Morgunblaðið - 28.11.1984, Síða 43
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 28. NÓVEMBER 1984
43
nánast að vera borðliggjandi við
ríkjandi aðstæður, myndi slík
lausn ekki duga nema í mjög
skamman tíma, þar sem verð af-
ganga og vaxta er meira og minna
gengistryggt. Það er því krafa físk-
vinnslunnar að samfara verðlækkun
á íslensku krónunni komi til lækk-
unar á tilkostnaði. Það yrði gert með
lækkun á orku, rafmagni og olíu til
fiskvinnslunnar, auk þess sem fjár-
magnskostnaður yrði lækkaður. I
þessu sambandi má benda á að
þrátt fyrir hækkun á raforku til
álversins í Straumsvík greiðir
fiskvinnslan enn 6—10-falt hærra
raforkuverð.
Hér að framan hefur verið stikl-
að á stóru varðandi fiskvinnsluna
og þau skilyrði er hún býr við í
dag. Starfsemi Sambands fisk-
vinnslustöðvanna á árinu hefur
verið nátengd þeim málum er þar
hafa komið upp á hverjum tíma.
Tímabært er að litið sé ögn til
framtíðarinnar og reynt að átta
sig á hver skuli vera verkefni
okkar og verksvið á komandi ár-
um. Nýlega höfum við ráðið fram-
kvæmdastjóra í fullt starf og er
því eðlilegt að horft sé fram á veg-
inn í starfsemi okkar.
Má hugsa sér að skipta megin
viðfangsefnum þannig:
1. AUir afkomuútreikningar
hinna ýmsu greina verði settir í
tölvu. Kannaðir verði útreikn-
ingsmöguleikar hinna ýmsu
greina og samsetning þeirra til
nýtingar í áætlanagerð. Byggð-
ur verði upp sjálfstæður af-
komuútreikningur til að styðj-
ast við gagnvart Þjóðhags-
stofnun og verðlagsráði.
2. Gerð verði úttekt á kostnaðar-
þáttum fiskvinnslunnar t.d.
rafmagnskostnaði o.fl. Leitað
verði leiða til lækkunar á
kostnaði.
3. Gerður verði samanburður á
aðstöðu og afkomu fiskvinnslu
á íslandi og helstu samkeppn-
islöndum.
4. Fylgjast með lánamálum fisk-
vinnslunnar.
5. Gera átak til kynningar á störf-
um fiskvinnslunnar og þýðingu
hennar fyrir islenskt efna-
hagslíf.
6. Athugun á menntunar- og
fræðslumálum.
Eitt af megin verkefnum í allra
nánustu framtíð er að koma á fót
vísi að hagdeild fiskvinnslunnar.
Þar færi fram sjálfstætt mat á
stöðu hennar á hverjum tíma. Til
þess að þetta sé framkvæmanlegt
verða þau fiskvinnslufyrirtæki er
eiga aðild að SF að vera reiðubúin
til að láta af hendi nauðsynlegar
upplýsingar. Ætti öllum að vera
ljós nauðsyn þess að rétt mat á
afkomu fiskvinnslunnar liggi
fyrir.
Stöðugt ber að leita leiða til
lækkunar á tilkostnaði við fisk-
vinnslu. Nægir þar að nefna hátt
orkuverð, skatta o.fl. Er þetta ekki
síst nauðsynlegt við aðstæður
minnkandi afla. Nauðsynlegt er að
aflað sé upplýsinga um fiskvinnslu
í helstu samkeppnislöndum okkar.
Þannig að samanburður fáist m.a.
við hvaða skilyrði fiskvinnslan býr
í þessum löndum af hálfu hins
opinbera. Þetta á einnig við varð-
andi samanburð á lánskjörum í
samkeppnislöndunum.
Auk kynningar á störfum fisk-
vinnslunnar eigum við að hafa
forgöngu um að fylgjast með því
að þær upplýsingar er birtast í
fjölmiðlum á hverjum tíma séu
réttar og stuðli ekki að röngu
viðhorfi almennings til atvinnu-
greinarinnar eins og borið hefur
við. Þetta er raunar í samræmi við
ályktun fiskiþings. Þá eigum við
að hafa frumkvæði að uppbygg-
ingu menntunar- og fræðslumála
innan atvinnugreinarinnar sjálfr-
ar.
Umfjöllun þessi um viðfangs-
efni okkar er m.a. sett fram til
þess að hvetja til umræðu um
hlutverk og starfsvettvang sam-
taka okkar svo og sem hvatning til
að við tökum í auknum mæli þeim
verkefnum er varða atvinnugrein-
ina í heild.
