Morgunblaðið - 18.12.1984, Blaðsíða 49

Morgunblaðið - 18.12.1984, Blaðsíða 49
49 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 18. DESEMBER 1984 Til vinstri á þessari brjóstaröntgenmynd sést hvítur blettur f brjóstinu. Blettur þessi viróist vera krabbamein. „Skylda Krabbameins- félagsins að veita bestu þjónustu sem völ er á“ — segir G. Snorri Ingimarsson læknir Þegar vísbending um krabbamein hefur komið fram, þi er tekin mynd af þeim stað, sem meinið er á. Meinið er staðsett nákvæmlega, því í ramma þeim, er sést yfir brjóstinu, er nákvæmur kvarði. KRABBAMEINSFÉLAGI jslands var laugardaginn 8. desember færð vegleg gjöf frá Kauða krossi fslands. l>að er röntgentæki til greiningar á brjósta- krabbameini og er andvirði gjafarinnar um 2,5 milljónir króna. Dr. G. Snorri Ingimarsson, for- stjóri Krabbameinsfélags íslands, sagði í viðtali við blaðamann Morgunblaðsins, að tæki þetta væri það fullkomnasta sem nú væri völ á. „Þetta tæki gefur möguleika á að greina hnúta í brjóstum, sem erfitt væri að finna við þreifingu og í sumum tilvikum verður nú mögulegt að gera það takmarkaðar aðgerðir að konan haldi brjóstinu," sagði Snorri. Krabbamein í brjósti er lang- algengasta tegund krabbameins hjá konum hér á landi eins og í flestum vestrænum löndum. Nú er talið, að þrettánda hver íslensk kona fái brjóstakrabbamein. Ár- lega finnast 80—90 ný tilfelli og 20—30 konur látast árlega af völd- um þessa sjúkdóms. Krabbameinsfélag íslands hóf skipulega leit að leghálskrabba- meini árið 1964 og hefur félagið fengið alþjóðlega viðurkenningu fyrir árangur sinn á því sviði. Skipuleg leit að brjóstakrabba- meini hófst árið 1973. Brjóstin eru þreifuð og í völdum tilvikum eru konurnar sendar í nánari rann- sókn, m.a. röntgenmyndun. Heil- brigðisráðherra skipaði nefnd árið 1981, sem hafði það hlutverk að kanna grundvöll skipulegrar leitar að brjóstakrabbameini með brjóstaröntgenmyndatöku áliti í sumar og mælti með, að skoða beri allar islenskar konur á aldrinum frá fertugu til sjötugs annað hvert ár. Um miðjan april var haldin al- þjóðleg ráðstefna hér á landi um leit að brjóstakrabbameini. Þar komu saman sérfræðingar frá mörgum löndum og ræddu um þá reynslu, sem fengist hefur af slík- um rannsóknum erlendis. I niður- stöðum ráðstefnunnar segir m.a.: „Margt bendir til þess, að með skipulagðri leit meðal heilbrigðra kvenna, þar sem beitt er brjósta- myndatöku og skoðun, megi lækka dánartíðni úr brjóstakrabbameini, a.m.k. meðal kvenna yfir fimmt- ugt. Tæp 40% lækkun á dánartíðni fyrstu fimm árin kom í ljós í stórri bandarískri könnun.“ Enn Á þessari röntgenmynd sést hvernig holnál er stungið í meinið og tekið úr þvf sýni. Þegar staðfest er að um krabbamein er að ræða er litarefni sprautað í meinið og er þá auðveldara fyrir skurðlækna að finna meinið og fjarlægja það. G. Snorri Ingimarsson forstjóri Krabbameinsfélags íslands. fremur segir: „Bæði með brjósta- myndatöku og skoðun er hægt að greina brjóstakrabbamein i ein- kennalausum konum yfir fertugt, en myndataka er næmari grein- ingaraðferð við hópskoðun heldur en þreifing ein sér. Niðurstöður bandarísku könnunarinnar benda til þess, að með skipulögðum rann- sóknum sé unnt að greina krabba- mein í brjósti 12—18 mánuðum fyrr en með hefðbundnum aðferð- um.