Morgunblaðið - 18.12.1984, Blaðsíða 32
32
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 18. DESEMBER 1984
GOTT TÆKIFÆRI
GOTT VERÐ
GÓÐ VARA
Nú gefst tækifæri til hagstæðra innkaupa á
ýmsum hlutum viðkomandi tölvum.
Eftirfarandi verðlisti sýnir einingaverð á
nokkrum þeirra.
Disketta 1 kr. 239.-
Disketta 2D kr. 279,-
Disketta 2D í PC kr. 212,-
Litaband í PC kr. 336.-
500 bls. A4 pappír kr. 207.-
Að sjáifsögðu býðst enn betra verð með magn-
kaupum eða t.d. PC pökkum.
PC-pakki I PC-pakki II
20 stk. diskettur 2D 30 stk. diskettur 2D
500 bls. A4 pappír 500 bls. A4 pappír
2 stk. litabönd á kr. 4.560.- 3 stk. litabönd á kr. 6.950.-
Gríptu þetta tækifæri, hafðu samband í síma
91-68 73 73, það borgar sig.
EEE -...EE=. — IBM á íslandi, Skaftahlíö 24,
= ==F ==== Reykjavík, sími (91) 68 73 73.
Vertu þ.ú sjálfur...
KENNÐU ÖÐRUM HVERNIG ÞÚ
VILT LATA KOMA FRAM VIÐ ÞIG
Ný bók eftir höfund bókarinnar „Elskaðu sjálfan þig”. Þessi nýja bók
____fjallar um að velja sjálfur. Hún byggir á þeirri meginforsendu að þú
hafir rétt til að ákveða hvemig þú viljir lifa lífinu, svo framarlega að
þú gangir ekki á rétt annarra. Þú getur fylgt eigin sannfæringu og stjómað
lífi þínu sjálfur í stað þess að hlaupa eftir dyntum annarra. Þú getur verið
ábyrgur og frjáls. Þú getur staðið á þínu án yfirgangs eða sektarkenndar
* því þetta er þitt líf og þú einn getur lifað því.
Dr. Wayne W. Dyer er víðkunnur
bandarískur sálfræðingur og
bækur hans hafa farið sem eldur
í sinu um allan hinn vestræna
heim. Bókin „Elskaðu sjálfan þig”
vakti gífurlega athygli og er bók
bókanna hjá mörgum þeim er
lesið hafa. Auðveldaðu þér listina
að lifa lífinu og njóta þess.
FRJÁLSASTIR ALLRA
ERU ÞEIR SEM
ÖÐLAST HAFA INNRI
RÓ OG FRIÐ
BRÆÐRABORGARSTÍG 16
SÍMI 2 85 55
Fólkið bíður eft-
ir aðstoð sem
kemst til skila
eftir Gunnlaug
Stefánsson
Préttirnar af hinni skelfilegu
neyð fólks á þurrkasvæðunum í
Eþíópíu vekja óhug. Veruleiki
neyðarinnar er við blasir er ólýs-
anlegur. Nær ómögulegt er fyrir
okkur, sem upptekin erum af öðru
vísi vandamálum, að setja okkur í
spor þessa líðandi fólks og skilja
raunir þess. Að deyja úr hungri
var hlutskipti margra Islendinga
á ýmsum tímaskeiðum í sögu þjóð-
arinnar. Að baki velmegun þjóðar-
innar i dag liggur striðandi bar-
átta kynslóða er lögðu líf af mörk-
um í grundvöll, sem við göngum
svo hnarreist á. Þessi saga vill
gjarnan gleymast f amstri dag-
anna. En við erum rækilega minnt
á þessa baráttu fortíðarinnar,
þegar við fréttum af slíkum hörm-
ungum I fjarlægu landi, þar sem
fólk heyr baráttu fyrir brauði upp
á líf og dauða.
Hungurdauði í
auðugum heimi
Það er erfitt að skilja hvernig
þvílíkt og annað eins geti gerst, að
fólk láti lífið úr hungri, hundruð
þúsunda, á tímum ótrúlegra fram-
fara á öllum sviðum mannlífsins.
Er það náttúrunni einni að kenna?
Eru ekki til næg matvæli í heim-
inum fyrir alla jarðarbúa til fram-
færslu? Eru þeir betur settu, sem
hafa nóg að bíta og brenna, af-
skiptalausir um þá sem þjást úr
hungri? Hafa stjórnvöld f löndum
neyðarinnar brugðist?
Spurningarnar hrannast upp.
Þegar stórt er spurt verður fátt
um svör. Gagnvart öðrum eins
vanda og hungrið er, dugir ekki
ein einhlít skýring. Þaðan af sfður
verður vart búist við því, að hung-
urvandinn verði leystur í eitt
skipti fyrir öll með einni skyndi-
lausn.
Þegar ógnin er skollin á, gefst
lítill tími til hugmyndafræðilegra
og pólitfskra umræðna. Yfirstand-
andi neyð verður tæpast bjargað
með rabbi yfir rjúkandi kaffi í
notalegu umhverfi á kaffihúsi í
góðra vina hópi. Það eina sem
dugir eru skjót viðbrögð til hjálp-
ar. Fáar þjóðir ættu að þekkja
betur hve stutt er milli lífs og
dauða þegar náttúran ógnar lifi en
íslendingar. Þá skiptir oft sköpum
að eiga björgunarsveitir i við-
bragðsstöðu, skipaðar þjálfuðu
liði, sem í krafti fórnfýsi leggja
sig oft i hættu svo öðrum megi
bjarga. Þegar við stöndum frammi
fyrir óumflýjanlegri neyð, þá
spyrjum við ekki fyrst: Af hverju?
Heldur: hvernig getum við bjargað
strax?
Hvað getum við
gert strax?
Þó neyðarkallið núna berist úr
fjarska, þá getur enginn komist
hjá að heyra neyðarhrópin. Tækn-
in hefur séð svo um að neyðin
stendur gjörsamlega nakin á
miðju stofugólfinu á hverju heim-
ili landsins. Stundum hvarflar að
manni að fólk deyi úr hungri í
beinni útsendingu nánast við fæt-
ur manns. Þær raddir heyrast, að
fjölmiðlarnir ættu að hlífa manni
við að þurfa að horfa á slíkar
hörmungar. En hvað sem slikar
raddir segja, þá verður ekki undan
því hlaupist, að þetta dauðans
ástand varir núna, og ef takast á
að fækka fórnarlömbum hungurs-
ins, duga ekki önnur ráð en öflugt
björgunar- og hjálparstarf.
Hjálparstofnun kirkjunnar
stendur nú fyrir landssöfnun til
hjálpar á þurrkasvæðunum í Afr-
RÚ LLUG LUGG ATJÖLD
pilu
I
Nýkomin sending af Pílu-rúllu-
gluggatjaldaefnum.
Ný mynstur, nýir litir. Úrval af glugga-
tjaldaefnum í sömu litum og mynstr-
um og Pílu-rúllugluggatjöld.
Kreditkortaþjónusta.
pilu
i-"
Pílu-rúllugluggatjöld,
Suðurlandsbraut 6, sími 83215
Metsölublúd á hverjum degi!