Morgunblaðið - 28.11.1984, Qupperneq 41

Morgunblaðið - 28.11.1984, Qupperneq 41
41 MORGUNBLADIÐ, MIÐVIKUDAGUR 28. NÓVEMBER 1984 Afmæliskveðja: Hallgrímur Jónas- son fv. yfirkennari Helgina 9.—11. nóvember fór ferðafélagið Útivist sína árlegu haustferð að Lýsuhóli á Snæ- fellsnesi. Haustblót kallast þessar ferðir. í þetta sinn var ferðin helg- uð Hallgrími Jónassyni, fyrrver- andi yfirkennara Kennaraskóla Islands, sem varð níræður 30. október sl. Það tóku 88 manns þátt í ferðinni og eftir góðar göngu- ferðir, bæði til fjalls og fjöru, í einstöku blíðskaparveðri á laug- ardeginum þar sem Jökullinn skartaði sínu fegursta í glampandi sól og stafalogni, var sameiginlegt borðhald Hallgrími til heiðurs um kvöldið. Þar voru margar ræður fluttar og mikið sungið og gam- anmál höfð i frammi. í þessum góða fagnaði dagaði uppi ræðustúf þann sem ég ætlaði Hallgrími i tilefni afmælisins. En mig langar til að bæta úr því með því að birta hann hér, svo Hallgrimur sjái að ég hafi hugsað til hans: Mig langar til að nota þetta tækifæri til þess að þakka Hall- grími Jónassyni áratuga löng og góð kynni. Það eru að vísu ekki nema 11 ár siðan ég kynntist manninum sjálfum. En það var hér á árum áður, löngu fyrir daga sjónvarpsins, að Ríkisútvarpið átti mikil ítök í hugum manna. Þegar Helgi Hjörvar las Bör Börsson og Gunn- ar Gunnarsson las Fjallkirkjuna sást varla maður á götum úti og kvikmyndahúsin stóðu tóm. En það var fleira gott i útvarp- inu þá en Bör Börsson og Fjall- kirkjan. Á öldum Ijósvakans barst þá einniginn i stofu til okkar fág- uð karlmannsrödd, sem talaði með norðlenskum hreim og því feg- ursta málfari sem hugsast gat. Þessi rödd flutti okkur ýmsan þjóðlegan fróðleik, las kvæði og sagði ferðasögur. Það voru fleiri en ég sem lögðu sig eftir því að vera heima og hlusta þegar von var á þessari rödd. það voru ferða- sögurnar sem heilluðu mig mest. Hálendið var þá enn lokað al- menningi, það vantaði vegi og far- kosti, og brautryðjendurnir á þessu sviði voru næstum hetjur I augum okkar hinna, því slíkar ferðir voru ekki taldar á allra færi. Röddin sagði svo vel frá, nátt- úrulýsingar voru svo frábærar, að manni fannst maður vera í för og sjá allt fyrir sér. Frásagnirnar voru kryddaðar kveðskap flytj- anda, yndislegar náttúrulýsingar og tækifærisvísur af ýmsu tagi. Og loksins, fyrir 11 árum, komst ég í kynni við manninn sem rödd- ina átti og sem hafði glatt mig svo oft með frásögnum sínum. Því þegar ég fór að ferðast með ferða- félögunum, og þá sérstaklega Úti- vist, var Hallgrímur Jónasson allt í einu kominn þar, annaðhvort sem fararstjóri eða sem þátttak- andi í ferðum, og þá alltaf fenginn til þess að segja okkur eitthvað í hljóðnemann, þegar við vorum í akstri. Mér er sérstaklega minnisstæð ein ferð. Við vorum á leið norður Kjalveg. Hallgrfmur sat við hljðnemann og sagði frá. Hann sagði okkur frá reið Giz- urar Þorvaldssonar norður Kjöl til fundar við Kolbein unga, sem kom að norðan. Þetta var síðsumars 1241. Þeir voru að leggja á ráðin um örlög Snorra Sturlusonar, sem Noregskonungur vildi losa sig við. Eftir þennan örlagaríka fund reið Gizur beint í Reykholt með sína menn og lét drepa Snorra. Hall- grímur lýsti þessari för svo að manni fannst maður sjá fyrir sér þessa skrautklæddu, vopnum búnu menn og bókstaflega heyra jódyn- inn og sjá rykmökkinn undan hóf- unum. Og maður skynjaði örlaga- þunga þessarar farar. Hann sagði okkur líka frá Reynistaðabræðrum og þeirra miklu helför fyrir 200 árum. Það lá við að maður fyndi kuldann nísta sig og vonleysið heltaka sig við frásögn hans. Síðan hefur Kjölur aldrei verið samur í mínum huga. En þannig var það alltaf þegar Hallgrímur sagði frá. Landið sem við fórum um varð lifandi fyrir augum okkar, saga þess blasti hvarvetna við. Við þekkjum öll kvæði