Morgunblaðið - 18.12.1984, Blaðsíða 60
60
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 18. DESEMBER 1984
\
Miðbæjarskipulag Mosfells-
hrepps kynnt á almennum fundi
Varmá Mosf. í desember.
HREPPSNEFND Mosfellshrepps
boðaði til almenns fundar um
hreppsmál í Hlégarði sl. sunnudag þ.
25. nóvember kl. 16.00. Oddvitinn
Magnús Sigsteinsson setti fundinn
og kynnti fundarefni en tilnefndi
síðan Vigfús Aðalsteinsson sem
fundarstjóra en Halldór Frímanns-
son og Sigurð Hreiðar sem fundar-
ritara.
Framsögu á fundinum fluttu
þeir Magnús Sigsteinsson og sveit-
arstjórinn Páll Guðjónsson en í
máli oddvita kom m.a. fram um
gang mála við skipulag hreppsins.
Unnið hefir verið að þeim málum
með vaxandi þunga, einkum frá
1978 er fram fór hugmyndasam-
keppni um aðalskipulag Mos-
fellshrepps. Á síðastliðnu ári var
aðalskipulagið síðan staðfest og
hefir reynst koma að góðu haldi
um áframhald þessara mála. Á
grundvelli þess var stofnað til
samkeppni um deiliskipulag að
miðbæjarsvæði sl. vor og bárust 9
úrlausnir en fyrstu verðlaun hlutu
Guðrún Jónsdóttir og samstarfs-
hópur hennar. Samið var við þessa
aðila og um úrvinnslu tillagna
þeirra og er það verk á góðum
rekspöl.
Miðbæjarsvæðið var fyrirfram
afmarkað í nánd við gatnamót
Þverholts og Vesturlandsvegar og
stefnt að því að skipta svæðinu í
áfanga. Nú liggja fyrir nánar út-
færðar tillögur við verslunarhús
Hengils sf. og vestur með Þver-
holti. Þar er gert ráð fyrir að
byggðin verði blönduð verslunar-,
smáiðnaðar- og íbúðarhúsnæði
með yfirbyggðu torgi og mark-
aðhsúsi sem nefnt hefir verið
„Grænigarður“. Tillögur þessar
kynnti oddviti rækilega á fundin-
um og upplýsti að nú þegar hefðu
allnokkrar fyrirspurnir borist og
reyndar einnig umsóknir um að
byggja á svæðinu samkvæmt þess-
um tillögum. Lögð er mikil áhersla
á að tengja torgið og byggðina við
klapparsvæði að vestanverðu með
gróður- og verslunarhúsum, s.s.
apóteki og fleiri stofnunum. Urð-
irnar, en það er örnefni þessa
opna klapparsvæðis eru friðaðar
en þar er gert ráð fyrir göngustíg-
um og ýmiss konar gróðri. Hvað
varðar aukningu á íbúðabyggð er
nú farið hægar í sakirnar en áður
var. Því er stefnt að því að fólks-
fjölgun verði 2—3% á ári og er
það veruleg lækkun frá fyrri tíð er
»
ETTT GETUR ÞÚ BÓKAD!
-ca
K!
-■
4*
r/o
’O
'o
Réttar vörur á réttum stað
Bókabúö
-MÁLS & MENNINGAR./
LAUGAVEG118-101 REYKJAVÍK SÍMAR: 24240 - 24242
fólksfjölgun gat komist yfir 20% á
ári. Eins og horfir nú verður
væntanlega aukin íbúðabyggð suð-
ur á bóginn í átt að Reykjalundi
og Reykjahverfi, en þessar áætl-
anir eru tengdar framkvæmdum á
skolpleiðslu sem fyrirhuguð
er af þessu svæði. Stærstu aðil-
arnir eru í sambandi við núver-
andi skolp en nokkuð vantar á að
öll byggðin sé tengd. Hins vegar
eru öll hús á þessu svæði tengd
rotþróm þannig að svo til allt
skolp sem kemur frá byggðinni fer
í rotþrær og er ástandið í þessum
efnum betra hér en víðast annars
staðar, í nágrannabyggðarlögun-
um. Þá hefir hreppsnefnd áætlun
um byggingu iðngarða til þess að
gefa þeim sem stunda ýmiss konar
smáiðnað eða handverk á ýmsum
stöðum í hreppnum góða aðstöðu
en þessi hús er hugmyndin að
reisa í iðnaðarhverfinu að Lága-
felli. Það iðnaðarhverfi hefir verið
i uppbyggingu nokkur síðastliðin
ár en framkvæmdum miðað frem-
ur hægt vegna mikils framboðs á
svipuðum lóðum í nágrannasveit-
arfélögunum með mjög góðum
kjörum. Þetta svæði er mjög vel
staðsett við Vesturlandsveginn og
samgöngur við þéttbýlið í Reykja-
vík og Mosfellssveit. Þá eru skil-
málar um greiðslu þarna verulega
hagstæðir og gatnagerðargjöldum
stillt mjög í hóf svo sem önnur
fyrirgreiðsla.
