Morgunblaðið - 18.12.1984, Blaðsíða 70
70
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 18j DBSEMBER 1984
t
Maöurinn minn og faöir okkar,
JÓHANNJÓHANNESSON,
fyrrv. bankafulltrúi,
Melhaga 10,
andaöist 15. desember sl.
Sigurbjörg Siggeírsdóttir,
Anna Sigrföur Jóhannsdóttir,
Valur Jóhannsson,
Örn Jóhannsson.
t
Eiginkona min og móöir okkar,
ELÍN KRISTJÁNSDÓTTIR,
Blönduhliö 22,
andaöist i Landspitalanum 15. desember.
Fyrir hönd vandamanna.
Jóhannes Hannesson
og synir.
t
Móöir min, tengdamóöir og amma,
KRISTÍN JÓSEFSDÓTTIR,
lést á Elli- og hjúkrunarheimilinu Grund iaugardaginn 15. desember.
Vilberg S. Helgason, Margrét Guöjónsdóttir,
Elsa K. Vilbergsdóttir, Guðjón S. Vilbergsson.
t Móöir okkar,
STEINUNN GUÐMUNDSDÓTTIR
frá Svinanesi,
andaöist á Hrafnistu þann 14. desember. Gunnar Helgason, Sæmundur Helgason.
Vinkona okkar,
SIGRÍÐUR GUÐJÓNSDÓTTIR,
Furugeröi 1,
áöur Vifilsgötu 7,
lést i Landspltalanum 16. desember.
Bryndls Magnúsdóttir,
Magnús Geirsson,
Sigurbjörg Magnúsdóttir.
t
Eiginkona min, móöir okkar, tengdamóöir og amma,
JÓHANNA EYJÓLFSDÓTTIR,
Bárugötu 16,
veröur jarösungin frá Fossvogskirkju miövikudaginn 19. desember
kl. 15.00.
Valdimar Guömundsson,
Valdimar Valdimarsson, Þorgeröur Einarsdóttir,
Eyjólfur Valdimarsson, Hanna Unnsteinsdóttir,
Helga Valdimarsdóttir, Óskar Alfreösson,
og barnabðrn.
t
Móöir min og tengdamóöir,
SIGRÍÐUR ÞÓRÐARDÓTTIR,
Skálholti 4, Ólafsvlk,
veröur jarösungin i dag, þriöjudaginn 18. desember, kl. 14.00 frá
Ólafsvíkurkirkju.
Herdís Hervinsdóttir, Vigfús Vigfússon.
t
Faöir okkar,
KARL ALBERTSSON HIRST,
Undralandi, Reykjavfk,
veröur jarösunginn frá Fossvogskapellu miövikudaginn 19.
desember nk. og hefst útförin kl. 13.30.
Fyrir hönd vandamanna,
Karl Hirst,
Stefán Hirst.
Minning:
Hannibál Jóhannes
Guðmundsson Han-
hóli í Bolungarvík
Fæddur 24. apríl 1907
Dáinn 9. desember 1984
Ætíð er það svo þegar „sláttu-
maðurinn slyngi“ heggur skarð í
raðir okkar nánustu, að okkur
verður hverft við jafnvel þótt að-
dragandinn hafi verið langur og
endalokin auðsæ. Þannig var það
þegar okkur bárust þau tíðindi að
Hannibal Guðmundsson á Han-
hóli væri allur. Hann hafði átt við
mikla vanheilsu að stríða hin síð-
ari ár og orðið fyrir hverju áfall-
inu á fætur öðru en náð sér furðu-
vel á milli.
Hannibal var fæddur í Bolung-
arvík 24. apríl 1907. Hans
bernskuheimili stóð í Bolungarvík
hjá foreldrum sínum. Ungur varð
hann að þola þá þungu raun að
missa foreldra sína með stuttu
millibili.
Frá Bolungarvík fór Hannibal
inn í ísafjarðardjúp og er þar
nokkur ár í vinnumennsku. Hann
hóf búskap í Þernuvík í Ögur-
hreppi vorið 1928 og bjó Guð-
mundur bróðir hans með honum
þar í nokkur ár.
Forlögin úthlutuðu honum stór-
um vinning í happdrætti lífsins,
þegar ung og glæsileg bóndadóttir
flutti til hans. Hann gekk að eiga
Þorsteinu Kristjönu Jónsdóttur
frá Birnustöðum í Ögurhreppi þ. 9.
des. 1937 og bar andlát hans upp á
þann dag 47 árum síðar. Þorsteina
lifir mann sinn og hefur staðið við
hlið hans og deilt með honum gleði
og erfiðleikum. Aldrei hefur hún
heyrst æðrast út af neinu og í
veikindum hans var hún honum
ómetanleg og sást þá best hversu
mikils hann mat hana. Þau bjuggu
í Þernuvík til vorsins 1944.
Þetta sama vor fréttir Hannibal
að laus sé til ábúðar jörðin Han-
hóll í Bolungarvfk. Hannibal brá
þá fyrir sig betri fætinum enda
frár á fæti, þrekmikill og grann-
vaxinn. Það er ekki ótrúlegt að
hann hafi hlaupið meirihluta leið-
arinnar, sem er þó töluvert löng og
yfir fjöll að fara.
Síðar þetta sama vor er fjöl-
skyldan flutt á báti út í Bolung-
arvik og á Hanhóli hefur heimili
þeirra hjóna staðið síðan.
Þau Hannibal og Steina, eins og
hún er oftast kölluð, eignuðust 15
börn, sem öll eru á lifi. Þau hafa
öll stofnað sín heimili af miklum
dugnaði og eru búsett i öllum
iandsfjórðungum. Tvö eru enn bú-
sett vestra, Jóhann sem ekið hefur
við búi foreldra sinna og Sigrún,
sem verið hefur ómetanleg stoð
foreldra sinna nú síðustu mánuð-
ina.