Hall- gríms og vísur. Ófáar hefur hann ort beint til Útivistar. Þær eru sungnar í ferðum og á kvöldvök- um. Hallgrímur kemur til með að lifa með Útivist svo lengi sem sög- ur verða sagðar og sungið er í því góða félagi. Nú er Hallgrímur orðinn níræð- ur og mikið megum við öll vera þakklát fyrir, að drengurinn sem taka átti af fótinn skyldi fá að ráða því að það yrði ekki gert. Því það varð til þess að Hallgrími varð kleift að ferðast um fjöll og firn- indi þessa lands, ekki aðeins hon- um sjálfum til unaðar, heldur höf- um við öll fengið að njóta góðs af. Ég vil færa Hallgrími þakkir fyrir löng og góð kynni, fyrir allar þær mörgu stundir sem hann, bæði fyrr og síðar, hefur glatt mig með frásögnum sinum. Ég er fegin því að ég fékk um síðir að kynnast honum persónulega. Ég bið honum blessunar um ókomin ár. Eftirmáli: Hallgrímur Jónasson var yfir- kennari Kennaraskóla Islands og þekktur skólamaður. Hann var skáld og rithöfundur og eftir hann liggja margar bækur, bæði i bundnu og óbundnu máli. Hann var landsþekktur og metinn sem útvarpsmaður fyrir frásagnir sín- ar í þeim fjölmiðli. En síðast og ekki síst er hann þekktur sem ferðagarpur, fararstjóri og leið- sögumaður. Hallgrímur Jónasson ann landi sinu mjög. Hann hafði einhvern- tíma kastað fram eftirfarandi vísu: Vel af grjóti veðurbörðu, væri ég tengdur mínu landi, ef mér hlæði einhver vörðu, uppá miðjum Sprengisandi. Vinir Hallgríms og félagar í Útivist ákváðu að gera alvöru úr þessari vísu og reisa honum vörðu. Það var hafist handa i septem- ber 1981. En vegna ýmissa óvæntra atvika eins og oft vill verða í ferðum, í þessu tilviki að Kaldakvísl var ófær svo við urðum að gista i Veiðivötnum fyrstu nóttina, sem varð okkur mikil töf, og að auki festist billinn í ánni daginn eftir og varð þar margra klukkutíma töf, var varðan ekki fullbúinn fyrr en í ágúst 1982. Þá var hún vígð með mikilli viðhöfn. Hallgrímur hafði sjálfur valið henni stað á hárri sandöldu nokk- uð vestan við Fjórðungsvatn. Það má segja að hún standi á landinu miðju eða svo nálægt því sem hægt er að komast. Þaðan er afar víðsýnt og sést jafnvel Mælifell í Skagafirði ef bjart er til norðurs, en í Skagafirði er Hallgrímur fæddur og uppalinn. Það var sérkennileg tilfinning sem fylgdi því að vera viðstaddur þessa vígsluhátið. Veðrið var fremur kalt, en sæmilega bjart. Auðnin þarna er algjör, en um- kringd einhverjum þeim fegursta jökla- og fjallahring sem hugsast getur, þar sem Hofsjökull og Tungnafellsjökull eru í forsæti, og þar sem öræfavindurinn gnauðar látlaust í þeim fáu stráum sem þarna heyja lifsbaráttu sína. Hallgrímur klippti á silkiband i fánalitum sem bundið hafði verið um miðja vörðuna. Það voru haldnar ræður og sungið, m.a. Heyrið vella á heiðum hveri, sem er eitt af uppáhaldskvæðum Hall- gríms. Og þarna inni á miðju landi, þar sem Islands lag ymur i öllu sinu veldi, er Hallgrímur nú tengdur sínu landi með þessari ramm- byggðu vörðu, sem mun standa af sér öll veður um ókomna tið og halda uppi nafni hans, sem hoggið er í stein í miðri vörðunni: Hall- grímsvarða. Og þá kvað Hallgrimur: Vel úr grjóti veðurbörðu, er ég tengdur mínu landi, er mér hlóðu væna vörðu, vinir, uppá Sprengisandi. Myndin sem hér fylgir var tekin við vígslu Hallgrfmsvörðu. Lifðu heill, Hallgrímur, og hafðu þökk. Nanna Kaaber kristinn SIQHUNDSSOn HÁTÍÐARHUÓMLEIKAR í HÁSKÓLABÍÓI Laugardaginn 2. desember 1984 kl. 14:30 Jónas Ingimundarson leikur með á píanó Miðasala í Máskólabíói, Bókaverslun Sigfúsar Eymundssonar, Bókaverslun Lárusar Blöndal og í afgreiðslu Bókaklúbbs Arnar og Örlygs Kristinn Sigmundsson syngur lög afhinni nýju hljómplötu sinni og má þar nefna Ifjarlægð, Kósin, Fögur sem forðum, On the Road to Mandalay og ensK þýsk og ítölsk lög

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.