Morgunblaðið - 28.11.1984, Síða 49
MORGUNBLADIÐ, MIÐVIKUDAGUR 28. NÓVEMBER 1984
49
Víða komið við
í nýjasta H&H
NÝJANTA tölublað ritsins Hús og
hlbýli er nú komið á blaðsölusUði og
er það nokkrum blaðsíðum fleira en
venjulega eða yfir hundrað síður.
Víða er komið við: á heimili al-
múgafjölskyldu i Portúgal, Skíða-
skálanum í Hveradölum, kaffihús-
um i Paris, raðhúsi í Suðurhliðum
og á heimili þeirra hjónanna Jón-
asar Guðmundssonar stýrimanns
og Jóninu Jónsdóttur leikkonu, en
þau keyptu gamalt iðnaðarhús-
næði við Sólvallagötu og breyttu
því í íbúðarhúsnæði.
Af öðru efni blaðsins má nefna
viðtal við Harald V. Haraldsson
arkitekt um störf hans. Forstofur
eru teknar til umfjöllunar, rætt er
við höfund tveggja matreiðslu-
bóka og birtar nokkrar uppskriftir
úr bókunum, litast er um á erlend-
um húsgagnamarkaði og fyrsta
grein af þrem um gufuböð er birt i
þessu tölublaði H&H.
Þá má geta greinar um „neon“-
og „line-lite“-lýsingu, ræktun,
þrjár athyglisverðar bækur og
loks er myndskreytt viðtal við
reykviska konu, sem hefur verið
einstaklega afkastamikil ( hann-
yrðum.
Næsta H&H kemur út i janúar.
Útgefandi blaðsins er SAM-út-
gáfan og ritstjóri Þórarinn Jón
Magnússon.
(VrétUlilkjuÍB()
Myndasaga
fyrir börn
frá M og M
ÚT ER komin hjá Máli og menningu
myndabókin Sjáðu, Madditt, það
snjóar! eftir Astrid Lindgren og Ilon
Wikland. Þuríður Baxter þýddi.
Þetta er jólasaga og það er Beta
litla, systir Maddittar, sem er að-
alpersónan. Hún fær að fara i bæ-
inn með Madditt fyrir jólin til að
kaupa gjafir og það er ofsalega
gaman þangað til henni verður
það á að fá sér salíbunu á sleða
sem stansar rétt hjá henni: Sleð-
inn heldur alltof lengi áfram ...
hann fer meira að segja út úr
bænum og inn í skóginn og hrið-
ina ...
Bókin er litprentuð á ítaliu, en
Prentstofa G. Benediktssonar sá
um setningu og filmuvinnu.
(Kréiutilkjnning)
55% BÓNUS
AFÁBYRGÐAR
TRYGGINGU
STRAX EFTIR
5ÁR
Sjóvá vill verðlauna þá ökumenn
sem ha fa ekið tjónlaust samfellt í
5 ár. Á 6. ári hœkkar bónusinn í
55% af ábyrgðariðgjaldinu
OGENN £*£{%/
MEIRI 05 /0
BONUS
EFTIRIOÁR
þegar ekið hefur verið tjónlaust
samfellt í 10 ár hœkkar bónusinn
í 65%. Sá bónus stendur meðan
ekið er tjónlaust. Þetta er gott og
sanngjarnt boð fyrir þá sem aka
varlega.
Tjónlaus akstur hjá öðrum vátr-
yggingarfélögum kemur þér tii
góða hjá okkur. . . Það munar
um minna.
Hœgt er að flytja bifreiðartrygg-
ingu til okkar sé gengið frá því
fyrir 1. desember.
Allar upplýsingar gefnar hjá
Sjóvá í síma 82500 og hjá um-
boðsmönnum
w w
SJOVA TRYGGT ER VELTRYGGT
SUÐURLANDSBRAUT 4 SÍMI 82500
Umboösmenn um allt land