“ Fjöldi kvenna, sem greinist með brjóstakrabbamein, hefur aukist með hverju árinu, en dánartíðni hefur að sama skapi minnkað. Á árunum 1956-1960 lifðu 85% þeirra kvenna, sem greindust með brjóstakrabbamein lengur en eitt ár og tæpur helmingur lifði lengur en fimm ár. Tuttugu árum síðar lifðu 92% kvenna lengur en eitt ár og tvær af hverjum þremur kon- um lengur en fimm ár. Nú eru á lífi á sjöunda hundrað kvenna, sem greinst hafa með brjósta- krabbamein. „Það er okkar draumur, sem að þessu störfum, að unnt verði að nota þetta nýja brjóstaröntgen- tæki til rannsókna á öllum konum, sem til okkar leita, hvort sem grunur leikur á að þær séu með brjóstakrabbamein eða ekki,“ sagði Snorri. „Þess eru fjölmörg dæmi, að krabbamein í brjósti, sem alls ekki fannst við hefð- bundna skoðun með þreifingu, hafi fundist við röntgenmynda- töku. Þau brjóstaröntgentæki sem hafa verið notuð hér á landi, á Landspítalanum og á Fjórðungs- sjúkrahúsinu á Akureyri hafa gert mikið gagn, en þvi miður eru þau ekki lengur nógu fullkomin." Röntgenmyndatæki Krabba- meinsfélagsins gefur aukna mögu- leika á að greina krabbamein á frumstigi. Að auki er hægt að fá stækkaða mynd af meininu og staðsetja það nákvæmlega. Þegar meinið hefur verið staðsett er tek- ið úr því frumusýni. Ef ljóst er að krabbameinið er illkynja, þá er sprautað litarefni í meinið og eiga skurðlæknar þá auðveldara með að finna það og fjarlægja. Þetta gerir það að verkum, að ekki er nauðsynlegt að fjarlægja stóran hluta brjóstsins, eða brjóstið allt, til að vera þess fullviss að öll meinsemdin hafi verið numin £ brott. Eins og nú er háttað málum, verður þrautalendingin oftast sú að fjarlægja allt brjóstið, því krabbameinið greinist of seint og er orðið útbreitt. Síðbúin greining veldur þvi oft, að læknisaðgerðir verði umfangsmeiri en ella. j húsi Krabbameinsfélags ís- lands, „Húsinu, sem þjóðin gaf“ er starfsaðstaða mun betri en var í húsnæði félagsins við Suðurgötu. Húsnæði til brjóstaröntgen- myndatöku er á annarri hæð húss- ins, í Leitarstöð, og húsnæðisleysi ætti því ekki að hamla þvi að hóp- skoðanir verði hafnar með nýja tækinu. Snemma á næsta ári verð- ur farið að nota nýja tækið viá sérrannsóknir og í undirbúningi er að hefja skipulega leit meðal einkennalausra kvenna síðar á ár- inu, þegar fjárhagslegur grund- völlur verður fyrir hendi. „í landssöfnuninni árið 1982, sem bar yfirskriftina „Þjóðarátak gegn krabbameini" kom skýrt fram stuðningur landsmanna við starfsemi Krabbameinsfélaga landsins. Það er því ótvíræð skylda okkar, þegar þjóðin hefur sýnt vilja sinn í verki, að veita alla þá þjónustu sem mögulegt er að^ veita við rannsóknir á krabba- meini og gera allt sem í okkar valdi stendur til að ná sem bestum árangri í baráttunni við bennan sjúkdóm," sagði Dr. G. Snorri Ingimarsson, forstjóri Krabba- meinsfélags íslands, að iokum. RSv
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.