Líbanons,
sem Sýrlendingar ráða yfir. Sjö
manns voru drepnir og níu særðust
samkvæmt frásögn líbönsku lögregl-
unnar. Af þeim, sem biðu bana, voru
fimm úr röðum palestínskra skæru-
liða en tveir óbreyttir líbanskir borg-
Þá héldu ísraelar uppi mikilli
stórskotahríð á Quabb-Elias
svæðið. Sýrlenzkar hersveitir
komu hins vegar fljótt á vettvang
og umkringdu þetta svæði, þannig
að einungis björgunarlið fékk að-
gang að því en fréttamönnum var
snúið burt.
Skrifaði ádeilu-
sögu um Pinochet
Simaraynd/AP.
Stjórnmálasamband að nýju
Reagan Bandaríkjaforseti ræðir við Tariq Aziz utanríkisráðherra fraks, í Hvíta húsinu. Að fundinum loknum var
skýrt frá því að ríkin hefðu ákveðið að taka upp fullt stjórnmálasamband að nýju.
Suli>«o. ChUe, 27. aÓTember. AP.
ÞEKKTUR chileanskur rithöfundur
Enríque Lafourcade hefur leitað
hælis í sendiráði Argentínu í Santi-
ago eftir að bonum hafði verið hótað
lífláti fyrír að skrifa ádeiluskáldsögu
um Pinochet, forseta Chile. Skýrði
lögfræðingur hans frá þessu í dag.
Argentínska stjórnin ákvað að
veita rithöfundinum hæli og
ábyrgjast að hann yrði fluttur úr
landi og stóð til að hann færi með
argentínska flugfélaginu til Buen-
os Aires i dag.
Kilja Lafourcades, E1 Gran Tai-
mado, seldist upp þegar hún kom
út á föstudag. I bókinni segir frá
ógnarólgu sem sé i riki sem er
nánast i hershöndum. I bókinni er
forsetinn Cesar Claudio Bachelard
neyddur til að segja af sér völdum.
Hann sendir fjölskyldu sina til
Suður-Afríku, en skipar áiðan
nánasta aðstoðarmanni sinum að
drepa sig.
Umhverfisspjöllin og hnignun
nátttúrunnar verður að stöðva
Að öðrum kosti bíður hungurdauðinn milljóna manna
Augusto PinocheL
WaahioKton, 27. oÓTember. AP.
TVEIR forystumenn bandarískra
svertingja voru handteknir úti fyrir
sendiráði Suður-Afríku í Washing-
ton, þegar þeir neituðu að fara út úr
sendiráðinu. Þeir kröfðust þess að
þrettán svertingjaleiðtogar, sem
sitja í dýflissum í Suður-Afríku yrði
sleppt úr haldi. Hafði verið efnt til
mótmælafundar við sendiráðið
vegna málsins.
Charles Hayes, fulltrúadeildar-
Nairobi, Keaya, 26. aóvember. AP.
BRESKUR vísindamaður hefur
hvatt alla heimsbyggðina til að taka
böndum saman og stöðva þá skelfi-
legu hnignun náttúrunnar, sem nú á
sér stað víða um álfur. Segir hann,
að það sé eina leiðin til að forða
milljónum manna frá hungurdauða,
sjúkdómum og örvæntingu.
Dr. Martin Holdgate, sem er
helsti ráðgjafi breska umhverf-
ismálaráðuneytisins, segir, að
framtíðin boði ekkert gott fyrir
þær þjóðir þriðja heimsins bar
þingmaður demókrata frá Illinois
og Joseph Lowery, forseti suður-
afríska ráðsins í Bandaríkjunum
voru loks handjárnaðir og leiddir
á braut. Voru þeir ákærðir fyrir
að hafa farið í óleyfi inn í sendi-
ráðið. Af tvö hundruð manna hópi,
sem flykktist inn i húsið að mót-
mælafundinum loknu voru þessir
tveir hinir einu sem voru hand-
teknir.
sem fólksfjölgunin er miklu meiri
en matvælaframleiðslan og spáir
því, að „stórkostleg hungursneyð
og þjáningar" muni hrjá þær allan
þennan áratug. Kemur þetta fram
í skýrslu Holdgates, sem birt var í
dag og verður lögð fyrir 200 þing-
menn frá 70 þjóðum, sem nk.
föstudag munu koma saman í Na-
irobi til að ræða um umhverfis-
vandamál.
Skýrsla dr. Holdgates er byggð
á rannsóknum hans og tveggia
annarra visindamanna á umhverf-
isbreytingum á árunum 1972—82
og myndin, sem þeir draga upp, er
heldur dökk:
— Koltvísýringur í andrúms-
loftinu jókst allan þennan tima og
er nú óttast, að eftir eina öld hafi
hitastigið hækkað um 4,5 gráður.
Afleiðingar yrðu stórkostlegar
breytingar á úrkomusvæðum og
liklegt, að sjávarborð hækkaði
vegna bráðnunar heimskautaíss-
ins.
— í höfunum hafa fiskstofnarn-
ir verið rányrktir og gæðum afl-
ans og samsetningu hefur stór-
hrakað.