Þá kom oddviti nokkuð inn á
fjárhagsvanda sem hefir steðjað
að sveitarfélögum á síðustu árum
en hreppsnefnd hefir brugðist við
því á þann hátt að hafa fjárhags-
nefnd starfandi sem fer ofan í
sauma fyrirtækja hreppsins og
rekstur hans í heild. Öll útgjöld
hafa verið skorin niður til hins
ýtrasta og hefir þetta borið veru-
legan árangur þannig að nú virðist
rýmra um fjárhaginn en áður var
enda fjárhagsástand þjóðarinnar
annað og betra en áður. Oddviti
lauk máli sínu með því að vísa
frekari umræðum um fjárreiður
hreppsins til sveitarstjóra.
Páll Guðjónsson flutti síðan í
stuttu máli ítarlega skýrslu um
fjármál og rekstur sem hann
áréttaði með töflum er birtust á
skjánum um leið og talað var.
Sveitarstjórinn ræddi nánari
fjárhagsáætlun 1984 en nettó út-
gjöld til hinna ýmsu málaflokka
sýndu að þar ber hæst fræðslu-
málin eða 15,9% af útgjöldum en
almannatryggingar og félagsmál-
in voru upp á 14,5%. Fjármagns-
kostnaður nam 7,4% og stjórn
sveitarfélagsins 5,5%. Áætlaðar
tekjur 1984 sýndu að útsvör gefa
54.7% teksa. fasteignaakattur
13,4%, aðstöðugjöld 7,5%. Stærsti
útgjaldaliður sveitarfélagsins er
gatna- og holræsagjöld er nema
9.2 millj. króna, nýtt barnaheimili
2.2 milljónir, stofnbúnaður ýmis
konar 1,5 millj., skipulagsmálin
1.3 millj. og búningsklefar við
iþróttahús 1,2 milljónum en aðrir
liðir eru lægri en tíðkast í ná-
grannasveitarfélögunum enda
stefnan að stilla skattakröfum
mjög í hóf þar sem flestir íbúanna
hafa verið að koma þaki yfir sig og
sína á undanförnum árum.
Að loknum framsöguræðum
hófust umræður og fyrirspurnir
um hin margvíslegustu mál svo
sem samgöngumál, miðbæjar-
skipulag og um fjölda bílastæða,
dagvistunarmál, velferðarmál
fyrir aldraða, útivistarsvæði og
aðstöðu til iðkana alls konar
íþrótta, skógræktar og fegrun-
armál og margt fleira. Oddviti og
sveitarstjóri svöruðu spurningum
og gerðu málum allgóð skil f um-
ræðunum. 1 ræktunar- og fegrun-
armálum kom fram að hrepps-
nefnd mun boða til fundar um
skógræktarmál nk. laugardag
þann 1. desember með þátttöku
umhverfis- og fegrunarnefndar,
skipulagsnefndar, skógræktarfé-
lags Mosfellshr., Sambands sv.f. á
höfuðborgarsvæðinu og fleiri að-
ila. Á þennan fund eru menn
hvattir til þess að mæta svo takast
megi að gera skipulegt og gott
átak í þessum málum í hreppnum.
Fundurinn stóð í um 3 tfma og
þótti takast vel.
Fréttaritari