Við eigum að vinna að aukinni
verkmenntun fólks í fiskvinnsl-
unni svo að nýting og gæðastuðull
hækki á framleiðslunni og fólkinu
sem að vinnur þessi lífsnauðsyn-
legu störf. Að lokum vil ég minna
á hvað staða okkar er sterk gagn-
vart þjóðarkerfinu. Við erum og
verðum með gjaldeyrisvarasjóð
þjóðarinnar innan veggja fisk-
vinnslustöðvanna, því þurfa stoðir
þar að vera sterkari en í „Bréfa-
Seðlabankanum".
Afganistan:
Eldflaugaárásir
andspymumanna
Mlht PakiaUa. 26. aónabcr. AP.
AFGANSKIR andspyrnumenn geróu
elddaugaárásir á nokkrar stöðvar afg-
anska stjórnarhersins í böfuðborginni
Kabúl á laugardag og sunnudag. Féllu
fjórir menn og sautján særðust. Rfkis-
útvarpið í Kabúl greindi frá þessu og
sagði andspyrnumennina hafa notað
„kínversk og bandarísk vopn til pess
að myrða óbreytta borgara**. TASS
flutti svipaða sögu í Moskvu.
Annars var heldur litið um skær-
ur f síðustu viku, en þó bárust þær
fregnir frá borginni Ghazni, að þrír
andspyrnumenn hefðu verið teknir
af lífi. Þeir voru teknir höndum eft-
ir að hafa verið í fyrirsátri um
nokkrar sovéska herflutningabfla.
Frelsuðu þeir nokkra fanga, en voru
svo gómaðir og skotnir á sunnudag.
fer hér fram með hæversku og
hógværð, án alls yfirlætis sem
sjálfsögð þjónusta.
Enginn er spurður. Enginn ávít-
aður. Fátt er einnig um kveðjur og
þakkir.
Ekki veit ég, hvort þetta var
einkafyrirtæki eða rekið á vegum
borgar og samfélags.
En eitt er víst, orð Meistarans
mikla ómuðu í vitund okkar, er
hann segir:
„Hungraður var ég, og þér gáfuð
mér að eta, þyrstur var ég, og þér
gáfuð mér að drekka, nakinn var
ég og þér klædduð mig, gestur var
ég og þér hýstuð mig.“
Og væri litið til fortíðar og
leyndarmála gestanna, „hinna
allslausu", sem leituðu þarna at-
hvarfs, mátti einnig vafalaust
bæta við sfðustu setningunum f
sögu guðspjallsins um góðverk
hversdagsins:
„Sjúkur var ég, og þér vitjuðuð
mín, í fangelsi var ég og þér kom-
uð til mín.“
Þarna virtist allt hugsað og
framkvæmt undir yfirskriftinni:
„Allt, sem þér viljið, að aðrir
menn geri yður, það skuluð þér
þeim gera.“
Og ekki síður:
„Allt, sem þér gjörið einum af
mínum minnstu bræðrum, það
gjörið þér mér.“
Þarna var allslausum skapað
frjálst athvarf i kærleika,
minnstu bræðrum miskunn veitt.
Þeir, sem drukku við „barinn“,
greiddu eitthvað fyrir sig. En öðr-
um var enginn reikningur réttur.
Nú spyr ég sem oft áður um
svipuð málefni, sem mjög vel hef-
ur verið tekið til framkvæmda:
Gæti Reykjavík ekki gert slíkt
„athvarf allslausra“ að fyrirmynd
hér, handa hinum mörgu, sem
eigra hér ráðvilltir um götur og
torg, og eru nú þegar farnir að
leggja sér til munns rusl úr sorp-
kössum götunnar, sem algjör oln-
bogabörn í stórborgum heims?
Slíkt ástand er vægast sagt lftt
til hróss eða heiðurs menningu ls-
lands. Þar virðist nú orðið flest
gert til að bæta úr böli hinna aum-
ustu? Og hér væri unnt að koma í
veg fyrir árásir og þjófnað.
Eg lít til baka, og sé nú þegar
stórvirki unnin. Því treysti ég
„Vernd“, SÁÁ og safnaðarfélögum
kirkjunnar til að skapa sllkt at-
hvarf áður en langt um lfður.
Gangi þessi samtök fram hönd f
hönd verður þarna bætt úr óðara
en varir. Öllum til sóma og mörg-
um til líknar og heilla.
