Morgunblaðið - 18.12.1984, Blaðsíða 30
30
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIDJUDAGUR 18. DESEMBER 1984
Z. commodore
HEIMILISTÖLVUR
Commodore 64 er alvöru tölva meö alvörulyklaboröi meö 64 K ROM — minni — 20 K ROM — minni.
Hún hefur óviójafnanlega tónliatarhœflleika og stórkostlega grafík. Hún leikur sér aö ritvinnslu. gagnavinnslu og hverskyns alvóru
tölvuvinnslu en býöur jafnframt uppá skemmtilegustu og f jölbreytilegustu leikl sem völ er á.
Commodore 64 er góöur vinur sem fjölskyldan getur sameinast um.
Hún er einfaldlega sigurvegari. enda mest selda heimilistölvan í veröldinni í dag.
í allar geróir bíla
Höfum fengið frábærlega falleg sætaáklæði í allar gerðir bíla.
Margir litir.
Einnig hvít áklæði á höfuðpúða og laus bílteppi.
Er ekki tilvalið að kíkja á þetta fyrir jólin
olis
STÖÐVARNAR
Horgunbladið/Gfsli ClfarsBon.
faaTirði í desember.
Það óhapp varð á Skutulsfjarðarbraut neðan Holtahverfis nýlega að
bifreið sem var á leið inn á flugvöll rann til í mikílli hálku með þeim
afleiðingum að hún lenti á Ijósastaur. Eins og sjá má á myndinni gekk
staurinn nánast inn í miðja bifreiðina. Ökumaðurinn var einn í bifreið-
inni. Hann slasaðist nokkuð og festist í flakinu, en björgunarmönnum
tókst þó eftir nokkra stund að ná honum út.
Úr dagbók-
um Einars
Magnússonar
ALMENNA bókafélagið hefur sent frá
sér bókina Úr dagbókum Einars Magg.
í frétt frá útgefanda segir:
„Dagbækur Einars Magnússonar,
fyrrverandi rektors Menntaskólans i
Reykjavík, hefjast nú á fermingar-
daginn hans 1914. Við fylgjum hon-
um síðan gegnum Menntaskólann og
á tveggja ára harla ævintýralegri
ferð um Evrópu 1920—1922.
Frásögnin einkennist af fjöri og
óvenjulegri einlægni og svo er efnið
sjálft bæði sérstætt og ævintýralegt.
Einar lýsir fádæma vel lífi og
kjörum fólks í Reykjavík á þessum
tíma, barnslega fagurri trú sinni og
jafnframt mannlegum breyskleika.
Líf hans sem nemanda í Mennta-
skólanum var oft nokkuð fjörugt, og
munu nemendur hans við þessa
stofnun hafa gaman af lestrinum og
sjá lærimeistara sinn í öðru og enn
skemmtilegra ljósi en áöur. Og
reynsla Einars á feröalaginu er lyg-
inni líkust. Fasistar á Italfu ætla að
ganga af honum dauðum. Hann er á
„bísanum" f Napolí, Konstantínopel
og Aþenu mánuðum saman, og hann
dvelst meðal Hafnarstúdenta, deilir
/
með þeim kjörum og býsna skraut-
legu lfferni. Öllu er lýst eins og það
kemur hraustum íslenskum stúdent
fyrir sjónir um leið og það gerist.
Slíkt er eðli dagbóka."
Eirikur Hreinn Finnbogason hef-
ur búið bókina til prentunar og ritar
formálsorð um höfund hennar.
Bókin er 411 bls. að stærð og eru
þá taldar með skrár um mannanöfn
og staðanöfn. Hún er sett i Prent-
smiðjunni Odda, prentuð i Prent-
smiðju Árna Valdemarssonar og
bundin i Félagsbókbandinu.
Litli liósálfurinn
hefur sannað ágætí sitt á íslandí.
Lltll IJósálfurlnn gefur þér góöa birtu við bóklestur án
þess að trufla aðra, frábær í öll ferðalög og sumarbústað-
inn. Kjörin gjöf.
Lltli IJósðlfurlnn er léttur og handhægur, getur jafnt
notað rafhlöður og 220 volta rafstraum. Honum fylgir
aukapera, hvlki fyrir rafhlöður og straumbreytir. Einnig
fást geymslutöskur.
Litll IJósálfurlnn fæst í næstu bóka- og gjafavöruverslun
og í Borgartúni 22.
HILDA
Borgartuni 22, Reykjavik