Morgunblaðið - 28.11.1984, Síða 50
50
MORGUNBLAÐIÐ, MIDVIKUDAGUR 28. NÓVEMBER 1984
fclk í
fréttum
Tvær
plötur
frá
Mezzo-
forte
Hljómsveitin Mezzoforte hefur í mörgu að snúast þessa dagana en um þessar
mundir eru að koma á markað frá henni tvær plötur, lítil plata, sem heitir
„Take Off“ og önnur stór, „Rising". í sumar sem leið fóru þeir í hljómleikaferð um
Sviss og Norðurlönd og kom þá best í ljós hve mikilla vinsælda þeir njóta. Eftir
áramótin hyggja þeir svo á hljómleikaferð um Evrópu. Þeir félagarnir í Mezzo-
forte, Friðrik Karlsson, Jóhann Ásmundsson, Gunnlaugur Briem og Eyþór Gunn-
arsson, hafa verið með annan fótinn í Englandi þar sem þeir hafa haft sitt annað
aðsetur en eru nú komnir heim í bili. í lítilli frásögn hér á síðunni fyrir nokkru,
sem þýdd var upp úr dönsku blaði, var sagt, að ástæðan fyrir heimkomunni væri
skattamálin en það er úr lausu lofti gripið. Ollu mestu um nokkrir erfiðleikar með
atvinnuleyfi ytra en úr þeim málum er nú að rætast.
HAFSTEINN HAFLIÐASON
GARÐYRKJUMAÐUR
Me6
garðyrkju-
námskeið
á Kanarí
Sextán ára
gamall
lögreglustjóri
+ Bryan Zimmerman er aöeins 16
ára en þrátt fyrir þaö er hann lög-
regiustjóri í heimabæ sinum, Crabb
River í Texas. Var kosiö í embættiö i
fyrrahaust og þá datt Bryan í hug aö
bjóöa sig fram og náöi kjöri öllum til
mikillar furðu og ekki síst honum
sjáifum. Þannig var, aö bæjarbúum
fannst svo sniöugt af Bryan aö
bjóöa sig fram, aö þeir kusu hann
margir hálfvegis i grfni en þegar taliö
var upp úr kjörkassanum reyndust
grínistarnir vera i meirihluta. Nú fyrir
nokkru var Bryan í París á heims-
ráöstefnu sveitarstjórnarmanna og
aö sjálfsögöu var hann þeirra lang-
yngstur.
Sérstök
hártíska
[JJr rætt er um Amer-
Cíku má oft heyra
viðkvæðið: „Það má nú
allt finna í Ameríku."
Og það á svo sannar-
lega við í þessu tilfelli.
Dana Booker, 14 ára, á
myndinni hefur páfa-
gaukinn sinn inni í
hárinu sínu sem er fag-
lega greitt sem fugla-
búr. Henni finnst þetta
mjög skemmtileg hár-
greiðsla en notar hana
aðeins við sérstök
tækifæri, afmæli,
veisiur, rokktónleika
o.s.frv. Á hinni mynd-
inni má sjá Atilu og
Desiree, en þau nota
þessa „fánagreiðslu"
alltaf daglega. Þegar
ólympíuleikarnir fóru
fram nú á þessu ári í
Bandaríkjunum
skreyttu þau hárið með
fánum landanna er
tóku þátt í leikunum.
„Fólki finnst þetta
kannski skrítið en
okkur líður vel með
greiðsluna og viljum
ekki vera neitt öðru-
vísi,“ sögðu þau.
Atila og D«*irre.
Perky
Dana
Brooker
14 ára
Það er ýmislegt sem landinn getur sér til
gamans gert þegar farið er utan. Nú er
sú nýjung upp sprottin fyrir íslendinga þá
sem leggja vilja leið sina til Kararieyja eftir
jólin að Hafsteinn Hafliðason garðyrkjumað-
ur hyggst halda námskeið i garðyrkju þar um
þriggja vikna skeið. Blm. hafði samband við
Hafstein og spurði hvernig hugmyndin væri
til komin. „Jú, það er svo kalt hérna á veturna
svo okkur datt í hug að bjóða fólki sem fer
kannski ekki í þessar hefðbundnu sólarlanda-
ferðir upp á svona námskeið i sólinni og góða
veðrinu. Meiningin er ekki að kenna fólki
garðyrkju á Kanarí þó þar sé að finna mikinn
grasagarð með þykkblöðungum og kaktusum
sem við komum til með að skoða, heldur
kenna fólki það sem það vill læra um íslenska
garðyrkju. Námskeiðið verður i rabbformi og
stendur yfir í þrjár vikur frá byrjun janúar.
Þetta er í rauninni ekkert dýrara fyrir fólk að
skella sér til Kanari t.d. utan af landi sem
hefði annars þurft að halda sér uppi á hóteli i
bænum með fæði.
Priscilla
Presley
og fjölskylda
Priscilla Presley, fyrrverandi eiginkona Elvis
heitins Presley, sem leikur um þessar mundir
ástkonu Bobbys i Dallas, fékkst fyrir skömmu til að
láta mynda sig með fjölskyldu sinni. Á myndinni má
frá vinstri sjá Michael Edwards unnusta hennar í
fjöldamörg ár, föður hennar, Joseph Beaulieu, Pris-
cillu sjálfa, móður hennar, Ann, og bróður, Jeff.