Það gefur augaleið að ala upp
svo stóran barnahóp hefur út-
heimt mikla vinnu. Hannibal var
ósérhlifinn og dugmikill maður.
Hann vann af eldmóði allt sem
hann gerði og kunni ekki að fara
sér hægt. Það hefur ekki alltaf
verið langur hvíldartími, sem
hann naut, þvi oft var hann búinn
að vinna hátt i dagsverk, þegar
mætt var til vinnu niður á Malir
að morgni dags um sláttinn. Ekki
var vinnudegi heldur lokið þegar
heim var komið að kvöldi. Hann
vann hverja stund við að draga
björg í búið og hans hógværa,
eljusama kona tók þar við og gerði
gott úr öllum aðföngum.
Þegar þau Hannibal fluttu að
Hanhóli voru börnin 7 og það elsta
7 ára. Eitt barnanna, Lilja, varð
eftir á Birnustöðum hjá foreídrum
Steinu. Hún ílengdist þar og ólst
þar upp. Ekki mun hafa verið
mjög vistlegt að setjast að í þau
húsakynni, sem voru á Hanhóli.
Ungu hjónin hófust strax handa
að gera húsakynnin hlýleg og
þangað hefur alltaf verið notalegt
að koma. Þar hefur jafnan verið
mannmargt og eiga barnabörnin
góðar minningar þaðan, einkan-
lega þau sem dvalið hafa þar
sumarlangt, en þau eru talsvert
mörg. Á sumrum hafa oft setið 20
manns og fleiri við matborðið,
alltaf nóg að borða og glatt á
hjalla. Húsið virtist líka stækka
eftir þörfum og alltaf fór vel um
alla næturgesti.
Hannibal hafði gaman af lestri
góðra bóka en tíminn var alltaf
naumur til tómstunda þar til nú
síðari ár. Hann fylgdist vel með
því sem var efst á baugi hverju
sinni og horfði mikið á sjónvarp
og hlustaði á útvarp. Með honum
er genginn einn af þessum
mönnum sem sigruðust á vanda-
málum líðandi stundar án þess að
kvarta eða kveina.
Að leiðarlokum viljum við
þakka Hannibal það sem hann var
okkur. Steina okkar og aðrir sem
eiga um sárt að binda, megi Guð
styrkja ykkur. Blessuð sé minning
Hannibals Guðmundssonar.
Nokkur tengdabörn.
Kvöldið 9. þ.m. hringdi Lilja
frænka mín frá Selfossi, eins og
hún hafði gert oft áður, af um-
hyggju fyrir mér og líðan minni.
Að þessu sinni var erindið þó ann-
að, faðir hennar, Hannibal Guð-
mundsson, var dáinn. Hann hafði
látist þá um daginn eftir stutta
legu. Mig setti hljóða, þetta var
þriðja systkinið sem kvaddi þenn-
an heim á tæpu ári. Enn ein hetja
hversdagsins var horfin.
Hannibal Jóhannes Guð-
mundsson, eins og hann hét fullu
nafni eftir afa sínum og langafa
að Kleifum í Skötufirði, var fædd-
ur í Bolungarvík 24. apríl 1907.
Móðir hans, Guðríður Hannibals-
dóttir, var fædd að Neðri-Bakka í
Langadal Nauteyrarhreppi (áður
t
Þökkum auösynda samúö viö andlát og útför
HARALDAR Á. SIGURÐSSONAR.
GuArún Ólafta Sigurösson,
Þórdis Sigurösson Aikman, John Aikman,
Inger Anna Aikman, Haraldur Asgeir Aikman,
Skorri Andrew Aikman.
t
Þökkum auösýnda samúö viö andlát og útför
ÁRNÝJAR ÓLAFSDÓTTUR,
Borgarvegí 9,
Njarövík.
Eirlkur Þorsteinsson,
Erla Eirfksdóttir, Guömundur Kristjánsson,
Gyöa Eirfksdóttir, Meinert Nilsen,
Þorsteinn Eirfksson, Hanna Hersveinsdóttir,
Siguröur Eírfksson
og barnabörn.
Birting
afmœlis- og
minningár-
greina
ATHYGLI skal vakin á því, að
afmælis- og minningargreinar
verða að berast blaðinu með góð-
um fyrirvara. Þannig verður
grein, sem birtast á í miðviku-
dagsblaði, að berast í síðasta lagi
fyrir hádegi á mánudag og hlið-
stætt með greinar aðra daga. í
tninningargreinum skal hinn
látni ekki ávarpaður. Þess skal
einnig getið, af marggefnu til-
efni, að frumort Ijóð um hinn
látna eru ekki birt á minningar-
orðasíðum Morgunblaðsins.
Handrit þurfa að vera vélrituð og
með góðu línubili.
t
Viö þökkum innilega öllum þeim sem sýndu okkur hlýhug viö andlát
og útför
ÖGMUNDAR HANNESSONAR,
Stóru-Sandvfk.
Hrefna Gfsladóttir,
Gfsli Ögmundsson, Marla M. Jónsdóttir,
Magnús Ógmundsson, Anna K. Siguröardóttir,
Ari Páll ögmundsson, Rósa J. Guömundsdóttir,
og barnabörn.
Skilti á leiöi.
Útvegum krossa
ef óskað er.
Sendum
í póstkröfu.
Tekið á móti pöntunum
alla daga
I sima 54833.
/xm
Dalshrauni 20
Halnarfirdi
Simi54833