Heill þvi samstarfi um alla
framtíð.
Reykjavík, 29. ág. 1984,
Árelíu8 Níelsson.
Þroskahjálp gefur út plötuna „Laufvindar“
Um 40 íslenzkir tónlistarmenn
gefa vinnu sína á hljómplötunni
f ÞESSARI viku kemur á markað ný
hljómplata, sem ber nafnið Laufvind-
ar og er gefin út af Landssamtökun-
um Þroskahjálp. Á plötunni koma
fram tæplega 40 íslenskir tónlistar-
menn, söngvarar og hljóðfæraleikarar
og er um að ræða einleik, einsöng,
strengjatríó, strengjakvartett, 12
manna strengjasveit og blandaðan
kór.
Einleikarar á plötunni eru: Einar
Grétar Sveinbjörnsson, Ásgeir H.
Steingrimsson, Jónas Dagbjartsson
og sr. Gunnar Björnsson og ein-
söngvarar: Anna Júlíanna Sveins-
dóttir, Elín Sigurvinsdóttir, Frið-
björn G. Jónsson og Halldór Vil-
helmsson. Strengjasveitin leikur
undir stjórn Þorvalds Steingrfms-
sonar.
Allir flytjendur á plötunni gefa
vinnu sína til styrktar þeim mál-
efnum, sem Þroskahjálp vinnur að,
en platan er gefin út í fjáröflunar-
skyni fyrir samtökin, auk þess að
verið er að koma á framfæri vand-
aðri og áheyrilegri tónlist. Plötu-
umslagið hannaði Sigrid Valtingoj-
er, myndlistarmaður.
Erfitt er að skipa i einn flokk
þeirri tónlist, sem Laufvindar hefur
að geyma, en e.t.v. má segja, að
annars vegar sé um að ræða þekkt
og vinsæl klassísk verk, t.d. Liebes-
leid eftir Kreisler, Aríu á G-streng
eftir Bach og Salut de Amore eftir
Elgar og hins vegar „andleg lög“, ef
svo má að orði komast, t.d. Heyr
himnasmiður eftir Þorkel Sigur-
björnsson og Jólasálm eftir Pál Is-
ólfsson. Verkin eru því bæði eftir
íslensk og erlend tónskáld og hafa
fæst þeirra komið út áður á
hljómplötu með íslenskum flytjend-
um; sum hafa reyndar aldrei verið
gefin út á plötu áður.
Landssamtökin Þroskahjálp, sem
standa að útgáfu þessarar plötu,
voru stofnuð 1976 í því skyni að
sameina í eina heild þau félög, sem
vinna að málefnum fatlaðra, eink-
um fatlaðra barna og vangefinna.
Eru nú í samtökunum 24 aðildarfé-
lög, sem starfa um land allt, bæði
„Elsku
litli grís“
Barnasaga frá MM
HJÁ Máli og menningu er komin út
barnabókin Elsku litli gris eftir Ulf
Nilsson með myndum eftir Evu Er-
iksson. Þórarinn Eldjárn þýddi.
í bókinni er sögð sagan af þvi
þegar fjölskylda í borg tekur að sér
nýfæddan grís og elur hann upp.
Grísinn reynist hinn skemmtileg-
asti félagi og tekur þátt i flestu sem
krakkarnir gera. En eins og oft vill
verða gleymist mannfólkinu að
ungviði vaxa úr grasi og fyrr en
foreldra- og styrktarfélög þeirra,
sem ekki geta barist fyrir hags-
munum sínum sjálfir og fagfélög
fólks, sem hefur sérhæft sig i
kennslu og þjálfun faltlaðra.
Efni plötunnar verður einnig selt
á snældum og sem fyrr segir kemur
platan (og snældan) á markað i
þessari viku og verður bæði seld i
hljómplötuverslunum og hús úr
húsi. Er óhætt að benda á þessa
plötu sem tilvalda jólagjöf til vina
og kunningja bæði hér heima og
erlendis.
(Préttatilkynning.)
vanr er elsku litli grisinn orðinn
geysistórt vandamálasvin. Hvað er
þá hægt að taka til bragðs?
Bókin er prentuð i Danmörku i
lit. en Prentstofa G. Benediktssonar
sá um setningu, umbrot og filmu-
vinnu. (FrétUtilkynning).
ÍSLENSKUR
HÚSBÚNAÐUR
Langholtsvegi 111 sími 686605
Úrval húsbúnaóar í háum
gœðafloklá