— Mannfjölgun minnkaði f öll-
um álfum nema Afriku þar sem
þurrkar hafa haft alvarleg áhrif á
matvælaöflun og þjóðfélagslegar
og efnahagslegar framfarir.
— Fátækt fólk hefur flykkst til
borganna, sem ráða ekki við fjölg-
unina, og afleiðingin er eymd og
volæði.
— í þriðja heiminum falla flest-
ir fyrir sjúkdómum, barnaveiki,
kíghósta, stifkrampa, lömunar-
veiki, berklum og mislingum, sem
ollu dauða fimm milljón barna á
þessum tíma, en i iðnríkjunum eru
það of hár blóðþrýstingur, hjarta-
sjúkdómar og krabbamein, sem
eru helstu banamein, sjúkdómar
sem að nokkru stafa af ofgnótt og
hóglífi.
FUNDIZT hafa um eitt hundrað
og fimmtíu Búddalíkneski, sem
munu vera allt að 1400 ára gömul.
Þau eru öll úr steini og fundust
þegar var verið að grafa fyrir hús-
um i Linqu-héraði. Likneskin eru
FJÓRIR júgóslavneskir kolanámu-
menn settu heimsmet að því að þeir
telja sjálfír í kolagrefti um helgina,
er þeir unnu sleitulaust í námu sinni
í Zenica í 100 klukkustundir. Aðeins
fáum dögum áður hafði námumaður
Dr. Holdgate bendir á, að um-
hverfisspjöllin hafi margfaldast á
þessari öld. Fljót, sem áður iðuðu
af lífi, renna nú skolgrá og stein-
dauð til sjávar; viða sér ekki til
sólar allan ársins hring vegna
mengunar; eyðimerkurnar sækja á
með ógnarhraða; uppblástur
eykst; skóglendið er upprætt og
veðurfarið breytist. Það er þó
huggun harmi gegn, segir Hold-
gate, að sums staðar eru menn að
vakna til vitundar um hvert stefn-
ir og finna má dæmi um að þróun-
inni hafi verið snúið við.
misjöfn að stærð, frá 20 senti-
metrum á hæð og allt upp i hálfan
annan metra. Líkneskin eru sum
illa farin og verða nú rannsökuð af
fornleifafræðingum og gert við
það sem unnt er.
einn í sama héraði hamast I námu
sinni sleitulaust í % klukkustundir
og lýst yfír heimsmeti að þvf loknu.
Forsvarsmaður fjórmenn-
inganna, maður að nafni Jasarev-
ic, sagðist líða „ofsalega vel“ er
þeir höfðu lokið við törnina. Að-
spurður hvað þeir meintu með þvi
að setja met af þessu tagi sagði
hann: „Við vildum sýna letingjum
hvar sem þeir kunna að vera,
hversu lengi hægt er að vinna og
hversu lengi er hægt að halda út.“
Talsmaður stéttarfélaga námu-
manna i Júgóslavíu sagði á hinn
bóginn að réttast væri að for-
dæma svona „barnaskap" þetta
væri ekkert annað en storkun við
heilsu og öryggi námannanna og
þjónaði engum tilgangi.
Námumennirnir fjórir eru tald-
ir hafa áhuga á þvi að komast i
heimsmetabók Guinnes, en þetta
yrði ný grein, því engum hefur
þangað til nú hugkvæmst að fara
hamförum i kolanámu lengur en
sem numið hefur vakt og auka-
vakt.
Krabbameinsrannsóknir í Noregi:
Ný greiningaraðferð fundin
Gerir kleift að uppgötva sjúkdóminn á fyrri stigum en unnt hefur verið
Ódó. 27. BÓvember. Prá Ju Erik Uure, frótUriUrm MbL
NORSKUR vísindamaður hefur
fundið upp aðferð til að greina
krabbamein eftir blóðsýni allt að
fímm árum áður en æxlisvöxtur
verður sjáanlegur. Enn sem komið
er telnir greiningin of langan tima
til þess að unnt sé að gera hana
aðgengilega almenningi.
Hver greining er svo timafrek,
að aðeins er hægt að anna fjór-
um slíkum á dag. En þess er
vænst, að visindamanninum tak-
ist von bráðar að einfalda rann-
sóknaraðferð sina.
Þessi nýja blóðrannsókn getur
leitt í ljós þrenns konar krabba-
mein. í lungum, brjósti og eggja-
stokkum. En vísindamaðurinn
telur ekki útilokað, að með henni
megi einnig finna fleiri tegundir
krabbameins.
Enn er það svo, að krabbamein
uppgötvast oftast fyrst við skoð-
un, þegar sjúklingur hefur fund-
ið fyrir, að eitthvað er að. Og er
þá æxlisvöxturinn misjafnlega
langt á veg kominn. En með
blóðrannsókninni er hægt að
greina krabbameinið á fyrra
stigi, allt að fimm árum áður en
æxlisvöxturinn verður greinan-
legur að hefðbundnum hætti.
Þannig verður fært að hefja
meðhöndlun fyrr og auka með
því lífslíkur sjúklingsins.
Bandaríkin:
Tveir forystumenn
svertingja í járn
Fundnir gamlir Búddar
Peking, 27. ■órember. AP.
Settu heimsmet
í kolagreftri